Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
20230905_133212
Hópur fólks tók sig til og málaði gangstéttina meðfram Strandgötu með regnbogalitum. Með því vildi fólkið og bæjarbúar almennt lýsa yfir stuðningi við mannréttindabaráttu hinsegin fólks.
Gréta 097
Asparlundur (Bogabraut 24) nýbyggður. Greinilega er flutt inn á neðri hæðina en sú efri er ekki fullfrágengin. Hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) byggðu Asparlund og bjuggu þar með börnum sínum.
URL
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1250
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir situr á sviðsbrúninni, Benóný Bergmann Sæmundsen og Helgi Sveinn Árnason.
20250926_101153
Myndin var tekin í september 2025 þegar verið var að steypa hluta af þekju á ný endurgerðum Ásgarði í Skagastrandarhöfn.
20241001_101109
Myndin var tekin haustið 2024 þegar unnið var að því að rífa gömlu löndunarbryggjuna eða Ásgarð eins og hann heitir í dag. Bryggjan var komin til ára sinna, byggð einhverntíma rétt fyrir 1950. Hún hefur nú verið hækkuð og endurbyggð frá grunni.
Gréta 089
Gamli bærinn á Syðra Hóli. Búið er að slá túnið beggja megin við bæinn en ekki fyrir framan hann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn542
Þetta jólakort var gefið út til styrktar byggingu Hólaneskirkju. Aftan á kortinu kemur fram að arkitektar hennar voru Ormar Þór og Örnólfur Hall. Ekki er vitað hvenær kortið var gefið út en líklega var það á seinni hluta níunda áratugarins.
Minjasafn 362
Gripur nr. 362. Glerskál, glær með rauðbrúnni slikju. Munstruð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn648
Þessi mynd var tekin af Höfðaskóla áður en tröppurnar vestan á húsinu voru brotnar niður fyrir mistök. Eldri hluti skólans, sá til vinstri á myndinni, var tekinn í notkun 1958 en viðbyggingin hægra megin 1982. Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar innan dyra í skólanum á þessum tíma.
1
…
61
62
63
64
65
Leita í myndasafninu
Leita