Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 1081
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir 2001. Þau eru, frá vinstri: Birgitta Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Árnason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1002
Myndin var tekin 1985 í Höfðaskóla í vinnuviku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnustöðvar til að vera í. Á myndinni eru frá vinstri: Björk Axelsdóttir kennari, Brynjar Pétursson, Svava Magnúsdóttir (nær), Aðalheiður Sif Árnadóttir (fjær), Margrét Anna Jóhannsdóttir, óþekktur, (fjær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (nær), Ba Eðvarðsson, Jón Pálsson skólastjóri og Áslaug Jóhannsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1617
Sumarhús, byggt af Helga Gunnarssyni og hans mönnum, á leiðinni upp Fellsbraut áleiðis að Tjörn Skaga þar sem stendur í dag. Myndin var tekin 26. maí 2011.
Helgi Gunnarsson 23
Helgi Gunnarsson, verktaki við byggingu íþróttahússins, við hluta veitinganna sem hann og konan hans, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, buðu starfsmönnum sínum og undirverktökum upp á í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Helgi Gunnarsson 26
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Sigurjón Ástmarsson, Rúnar Kristjánsson, Baldvin Hjaltason, Rolf Árnason (d.3.6.2014) og Helgi Gunnarsson sem situr á stólnum.
Óþekktur ljósmyndari633
Litla- Berg stóð nokkurn vegin þar sem húsið við Fellsbraut 2 er í dag. Stóra- Berg stóð austan við Iðavelli stutt suð-austur af Hólaneskirkju. Bæði þessi hús eru nú löngu horfin. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1144
Vormynd af Skagaströnd. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn417
Pálmalundur eða Hólabraut 27 á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari533
Myndin sýnir þrjú af húsunum sem stóðu í Kálfshamarsvík á sínum tíma. Í Kletti bjuggu hjónin Þorsteinn Þorsteinsson (d.27.10.1951) póstur og Halldóra Guðmundsdóttir (d.4.6.1956). Þau eignuðust tvö börn sem bæði fæddust andvana. Í Hátúni bjuggu Margrét Ferdínandsdóttir (d.13.2.1955) og maður hennar Jóhann Helgason (d.5.4.1932). Skólahúsið var svo skóla- og samkomuhús fólksins í Kálfshamarsvík. Síðast var búið í víkinni 1951. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1614
Myndin var tekin 26. maí 2011. Karlarnir á henni eru að undirbúa flutning á nýsmíðuðu sumarhúsi frá verkstæði Helga Gunnarssonar út að Tjörn á Skaga. Mennirnir eru frá vinstri: Rúnar Kristjánsson, Gísli Snorrason, Sæþór Bragi Ágústsson ?, Jakob Guðmundsson og Einar Gunnarsson.
Óþekktur ljósmyndari525
Skepnuhús við bæinn Hólma á Skaga. Greinilega að mestu byggð úr torfi eins og tíðkaðist á Íslandi um aldir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Helgi Gunnarsson 31
Hallbjörn Björnsson rafvirki sá um rafmagnið í íþróttahúsinu. Myndin af honum þar var tekin 26. nóvember 1997.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 030
Jaðar eða Neðri Jaðar var byggt upp úr 1940. Húsið byggði Björn Sigurðsson eftir eigin hugmynd/teikningu fyrir fjölskyldu sína. Á þessum árum var erfitt að fá byggingarefni vegna heimsstyrjaldarinnar þannig að Björn átti bara nóg timbur til að steypa þrjár borðbreiddir af veggjum í einu. Húsið einangraði hann með torfi eins og venja var. Erfiðast var að fá járn t.d. þakjárn á húsið og þurfti að hafa úti allar klær til að það tækist. Húsið er í Funkis stíl einfalt og stílhreint. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson sem alinn var upp að Jaðri.
Ólafur Bernódusson 1025
1998 hélt séra Guðmundur Karl Brynjarsson út vinsælu unglingastarfi í Hólaneskirkju. Myndin var tekin í nóvember á einni unglingastundinni uppi á lofti í kirkjunni. Séra Guðmundur stendur til hægri en unglingarnir eru, frá vinstri: Birna Þórkatla Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekktur, Eva Rún Rúnarsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, tveir óþekktir, Vignir Örn Hafþórsson, Eyþór Ernstson, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Óþekktur ljósmyndari605
Háagerði kringum 1940. Þarna stendur golfskáli í dag.
