Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
img009
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti við réttastörf með skinnhúfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
52_Kaupfelagid_og_Einbui_fra_Hofda
Skagaströnd séð frá Höfðanum. Árið er 1936 því þá var byggt fyrsta kerið í slippnum neðan við Bjarmanes. í forgrunni myndarinnar eru kaupfélagið og Einbúinn en sundlaugin hefur ekki verið byggð.
Þórður003
Skátamót í Vatnsdal árið 1960
Óþekkt082
Snjómokstur fyrir víkina.
Þórður009

Tjaldbúðir skáta í útilegu að vetri til. Staðurinn óþekktur.

Óþekkt081
Snjóhengjur í víkinni
Óþekkt083
Allt á kafi í snjó. Myndin er tekin niður Ránarbraut
Óþekkt087
Snjótroðarinn á ferð í skafrenningi og miklum snjó á Túnbraut.
guðmundur199
Guðmundur Guðnasson póstur og ljósmyndari kominn á hestbak tilbúinn til ferðalaga. Myndin er sennilega tekin fyrir utan Hvamm í Laxárdal, en Guðmundur ólst upp hjá foreldrum sínum á nokkrum bæjum í dalnum. Myndin er sennilega tekin á fimmta áratugnum því Guðmundur og foreldrar hans fluttu frá bænum 1948 til Skagastrandar.
guðmundur186
Markið skoðað í réttunum.
guðmundur192
Á myndinni er Fosshóll og brúin við Goðafoss yfir Skjálfandafljót. Þessi brú á Skjálfandafljót var byggð 1930, kom í stað gamallar hestabrúar frá 1882 og var á aðalveginum upp á Fljótsheiði fram til 1972.
Brúin var rækilega tekin í gegn í lok 10. áratugarins og þjónar í dag sem göngubrú yfir að útsýnissvæðinu við Goðafoss. Myndin tekin laust eftir stríðið.
guðmundur203
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari með hrútinn sinn fyrir utan fjárhúsin. Myndin var sennilega tekin kringum 1950.
Jón107
Spákonufell að vetri til hulin snjóblæju.
Óþekkt095
Kjartan Stefánsson listmálari í Bjarmalandi í Spákonufellsrétt 1991
guðmundur193
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) póstur og ljósmyndari með tvær af kindunum sínum á túninu heima við Ægissíðu.
guðmundur227
Skagaströnd
guðmundur209
Hrútasýning. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) Háagerði, Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Jón Árnason (d. 11.4.1986) Ólafsvöllum (Náttbrún), Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi, Sigurjón Jóhannsson (d. 7.12.1973) Sunnuhlíð, Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) Skálholti, Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) Akurgerði og Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Hrútarnir eru óþekktir.
Óþekkt094
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
hem040
Myndin er af tveim óþekktum börnum á sumardegi á Skagaströnd. Fyrir aftan þau til vinstri er assistentastofan, sem var íbúðarhús verslunarþjónsins sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans í versluninni við hliðina. Næst assistentastofunni er pakkhúsið og svo verslunarhúsið fremst. Húsið á bak við með svartan gafl er Sæmundsenbúð. Þessi hús stóðu ekki langt austur af Einbúanum á svæðinu nálægt því þar sem Skátaskálinn stendur í dag. Evald Hemmert tók myndina en samkvæmt "Byggðin undir Borginni" (bls 118 - 119) var hann verslunarstjóri Höphnersverslunar þarna frá 1891 fram yfir 1920 þegar verslunin lagði upp laupana. Sennilega hefur því myndin verið tekin einhverntíma kringum aldamótin 1900.
Guðmundur128
Fremsta húsið er Ægisíða,heimili ljósmyndarans, til vinstri er Réttarholt, til hægri er Ásholt og við sjóinn er Sólvangur.
hem039

Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Mennirnir í bátnum, sem eru að vinna að hvaladrápinu eru feðgarnir Carl Berndsen og Ernst Berndsen frá Karlsskála, Gisli Einarsson frá Viðvík, Hjörtur Klemensson frá Vík og Steindór Árnason frá Höfðahólum.

Jón021
Fuglager
Elísabet035
Hafnarsvæðið og hluti útbæjarins á Skagaströnd einhverntíma fyrir 1950
Jón059
Spákonufell haustið 1985
guðmundur183
Maðurinn lengst til hægri er Guðmundur Guðnason. Konan og stúlkan eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón056
Jón Gunnarsson á hestbaki á Hólabrautinni
Jón101

Hér hefur ljósmyndarinn, Jón Jónsson (d.9.7.1991), verið ötull við að gefa smáfuglunum, eins og hann var reyndar vanur, á skaflinn fyrir utan húsið sitt, Asparlund .

