Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1677
Platan steypt á nýjum viðlegukanti - Sægarði - í Skagastrandarhöfn síðsumars 1991. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 129
Börnin á myndinni voru fermd í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1985. Í fremri röð eru, frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, Erlingur Ottósson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Vigdís Ómarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Viggó Magnússon, Ægir Thorberg Jónsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson og Baldur Bragi Eðvarðsson. Presturinn, séra Oddur Einarsson, situr framan við hópinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1556
Þetta mun vera ein af síðustu myndunum sem tekin var af verksmiðjuþrónum áður en þær voru brotnar niður og fjarlægðar. Vinnuvélarnar eru mættar til að byrja verkið. Eins og sjá má fengu listamenn útrás fyrir sköpunargáfu sína á stafninum og til eru þeir sem sakna skjaldarmerkisins. Myndin var tekin 3. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1698
23. október 2010 var haldin Gospelmessa í Hólaneskirkju. Dagana á undan hafði Óskar Einarsson æft upp söngprógram með kirkjukórnum og nokkrum gestum sem fengu að syngja með. Myndin var tekin í messunni af litlum hluta kórsins. Fremst eru frá vinstri: Berglind Björnsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir og óþekkt kona. Aftar frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær), Bára Þorvaldsdóttir (fær), Kristín Kristmundsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Inga Rós Sævarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1001
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á þessari mynd er málun og sköpun í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: ?Guðrún Elsa Helgadóttir?, María Gunnarsdóttir (fjærst), óþekkt, Þóra Ágústsdóttir með pensil á lofti. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ásta Ósk Ásgeirsdóttir og Sigurbjörg Jónasdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 5
Útveggir íþróttasalar íþróttahússins komnir vorið 1997. Steypu"fæturnir" til hægri eru til mótvægis við límtrésbitana sem koma þegar húsið er reist.
Ólafur Bernódusson 983
"Svona gerum við þegar...." sungið og leikið á litlu jólum 1983 í Höfðaskóla. Krakkarnir eru frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Inga Kristjánsdóttir og tvö óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1689
Myndin var tekin 10. mars 1995 af Höfðaborg (Bankastræti 9). Á tröppunum stendur Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og býr sig undir að moka tröppurnar hjá sér.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1494
23. október 2011 var haldið upp á 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju með hófi í Fellsborg eftir messu í kirkjunni. Myndin var tekin í hófinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1618
Myndin var tekin 1. febrúar 2012 af Báru Þorvaldsdóttur við vinnu sína sem bókavörður í Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson 1005
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er verið að baka pönnukökur fyrir alla í skólanum. Lengst til vinstri eru tvær óþekktar. Ása Ásgeirsdóttir er við enda borðsins. Þá koma frá vinstri: óþekkt, Elísabet Hallbjörnsdóttir, óþekkt, Árný Helgadóttir (fjær), Elín Ómarsdóttir (nær),tveir óþekktir, Hólmgeir Kristmundsson og óþekkt.
Helgi Gunnarsson 4
Unnið við að steypa upp neðri hæð íþróttahússins vorið 1997. Steypan kom frá Steypustöð Blönuóss en Sigurjón Ásarsson hífði steypuna með Benz vörubíl sínum. Starfsmenn Helga Gunnarssonar taka á móti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1723
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1965. Á henni sjást, til hægri, tvö ker sem verið er að hækka. Kerin sjálf voru steypt í slippnum neðan við Bjarmanes og síðan fleytt að Skúffugarði og byggt ofan á þau þar. Á myndinni má sjá horfna húsið, Efri-Læk, yfir vinstra hornið á Hafnarhúsinu, sem er stóra skemman fyrir miðri mynd.
Ólafur Bernódusson 1086
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 1999. Þau eru, fremri röð frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Trostan Agnarsson kennar, Birkir Gunnarsson og Eymundur Lórens Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1640
Sumarhús og gömul Lada Sport að Mánavík á Skaga 13. júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1642
Hraun II á Skaga 13. júní 2011.
Ólafur Bernódusson 1080
Hópur bekkjarfélaga í framkalli eftir að hafa sýnt skemmtiatriði sitt á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Freydís Kristjánsdóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson, Dagný Dís Bessadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson, Haraldur Guðjónsson og Pascal Gruenberger.
Ólafur Bernódusson 1023
Myndin var tekin í Höfðaskóla í nóvember 1998 þegar þar stóð yfir lestrarátak. Nemendur komu sér þá vel fyrir þar sem þeir vildu og lásu sér til skemmtunar í hálftíma á hverjum morgni. Á myndinni eru, talið frá hægri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1013
Myndin var tekin 1985 þegar verið var að leggja síðustu hönd á smíði Skíðaskálans í hlíðum Spákonufellsins. Á henni eru frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, Magnús B. Jónsson og Magnús Sigurðsson. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 976
Strákarnir eru að stækka mynd eftir fyrirmynd á myndvarpanum. Strákarnir eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Jóhannes Heiðmar Indriðason. Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984.
