Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason874
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason899
Þessi mynd af bókmenntakettlingi var að öllum líkindum tekin í herbergi Guðmundar Guðnasonar í Ægissíðu. Myndin ber merki áhugamála hans með eigin ljósmyndum á veggjum, trúarlegt tákn, bækur og væntumþykja hans um dýr.
Guðmundur Guðnason959
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason885
Þessi stúlka er óþekkt. Myndin var tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason871
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason887
Þetta fólk er óþekkt. Myndin var sennilega tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason872
Hrefna Júlía Viggósdóttir á femingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason861
Bogabraut 12. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason775
Höfðaberg kringum 1970. Lengst til vinstri sér í fjárhús/hlöðu sem var sambyggð við Valhöll. Milli þeirra sér svo í Höfðakot ásamt fjárhúsum og hlöðu þar. Öll þessi hús eru nú löngu farin.
Guðmundur Guðnason006
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson predikar í Þingeyrarkirkju.
Guðmundur Guðnason876
Pétur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason859
Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum með tvo hrúta við fjárhúsin hjá Bjarmalandi.
Guðmundur Guðnason940
Bjarmaland, Skagavegur 14 um 1960. Maðurinn á myndinni er Sigurður Guðmonsson í Þórsmörk.
Guðmundur Guðnason083
Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason rétt fyrir 1960 af systrunum, frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Dagný Hannesdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Á myndinni standa þær fyrir utan Bræðraminni en þar bjó móðuramma þeirra systra, Sigurbjörg Jónasdóttir (d. 25.4.1980). Bræðraminni stóð rétt norðan við Rjúnafell eða um það bil í vesturenda rækjuvinnslunnar sem nú stendur.
Guðmundur Guðnason955
Dansað við undirleik hljómsveitar á árshátíð Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason112
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni er fólk að koma sér inn í rútu í Ögri. Maðurinn sem krýpur er Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og hjá honum stendur konan hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) (með slæðu). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason113
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Myndin er gömul því ekki er búið að byggja löndunarkranann á höfninni og hann var reistur einhverntíma á árunum 1943 - 1945 og því er myndin eldri en það. Ef þú þekkir húsin á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason025
Frá vinstri á þessari mynd eru feðgarnir: Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971), Pálmi Guðnason (d. 23.3.1994) og Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) frá Ægissíðu. Guðni flutti í Ægissíðu á Skagaströnd með fjölskyldu sína framan úr Laxárdal, sennilega um 1948.
Guðmundur Guðnason007
Ekki er vitað hvar þetta myndarlega hús er né hvaða erindi allt þetta fólk á framan við húsið. Ef þú getur hjálpað okkur með þetta vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason078
Túnbraut 7 í forgrunni. Til vinstri eru Iðavellir og sér í hornið á Stóra - bergi framundan Túnbraut 7. Húsið til hægri er Litla - berg ( Fellsbraut 2).
Ólafur Bernódusson050
Kristín Jónsdóttir spilar á saxófón á jólatónleikum tónlistarskólans í Höfðaskóla 1986. Jane Sillar kennari spilar undir á píanóið
Ólafur Bernódusson037
Þessi hópur fermdist frá Hólaneskirkju 1963. Í tilefni af því hittust þau í júní 1983 til að halda upp á 20 ára fermingarafmæli sitt með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni sem fermdi þau á sínum tíma. Í öftustu röð frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðmundur Guðmundsson, Örn Berg Guðmundsson (Assi), Ómar Jakobsson og Sigurjón Ástmarsson. Í miðröð frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Steindór R. Haraldsson, Kristín Sigurðardóttir, Gísli Kristjánsson og Guðmundur J. Björnssson. Í fremstu röð frá vinstri: Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Kolbrún Jónsdóttir og Guðbjörg Þorbjörnsdóttir.
Fyrir framan Kárastaði 014
Myndin er tekin framan við Kárastaði (Bankastræti 5). Seinna var byggð hæð ofan á húsið sem stendur ekki lengur. Fólkið á myndinni er óþekkt nema konan lengst til hægri er Sigurlaug Jónsdóttir (Lauga í Ási) sennilega með son sinn, Sigurbjörn Kára Lárusson, á hjólinu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson059
Páll Leó Jónsson var skólastjóri í Höfðaskóla 1986 - 1991 er hann tók við skólastjórastöðu á Blönduósi. Á myndinni er Páll í ræðustól í Fellsborg við skólaslit.
Guðmundur Guðnason146
Árni Kristófersson (d.11.10.1982) Árnesi á spjalli við óþekktan mann í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason999
Gamla Blönduóskirkjan í forgrunni. Handan Blöndu blasir Kvennaskólinn við.
Guðmundur Guðnason057
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Pétur Jónsson fyrir utan dyr Hólaneskirkju eldri annað hvort á sjómannadegi eða eftir útför því aukastólar eru í andyrinu og aukabekkur hefur verið borinn út á hlað.
Guðmundur Guðnason097
Kindur á túni fyrir vestan Sænska húsið (Hólabraut 23), sem sést í baksýn. Líklega eru þetta kindur sem Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967) í Baldursheimi átti því hann átti fjárhús þarna. Nú eru á þessu svæði tvö hús; Hólabraut 21 og Hólabraut 19. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn048
Byrjunarframkvæmdir við Trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar árið 1987.