Jón061
Skagaströnd veturinn 1983
Jón105
Hér er óþekktur jólasveinn á ferð með jólapóstinn fyrir jólin 1989. Sunnuhlíð, nú Bogabraut 19, í baksýn.
Óþekkt092
Kindur hífðar um borð í skip eða frá skipi í Skagastrandarhöfn. Tilefnið er óþekkt. Mennirnir á myndinni eru Jónas Skaftason til vinstri og Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum til hægri. Konan á myndinni er óþekkt.
03_Skagastrond_vetur
Þessi vetrarmynd af Skagaströnd er tekin ca 1935 - 1937
25_UnnurIngvarsdottir_ca_1943
Unnur Ingvarsdóttir, myndin tekin um 1943
51_Hafis_vid_Skagastrond_postkort
Mynd þessi er tekin fyrir 1915 og sýnir ís við land austan við Einbúann sem er þarna til vinstri hálfur falinn af ísjaka
06_Skagastrond_fra_Hofda_vetur
Þessi mynd er tekin 1942 eða 1943. Húsin næst okkur á myndinni eru öll horfin Höfðakot næst okkur, Dvergasteinn næst og Draumaland er pínulitla húsið til hægri. Stóru húsin tvö eru Skálholt til vinstri og Þórshamar til hægri en litla húsið hægra megin við Þórshamar er Þórsmörk sem nú er horfin.
05_Kaupfelagid_vetur

Myndin er tekin af Höfðanum sennilega 1942 eða 1943. Byggingar sem tengdust byggingu verksmiðjunnar og/eða hernum, braggar og skemmur, eru ekki komnar.

Óþekkt084
Tvær stórar vinnuvélar að moka snjó af Strandgötunni þ.e. fyrir víkina.
guðmundur005
Vetrarmynd af Skagaströnd tekin frá Höfðanum. Húsið fyrir miðju er Garðarshólmi sem í daglegu tali var kallað Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir sem þarna voru.
guðmundur007
Vetrarmynd af Skagaströnd tekin af Höfðanum.
Óþekkt086
Bíll á kafi í snjó fyrir utan skólann. Bílinn átti Einar Haukur Arason, sem var húsvörður í skólanum þegar myndin var tekin og bjó í íbúð, sem þá var í norðurenda skólans. Í baksýn sér í hornið á palli Volvo vörubíls Harðar Ragnarssonar. Barnið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur038
Spákonufell með skemmu við Ægissíðu í forgrunni.
hem038

Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að einum hvalnum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berdsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir
guðmundur228
Hólsnefið - syðsti oddi Höfðans.
Guðmundur124
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn lengst til vinstri (með hatt) er Ágúst Jakobsson sem bjó í Blálandi en fremst á myndinni (með alskegg) er Gunnlaugur Björnsson í Drangey.
Guðmundur061
Ungt folald á túninu við Ægissíðu. Ægissíða og Réttarholt í baksýn og Sólvangur fjær.
guðmundur164
Þessi ungi knapi á Skagaströnd er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón089
Lárus Björnsson (d.28.4.1995) frá Neðra Nesi, til vinstri, og Hjalti Árnason (d. 4.7.2010)frá Skeggjastöðum ræðast við í Fossárrétt 1984.
Jón040
Spákonufell í kvöldskini
Jón091
Friðgeir Eiríksson (d.17.5.1985) frá Sviðningi í Fossárrétt 1984.

óþekkt003

Lengi framan af öldum var land á núverandi Skagaströnd í eigu tveggja bæja. Bæirnir voru Spákonufell, sem var kirkjustaður, og Höfðahólar. Seinna bættust svo Hágerði og Finnsstaðir við. Þessi mynd er af Höfðahólum sem stóðu á berginu ofan við núverandi tjaldsvæði. Þar er nú fánastöng og minningarskjöldur um bæinn einnig má sjá þar nokkrar rústir ef vel er gáð. Síðustu ábúendur á Höfðahólum voru Axel Ásgeirsson (d. 21.9.1965) seinna á Litla Felli og Sigurbjörg Björnsdóttir ásamt börnum. Jóhannes Björnsson (d. 14.6.1977) og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004)foreldrar bræðranna: Páls, Sigmars, Vilbergs og Óskars nýttu fjárhúsin og túnin undir skepnur sínar en bjuggu ekki að Höfðahólum.

guðmundur195
Blesóttur hestur á túninu við Ægissíðu.
Óþekkt093
Kindur settar í land í Skagastrandarhöfn. Skegglausi maðurinn á myndinni með lamb í fanginu er Birgir Árnason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jónas Hafsteinsson frá Njálsstöðum. Aðrir eru óþekktir.
guðmundur204
Hrossarétt í Spákonufellsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón104
Jólapósturinn borinn út 1989. Félagar í Skíðadeild Fram báru út jólapóst fyrir jólasveinana í mörg ár. Síðan tók skólafélagið Rán við keflinu. Ávallt fengu jólasveinarnir mikla hjálp frá yngri kynslóðinni við útburðinn.
Jón099
Frá vinstri: Guðni Már Lýðsson, Lýður Ragnar Arason og Ásdís Lýðsdóttir í snjó á Bogabraut.
guðmundur194
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari með lamb í fanginu. Myndin er tekin á túninu heima við Ægissíðu en í baksýn sér í Laufás.
Mundi271
Þórgunnur Snædal sumarið 1960 í Ægissíðu
Jón098
Snjór á Bogabraut
Jón057
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Hópreið niður Hólabrautina.
Óþekkt097
Skagastrandarhöfn þ.e. Skúffugarðurinn með Smágarði á góðum degi snemmsumars.
1
2
3
4
5

25
Leita í myndasafninu
Leita