Ólafur Bernódusson 1003
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er Ingibergur Guðmundsson kennari að skipuleggja skólablað með nokkrum nemendum. Frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, óþekktur, Svanur Árnason, óþekkt (nær), Ingibergur, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og þrjú óþekkt.
Helgi Gunnarsson 21
Það er skemmtilegur siður að flagga á húsum þegar búið er að reisa allar sperrurnar. Þá er reisugilli gjarnan með einhverjum veitingum til handa þeim sem verkið unnu. Á myndinni er búið að reisa allar sperrurnar í iþróttahúsinu og því reisugilli í gangi.
Helgi Gunnarsson 40
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 24. apríl 1998, eru menn að vinna við efri hæð hússins. Mennirnir eru,frá vinstri: Baldvin Hjaltason, óþekktur, Rúnar Kristjánsson og lengst til hægri sér í Sigurð Björnsson.
Ólafur Bernódusson 973
Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), bæjarverkstjóri á Skagaströnd, fær kaffisopa á kennarastofunni í Höfðaskóla veturinn 1983-84.
Ólafur Bernódusson 1004
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Þessi hópur er að vinna við sauma gardínukappa. Vinstra megin við borðið er Bryndís Ingimarsdóttir og óþekkt stúlka. Hægra megin er óþekkt stúlka næst gluggunum, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir í miðjunni og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) næst okkur. Strákurinn við saumavélina er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari666
Sæból stóð u.þ.b. þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Sæból brann 1987 og var rifið upp úr því. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1076
Jóhann Almar Reynisson til vinstri og Dagur Freyr Róbertsson til hægri kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1077
Pascal Gruenberger ábúðafullur sem hljóðmaður í skemmtiatriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Óþekktur ljósmyndari559
Ásberg (Ásbyrgi) á Skagaströnd, stóð á næstu lóð sunnan við Breiðablik. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1050
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998.Eins og sjá má var húsfyllir í messunni.
Helgi Gunnarsson 33
Hálfnað verk þá hafið er. Hér er búið að leggja parket á helming salarins í íþróttahúsinu. Ofan á steypta plötuna er smíðuð flókin grind sem parketið er síðan lagt á. Þetta á að tryggja að gólfið sé mátulega mjúkt og eftirgefanlegt til að koma í veg fyrir meiðsli þeirra sem stunda iþróttir í salnum. Myndin var tekin haustið eða veturinn 1997 - 1998.
Ólafur Bernódusson 1024
Krakkarnir á myndinni eru að lesa sér til gamans í lestrarátaki í Höfðaskóla í nóvember 1998. Frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir og Birna Þórkatla Sæmundsdóttir. Nemandinn til hægri er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1644
Hraun á Skaga 13. júní 2011. Vitinn á Skagatá er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1615
Nýsmíðað sumarhús sett á dráttarvagn til flutnings frá trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar út að Tjörn á Skaga, þar sem því var komið fyrir. Myndin var tekin 26. maí 2011.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn141
Stórholt eða Bankastræti 3. Í húsinu voru þrjár íbúðir; ein á tveimur hæðum norðanmegin (til vinstri á myndinni), ein uppi að sunnan og önnur á jarðhæð þeim megin. Auk þess er sameiginlegur kjallari undir húsinu,
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1653
Myndin var tekin 6. mars 2012 þegar nemendur Höfðaskóla léku leikritið Latibær í Fellsborg. Leikararnir eru: yst til vinstri Rakel Jensína Jónsdóttir ofar og Guðrún Rós Hjaltadóttir neðar. Fyrir miðju frá vinstri: Eva Ósk Björgvinsdóttir, ?Birta Dögg Bessadóttir?, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Aldís Embla Björnsdóttir. Til hægri er Aron Breki Hjartarson ofar og óþekktur neðar. Á sviðsbrúninni situr Aron Snær Fannarsson. Ef þú þekkir óþekkta leikarann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helgi Gunnarsson 28
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tæknifræðingur sveitarfélagsins til vinstri og Helgi Gunnarsson verktaki til hægri fagna með veisluföngum í reisugilli íþróttahúsinu sumarið 1997.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1643
Hraun 3 á Skaga 13. júní 2011.
Ólafur Bernódusson 1073
Kristmundur Baldvinsson og Dagný Dís Bessadóttir kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Helgi Gunnarsson 41
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 24. apríl 1998, er verið að raða bjálkunum saman í veggjum efri hæðarinnar.
