Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson030
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jóney Gylfadóttir syngur en Ægir Jónsson spilar á trommur. Myndin var tekin ca 1985.
Guðmundur Guðnason334
Blönduóskirkja eldri.
Guðmundur Guðnason329
Útbærinn að vetri til séð af Höfðanum. Margt hefur breyst síðan þessi mynd var tekin. Tankarnir lengst til hægri tilheyrðu síldarverksmiðjunni en hafa nú verið rifnir. Frystihúsið aftan við tankana var endurbyggt og breytt. Kaupfélagshúsið (verslunarstjórahúsið) til vinstri við sundlaugina hefur verið rifið. Nýir búningsklefar eru komnir við sundlaugina. Við Bankastrætið, sem er næst okkur á myndinni, er búið að rífa bæði Flankastaði (annað hús frá hægri við götuna) og Kárastaði (þriðja hús frá hægri). Nýtt hús hefur þó verið byggt á Flankastöðum. Húsið næst okkur til vinstri, Höfðaberg, er horfið og líka Höfðakot, sem er hægra megin við Höfðaberg, með fjárhúsum og hlöðu. Ef horft er niður eftir Skagavegi sér ofan á þakið á Steinholti næst okkur til vinstri. Þá koma Skálholt og Þórhamar en næstu þrjú hús, Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður eru öll löngu horfin. Braggarnir tveir sem grillir í norðan við stóru síldarverksmiðju-skemmuna eru báðir horfnir. Í öllum þessum húsum bjuggu góðir og gegnir Skagstrendingar með fjölskyldum sínum og lögðu sitt af mörkum til að gera Skagaströnd að því sem hún er í dag.
Magnús B Jónsson038
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til vinstri.
Guðmundur Guðnason299
Steinholt. Þar bjuggu hjónin Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) og Pálína Sigríður Frímannsdóttir (d.5.7.1962) með fjórum börnum sínum: Frímanni, Kristni, Kristínu og Karli. Í baksýn er húsið Höfðaberg sem nú er horfið.
Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson í Hólaneskirkju 082
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson sóknarprestur talar í Hólaneskirkju (eldri).
Jón Jónsson221
Rjúpnafell. Þarna var heimili Guðbergs Stefánssonar (d. 15.9.1991). Húsið stóð við víkina milli Hólanessins og Hrafnár.
Guðmundur Guðnason266
Byrjunarframkvæmdir við söluskálann á Skagaströnd.
12_Skemman_Hofdinn
Verksmiðjan til vinstri og Hafnarhúsið til hægri. Myndin tekin 1945 - 1946.
52_Kaupfelagid_og_Einbui_fra_Hofda
Myndin er tekin 1945 eða 1946 því sjá má að skorsteinn verksmiðjunnar er í byggingu. Sundlaugin er komin en enn vantar kyndihúsið við hana.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 089
Vígsla nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Á myndinni má þekkja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Huldu Pálsdóttur fremst. Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) er konan sem situr vinstra megin með röndóttann trefil en konan aftan við Pétur, með krosslagðar hendur, er Ingunn Júlíusdóttir (d. 22.4.1998). Lengst til vinstri er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) með myndavél. Milli Péturs og Huldu sjást Elsa Axelsdóttir Schiöth (d.14.7.1966) til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason382
Fermingarárgangur 1977 (Fædd 1963) í Hólneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni. Aftasta röð frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Ragnar Jónsson, Kristján Ólafsson, Árni Geir Ingvarsson, Fannar Viggósson, Björn Ingi Óskarsson og Kristján Blöndal. Miðröð frá vinstri: Þorlákur Jónsson, Steinunn Berndsen, Elín Jónasdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Valdís Valdimarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Erna Högnadóttir, Kenny Hallbjörnsdóttir, séra Pétur, Sigríður Sigurðardóttir og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir.
10_Holnes_til_Hofda
Á myndinni sést að tankar verksmiðjunnar eru í byggingu. Myndin er því tekin 1945 eða 1946. Sjá má tjöld verkamannanna á túninu neðan við Tjaldklaufina á Höfðanum. Á myndinni sést líka vel staðsetning "Hólsnefsbryggju" sem var fram af fiskvinnsluhúsi kaupfélagsins (seinna Hólaness hf).
