Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
2001019
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn í byggingu. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn og eyðilagðist. Skátastúlkurnar á myndinni eru, fá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og ?Hrafnhildur Jóhannsdóttir?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001020
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn fullbyggður. Skálinn var einn stór salur með tveimur svefnpöllum við norðurvegginn. Olíueldavél var við austurvegginn og var hún notuð til að kynda skálann og elda mat. Við hlið hennar var lítið fráleggsborð með hillu undir þar sem geymdir voru tveir pottar og panna ásamt nokkrum eldhúsáhöldum. Við stóra gluggann á vesturhliðinni var stórt matarborð. Nokkrir stólar voru í skálanum en ekki rennandi vatn né klósett. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn og eyðilagðist
Höfðaskóli - safn646
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Bjarmanesi en það hefur verið fyrir 2004 þegar húsið var allt tekið í gegn og því komið í upprunalegt horf. Í þeim framkvæmdum var inngangurinn sem sést á myndinni brotinn niður og fjarlægður enda var hann ekki á húsinu þegar það var byggt sem verslunarhús 1913.
Skagaströnd - safn539
Myndin var tekin 1946-47 þegar síldarverksmiðjan var í byggingu. Á myndinni eru óþekktir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf, sem sáu um allan vélbúnað í verksmiðjunni. Hér eru þeir að bregða á leik í brekkunni hjá Einbúanum, sem er kletturinn til hægri. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson004
Tankurinn á myndinni var byggður til að geyma lýsi sem framleitt var í síldaverksmiðjunni. Lýsinu var dælt frá henni upp í tankinn, sem stóð eins og sjá má, vestan við sundlaugina. Ef grannt er skoðað sést að tankurinn er laskaður eftir að eitthvað fauk á hann í miklu roki. Hann var rifinn nokkru eftir að myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari656
Myndin var tekin af Höfðanum yfir hafnarsvæðið á Skagaströnd um 1940. Síldarbátar liggja við akkeri því viðlegupláss er fullt. Stóra húsið á höfninni er Hafnarhúsið sem var svo tekið niður á árunum 1943 eða 44, til að rýma fyrir verksmiðjunni, en síðan endurreist á þeim stað sem það stendur nú. Húsið var upphaflega reist þar sem það er á myndinni 1935. Gamla kaupfélagið er stóra húsið til vinstri en hægra megin við það er verslunarstjórahúsið eða Skagaströnd eins og það var líka kallað. Lengst til vinstri má sjá bryggjukar í byggingu í dráttarbrautinni framan við Bjarmanes.
Höfðaskóli - safn607
Líklega var þessi mynd tekin kringum 1990 af Skagaströnd. Næst okkur á henni eru tvö hús sem eru horfin. Til vinstri eru Kárastaðir en fyrir miðri mynd eru Flankastaðir sem voru rifnir og nýtt hús byggt á sama stað. Lengra frá er Héðinshöfði, sem einnig er horfið. Þá er líka búið að rífa litla húsið norðan við stóru skemmuna, sem áður hýsti verslunina Borg og seinna rafmagnsverkstæði Neistans. Gamla Hólaneskirkja var svo rifin í febrúar 1992 þó hún sé uppistandandi á þessari mynd.
Óþekktur ljósmyndari636
Litla-Fell. Fritz H. Magnússon stendur á hlaðinu en hann bjó í húsinu. Það var upphaflega byggt á Hólanesinu og svo flutt að Litla-Felli 1919 -1920. Þetta hús stendur enn austan við núverandi íbúðarhúsið á Litla-Felli. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er líklega verði að bræða fiskúrgang til að framleiða úr þeim fiskimjöl. Gufustrókur stendur upp úr skorsteininum þannig að ilmurinn af framleiðslunni berst ekki eins mikið yfir bæinn. Bátarnir tveir eru óþekktir en aftan við þá sér í stefnið á ísfisks - Arnari Hu 1. Þá er ekki búið að brjóta niður þrærnar sem eru tengdar verksmiðjunni vinstar megin en þær eru nú horfnar.
