Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson027
JólatónleikarTtónlistarskólans haldnir í Höfðaskóla 1986. Steinunn Berndsen kennari leikur með nemendum sínum sem eru frá vinstri: Salóme Rúnarsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Bergþóra Huld Guðjónsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn054
Bekkjarmynd tekin á tröppum Höfðaskóla 1958 eða 1959. Fremsta röð frá vinstri: Frímann Lúðvíksson, Sigurður Björnsson, Kristinn Lúðvíksson. Önnur röð: Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir, Ástríður Bertelsdóttir. Þriðja röð: Jóhanna Bertelsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir. Fjórða röð: Helga Jóhannesdóttir, Jóhanna Bertelsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Efsta röð: Ingólfur Ármannsson kennari, Sigurjón Magnússon, Konráð Guðmundsson, Birgir Þórbjarnarson. Þetta fólk var fyrsti hópurinn til að útskrifast úr núverandi skólahúsnæði sem tekið var í notkun haustið 1958.
Ólafur Bernódusson057
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987.Á myndinni er Viggó Magnússon útvarpsstjóri Útvarps Höfðaskóla að tala til Skagstrendinga. Til að finna pláss fyrir útvarpsstöðina lét skólastjórinn eftir skrifstofuna sína í viku.
Ólafur Bernódusson055
<P>Myndin var tekin á einhverri samkomu í Höfðaskóla kringum 1985. Tilefnið er óþekkt en á henni má þekkja marga þáverandi nemendur skólans ásamt foreldrum nokkurra þeirra. </P><br><P>Stúlkurnar þrjár á fremsta bekk eru óþekktar. Á öðrum bekk eru, talið frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, María Rós Karlsdóttir og Gígja Óskarsdóttir. Á þriðja bekk er Björk Axelsdóttir kennari lengst til vinstri þá kemur óþekkt stúlka en sú með gleraugun er Særún Níelsdóttir. Næst er óþekkt stúlka sem situr með barn en stelpan í lopapeysunni er annar hvor tvíburanna, Vilborg eða Áslaug Jóhannsdóttir. Á næsta bekk situr Árný Helgadóttir á endanum til vinstri en næst, á þeim bekk, má svo þekkja Ásu Ásgeirsdóttur, Hólmfríði Önnu Ólafsdóttur (Díu Önnu), Þorstein Jónsson, Viggó Magnússon og Ægi Jónsson. Við enda næstu raðar stendur Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari til vinstri og sjá má Þórunni Bernódusdóttur yfir höfuð Bjarkar. Við hlið Þórunnar situr Soffía Jónasdóttir, óþekktur, Gunnlaugur Sigmarsson (með skegg) og Steinunn Friðriksdóttir kona hans. Lárus Ægir Guðmundsson sést yfir höfuð Ægis en Lárus er að tala við Adolf J. Berndsen. Í næstu röð fyrir aftan Elínborgu og Þórunni er Áslaug Gunnarsdóttir lengst til vinstri, þá Þorbjörg Eðvarðsdóttir, og óþekktir en svo sést hálft höfuð Rafns Sigurbjörnssonar frá Hlíð og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Fyrir aftan Gunnlaug situr Margrét Haraldsdóttir (d. 24.6.2000) og við hlið hennar Bjarney Valdimarsdóttir með dóttur sína Erlu Maríu Lárusdóttur í fanginu. Við hlið Bjarneyjar er svo Halldóra Þorláksdóttir. Upp við bakvegginn eru, frá vinstri: tveir óþekktir, Rúnar Loftsson, Karl Lúðvíksson íþróttakennari, tvær óþekktar konur, Skúli Tómas Hjartarson, Halldór Gunnar Ólafsson, Rafn Ingi Rafnsson, Eiríkur Lýðsson, Jóhann Ásgeirssonr, Óli Hjörvar Kristmundsson, Þráinn Bessi Gunnarsson og Guðmundur Óskarsson . Fyrir framan þá
Guðmundur Guðnason217
Þessi mynd er tekin af planinu framan við gamla frystihúsið haustið 1961. Lengst til vinstri sér í grindverkið kringum sundlaugina og í hornið á búningsklefunum sem þá voru. Þá kemur spennistöðin og á bak við hana er verslunarstjórahúsið sem byggt var 1906 en rifið á níunda áratugnum. Stóra húsið á miðri mynd er svo kaupfélagið með áletruninni "Kaupfélag Skagstrendinga". Til hægri við kaupfélagið grillir í gömlu verslunarhúsin sem á þessum árum voru notuð sem geymslur undir sement, fóðurbæti og annað slíkt. Á myndinni má sjá að ekki var búið að fylla upp í víkina neðan við sundlaugina - gömlu vörina.