Helgi Gunnarsson 29
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins af starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem sá um að byggja húsið. Mennirnir eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Rúnar Kristjánsson, Björn Sigurðsson, Rolf Árnason (d.3.6.2014), Hrólfur Pétursson, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurjón Karlsson, Einar Gunnarsson, Gunnar Dór Karlsson, Árni Max Haraldsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), óþekktur, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Gunnar Helgason, Magnús Hjaltason og Hjörtur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson 1072
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 30. nóvember 2017 í Fellsborg. Á henni syngja nemendur úr tveimur bekkjum saman. Aftari röð frá vinstri: Gabríel Goði Tryggvason, Hlynur Árnason, Anna Marie Gruenberger og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Í fremri röð frá vinstri: Bjarni Bragi Bessason, Sigurjón Ýmir Alexson, Arnar Gísli Birkisson, óþekktur, Lárey Mara Sigurðardóttir, Birgitta Finnbogadóttir, óþekktur og Gunndís Katla Þrastardóttir.
Ólafur Bernódusson 1075
Freydís Kristjánsdóttir og Daði Snær Stefánsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Óþekktur ljósmyndari622
Karlsminni stóð við Strandgötu á túninu (Karlsminnistúninu) á milli Lækjarbakka og Strandgötu 10. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1051
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998. Eins og sjá má var svo vel mætt í messunni að fólk stóð og þurfti jafnvel að sitja á gólfinu.
Ólafur Bernódusson 1109
Víkur á Skaga 18. ágúst 2014.
Ólafur Bernódusson 876
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að syngja fyrir fólk og leika það sem sungið er um. Krakkarnir eru frá vinstri: Ómar Ísak Hjartartarson, Patrik Snær Bjarnason, tvö óþekkt, Rósa Björg Einarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir ? (fjær), óþekkt (nær), Lilja Nótt Sævarsdóttir, óþekktur, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og óþekkt. Lengst til hægri stendur Aðalheiður Sif Árnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari595
Garðhús var heimili Konráðs Klemenssonar (d.18.11.1981) og konu hans Ólínu M. Sigurðardóttur (d. 22.5.1962) og barna þeirra. Garðhús stóð við Fjörubraut og húsið næst norðan við það er Grund og lengra frá sér í Hjallholt. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1082
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Sigurpálsson.
Helgi Gunnarsson 39
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 21. apríl 1998, eru veggir komnir upp að milligólfi hússins.
Ólafur Bernódusson 982
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983. Krakkar úr 11 ára bekk flytja frumsaminn leikþátt fyrir aðra nemendur skólans. Leikararnir eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Friðrik Birgisson og Hólmfríður Oddsdóttir.
Helgi Gunnarsson 27
Reisugilli í íþróttahúsinu sumarið 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014), helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Gunnar Dór Karlsson og Árni Max Haraldsson.
Óþekktur ljósmyndari506
Ásbúðir á Skaga. Myndin, sem var tekin 1948, er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir136
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Réttarholt, heimili Jóns í áratugi. Ekki er vitað hvað fólk er á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1574
Þessi mynd frá 6. maí 2011 sýnir hvernig umhorfs var inni í þró verksmiðjunnar eftir að búið var að brjóta niður vesturvegg hennar. Milli súlanna á myndinni var færiband í botninum sem flutti síldina inn í verksmiðjuna sjálfa til vinnslu. Þess vegna var botninn í þrónum hafður hallandi inn að miðju eins og sjá má ef myndin er skoðuð vel.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1493
23. október 2011 var haldið upp á 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju með hófi í Fellsborg. Þar var þessi mynd tekin. Við borðið næst okkur sitja frá vinstri: Agnar Gunnarsson, séra Sveinbjörn Einarsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Viggó Brynjólfsson, Steindór Haraldsson, séra Dalla Þórðardóttir, Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson og Árni Geir Ingvarsson.
Óþekktur ljósmyndari638
Lækjarbakki. þetta hús stóð örlítið vestan við núverandi íbúðarhús við Strandgötu. Síðustu árin áður en það var rifið var það notað sem fjárhús. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1565
Á myndinni er verið að byrja á að rífa niður þrærnar við síldarverksmiðjuna 4. maí 2011 með stórvirkum vinnuvélum.
Ólafur Bernódusson 1081
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir 2001. Þau eru, frá vinstri: Birgitta Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Árnason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1099
Þessi mynd frá 18.febrúar 2014 sýnir framkvæmdir við lengingu á viðlegukanti Miðgarðs. Þar kom svo þriðji löndunarkraninn eins og þekkt er. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
1
…
61
62
63
64
65
Leita í myndasafninu
Leita