Guðmundur Guðnason362
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Grund æfir sig á orgelinu í Hólaneskirkju eldri. Þar var Kristján organisti og kórstjórnandi um árabil.
Guðmundur Guðnason263
Húsið Dagsbrún stóð rétt hjá núverandi stjórnsýsluhúsi á Skagaströnd. Síðustu íbúar í Dagsbrún voru hjónin Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) og Ólína Hjartardóttir ( d. 27.7.1983) ásamt börnum sínum, Sigríði, Kristófer og Héðni.
Óþekktur ljósmyndari121
Starfsfólk og stjórn Skagstrendings hf gerir sér glaðan dag í Þórskaffi 1977. Frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson, Elísabet Árnadóttir (Bebbý), María Konráðsdóttir, Ragna Friðriksdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekkt, Halldóra Þorláksdóttir, Guðjón Guðjónsson, Óskar Þór Kristinsson, óþekkt, Gylfi Guðjónsson, Ólafur Ingibjörnsson, Högni Jensson, Jón Þorgeirsson, Már Hall Sveinsson og Kristján Hjartarson
Guðmundur Guðnason308
Ægissíða sem var heimili ljósmyndara þessarar myndar, Guðmundar Guðnasonar. Ægissíða, sem nú er löngu horfin, stóð við þjóðveginn norður með Höfðanum rétt sunnan við Réttarholt. Í baksýn sést Skeifan sem er efsti hluti Hólabrautar. Lengst til vinstri er Hólabraut 31 eða Jórvík næst eru Hólabraut 27 og 25 og rauða húsið er Sænska húsið eða Hólabraut 23. Fleiri hús voru ekki komin á Skeifuna, þegar myndin var tekin, en nú er nánast fullbyggt við götuna.
Guðmundur Guðnason300
<p>Þessi mynd var tekin við afhjúpun minnisvarðans um fyrsta íslenska kristniboðann Þorvald víðförla Koðránsson. Þetta er fyrir neðan Gullstein, fram undir Stóru-Giljá í A-Hún, þann 19. júlí 1981. Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) skáld frá Skagaströnd er að flytja þarna frumort kvæði sitt - Fyrsti íslenski kristniboðinn -. Í fremstu röð hægra megin við ræðustólinn má þekkja herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) biskup og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Guðmundur Guðnason297
Hólabraut 20 (hvíta húsið á myndinni) var byggt af hjónunum Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra og Halldóru Þorláksdóttur (d.27.12.2017) en þau fluttu inn í það í júní 1978. Eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur bjuggu í húsinu hjónin Guðmundur Finnbogason og Ásthildur Guðmundsdóttir með þremur börnum sínum: Finnboga, Geirþrúði og Valgerði.
Guðmundur Guðnason380
Gamli bærinn að Höfðahólum. Þarna er í dag minningarskjöldur um bæinn.
Guðmundur Guðnason338
Messa í Hólaneskirkju eldri. Organisti er Jane Sillar (nú Jane Grose) en presturinn í stólnum er séra Ægir Fr. Sigurgeirsson. Hinn presturinn er séra Guðni Ólafsson á Melstað. Kirkjugestir eru óþekktir nema konan sem situr vinstra megin framan við hvíthærðu konuna er Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Guðmundur Guðnason476
Kaffisamsæti í Höfðaskóla 1958 þegar byggingin var tekin í notkun. Maðurinn á miðri mynd er Sveinn Kristófersson frá litla Bergi (d. 9.5.1991). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason298
Séra Árni Sigurðsson í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergastaðakirkju 1983.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 091
Vígsla nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Skólabörn og foreldrar þeirra hlusta á vígsluræður.
Guðmundur Guðnason349
Ægissíða. Ásholt og Ás í baksýn.
Guðmundur Guðnason282
Ægissíða, heimili Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar.
Guðmundur Guðnason351
Sólheimar standa við Skagaveg. Húsið byggðu Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) og Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979) og bjuggu þar með börnum sínum þremur: Jóni Inga, Árna Birni og Elínborgu.
Guðmundur Guðnason220
Hestarnir teknir til kostanna á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason347
Asparlundur eða Bogabraut 24. Þar bjuggu lengst Jón Jónsson (d. 9.7.1991) og María Magnúsdóttir ásamt börnum sínum: Fjólu, Magnúsi Birni og Gunnari Jóni.