Ólafur Bernódusson1076
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta yngstu nemendur Höfðaskóla draga um hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Adolf H. Berndsen oddviti fylgist með ásamt öðrum Skagstrendingum. Hávaxinn til vinstri, í bláum jakka, er Helgi Gunnarsson, sem sá um byggingu hússins.
Höfðaskóli - safn418
Hólabraut 7, Skagaströnd.
2001010
Myndin var tekin 1964 eða ´65 af Óskari Þór Kristinssyni á hlaðinu hjá Þórsmörk. Húsin í baksýn eru, frá vinstri: Höfðakot með áfastri hlöðu, Dvergasteinn framan við Höfðakot, Höfðaberg, Skálholt og Þórhamar. Skálholt og Þórshamar eru enn í notkun en hin húsin hafa verið rifin.
Óskar Kristinsson - safn 242
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er húsið að Hólabraut 19. Aðalinngangurinn inn í húsið er í skotinu þar sem snjórinn nær alveg upp á þak. Til hægri er svo hurðin á bílskúrnum. Það er því ljóst að eigandinn átti töluverðan mokstur fyrir höndum til að geta gengið um eins og vant er.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1525
Höfnin á Skagaströnd full af síldarskipum. Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær hann tók myndina. Það hefur þó líklega verið fyrir eða um 1950.
2001026
Þessi mynd sýnir leikmynd á sviðinu í gömlu Tunnunni (nú Spákonuhof). Ekki er vitað í hvaða leikriti hún var notuð en leiktjöldin voru máluð af Sveinbirni Blöndal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001507
Félagsheimilið Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1519
Lækjarbakki er á miðri mynd. Til vinstri eru gömul fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Lækjarbakka en eru nú lögu horfin. Til hægri er bragginn sem reistur var þegar síldarverksmiðjan var í byggingu 1945 - 46. Bragginn hafði mörg hlutverk gegnum tíðina. Þar var rekið vélaverkstæði þeirra Karls og Þórarins og seinna var hann nýttur sem slökkvistöð Skagastrandar. Bragginn var svo í niðunýðslu í nokkur ár og svo rifinn. Enn má þó sjá steypta gólfplötu hans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001094
Íþróttahúsið í byggingu. Myndin var tekin 1997 en húsið var vígt 15. mars 1998.
2001018
Þessi mynd var tekin 1965 af Skátaskálanum sem byggður var í suðurhlíðum Spákonufellsins ofan skíðaskálans sem þar er nú. Örlög þessa húss urðu þau að það brotnaði niður undan snjóþunga eftir nokkur ár. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
2001027
Þessi mynd var tekin að vetri líkleg einhventíma upp úr 1960. Næst okkur fyrir miðri mynd er verslunarstjórahúsið sem nú er löngu horfið. Á henni eru Bogabrautin og Hólbrautin nánast óbyggðar, leikskólinn ekki kominn né viðbyggingin við Höfðaskóla.
Gréta 098
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1945. Á henni eru vinnupallar um skorsteininn, sem þó virðist fullbyggður, því hann er greinilega kominn í notkun. Mjölskemman er í byggingu. Þar er grindin komin og byrjað að klæða suður endann. Ekki er búið að byggja Salthúsið, sem í dag stendur ca. þar sem fólkið er á myndinni. Aftur á móti er bryggjan sýnileg, sem byggð var 1922, í skjóli af Hólsnefinu. Af henni sést ekki tangur né tetur í dag.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1537
Rjúpnafell stóð við Fjörubraut en þar bjó Guðberg Stefánsson (Bergur sterki) (d.15.9.1991). Húsið var rifið á tíunda áratugnum.