Guðmundur Guðnason104
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni er fólk að handlanga farangur sinn, um borð í Fagranesinu, í land í Ögri í Ísafjarðardjúpi eftir sjóferð frá Ísafirði. Á myndinni eru frá vinstri: Óþekktur, tveir óþekktir skipverjar, Ragna Friðriksdóttir(d. 5.2.1991), Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Sigurður Jónsson, Ólafur Bernódusson, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (snýr baki í myndavélina), Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) (snýr baki í myndavélina), Ólafur Guðmundsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006)(með hatt).
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 092
<p>Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Á myndinni eru Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) að spjalla saman. Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) situr upp við gluggann og í fremstu röðinni má þekkja Þorfinn Bjarnason (d. 6.11.2005) og Huldu Pálsdóttur konu hans. </p>
Ólafur Bernódusson051
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á litlu jólum er leyft að vera með nammi og gos í skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Inga Kristjánsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir öll úr 1968 árganginum.
Ólafur Bernódusson053
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er hópverkefni í gangi. Frá vinstri: Óþekkt, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, óþekkt, Hafdís Ásgeirsdóttir, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir en unglingurinn við saumavélina er óþekktur.
Jón Jónsson170
<p>Hér má sjá á sviðinu í Fellsborg frá vinstri: Guðjón Árnason, Guðmunda Ólafsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Þórarinn Ingvarsson. Baksviðs má þekkja Elísabetu Hallbjörnsdóttur með blöð í höndunum og Bjarney Valdimarsdóttiur sitjandi. Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 1893 eða 1984. Dansatriðið þótti það gott að það var síðar sýnt á Húnavöku á Blönduósi. </p>
Guðmundur Guðnason190
Myndin var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Réttarstörfum er líklega lokið og menn að undirbúa heimferð. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson058
Jón Pálsson var skólastjóri Höfðaskóla í u.þ.b. tvo áratugi fram til ársins 1986 er hann lét af störfum. Hér er hann í ræðustól í skólanum við einhvert hátíðlegt tækifæri.
Jón Jónsson188
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Linda Hafdal er lengst til vinstri en Jóhanna Ólafsdóttir prestsfrú og Friðjón Guðmundsson málari eru í forgrunni.
Magnús B Jónsson034
Kötturinn sleginn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Maðurinn með trefilinn er Ólafur Bernódusson kennari og maðurinn með yfirskeggið er Hallgrímur Hjaltason. Drengurinn með víkingahjálminn er Þorsteinn Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Nemendur Barnaskólans á Skagaströnd 069
Á myndinni eru nemendur barnaskólans á Skagaströnd einhverntíma um 1940 í skólaferðalagi til Hreðavatns. Myndin er á bls. 152 í bókinni Byggðin undir Borginni og samkvæmt henni eru á myndinni: Fjóla Sigurðardóttir, Inga Þorvaldsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Sigurbjörg Óskarsdóttir, Elín Jónsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Árni Andrésson, Unnur Stefánsdóttir, Knútur Berndsen, Soffía S. Lárusdóttir, Birgir Árnason, Ingibjörg Kristmundsdóttir, Þórarinn Björnsson, Jens Jónsson, Sigurjón Jóhannsson kennari, Björn Kristjánsson, Guðný Sigurðardóttir, Hjörtur Hjartarson, Kristjana S. Lárusdóttir og Jóhann Bogason.
Guðmundur Guðnason251
Íslenskur hundur fyrir utan Stóra Berg, sem nú er horfið. Í baksýn sér í Iðavelli. Þetta var Skúmur sem Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) átti en hann bjó á Stóra Bergi.
Guðmundur Guðnason290
Sunnuhlíð - Bogabraut 19. Þar bjuggu lengi Árný Halla Magnúsdóttir (d. 12.5.1996) og Sigurjón Jóhannsson (d. ?) með dætrum sínum Ragnheiði og Önnu Báru.
