Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason824
Hrefna Þorbjörnsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason805
Þessi litli strákur heitir Þórður Gylfason
Guðrún Guðbjörnsdóttir056

Sigurður Guðmonsson með barnabarn sitt Hafþór Gylfason í fanginu. Myndirn er tekin við heimili Sigurðar, Þórsmörk sem hann var gjarnan kenndur við.

Ólafur Bernódusson011 - Copy - Copy
Lárus Ægir Guðmundsson rekur byggingasögu Bjarmaness eftir endurbyggingu þess 19. júní 2004.
Guðmundur Guðnason873
Hjónin frá Njálsstöðum með barnabörn sín. Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) með Rut Jónasdóttur og Hafsteinn Jónasson (d.11.6.1975) með Hörð Jónasson. Soffía og Hafsteinn fluttu til Skagastrandar eftir að þau hættu búskap og bjuggu í Sæbóli.
Guðmundur Guðnason806
Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka á fermingardaginn 1962
Guðrún Guðbjörnsdóttir089

Við háborðið sitja talið frá vinstri: Jón Ísberg sýslumaður, Anna Aspar, séra Pétur Ingjaldsson, Dómhildur Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, ?Brigit? (kona Sigursteins), Sigursteinn Guðmundsson læknir, Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir. Lárus Ægir Guðmundsson er í ræðustól. Ungi drengurinn er Ólafur Kristjánsson en maðurinn með gleraugun er Kristján Sigurðsson faðir hans. Aftan við þá eru Kristine Jóhannsdóttir og Þorsteinn Húnfjörð bakari.

Guðmundur Guðnason721
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Jóhanna Ásmundsdóttir, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var tekin á sýningu en Stendór og Jóhanna léku þar kærustpar og var strítt á því í skólanum það sem eftir lifði vetrar.
Guðmundur Guðnason811
Lengst til vinstri á þessari mynd er María Jónsdóttir úr Sænska húsinu (Hólabraut 23), ?Margrét Valdimarsdóttir? Hólabraut 1 og óþekkt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason716
Hólaneskirkja í kringum 1970.
Guðmundur Guðnason970
Héðinshöfði í vetrarsnjó. Þar bjuggu Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir með fjölskyldu sinni í norðurendanum en Kristinn Jóhannsson og Guðný Finnsdóttir með sinni fjölskyldu í Suðurendanum. Húsið sem grillir í fjær er Garður.
Guðmundur Guðnason875
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason809
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri með óþekktum vini sínum uppi á Höfða. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason674
Bryggjan í Hagnesvík skoðuð á ferðalagi til Siglufjarðar 15. júní 1968. Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún er í ljósum frakka. Til hægri við hann er óþekktur heimamaður en Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi snýr baki í myndavélina.
Guðmundur Guðnason808
Ester Axelsdóttir frá Læk á fermingardaginn 1962.
Guðmundur Guðnason723
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Guðmundur Guðnason866
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason900
Bylgja Angantýsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason766
Ás
Guðmundur Guðnason810
Anna Bára Sigurjónsdóttir frá Sunnuhlíð á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason966
Þrjár ungar stúlkur syngja og spila á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason886
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Rúnar Jósefsson, Ólafur Bernódusson, Ísleifur Þorbjörnsson, tveir óþekktir, Kristófer Einarsson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason820
Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962
Guðmundur Guðnason884
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir ferminguna 1965. Fremstur fer séra Pétur Þ. Ingjaldsson, þá Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Bergur Þórðarson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason949
Myndin er tekin á árunum 1958 - 1960. Engilbert Óskarsson flutningabílstjóri og Sigríður Helgadóttir kona hans voru að flytja til Reykjavíkur og héldu uppboð á nokkrum hluta muna sinna áður en þau fóru. Slík uppboð voru nokkuð algeng á þessum árum og voru ávallt vel sótt af fólki sem kom til að bjóða í hluti og reyna að gera góð kaup. Hér hefur Henry Kristjánsson gert góð kaup í dívan með teppi. Húsin í baksýn eru Höfðaberg sem er hvítt og Steinholt ómálað.
Guðmundur Guðnason825
Á myndinni eru frá vinstri: Lilja Ásmundsdóttir (d. 2.4.1990) frá Holti, Birna Bjarnadóttir, dóttir hennar og Steinunn Sveinsdóttir frá Ásbúðum sem ól Lilju upp. Á veggnum milli þeirra hangir mynd af hálfbróður Lilju, Hauki Hansen en þau voru sammæðra.
Guðrún Guðbjörnsdóttir079
Frá vinstri eru þetta félagarnir Fannar Viggósson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Guðmundur Jónsson að skemmta á skólaskemmtun hjá Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru þeir að "mima" lagið tvær úr Tungunum.
Guðmundur Guðnason813
Óþekkt kona fyrir framan en María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) í Sænska húsinu (Hólabraut 23) fyrir aftan. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason822