Skagaströnd - safn540
Þessi mynd frá 1947 sýnir olíutank eða lýsistank í smíðum undir Höfðanum. Húsið á myndinni var byggt 1904 en kvisturinn kom síðar og einnig inngangurinn sem sést á myndinni. Húsið, sem var byggt fyrir verslunarstjóra Höfðaverslunar seinna Kaupfélags Skagstrendinga, gekk undir nafninu Verslunarstjórahúsið og seinna Kaupfélagshúsið. Húsið var rifið einhverntíma kringum 1980. Tjöldin á myndinni hýstu starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem unnu að byggingu tanksins og sáu líka um allan vélbúnað í síldarverksmiðjunni. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Skagaströnd - safn538
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Á myndinni er komið að því að leggja strenginn varlega niður í skurðinn. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Skagaströnd - safn555
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir fyrstu brúna sem byggð var yfir Laxá í Refasveit, ekki langt frá þeirri sem nú er í byggingu (2022), og enn má sjá ummerki eftir. Í vikublaðinu "Víðir" 27 tölublaði 18. júní 1928 er eftirfarandi frétt: "Stórkostlegt bílslys" "Föstudaginn 10. þ.m. var mjög ægilegt bílslys við Blöduóssbrúna. Bíllinn fór út af trébrú, sem er norðan við Blönduóssbrúna, og féll niður 8 - 10 metra hæð í gil og brotnaði mikið. Fimm manns voru í bílnum: Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og kona hans Sigurlaug Helgadóttir. Meiddust þau bæði mjög mikið og er konunni varla hugað líf. Skemmdist hún svo innvortis, að gera varð á henni holskurð strax. Gerði hann P.V.G.Kolka héraðslæknir með aðstoð Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Hvammstanga. Auk hjónanna voru í bílnum tvö systkini Sigurlaugar: laufey Helgadóttir með barn sitt tveggja ára gamalt, og bílstjórinn Óskar Helgason. Orsök slyssins er talin ólag, sem verið hafði á bílnum, einkum, bensíngjöfinni. Hafi skyndilega komið svo mikið bensín inn á vélina að bílstjórinn réð ekki við bílinn og rann hann á trégirðinguna og út fyrir". Sérfræðingur vegagerðarinnar segir að í fréttinni sé um þessa brú að ræða því aldrei var trébrú yfir Blöndu og blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina hefur verið ókunnugur á svæðinu, enda var blaðið gefið út í Vestmannaeyjum.
2001091
Þessi mynd var líklega tekin veturinn 1995 sem var óvenju snjóþungur og illviðrasamur. Á henni sér heim að Brandaskarði þar sem allt er á kafi í snjó nema súrheysturninn og stafninn á fjósinu. Guðmundur Björnsson, sem tók myndina, var fenginn á gröfunni sinni til að moka ofan af þökum húsanna og frá þeim svo ekki færi illa.
20231028_170201
Myndin var tekin þegar smíða á fuglaskoðunarhúsinu Kristall á Höfðanum var í gangi. Trégrindin er komin en eftir er að klæða húsið með Plexigleri. Börnin á myndinni eru systkinin Eliot Atli Martel og Sóley June Martel.
2001006
Þessi mynd var sennilega tekin snemma á sjöunda áratugnum á hlaðinu hjá Þórsmörk. Strákarnir neðst í hægra horninu eru bræðurnir Reynir, vinstra megin og Árni Ólafur Sigurðssynir sem áttu heima í Þórsmörk. Húsið til hægri er Þórshamar og framundan því sér í horn á Skálholti. Lengst frá, fyrir miðju, er Höfðaberg, sem er löngu horfið. Til vinstri er svo Höfðakot með áfastri hlöðu, sem eru einnig löngu horfin. Framan við Höfðakot sér í lítið hús, Dvergastein, sem ekki er heldur til lengur. Í öllum þessum húsum bjuggu stórar fjölskyldur á þeim tíma sem myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 549
Þetta er mynd af Goðhól sem var rifinn og nýtt hús byggt á lóðinni. Það er númer 10 við Hólabraut. Til vinstri sér í Akurgerði sem hlaut sömu örlög en nýja húsið sem þar stendur er númer 9 við Hólabrautina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1486