Guðmundur Guðnason289
Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) biskup í stólnum í Hólaneskirkju - eldri á vísitasíuferð um landið.
Guðmundur Guðnason216
<p>Mynd frá kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Mennirnir á myndinni eru Þorkell Sigurðsson frá Barkarstöðum í Svartárdal og Ingólfur Bjarnason frá Bollastöðum.</p>
47_Kaupfelagid_fra_Hofdanum_Postkort_E_Hemmert
Myndin er tekin ca 1930 af Höfðanum yfir Kaupfélagið og verslunarhúsin í útbænum eða á Skagaströnd eins og kallað var. Húsin á myndinni eru frá hægri: verslunarstjórahús, Kaupfélag Skagstrendinga (KAST), Assistentahús sem stendur þvert á háreist pakkhúsið sem er með viðbyggingu til norðurs. Ljósa húsið nær okkur er Garður. Vinstra megin við pakkhúsið er Sæmundsenbúð.
Guðmundur Guðnason356
Kárastaðir - Bankastræti 5. Þarna bjuggu Bræðurnir Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) ) og Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) fyrst með móður sinni Sigurbjörgu Sigurbjörnsdóttur (d. 31.12.1965) en eftir að hún lést, með ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur og dóttur hennar Kristínu Sigurðardóttur. Kárastaðir eru nú horfnir.
Guðmundur Guðnason221
Frá Hólahátíð 25. ágúst 1963.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn 047
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Vesturhliðin á verksmiðjunni.
Guðmundur Guðnason270
Lækjarhvammur - Suðurvegur 1 á Skagaströnd. Lengi bjuggu í húsinu eigendur þess hjónin Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) málari og Hulda Árnadóttir (d. 14.2. 2007) hjúkrunarkona með dóttur sinni Hörpu Friðjónsdóttur. Lengst af voru ýmsir leigjendur í kjallaranum.
Guðmundur Guðnason108
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Farangur hópsins handlangaður úr Fagranesinu upp á bryggju í Ögri. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Óþekkt kona, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) (með hatt), Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Guðmundur Viðar Guðmundsson, þrír óþekktir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Ingibjörg Axelma (Didda) Axelsdóttir (d. 6.3.2007) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
Guðmundur Guðnason247
Fermingarárgangur 1981. Fremst frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Svenny Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir. Miðröð f.v.: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson, Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð f.v.: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Erna Rós Magnúsdóttir og Ingvar Þór Jónsson. Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri).
Ólafur Bernódusson054
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er skólasjórinn Páll Leó Jónsson og tveir starfsmenn Útvarps Höfðaskóla sem starfrækt var þessa viku. Starfsmennirnir eru Viggó Magnússon útvarpsstjóri með hljóðnemann og Þorlákur Sveinsson tæknimaður. Börnin tvö í forgrunninum eu óþekkt.
Guðmundur Guðnason285
Áramótabrenna. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Magnús B Jónsson039
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Ólafur Bernódusson056
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Hér eru starfsmenn Útvarps Höfðaskóla að störfum. Frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorsteinn Jónsson, Ægir Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson
Elínborg með bekk Kalla og Begga 009
Bekkjarmynd af börnum í Höfðaskóla fæddum 1953. Myndin gæti verið tekin ca 1963. Aftasta röð frá vinstri: Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) Lækjarhvammi, Böðvar Jónsson Sænska húsinu, Ólína Bjarnadóttir Bjarnarhöfn, Gylfi Jóhannsson Lækjarbakka og Sveinn Mássson Réttarholti. Miðröð frá vinstri: Sigurður Þorbjörnsson Akurgerði, Gísli Bergsson Hólanesi, Jón Geir Jónatansson Höfðabrekku, Jón Jósefsson Reykholti, Finnur Kristinsson Héðinshöfða og Guðmundur Kristinsson Bræðraborg. Fremsta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson Hólabraut 25, Halla Júlíusdóttir Höfðabergi, Elínborg Jónsdóttir kennari Röðulfelli, Edda Þórarinsdóttir Höfðaborg og Ingibergur Guðmundsson Hólabraut 25.
