Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 915
Sunna Björg Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Bogabraut 16 Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 744
Akurgerði stóð þar sem nú er Hólabraut 9. Í Akurgerði bjó á sínum tíma 15 manna fjölskylda þeirra Þorbjörns Jónssonar (d.2.9.1986) og Aðalbjargar Sigurðardóttur (d.10.12.2015). Takið eftir veginum sem liggur norður - suður ofan við húsið. Sá vegur er nú undir húsinu að Hólabraut 11.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 955
Guðlaugur Ómar Guðmundsson afhendir Hönnu Lísu Hafliðadóttur (d. 13.7.2015) happdrættisvinning á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 944
Árleg er haldin brunaæfing í Höfðaskóla í samvinnu við slökkviliðið á Skagaströnd. Þá er tæmingaráætlun skólans virkjuð til að kenna nemendum rétt viðbrögð og til að læra hvað betur má fara í neyðartilvikum eins og ef eldur kemur upp í húsnæðinu. 13. desember 2007 var haldin slík æfing og til að gera hlutina sem raunverulegasta var forstofan fyllt af reyk og nemendurnir þurftu að fara í gegnum kófið með kennurum sínum. Á myndinni er Elva Þórisdóttir að taka við nemendum um leið og þeir koma út úr reyknum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1082
Frá lokaballi Höfðaskóla í Kántrýbæ 27. maí 2010. Krakkarnir hafa valið nemendurna á myndinni sem það sem á borðunum stendur. Nemendurnir eru frá vinstri: Stefán Velemir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Alma Dröfn Vignisdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson og Eva Dís Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 905
Sigurður Aron Björnsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 873
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru stelpurnar að dansa fyrir fólk. Frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Hanna Lísa Gestsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Anna María Magnúsdóttir.
larus038
Myndin var tekin 1. ágúst 1991 eftir að glerlistaverki var komið fyrir sem altaristafla í austurglugganum í Hólaneskirkju. Til vinstri standa presturinn séra Egill Hallgrímsson, Leifur Breiðfjörð glerlistamaður og höfundur töflunnar er í miðjunni en lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar kirkjunnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fermingarbörn ganga úr skólanum til kirkju með prestinn, séra Pétur Þ. Ingjaldsson í fararbroddi. Með því að bera saman myndina og nútímann sjást miklar breytingar á umhverfinu.
larus058
Vígslumessa Hólaneskirkju 20. október 1991. herra Ólafur Skúlason biskup og séra Egill Hallgrímsson fyrir altarinu. Vinstra megin sitja vígslubiskuparnir: séra Bolli Gústavsson (nær) og séra Sigurður Guðmundsson (fjær). Hægra megin sitja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (fjær) óþekktur prestur (nær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 909
Arnrún Ösp Guðjónsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 805
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Cristina Silod Yecyec, Inga Rós Sævarsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir (fremst), Bára þorvaldsdóttir (í miðju), Agnes Sævarsdóttir (aftast), Lilja Ingólfsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur baksvipur, Hallbjörg Jónsdóttir, tvær óþekktar konur og Guðrún Sigurðardóttir fremst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 910
Linda Rún Einarsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 768
Vinirnir Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í íþróttahúsinu 15. mars 2008 á einhverjum óþekktum viðburði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1246
Valgerður Guðný Ingvarsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1182
Jól í Árnesi 2011
Árni Geir Ingvarsson - safn
Sunnuhlíð - Bogabraut 19. Húsið hefur verið rifið og nýtt byggt á lóðinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1215
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin ofan úr síldar-löndunarkrananum sem stóð fremst á Ásgarði eða löndunarbryggjunni ein og hún var oft kölluð, og yfir hluta hafnarinnar og útbæjarins. Bátarnir eru óþekktir en þeir voru keyrðir upp í fjöru á hverju ári til að hægt væri að mála botninn á þeim þar í strandi. Bryggjan sem bátarnir liggja við var alltaf kölluð "Litla bryggja". Frá sama sjónarhorni í dag sést að útbærinn hefur breytst töluvert síðan myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1089
Myndin var tekin 11. júní 2010 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhefndir eigendum Spákonuhofsins lyklana að Gömlu tunnunni þar sem Spákonuhofið er til húsa í dag. Áður hafði áhaldahús hreppsins verið í húsinu. Kaupendurnir eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1195
Grunnskólabörn flytja helgileik á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010. Frá vinstri: Anita Ósk Ragnarsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Anton Þór Einarsson.
larus037
Leifur Breiðfjörð glerlistamaður stendur hér við altaristöfluna í Hólaneskirkju 1. ágúst 1991 en hún er hans sköpunarverk og mikil kirkjuprýði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 903
Birkir Freyr Gunnarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1241
Myndin var tekin 23. mars 2012 í Fellsborg á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla, sem haldin var um kvöldið. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir umsjónakennari, Almar Atli Ólafsson, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Gabríel Goði Tryggvason, fjórir óþekktir nemendur, María Gret Gunnarsdóttir, Karen Líf Sigurbjargardóttir, tvær óþekktar stúlkur, Brynjar Daði Finnbogason, Hlynur Hafliðason og Brynja Hödd Ágústsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 901
Eymundur Lórens Grétarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 875
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að leika kennslustund eins og hún var um 1939 þegar Höfðaskóli var stofnaður. Frá vinstri á myndinni: Óþekktur (sitjandi), Tinna Björk Gunnarsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Ragnar Már Björnsson, Eyþór Vilhjálmsson, Anna Dúna Rúnarsdóttir og Jón Atli Magnússon. meðal áhorfenda má þekkja Patrik Snær Bjarnason með svarta húfu.