Þessi mynd var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum af Hólanesinu. Fyrir miðri mynd er ker í smíðum í sleðanum framan við Bjarmanes. Á bakkanum lengst til vinstri er húsið Ásbyrgi og hægra megin við það er Brimnes eins og það var áður en byggt var við suður enda þess. Ekki er búið að byggja við skólann og lengst til hægri á myndinni má sjá steyptan garð sem var við bryggju sem þar var. Leifar af veggnum má finna enn í dag (2022). Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1520
Þessi fjár- og hesthús átti Ingvi Sveinn Guðnason (d.31.12.1991). Húsin, sem nú eru löngu horfin, stóðu við Höfðann stuttan norðan við Sólheima við Skagaveg. þar var reyndar dálítið hverfi fjáhúsa sem öll eru löngu horfin. Húsin/kofarnir voru í eigu Ingvars Jónssonar (d.18.1.2003) í Sólheimum, Lúðvíks Kristjánssonar (d.10.2.2001) í Steinholti, Henrýs Kristjánssonar (d.22.6.1972) í Kárastöðum og Herðubreið , Sigurbjörns Kristjánssonar (d.10.9.1989) í Kárastöðum og Bernódusar Ólafssonar (d.18.9.1996) í Stórholti. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 092
Á þessari haustlegu mynd er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) á hlaðinu við heimili sitt í Laufási. Hjá henni er hundurinn hennar, Snati, og hesturinn hennar. Húsið til hægri er Melstaður, sem nú er löngu horfinn. Sama má segja um Ægissíðu, sem grillir í vinstra megin við Margréti.
2001042
Myndin er af húsinu Hafnarhólma á Ströndum en þar bjuggu hjónin Sigurður Guðmonsson og Hallbjörg Jónsdóttir áður en þau fluttu til Akraness og síðan til Skagastrandar með börn sín og bjuggu í Þórsmörk.
Óþekktur ljósmyndari659
Sólheimar (eldri) stóðu vestan við núverandi Sólheima við Skagaveg - reyndar út í Skagaveg eins og hann er í dag. Húsið var gjarnan kallað Litlu-Sólheimar eftir að nýir Sólheimar voru byggðir. Litlu-Sólheimar eru löngu horfnir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1525
Á myndinni eru Hólanes-frystihúsið næst okkur en síldaverksmiðjan fjær. "Kassarnir" fjórir til vinstri við frystihúsið tengdust kælikerfi þess. Verksmiðjan er ekki í rekstri og yfir þrærnar sér í Arnar Hu 1 (Japans Arnar). Ekki er vitað hveær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990.
Fisk Seafood - safn 264
Ljósa húsið á myndinni var byggt 1967 sem læknisbústaður þar sem læknir átti að búa á Skagaströnd með læknastofur á neðri hæðinni. Aldrei bjó læknir í húsinu en það þjónaði lengi sem heilsugæslustöð með lyfsölu og tannlækastofu um tíma. Þar var einnig skrifstofa Skagastrendings hf fyrst eftir stofnun þess félags. Í dag (janúar 2023) er eru í húsinu hárgreiðslustofa og félagsmiðstöð unglinga.
Ingibergur Guðmundsson 519
Herðubreið - Fellsbraut 1 - var byggð af Lárusi Guðmundssyni (d.21.9.1981) á árunum 1934 - 1936. Þar bjó Lárus með konu sinni, Láru Kristjánsdóttur (d.4.9.1993) og börnum sínum.
Höfðaskóli - safn460
Einhvertíma að vori til kringum 2000 var lögreglan fengin til að koma og skoða reiðhjól nemenda í Höfðaskóla. Á myndinni eru þau tilbúin með hjálmana sína, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Ragnar Már Björnsson, Patrik Snær Bjarnason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tveir óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari650
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann stóð norðan við Höfðann niður við sjóinn eins og sjá má. Bærinn brann einhverntíma á sjöunda áratugnum. Til vinstri á myndinni sést ógreinilega í Landsendarétt sem var skilarétt á sínum tíma. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson005
Á myndinni, sem var tekin í júlí 1989, er verið að byrja á byggingu Smágarðs við Skúffugarðinn.