Guðmundur Guðnason200
Bjarnarhöfn eða Bankastræti 8. Til vinstri sér í fjós Kárastaðabræðra.
Guðmundur Guðnason196
<p>Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.</p>
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 097
Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Lárus Guðmundsson í ræðustól.
Guðmundur Guðnason071
Aftan á þessari mynd stendur: "Sverrir Haraldsson og 3 strákar. Myndin tekin á Litla-Vatnsskarði". Fleira er ekki vitað um myndina en ef þú veist hvaða stráka er um að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 093
<p>Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Fremst sitja: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Litli uppáklæddi drengurinn í næst fremstu röð er Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk sem situr við hlið móður sinnar Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987). Til vinstri í sömu röð, með krosslagða handleggi, er Ingunn Júlíusdóttir (d. 22..4.1998). Aðrir á myndinni eru óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason267
Kárastaðir eða Bankastræti 5 hafa nú verið rifnir. Húsið var fyrst byggt með skúrþaki en seinna var byggð hæð ofan á það. Ef vel er gáð má sjá skilin milli gamla og nýja hlutans á stafninum. En seinna var svo byggður við húsið skúrinn sem er næstur okkur á myndinni. Húsið áttu bræðurnir Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989).
Ólafur Bernódusson052
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987 og hér er í gangi einhver þraut úti á skólavelli. Frá vinstri: Þorlákur Sveinsson, Vilborg magnúsdóttir kennari og Gunnar Borg Jónsson sem einbeitir sér að þrautinni sem hann á að leysa.
Guðmundur Guðnason079
<p>Slegið með Ferguson. Maðurinn er óþekktur en ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Guðmundur Guðnason262
Hólaneskirkja eldri var tekin í notkun 1928 en var afhelguð og rifin fljótlega eftir að nýja kirkjan var vígð 1991.
Guðmundur Guðnason350
Höfðaberg er nú horfið. Það stóð upp undir Höfðanum norðan við Bankastrætið. Þar bjuggu m.a. Júlíus Árnason (d. 24.3.1985) og Steinunn Guðmundsdóttir (d. ?) kona hans með sínum börnum. Sævar Bjarnason og Eygló Guðbjartsdóttir áttu húsið og bjuggu í því um tíma en bróðir hennar Hjörtur Guðbjartsson og Ingibjörg Skúladóttir kona hans keyptu það og áttu heima í því í nokkur ár með Skúla Tómasi syni sínum.
Guðmundur Guðnason228
Frændsystkinin Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson í Hólaneskirkju (eldri) eftir ferminguna sína vorið 1981.
Guðmundur Guðnason306
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn með ljósu húfuna er Garðar Stefánsson (d. 14.3.1999) frá Kúskerpi, Magdalena Jónsdóttir (d.3.4.1972) frá Sölvabakka er stúlkan á miðri mynd og Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta - Gili er í blárri peysu hægra megin við hana. Stefán Ágústsson (d.22.11.1989) frá Ytri - Ey er á myndinni í bakgrunni og einnig Hallgrímur Einarsson (d.3.4.1998) frá Neðri - Mýrum. Milli Magdalenu og Frímanns sér í Þorstein Hafþórsson Blönduósi í rauðum vatnsbuxum.
Magnús B Jónsson080
Allt á kafi í snjó á Skagaströnd. Bogabrautin í forgrunni.
Guðmundur Guðnason335
Bjarmaland stendur við Skagaveg. Þar bjuggu lengi hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) ásamt dóttur sinni Áslaugu Hrólfsdóttur.
Magnús B Jónsson044
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Elínborg Jónsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Ágúst Jónsson, Ólafur Bernódusson, Katrín Sigurjónsdóttir, Jón Pálsson, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur leiðbeinandi og Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
Guðmundur Guðnason180
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Ljóshærði drengurinn í lopapeysunni er Kjartan Bjarnason frá Holti. Maðurinn með hendur í vösum er Sigmar Jóhannesson. Aðrir eru óþekktir.
14_Innbr_af_Hofda
Myndin er tekin 1945-1946. Búið er að byggja helming mjölskemmunnar en austari hluti hennar er í byggingu eins og skorsteinninn. Í vinstra horni myndarinnar sér í hornið á Skálholti. Nær okkur sést svo örlítið í þökin á Dvergasteini og Draumalandi. Niðri í hægra horninu eru svo Kárastaðir sem seinna var byggt ofan á. Húsin sem standa niður með Skagavegi eru svo: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði áður en byggt var við hann, Garður og braggarnir.