Magnús B Jónsson040
Þessir ungu menn sáu um að spila tónlist á árshátíðardansleiknum á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru: Davíð Reynisson frá Harrastöðum í rauðri peysu, Viggó Magnússon í grænni skyrtu og Kristján Karlsson í ljósum jakka. Aðrir eru óþekktir.
32_Litla-Berg_1945
Litla-berg 1945
Guðmundur Guðnason274
Túnbraut 5, Skagaströnd í byggingu. Í húsinu eru fjórar íbúðir en það var byggt sem félagslegar íbúðir. Þrjár þeirra voru í eigu einstaklinga en ein var í eigu sveitarfélagsins sem leiguíbúð. Til vinstri sér í fjárhús og hlöðu sem var í eigu Páls Jónssonar.
Guðmundur Guðnason244
Stíflan í Hrafnánni var á sínum tíma gerð til að safna neysluvatni fyrir bæjarbúa. Í mörg ár var allt neysluvatn tekið þarna úr ánni en það gat stundum verið gruggugt á leysingum á vorin. Einnig kom það fyrir að skepnur, kindur eða hestar, drápust í ánni ofan við stífluna þannig að fólk var að drekka seyðið af þeim næstu mánuði. Í bókinni Byggðin undir Borginni segir á bls. 298:<br><em>........Vatnsveita Skagstrendinga þótti löngum mjög slæm. Notast var við árvatn úr Hrafná sem oft varð dökkt af óhreinindum,einkum í vorleysingum og því mjög óheppilegt til nútímalegs fiskiðnaðar og auk þess hvimleitt sem neysluvatn...........</em>
Guðmundur Guðnason307
Sigurður Bjarnason frá Bjargi til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson frá Vík til hægri á ferðalagi 1974. Þarna eru þeir staddir í kvíum á Húsafelli.
Guðmundur Guðnason245
Rósa Sigurðardóttir á fremingardeginum sínum með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri)
Guðmundur Guðnason264
Bragginn fyrir miðri mynd er gamla Tunnan. Húsið hefur gegnt margvíslegum hlutverkum gegnum árin eftir að það var byggt á stríðsárunum. Þegar þetta er skrifað, í maí 2013, hefur húsið verið tekið í gegn og nú er í því Spákonuhof. Til vinstri er Rafstöðin og viðbygging sem þjónar nú sem áhaldahús Skagastrandar. Til hægri á myndinni er grænn skúr. Hann þjónaði um tíma sem lögreglustöð á Skagaströnd. Á milli Tunnunnar og Rafstöðvarinnar sér í Stóra Berg hægra megin við kirkjuna.
Magnús B Jónsson045
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Róbert Þórðarson, Guðný Sigurðardóttir, Diðrik ? leiðbeinandi, sem nú býr í Lúxemborg, Magnús B. Jónsson, Björk Axelsdóttir, Steinunn Grímsdóttir, Karl Lúðvíksson og Kjartan Birgisson.
Guðmundur Guðnason242
Fremst eru fjárhús og hlaða sem voru í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar (d. 10.9.1989) frá Kárastöðum. Gulu húsin í baksýn voru fjárhús og hlaða sem Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í Stórholti átti. Bæði stóðu þessi fjárhús í þyrpingu slíkra skepnuhúsa undir Höfðanum við götuna sem liggur út með honum að austanverðu.