Anna Bára Sigurjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason773
Bjarmaland kringum 1970. Þá bjuggu þar hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) með dóttur sinni Áslaugu.
Guðmundur Guðnason774
Einar Páll Guðmannsson, frá Vindhæli.
Guðmundur Guðnason815
Systkini úr Akurgerði. Þröstur Þorbjarnarson og Sonny Lísa Þorbjarnardóttir.
Guðmundur Guðnason819
Fritz Bjarnason frá Bjargi
Guðmundur Guðnason814

Frændurnir Árni Björn Birgisson (til vinstri) og Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason816
Björn Hafsteinsson Fossdal á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason821
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason898
Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Gísli Snorrason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Myndin var tekin í mars 1962.
Guðmundur Guðnason904
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir
Guðmundur Guðnason719
Leikarar í Vekjaraklukkunni, sem sýnt var um páska 1964 á vegum Höfðaskóla í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson í Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir í Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Jóhanna Ásmundsdóttir í Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. .
Guðmundur Guðnason720
Ingvar Jónsson hreppsstjóri sinnir starfi sínu sem kynnir á sjómannadegi. Bak við hann er Björgvin Jónsson í Höfðabrekku. Rauðhærði strákurinn í bláu peysunni til vinstri er Óskar Jóhannesson. Myndin tekin á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason812
Sigurður Pálmason á femingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason889

Björn Aðils Kristjánsson (d. 25.5. 2005) frá Þórshamri með syni sína tvo árið 1963. Hægra megin við Björn er Hannes Björnsson en vinstra megin er Kristján Björnsson

Guðmundur Guðnason864
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðrún Guðbjörnsdóttir088
Í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) í Fellsborg 1981. Fremst á myndinni eru hjónin Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Viggó Brynjólfsson ásamt Kristjáni Hjartarsyni (d. 2.8.2003) frá Grund. Aftan við þau eru, talið frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) á Iðavöllum og Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) kona hans , Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), óþekktur, Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) og ?Ingvar Jónsson? (d. 18.1.2003).
Guðmundur Guðnason956
Dansað á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason878
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason928
Bjarnarhöfn á Skagaströnd. Byggt af Birni Fossdal á fimmta áratugnum. Þar bjuggu lengi Bjarni Loftsson og Fanney Jónsdóttir með fjórum dætrum sínum.
Guðmundur Guðnason957
Dansað á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Þekkja má Kjartan Bjarnason í miðjum hópnum með mikið ljóst hár og Lilju Guðjónsdóttur og Grétu Ingvarsdóttur sem báðar eru á dansgólfinu.
Guðmundur Guðnason852
Þessi götumynd er gjörbreytt í dag því öll húsin sem sjást á myndinni eru horfin og ný komin í stað þeirra. Myndin var sennilega tekin kringum 1960. Lengst til vinstri sér í útihús tilheyrandi Sunnuhlíð (Bogabraut 19) þá kemur Akurgerði (Hólabraut 9). Goðhóll (Hólabraut 10) er næstur og ef vel er að gáð má sjá Þorkel Magnússon (d. 30.8.1968), íbúa þar, fyrir utan húsið.Til hægri er svo Baldursheimur sem stóð á milli þar sem í dag eru Hólabraut 10 og Fellsbraut 9.
Guðmundur Guðnason817
Guðbjörg Þorbjarnardóttir frá Akurgerði með litlu systur sína Sonny Lísu Þorbjarnardóttur.
Guðmundur Guðnason848
Bergstaðakirkja í Svartárdal.
Guðmundur Guðnason877

Eiríkur Grímsson frá Ljótshólum.

Guðmundur Guðnason914
Fjárhús á Kerlingarholti
Guðmundur Guðnason954
Dansað í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason860
Snjór í útbænum. Húsin á myndinni eru, frá vinstri: Mjölskemma SR, "Bragginn", Skáli (Norður og Suður Skáli), vigtarskúr hafnarinnar, Síldarverksmiðja Ríkisins, Garður, Kaupfélagið, Kaupfélagsskemman, Gamla fjósið og Héðinshöfði. "Bragginn", vigtarskúrinn, Garður og Héðinshöfði hafa nú öll verið rifin.
Guðmundur Guðnason962

Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.

Guðmundur Guðnason950
Þetta skilti var yfir dyrunum á réttarskúrnum sem var við Spákonufellsrétt. Skiltið málaði Sveinbjörn Blöndal og fyrirmyndin að manninum sem er að draga var Ólafur Guðmundsson í Brautarholti.
Guðmundur Guðnason901
Hof í Skagabyggð. Nú hefur íbúðarhúsið verið jafnað við jörðu og nýtt byggt á svipuðum stað.
Guðmundur Guðnason888
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fermir fyrir fullri kirkju í Hólaneskirkju (gömmlu). Maðurinn sem stendur á myndinni er Ingvar Jónsson.
Björn Bergmann 015
Húsnæði skipasmíðastöðvarinnar var í gömlu mjölskemmu síldarverksmiðjunnar. Stöðin nýtti austari helming hússins þ.e. þann hluta sem fjær er á myndinni. Stórar dyr voru settar á hliðina sem að okkur snýr á myndinni og bátarnir teknir þar út þegar þeir voru sjósettir.
1

5
6
7

65
Leita í myndasafninu
Leita