Óþekktur ljósmyndari582
Myndin var tekin úr Spákonufellsey um 1910. Kletturinn lengst til vinstri er hluti af Einbúanum sem enn er ósnertur vegna álfabyggðar sem þar er. Háreistu húsin eru gömlu verslunarhús Skagastrandarverslunar (Höfðaverslunar). Aðrar byggingar á myndinni eru íbúðarhús. Allt svæðið á myndinni er nú undir landfyllingum og öðrum mannvirkjum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari561
Þessi mynd af útbænum á Skagaströnd var tekin 1910. Eyjan, sem talað er um í textanum, er Spákonfellsey sem í dag er hluti af Skagastrandarhöfn. Skagastrandarverslun var líka of oft kölluð Höfðaverslun. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn459
Lögreglan skoðar reiðhjól nemenda við Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000.
Óþekktur ljósmyndari577
Brimnes eins og það leit út um 1940. Mikið hefur verið byggt við húsið síðan þá.
Ólafur Bernódusson1052
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar bygging íþróttahússins var í fullum gangi. verið er að reisa hluta af límtrés bitunum sem mynda útveggi og þak hússins. Mennirnir á myndinni eru líklega, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Sigurður Björnsson standandi og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) sitjandi.
Óskar Kristinsson safn111
Myndin var tekin 3. september 1992 þegar verið var að steypa grunnplötu fjölbýlishússins við Túnbraut 11 á vegum Skagstrendings hf. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson (nær), óþekktur (fjær), óþekktur, Baldur Haraldsson og tveir óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari624
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) stendur hjá óþekktri konu framan við Karlsskála. Í dökka húsinu vinstra megin var lengi rekin "sjoppa" með olíu- og bensínsölu og tilheyrandi sælgæti og tóbaki. Hvíta húsið til hægri er Jaðar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn461
Myndin var tekin á dansleik í Höfðaskóla kringum 1995. Á henni eru, frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, Þröstur Árnason, Kolbrún Freyja þórarinsdóttir og Bæring Jón Skarphéðinsson.
Óþekktur ljósmyndari599
Garður stóð vestan við Skagaveg skáhallt gegnt Norður Skála. Þar bjuggu hjónin Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) og Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970) með börnum sínum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1078
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Eftir að yngstu börnin úr Höfðaskóla höfðu dregið um hvert þeirra fengi að taka skóflustnguna hlaut Þórður Óskarsson hnossið. Á myndinni er hann að bisa við að ná upp fyrstu torfunni meðan aðrir klappa fyrir honum.
Óþekktur ljósmyndari640
Lækur eða Efri Lækur stóð í túninu norður af Læk, sem enn stendur við Strandgötu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 038
Mennirnir á stillansinum eru, frá vinstri: Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017), Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Gunnlaugur Sigmarsson. Ekki er ljóst hvaða hús þeir eru að vinna við en líklega var það Bogabraut 3 eða 5. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1963.
Ólafur Bernódusson1054
Myndin var tekin sumarið 1997. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri ganga frá festinu á límtrésbita sem er hluti af útvegg og þaki hússins.
2001017
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn í byggingu. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn.
Ólafur Bernódusson1053
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar verið var að reisa límtrésbitana sem mynda útveggi og þak íþróttahússins. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) krýpur, Baldvin Hjaltason í rauðum samfestingi fylgist með og Sigurður Björnsson borgar yfir kúbeini til að stýra sperrunni rétt á festingarnar. Til hægri athugar Helgi Gunnarsson eitthvað við síðustu sperru.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1717
Myndin var tekin 31. desember 2010. Um miðnættið, eftir að nýtt ár var gengið í garð, var ljósaskiltinu breytt í 2011.
Ólafur Bernódusson 1079
Nokkrir nemendur í skemmtiatriði síns bekkjar á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Mathis Gruenberger, Sólveig Baldvinsdóttir, Arnrún Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadótti, Þórunn Hólmgeirsdóttir og óþekktur nemandi.
Ólafur Bernódusson 974
Björk Axelsdóttir kennari fær sér kaffisopa í langa fríinu á kennarastofunni í Höfðaskóla 1984.
Ólafur Bernódusson1077
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Fjöldi fólks mætti á skólalóðina og fylgdist með ásamt nemendum Höfðaskóla.