Guðmundur Guðnason276
Þessi mynd er líklega tekin um 1980. Hálfa húsið lengst til vinstri eru Sólheimar eldri. Gula húsið sömu megin við götuna er Bjarmaland þar sem lengi bjuggu Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3. 1996) með dóttur sinni, Áslaugu. Gula húsið með brúna þakinu er Steinholt þar sem bjuggu Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) og Sigríður Frímannsdóttir (d. í júlíbyrjun, 1962) með fjórum börnum sínum. Skálholt er næsta hús við Steinholt, sömu megin götunnar. Þar bjó eitt sinn Jói norski, Jóhann Baldvinsson (d. 9.4.1990) ásamt konu sinni Core Sofie Poulsen (d. 1987) og börnum. Þá kemur Þórshamar þar sem ýmsir hafa búið en fyrst Kristján Sigurðsson (d. 3.11.1966) verslunarmaður og Unnur Björnsdóttir (d. ?) með sínum börnum á efri hæðinni en Baldur Árnason (d. 14.11.2009) og kona hans Esther Olsen (d. 17.4.2003) á neðri hæðinni með sínum börnum. Í hvarfi við Þórshamar er Þórsmörk en litli kofinn með rauða þakinu á miðri mynd eru fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Þórsmörk. Í Þórsmörk bjuggu Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1980) og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) með börnum sínum. Héðinshöfði er næstur í göturöðinni. Þar bjuggu lengst af Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990) og börn þeirra í norðurendanum en í suðurendanum voru lengi Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Finnsdóttir kona hans með börnum sínum fjórum. Næst okkur á myndinni með grænu þaki er Höfðaberg. Þar hafa ýmsir búið sér heimili, m.a. Júlíus Árnason (d. ?) með konu sinni Steinunni ?? (d. ?). Næst við Höfðaberg kemur Höfðakot með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu. Þar áttu heima hjónin Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992)og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) ásamt bróður Halldóru, Guðmundi Péturssyni (d. 30.6.1987). Steingrímur og Halldóra eignuðust mörg börn og ólu líka upp tvö barnabörn sín. Stórholt ber yfir Höfðakot en í Stórholti var þríbýli. Á helmingi efr
Guðmundur Guðnason294
Myndin er frá hátíðamessu - sennilega í Bergstaðarkirkju í Svartárdal - einhverntíma á árunum 1981 - 1986. Fyrir altarinu er séra Birgir Snæbjörnsson að blessa söfnuðinn. Prestarnir til hægri eru: séra Hjálmar Jónsson sést á hlið með skegg, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er framan við hann en til hægri við Hjálmar er séra Oddur Einarsson og séra Árni Sigurðsson með hökuskegg. Við hlið predikunarstólsins sér aftan á séra Ólaf Hallgrímsson. Gráhærði maðurinn með gleraugun í áheyrandahópnum er Jón Tryggvason frá Ártúnum (d. 7.3.2007). Í kórnum eru Sigurjón Guðmundsson lengst til hægri og Guðmundur Valtýsson stendur framan við ofninn en aðrir kórfélagar eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 090
Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Í fremstu röð frá vinstri eru: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Undir glugganum sitja talið frá hægri: Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974), Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason265
Miðnes eða Sigurðarhús. Í þessu húsi bjó lengi Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2. 2007) með konu sinni Rósu Pétursdóttur (d. 10.10. 1998). Þau hjón ráku bókaverslun í húsinu og þar var einnig afgreiðsla Sparisjóðs Skagstrendinga þar sem Björgvin var sparisjóðsstjóri.
Magnús B Jónsson042
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1969 . Í fremstu röð eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Guðmundur Oddsson. Röð tvö f.v.: Pálína Harðardóttir, Hulda Magnúsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir. Þriðja röð f.v.: Stefán Ægir Lárusson (fæddur 1970), Arnar Erlingsson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Aftasta röð f.v.: Ingvi Sveinn Eðvarson, Ólafur Bernódusson kennari, Þráinn Bessi Gunnarsson, Hjalti Magnússon og Hjalti Reynisson.
Guðmundur Guðnason268
Röðulfell - Elínborgarhús - Fellsbraut 19 á Skagaströnd. Húsið byggði Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1. 2007) kennari og ættfræðingur frá Másstöðum í Vatnsdal. Elínborg starfaði við Höfðaskóla í u.þ.b. 50 ár.
Magnús B Jónsson033
Kennaragrín á árshátíð Höfðaskóla. Kennarar flytja ræður um eigið ágæti. Frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir, Elínóra Rafnsdóttir, Inga Matthíasdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Ólafur Bernódusson, Björk Axelsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir og Jón Pálsson skólastjóri.
Guðmundur Guðnason295
Hólabraut 15 var byggt af hjónunum Sveini Ingólfssyni og Helgu Jóhannesdóttur sem bjuggu þar með þremur börnum sínum: Ingólfi, Jóhannesi Kristjáni og Jóhönnu Viktoríu þar til fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Húsið var byggt á sjöunda áratugnum.
30_Spakonufell
Bærinn að Spákonufelli sem stóð u.þ.b. þar sem kirkjugarður Skagstrendinga er í dag.