Óþekktur ljósmyndari121
Bærinn Brautarholt var reistur 1914 af Ólafi Jóni Guðmundsyni utan í hólnum sem stendur á milli Fellsbrautar 9 og Fellsbrautar 13. Ólafur bjó þarna með móður sinni sem hét Elísabet Karólína Ferdínantsdóttir. Ólafur giftist Þuríði Jakobsdóttur og eftir það bjuggu þau þrjú í Brautarholti. Elísabet dó 1958, Þuríður 1965 og Ólafur 1985 þá orðinn blindur. Brautarholt var rifið árið 1987. Þessi mynd var tekin 1977.
Ólafur Bernódusson049
Hér veitir Jón Pálsson skólastjóri Höfðaskóla, Kristjönu Jónsdóttur verðlaun fyrir einhvern góðan árangur. Stefán Ægir Lárusson bíður til hliðar eftir að röðin komi að sér. Myndin er tekin snemma á níunda áratugnum.
Magnús B Jónsson036
<p>Hluti leikritsins: Óvitar, sýnt á árshátíð Höfðaskóla. Leikararnir eru óþekktir en í leikritinu eru fullorðnir látnir leika börn og börn leika fullorðna. </p>
Guðmundur Guðnason092
Frá vinstri: Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir aldar upp í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Lengst til hægri er Ásdís Þórbjarnardóttir sem var alin upp á Flankastöðum (Bankastræti 7).
Magnús B Jónsson081
Allt á kafi í snjó á Skagaströnd, Brautarholt er fremst á myndinni sem tekin var upp Fellsbrautina.
Guðmundur Guðnason166
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn til vinstri, með derhúfu, er Magnús Indriðason frá Húsey. Þriðji frá hægri er Jakob Sigurðsson (d. 27.5.1991) frá Steiná síðar á Hóli. Til hægri er Ottó Þorvaldsson frá Víðimýrarseli og teymir hyrnda kind.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn051
Guðbjartur Guðjónsson (Bjartur í Vík) og Bernódus Ólafsson (Benni Ólafs). Bjartur er til vinstri á myndinni. Þessi mynd er tekin á sýningu í skólanum á handavinnu í Félagssarfi eldri borgara í desember 1987. Einnig var sölusýning á handunnum munum og var verið að safna fyrir stórri kaffivél og læstum skáp undir handavinnu og lager . Þetta tókst. Kvennfélagið seldi kaffi til styrktar sér.
Guðmundur Guðnason293
Hólabraut 17 byggðu hjónin Hallbjörn Björnsson og Guðný Sigurðardóttir á áttunda áratugnum. Þarna ólu þau upp börnin sín þrjú : Björn, Elísabetu og Gunnar Halldór.
Guðmundur Guðnason336
Þessi mynd af kirkjukórnum var tekin á einhverju námskeiði þar sem Kjartan Jóhannesson var leiðbeinandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Aftari röð frá vinstri: Kjartan Jóhannesson söngþjálfari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fremri röð frá vinstri: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Erla Lárusdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Edda Pálsdóttir.
Magnús B Jónsson035
<P>Dansatriði á árshátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Vigdís Ósk Ómarsdóttir , Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir, Elísabet Stefanía Hallbjörnsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Hafdís Eygló Þorvaldsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Stúlkurnar dönsuðu frumsaminn dans sem þær sömdu með hjálp kennara síns, Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. dansað var við lagið "How will I know" með Whitney Huston. Búningana hönnuðu stúlkurnar sjálfar og saumuðu buxurnar sem þær eru í á myndinni.</P><br><P> </P>
Magnús B Jónsson037
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Guðmundur Guðnason197
Karlar á spjalli við Spákonufellsrétt 1962. Bíllinn til hægri var af gerðinni Unimog og þótti sérkennilegt farartæki. Bíllinn var í eigu Jóhanns Péturssonar (d.13.1.1999) frá Lækjarbakka.
1
…
7
8
9
…
65
Leita í myndasafninu
Leita