Skagaströnd - safn554
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir fyrstu brúna sem byggð var yfir Laxá í Refasveit, ekki langt frá þeirri sem nú er í byggingu (2022), og enn má sjá ummerki eftir. Í vikublaðinu "Víðir" 27 tölublaði 18. júní 1928 er eftirfarandi frétt: "Stórkostlegt bílslys" "Föstudaginn 10. þ.m. var mjög ægilegt bílslys við Blöduóssbrúna. Bíllinn fór út af trébrú, sem er norðan við Blönduóssbrúna, og féll niður 8 - 10 metra hæð í gil og brotnaði mikið. Fimm manns voru í bílnum: Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og kona hans Sigurlaug Helgadóttir. Meiddust þau bæði mjög mikið og er konunni varla hugað líf. Skemmdist hún svo innvortis, að gera varð á henni holskurð strax. Gerði hann P.V.G.Kolka héraðslæknir með aðstoð Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Hvammstanga. Auk hjónanna voru í bílnum tvö systkini Sigurlaugar: laufey Helgadóttir með barn sitt tveggja ára gamalt, og bílstjórinn Óskar Helgason. Orsök slyssins er talin ólag, sem verið hafði á bílnum, einkum, bensíngjöfinni. Hafi skyndilega komið svo mikið bensín inn á vélina að bílstjórinn réð ekki við bílinn og rann hann á trégirðinguna og út fyrir". Sérfræðingur vegagerðarinnar segir að í fréttinni sé um þessa brú að ræða því aldrei var trébrú yfir Blöndu og blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina hefur verið ókunnugur á svæðinu, enda var blaðið gefið út í Vestmannaeyjum. Hið rétta er að þetta var við Blöndu. Þar var byggður tré "rampur" upp að sjálfri brúnni að norðanverðu. Þar varð umrætt slys.
Helgi Gunnarsson 44
Myndin var tekin á Trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar vorið 1990 þegar starfsmenn voru að einangra sumarhús sem þeir smíðuðu inni á verkstæðinu. Húsið var síðan dregið út, fullbúið, sett á dráttarvagn og dregið á sinn stað í Borgarfirði þar sem því var komið fyrir. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1619
Agnes Sævarsdóttir og Björn Ingi Óskarsson í vinnunni í Höfðaskóla 1. febrúar 2011, hún sem kennari og hann sem tæknimaður.
Höfðaskóli - safn416
Fjallsminni /Hólabraut 2. Framan við húsið er bíll af Saab 96 gerð sem var í eigu Sigurðar Jónssonar semm býr í Fjallsminni. Húsið til hægri, með blátt þak, er Fellsbraut 2.
Helgi Gunnarsson 3
Hrólfur Pétursson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri vinna við sökkla undir íþróttahúsið haustið 1996. Mennirnir tveir, lengra frá, eru óþekktir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 043
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Hólaneskirkju eldri. Þá fór þar fram messa sem fermingarsystkin frá árinu 1963 sóttu. Á myndinni les eitt þeirra, Kolbrún Jónsdóttir, úr ritningunni. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), sem fermdi hópinn, hlýðir á lesturinn til vinstri.
Óþekktur ljósmyndari629
Kárastaðir (Bankastræti 5). Seinna var byggð önnur hæð ofan á húsið og enn síðar viðbygging upp á eina hæð við vesturhlið þess. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1083
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2002. Þau eru, í fremri röð frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson og Pascal Gruenberger. Aftari röð frá vinstri: Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Helga Gunnarsdóttir kennari, Dagný Dís Bessadóttir og Freydís Kristjánsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari648
Íbúðarhúsið á Óseyri stóð við ströndina rétt norðan við Hrafná. Undir það síðasta var það notað sem hesthús en var síðan rifið. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari631
Laufás er fjær á myndinni. Húsið þar lengst til vinstri var síðari tíma viðbygging við húsið hægra megin og tengibygginguna á milli. Melstaður er nær okkur, íbúðarhús og skepnuhús sambyggð. Melstaður er nú löngu horfinn. Húsin standa norðarlega við Höfðann, suður af Leynidal/Fagradal. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari578
Húsin Móar og Brúarland stóðu ekki langt frá sjónum og mundu í dag hafa númer við Skagaveg. Steininn sem sést í sjávarborðinu í baksýn er líklega Semingssteinn sem var niður af gistihúsinu Viðvík. Nú er steinninn fyrir neðan Læk og á honum er söguskjöldur sem vert er að lesa. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari550