Ólafur Bernódusson 972
Myndin var tekin í efra gangi Höfðaskóla 1984. Börnin á myndinni eru óþekkt en þessi staður í skólanum er gerbreyttur í dag. Þarna er nú vinnuaðstaða kennara og fuglaskápurinn fyrir enda gangsins er horfinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1251
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkurinn að sýna atriðið sitt. Frá vinstri: ? Jónasdóttir?, Páll Halldórsson, óþekkt, Linda Rún Einarsdóttir, óþekkt, Sæunn Steingrímsdóttir og Anton Þór Einarsson. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1198
Myndin var tekin rétt fyrir aðventukvöld í Hólaneskirkju 5. desember 2010. Á henni er séra Úrsula Árnadóttir að fara yfir málin með upplesurum um kvöldið. þeir eru frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) og Kristján Örn Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 953
Þessar þrjár blómarósir skemmtu sér vel á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 938
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri í árlegri heimsókn í Höfðaskóla 11. desember 2007. Þá fer hann yfir ýmislegt gagnlegt í sambandi við eldvarnir á heimilum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1242
Myndin var tekin 23. mars 2012 í Fellsborg á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla, sem haldin var þá um kvöldið. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Guðrún Björgvinsdóttir, Ólafur Halldórsson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Árnason, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Arna Rún Arnarsdóttir. Framan við nemendurna stendur ?Erna Berglind Hreinsdóttir?umsjónakennari .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1244
Elvar Geir Ágústsson vinstra megin og Einar Ari Einarsson hægra megin, ljósa- og hljóðmenn, á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Myndin var tekin á síðust æfingu þá um morguninn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1010
Myndin var tekin 13. febrúar 2007 þegar hús rafmagnsverkstæðisins Neistans við Strandgötu/Einbúastíg var rifið. Húsið átti sér merka sögu því þar rak Sigurður Sölvason (d.24.9.1968) lengi verlunina Borg sem hann átti. Sigurður var kaupmaður af gamla skólanum og rak útflutning á ull og fleiri afurðum bænda frá verslun sinni og flutti jafnframt inn ýmsar vörur. Eftir að Sigurður lést keyptu tveir ungir rafvirkjar húsið undir fyrirtæki sitt Neistann. Seinna byggði fyrirtækið sér stærra og hentugra hús hinum megin við götuna og þá stóð þetta hús autt að mestu þar til það var rifið 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 946
Myndin var tekin í íþróttasalnum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Á henni situr Ólafur Bernódusson kennari með umsjónarbekknum sínum og fylgist með happadrættisútdrætti. Á bekknum aftan við Ólaf eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson, Torfi Friðrik Magnason, Viktor Örn Valdimarsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Guðjón Pálsson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1048
Lárus Ægir Guðmundsson málar með gluggunum á gamla Hólanesfrystihúsinu H-59 sunnan undir Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið sumarið 2016.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1248
Lilja Dögg Hjaltadóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 838
Myndin var tekin 11. júní 2008. Þá voru menn hálfnaðir með að rífa viðbyggingar við Árnes áður en uppbygging hússins hófst. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson gröfumaður, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurður Björnsson smiður og Heiðmar Kristjánsson handlangari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 956
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 inni í stofu hjá miðstiginu þegar óþekktur jólasveinn úr Spákonufellinu kom í heimsókn. Frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir jólasveinn Leppalúðason og Elva Dröfn Árnadóttir kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 931
Nemendur föndra fyrir jólin í Höfðaskóla 10. desember 2007. Frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson og Hanna Lísa Hafliðaflidóttir (d.13.7.2015).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 934
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 11. desember 2007. Nemendurnir eru, frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson og Sæunn Ósk Steingrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 899
Elín Ósk Björnsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 763
Myndin var tekin yfir Skagaströnd frá hringsjánni á Höfðanum 17. júní 2007. Konan á myndinni er Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1081