Guðmundur Guðnason355
<P>Ægissíða, heimili ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og foreldra hans Guðna Sveinssonar (d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur (d.12.6.1966). Húsið er nú löngu horfið en mun að stofni til hafa verið flutt utan úr Kálfshamarsvík. Þar bjuggu í því Sigurður Júlíusson og Guðbjörg Guðjónsdóttir kona hans, líklega til 1943. Þá keyptu Björn Jóhannesson og Ragnheiður Jónsdóttir húsið og bjuggu í því til 1948, er þau fóru að Bergstöðum. Guðni Sveinsson og Klemensína Klemensdóttir bjuggu í húsinu eftir það, en líklega keypti Pálmi sonur þeirra húsið af Birni.</P>
Magnús B Jónsson079
Þessir krakkar fóru í gönguferð frá Höfðaskóla á góðviðrisdegi með kennaranum sínum. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1980 í Hólabergjunum. Á myndinni eru, frá vinstri: Óþekkt, Ragna Gunnarsdóttir, óþekkt, Jóney Gylfadóttir, Þröstur Árnason, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hallgrímur Oddsson (með tunguna út úr sér), Anna Dröfn Guðjónsdóttir, óþekktur, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson, óþekktur, Óli Hjörvar Kristmundsson, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, óþekktur, óþekktur, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Rósa Sigurðardóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Baldur Magnússon, Theódór Karlsson og Atli Þórsson. Ef þú þekkir einhvern sem er óþekktur á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á netfangið:
[email protected]
Magnús B Jónsson029
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Bassaleikarinn og söngvarinn á myndinni er Viggó Magnússon. Ægir Jónsson spilar á trommur. Myndin var tekin ca 1985.
Guðmundur Guðnason317
Þessi skúr var við Spákonufellsrétt. Þarna seldu kvenfélagskonur gjarnan kaffi og með því á réttardögum. Skiltið málaði Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og hafði Ólaf Guðmundsson (d.6.10.1985) frá Brautarholti sem fyrirmynd.
Guðmundur Guðnason385
Fermingarbörn 1981 (fædd 1967) með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju á fermingardaginn sinn. Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Laufey Vilmundardóttir og Ingvar Þór Jónsson. Miðröð frá vinstri: Óafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson og Björn Hallbjörnsson. Fremsta röð frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, séra Pétur, Svenny Hallbjörnsdóttir og Rósa Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason391
Gömlu bæjarhúsin og útihúsin á Litla Felli. Bæjarhúsið stóð áður á Hólanesi en var flutt að Felli og endurreist þar. Börnin eru að leik sunnan við húsin. Til vinstri er nýja íbúðarhúsið í byggingu.
Guðmundur Guðnason337
Vala Rós Ingvarsdóttir stendur milli föður síns Ingvars Sigtryggssonar og séra Péturs Þ. Ingjaldssonar á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Guðmundur Guðnason291
Bogabraut 17 byggðu hjónin Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir. Þarna ólu þau upp börnin sín þrjú Gunnar Þór, Önnu Elínborgu og Áslaugu Sif.
Guðmundur Guðnason269
Hólabraut 30 er prestsbústaðurinn á Skagaströnd. Húsið byggði Birgir Þórbjarnarson skipstjóri.
Guðmundur Guðnason471
<p>Sitjandi við kaffiborð í Höfðaskóla, af óþekktu tilefni, eru frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson Reykholti (d. 18.5.1974), Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir, Erla Lárusdóttir, Edda Pálsdóttir, Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996), Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Páll Jóhannesson frá Garði (d. 29.1.1989) og Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3.1964).</p>
Magnús B Jónsson031
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Magnús B Jónsson043
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1972. Fremri röð frá vinstri: Hjalti Kristjánsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Soffía Jónasdóttir, Gunnar Ásgeirsson og Óskar Óskarsson. Aftari röð: Svava Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Stefán Sveinsson og Þorlákur Sigurður Sveinsson. Aftast er kennarinn, Karl Lúðvíksson.
Guðmundur Guðnason392
Árbakki. Nýhafnar framkvæmdir við fjós og hlöðu norðan við bæinn.
1
…
8
9
10
…
65
Leita í myndasafninu
Leita