Myndin sýnir nokkur af húsunum sem stóðu á Kálfshamarsnesi. Húsið lengst til vinstri er líklega Klettur en stóra dökka húsið hægra megin við Klett er verslunar- og fiskvinnsluhús. Steypta húsið næst í röðinni er Skólahúsið og ljósa húsið með bröttu risi er líklega Iðavellir sem nú stendur á Skagaströnd. Önnur hús eru óþekkt. Ef þú þekkir húsin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari653
Byggt hefur verið við Sigurðarhús á Hólanesi og húsið gengur í dag undir nafninu Miðnes. Fólkið á myndinni er heimilisfólk í Sigurðarhúsi um 1940. Sigurður Jónsson (d.17.4.1956) fyrri kona hans, Sigríður Guðbjörg Kristmundsdóttir (d.15.6.1941) og fósturdóttir þeirra Sigríður Jakobsdóttir (d.?). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari675
Þórsmörk stóð við Skagaveg 13, næsta hús sunnan við Þórshamar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari569
Texti myndarinnar segir allt sem segja þarf nema að húsið á Hólanesi í baksýn var fært þaðan kringum 1920 upp að Spákonufelli (Litla-Felli). Þar stendur húsið enn (2022). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1522
Á þessari mynd, sem líklega var tekin 1982 af Skagaströnd, er verið að byggja raðhúsin tvö við Mánabraut, samtals sjö íbúðir. Gamla kirkjan stendur enn og hin nýja er ekki risin. Gamli Jaðar og Efri Lækur standa enn og sama gildir um "Aðalbjargarskúrinn" og Héðinshöfða. Ásbyrgi stendur sunnan við Breiðablik og Sæborg við Oddagötu. Fleiri hús, sem nú eru horfin, eru á myndinni t.d. Drangey, Sæból, Óseyri og Rjúpnafell.
Óþekktur ljósmyndari580
Drangey stóð neðan við Ásgarð örlítið austan við gervigrasvöllinn á skólalóðinni. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þorvaldur Skaftason við vinnu að byggja Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Húsið var tekið í notkun 1986 og hýsti þá skrifstofur Skagstrendings hf og Hólaness hf á efstu hæðinni. Á miðhæðinni var Hótel Dagsbrún og á jarðhæðinni skrifstofa sveitarfélagsins og útibú Búnaðarbanka Íslands.
Höfðaskóli - safn419
Sænska húsið eða Hólabraut 23 á Skagaströnd.
Fisk Seafood - safn 269
Húsið að Bogabraut 9 var byggt 1948 af Síldarverksmiðjum ríkisins. Það gekk lengi undir nafninu Þorfinnshús enda bjó Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005) oddviti, sveitarstjóri og útgerðarforstjóri lengi í húsinu með fjölskyldu sinni. Húsið var klætt með járni líklega kringum 1980 og þá voru brotnar tvennar svalir sem voru á því í vinklinum sem sést á myndinni.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 048
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin í mars 1991. Græna húsið með rauða þakinu var Kárastaðir sem nú eru horfnir. Hægra megin við það eru Flankastaðir sem hafa verið rifnir og nýtt hús byggt á sama grunni. Húsið sem sést á milli þeirra, nokkru fjær, er Héðinshöfði sem einnig er horfinn. Í Héðinshöfða voru tvær íbúðir. Þá er líka horfið hvíta húsið með græna þakinu, sem ber í endann á stóru skemmunni. Þar var rekin verslunin Borg á sínum tíma og seinna rafmagnsverkstæðið Neistinn.
Fisk Seafood - safn 268
Húsið að Túnbraut 11 var byggt 1992 af Skagstrendingi hf. Húsið er fjölbýlishús með 6 íbúðum en núverandi eigandi (janúar 2023) er fasteignafélag í eigu Lárusar Ægis Guðmundssonar.
Óþekktur ljósmyndari627
Myndin var tekin utan við Kárastaði af Jónínu Valdimarsdóttur (d.12.3.2020) ráðskonu bræðranna Sigurbjörns og Kára Kristjánssona á Kárastöðum (Bankastræti 5). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn537
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Keflið er uppi á brekkunni neðan við Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið). Einbúinn og hluti verksmiðjubygginganna eru til hægri. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson1146
Birta Dögg Bessadóttir til vinstri og Guðrún Rós Hjaltadóttir til hægri á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla árið 2014.
Óskar Kristinsson - safn 233
Sóllundur eða Hólabraut 8. Húsið á myndinni var rifið og núverandi hús byggt á lóðinni. Lengi bjuggu í Sóllundi hjónin Hrólfur H. Jakobsson (d.27.12.1997) og Sigríður Björnsdóttir (d.17.6.1979) með dóttur sinni Sylvíu.
1
…
61
62
63
64
65
Leita í myndasafninu
Leita