Þessi mynd var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla 27. maí 2010 í Kántrýbæ. Þá völdu krakkarnir, til gamans, hina ýmsu fulltrúa eins og sjá má á myndinni. Útnefningarnar áttu að vera lýsandi fyrir hegðun og framkomu viðkomandi yfir veturinn. Á myndinni eru í fremri röð: Sigurlaug Máney Sæmundsen sem valin var "Krútt" ársins og einnig "Ungfrú stríðin". Hjá henni er Ívan Árni Róbertsson sem valinn var "Herra stríðinn". Í aftari röð eru frá vinstri: Stefán Velemir "Kóngur" ársins, Telma Dögg Bjarnadóttir "Drottning" ársins, Eva Dís Gunnarsdóttir "Ljóska" ársins og "Herra skellur", Erna Björgvinsdóttir "Herra lítill" og Alma Dröfn Vignisdóttir "Prinsessa" ársina og "Ungfrú Sól".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 943
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir saumar í og Elín Ósk Björnsdóttir fylgist með á föndurdegi í Höfðaskóla - íþróttahúsi- 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1427
Myndin var tekin 4. febrúar 2011 ofan af efstu hæðinni í verksmiðjunni. Á henni sér ofan á þrærnar 12 sem notaðar voru til að geyma síldina í áður en hún fór inn í verksmiðjuna til bræðslu. Beggja megin við þrærnar voru hólf/skúrar en þar var geymt salt og/eða annað íblöndunarefni í síldina til að hún skemmdist ekki. þakið lengst frá okkur hylur aðrar fjórar þrær sem síðustu árin geymdu eitthvað annað en síld. Þrærnar voru svo brotnar niður og fjarlægðar í maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 950
Ágúst Ingi Ágústsson kennari (með bindi) situr hjá umsjónarbekknum sínum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum og bíður eftir að hefja dans kringum tólatréð. Nemendurnir eru frá vinstri: Ísabella Róbertsdóttir, óþekkt, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Óskar Björnsson, Indriði Björnsson, Sólrún Ágústa Magnadóttir og Laufey Inga Stefánsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1487
Íþróttamaraþon 25. mars 2011 í íþróttahúsinu á vegum Höfðaskóla. Krakkarnir stunduðu íþróttir í heilan sólarhring og söfnuðu áheitum til að komast í skólaferðalag til útlanda. Á myndinni eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt, Indriði Theódór Hjaltason, tvö óþekkt, Róbert Björn Ingvarsson, Aron Snær Fannarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Magnús Jens Magnússon, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Einar Ari Einarsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ívan Árni Róbertsson, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, óþekktur og Rakel Jensína Jónsdóttir.
larus053
Myndin var tekin í vígslumessu Hólaneskirkju 20. október 1991. Sóknarpresturinn séra Egill Hallgrímsson er við altarið en til vinstri sitja, frá vinstri: séra Bolli Gústavsson vígslubiskup, séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup og Herra Ólafur Skúlason biskup. Hægra megin eru, frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson og óþekktur prestur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 914
Auðunn Árni Þrastarson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 925
Þrír ungir menn í jólaföndri í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007. Frá vinstri: Magnús Jens Magnússon, Jóhannes Sigurpálsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 945
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla 13. desember 2007. Þá var enn kennt á báðum hæðum í íþróttahúsinu og myndin sýnir Herdísi Baldvinsdóttur kennara hjálpa Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur við að komast í brunastigann af svölum efri hæðarinnar. Það er hluti af tæmingaráætlun skólans að nemendur og aðrir sem eru á efri hæðinni í húsinu fari út á svalirnar og síðan niður stigann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 930
Sylvía Ósk Hrólfsdóttir í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1263
Leikskólabörn af Barnabóli í Hólaneskirkju ásamt tveimur kennurum sínum 29. mars 2012. Tilefnið er ekki þekkt en á myndinni eru frá vinstri: Guðlaug Grétarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri, Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir, óþekktur Guðjónsson, Óðinn Örn Gunnarsson, Ásgeir Sigmar Björnsson (fjær) og Sóley Sif Jónsdóttir (nær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1252
Myndin var tekin á aðalæfingu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg um morguninn 23. mars 2012. Hátíðin sjálf var svo um kvöldið. Á myndinni eru Eva Dögg Björgvinsdóttir og Arnar Páll Guðjónsson að kynna næsta atriði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 913
Sæunn Ósk Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1338
Danssýning 12. október 2012 í íþróttahúsinu. Krakkarnir á myndinni stíga hringdans undir stjórn Köru Arngrímsdóttur danskennara.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1536
Friðsæl kvöldmynd af Hólaneskirkju 7. desember 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 891
Tanja Rán Eirnarsdóttir og Harpa Hlín Ólafsdóttir undirbúa litlu jólin í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1197
Myndin var tekin á aðventukvöldi 5. desember 2010 eftir að öll ljós í kirkjunni voru slökkt og allir viðstaddir fengu lifandi ljós á kertin sín meðan þeir sungu saman Heims um ból. Á myndinni er Sylvía Hrólfsdóttir með ömmustelpuna sína, Arnrúnu Hildi Hrólfsdóttur en í baksýn sér m.a. í kór kirkjunnar.
1
…
59
60
61
…
65
Leita í myndasafninu
Leita