Guðmundur Guðnason070
Unnur Gunnarsdóttir úr Stórholti (seinna Lundi) til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir frá Höfðakoti til hægri á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Guðnason760
Bærinn Ásholt
Guðmundur Guðnason862
Búi Birgisson á fermingardaginn sinn 1971.
Guðmundur Guðnason958
<P>Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.</P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason880
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir fermingu 1965. Fremst gengur Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Síðan koma frá vinstri: Björn Sigmundson, Bergur Þórðarson, Kristófer Einarsson, Frits Bjarnason, Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Jóhannes Pálsson.
Guðmundur Guðnason867
Bogabraut 16. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason903
Grund. Sennilega var myndin tekin 1965.
Guðmundur Guðnason865
Akurgerði (Hólabraut 9). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason961
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason732
<P>Kristján Jökulsson frá Núpi í Laxárdal á fermingardaginn sinn 1967.</P>
Guðmundur Guðnason041
Mynd tekin yfir Blönduós.
Guðmundur Guðnason823
Stefanía Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason072
Sigurður Þorbjörnsson frá Akurgerði á fermingardaginn sinn 1967.
Guðmundur Guðnason998
Líklega er þetta Undirfellskirkja í Vatnsdal
Guðmundur Guðnason099
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fyrir altarinu í Höskuldsstaðakirkju. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason091
Allt klárt fyrir vígslu Höfðaskóla haustið 1958. Jón Sölvason (d. 17.8.1969) frá Réttarholti er gráhærði maðurinn lengst til vinstri en Strákurinn til hægri er Rúnar Jósefsson úr Reykholti.
Guðmundur Guðnason971
Bjarmaland í vetrarsnjó. Þar bjuggu hjónin Hrólfur Jónsson og Sigríður Guðlaugsdóttir með dóttur sinni Áslaugu.Skúrinn lengst til vinstri sem er áfastur húsinu hýsti svo mann að nafni Einar ??
Guðmundur Guðnason953
Skólasýning á óþekktu leikverki í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla. Fólkið í myndinni er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari121
<P>Veitingastaðurinn Kántrýbær byrjaði rekstur í þessu húsi. Útvarp kántrýbær var á efri hæðinni. Aðfaranótt 27 október 1997 brann þetta hús til kaldra kola. Hallbjörn Hjartarson, sem átti húsið og starfsemina þar, gafst ekki upp. Hann safnaði peningum hjá þjóðinni og reisti það hús sem stendur í dag á sama stað og þetta var. Nýja húsið með veitingasölu og útvarpi Kántrýbæ var opnað rúmu ári eftir brunann 27. júní 1998. </P>
Guðmundur Guðnason114
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Gert klárt fyrir brottför frá Ögri í Ísafjarðardjúpi. Á miðri mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) kona hans er hægra megin við manninn sem snýr baki í myndavélina. Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) er til vinstri með sólgleraugu og slæðu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason058
Spákonufell að vetri til. Myndin tekin af hlaðinu á Ægissíðu, heimili Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar. Húsin til vinstri er Ásholt en til hægri sér í Ás.
Guðmundur Guðnason042
Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti. Myndin var líklega tekin 1963.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn014
Myndin er tekin á sjómannadegiþegar verið er að undirbúa kappróður. Ártalið er óþekkt. Í bakgrunni má sjá frá vinstri: Karlsminni, Viðvík Höfðatún, Vík og líklega Sævarland.
Guðmundur Guðnason096
Ægissíða. Bærinn þar sem Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari bjó lengst af með foreldrum sínum Guðna Sveinssyni og Klemensínu Klemensdóttur.
Guðmundur Guðnason049
Hof á Skaga. Kirkjan er til vinstri og gamla íbúðarhúsið til hægri en skemma næst okkur. Gamla húsið er nú horfið en nýtt reist í staðin.
Guðmundur Guðnason138
Guðbergur Stefánsson frá Kambakoti, seinna í Rjúpnafelli á Skagatrönd, við réttarstörf í Hofrétt 1965.
Guðmundur Guðnason086
Margrét Valdimarsdóttir (Númadóttir).
Guðmundur Guðnason048
Tvær fermingarstúlkur á tröppunum á Holtastaðakirkju. Stúlkan hægra megin er Rannveig Runólfsdóttir frá Hvammi í Langadal og Ólöf Jónsdóttir frá Ártúnum til vinstri.
Guðmundur Guðnason073
Börnin á þessari mynd eru óþekkt. Sama má segja um húsið í baksýn. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða þekkir húsið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason088
Gamli bærinn á Réttarholti. Þetta hús brann en þá hafði ekki verið búið í því um tíma. Ábúendur í Réttarholti, Már Sveinsson og Elísabet (Bebbý) Árnadóttir, höfðu þá byggt nýtt hús, nær þjóðveginum, sem enn stendur í Réttarholti.
Guðmundur Guðnason100
Skrifborð Guðmundar Guðnasonar pósts og ljósmyndara einhverntíma kringum 1970.
1
…
6
7
8
…
65
Leita í myndasafninu
Leita