Óþekktur ljósmyndari661
Þessi mynd af Spákonufelli var tekin fyrir 1927 því þá var kirkjan, sem er lengst til hægri, rifin og ný kirkja síðan vígð á Skagaströnd 17. júní 1928. Þessi hús stóðu nokkurn vegin þar sem kirkjugarðurinn er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
2001021
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn fullbyggður. Skálinn var einn stór salur með tveimur svefnpöllum við norðurvegginn. Olíueldavél var við austurvegginn og var hún notuð til að kynda skálann og elda mat. Við hlið hennar var lítið fráleggsborð með hillu undir þar sem geymdir voru tveir pottar og panna ásamt nokkrum eldhúsáhöldum. Við stóra gluggann á vesturhliðinni var stórt matarborð. Nokkrir stólar voru í skálanum en ekki rennandi vatn né klósett. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn og eyðilagðist. Skátinn á myndinni er óþekktur. Þeir sem til þekkja geta áttað sig á hvar skálinn var byggður út frá landslaginu á myndinni.
Ólafur Bernódusson1145
Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri á sviðinu í Fellsborg kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla 2014.
Óþekktur ljósmyndari664
Sæborg stóð u.þ.b. þar sem Ægisgrund tengist Oddagötu. Guðrún Björnsdóttir (d.11.8.1971) íbúi í Sæborg er til vinstri á myndinni en hjá henni er Margrét Lýðsdóttir (d.10.11.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn541
Myndin var tekin 1947 þegar starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf stilltu sér upp í tröppunum upp á olíu/lýsistankinn sem þeir höfðu þá lokið við að smíða. Tankurinn stóð syðst undir Höfðanum ásamt öðrum af sama tagi. Starfsmennirnir héldu til í tjöldum við Höfðann meðan á smíðunum stóð. Mennirnir eru óþekktir. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari601
Grafarholt stóð austan við Skagaveg gegnt Þórshamri nálægt þar sem nú stendur húsið Bjarmaland. Þar bjuggu hjónin Stefán Jónsson (d.4.5.1931) og Kristjana Júlíusdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
2001014
Reynir Sigurðsson á hlaðinu fyrir utan heimili sitt í Þórsmörk 1965. Húsin í baksýn eru frá vinstri: Höfðakot, Dvergasteinn (nær) Höfðaberg, Skálholt og Þórshamar. Fyrstu þrjú húsin eru löngu horfin.
Óþekktur ljósmyndari614
Höfðahólar 1930 - 1940. Stærstur hluti landsins sem Skagaströnd stendur á í dag tilheyrði bæjunum Höfðahólum (Hólum) og Spákonufelli. Höfðahólabærinn stóð upp á hæðinni við tjaldstæðið.
2001025
Aftan á þessa mynd skrifaði Þórður Jónsson: "Frk Hrefna Hjálmarsd. Reykjavík Jólin 1961 Bestu jóla og nýársóskir. Þakka skemmtilegar samverustundir í Vaglaskógi. Kær kveðja Þórður Jónsson og fjölskylda Ska." Á myndinni má sjá megin hluta Skagastrandar eins og þorpið var sumarið 1961. Mörg af húsunum sem sjást á myndinni eru nú horfin.
Ingibergur Guðmundsson 425
Myndin var tekin í október 1987 þegar sundlaugin á Skagaströnd var tekin aftur í gagnið eftir gagngerar endubætur á lauginni sjálfri og búningsaðstöðunni. Fremst á myndinni eru Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) til vinstri, þá nýbyrjaður sem sveitarstjóri og Sigfús Jónsson fráfarandi sveitarstjóri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Í baksýn gnæfa gömlu olíu-og lýsistankarnir sem stóðu þarna í skjóli við Höfðann.
Ólafur Bernódusson1075
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta krakka úr Höfðaskóla draga um það hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Eldri krakkar og fullorðnir fylgjast með í nepjunni.
Fisk Seafood - safn 263
Þetta hús gengur undir nafninu Stjórnsýsluhúsið. Það var byggt af Skagstrendingi hf og Höfðahreppi og hýsti skrifstofur þeirra, hótel á miðhæðinni og útibú Búnaðarbanka Íslands þegar það var tekið í notkun árið 1986.
2001009
Skátar í skátafélaginu Sigurfara ganga í fararbroddi með fána í skrúðgöngu frá Hólaneskirkju (eldri) eftir messu þar. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Maðurinn lengt til vinstri er Ingólfur Ármannsson félagsforingi. Fánaberar eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir, Fjóla Jónsdóttir,Þórunn Bernódusdóttir, Kristinn Lúðvíksson og óþekktur, Aðrir í göngunni eru óþekktir. Húsin í baksýn eru Stóra Berg til vinstri og Iðavellir til hægri.
2001089
Myndin var líklega tekin í maí 1995. Veturinn var óvenju snjóþungur og meðal annars fylltist sundlaugin, sem þá var bara opin á sumrin, af snjó og rúmlega það. Mokað var upp úr lauginni með gröfu og vörubíl með krabba. Síðan var vatn látið renna í hana í ca. hálfan mánuð með opið niðurfall til að ná síðasta snjónum úr henni áður en hægt var að láta renna í hana á hefbundinn hátt.
2001015
Hafþór Gylfason ca fimm ára 1965. Húsin í baksýn eru, frá vinstri: Bragginn þar sem þá hýsti tvær fjölskyldur, Garður, Kárastaðir nær og Bjarnarhöfn fjær, Héðinshöfði nær og Stórholt fjær, Höfðakot fjær og Þórsmörk nær,Höfðaberg fjær og Þórshamar nær. Þessi götumynd hefur mikið breytst með niðurrifi húsa og nýrra í þeirra stað.
20241125_165625
Hálfnað verk þá hafið er. Myndin var tekin 25. nóvember 2024. þegar unnið var að uppbyggingu gömlu löndunarbryggjunnar eða Ásgarðs eins og hann heitir í dag. Bryggjan var komin til ára sinna, byggð einhverntíma rétt fyrir 1950. Hún hefur nú verið hækkuð og endurbyggð frá grunni með stálþili og steyptri þekju.
Ingibergur Guðmundsson 478
Fundur í skíðadeild umf Fram vorið 1985 utan við skíðaskálann. Umræðuefnið var smíði á palli meðfram húsinu og fleira. Á myndinni er skíðadeildarfólk. Standandi, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Pétur Eggertsson og Guðmundur J. Björnsson. Sitjandi, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og Ólafur Bernódusson.
2001018
Eftir að hætt var við byggingu skátaskála í Brandaskarði reistu skátarnir sér myndarlegan skála í suðurhlíðum Spákonufells. Skálinn var byggður nokkuð ofarlega, upp af skíðaskálanum sem stendur í dag, í litlum hvammi sem þar er. Á myndinni, sem var sennilega tekin kringum 1964, er skálinn í byggingu. Skálinn stóð ekki nema í nokkur ár því svo mjög snjóaði að honum og yfir hann að hann lagðist saman einn snjóaveturinn og eyðilagðist.
2001026
Í ofsa vetrarveðri einhverntíma á árunum 1960 - 1964 fauk þakið af Skálholti í einu lagi. Það endaði flugferð sína á öðrum stóru tönkunum sem stóðu ofan við sundlaugina nærri Höfðanum í ca 150 - 200 metra fjarlægð frá Skálholti. Tankurinn beyglaðist töluvert við áreksturinn og þakið splundraðist. Myndin var tekin eftir að lægði svo hægt var að kanna skemmdirnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1526
Gömul mynd af frystihúsi Hólaness hf næst okkur og síldarverksmiðjunni, hvítmálaðri, fjær. Rörið sem lá frá verksmiðjunni yfir fjöruna í stóru skemmuna var notað til að koma mjölinu yfir í skemmuna þar sem það var sekkjað. "Hatturinn" sem grillir í við vinstri enda rörsins var nokkurs konar ryksuga sem sogaði mjölið milli húsanna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
61
62
63
64
65
Leita í myndasafninu
Leita