Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Snjór

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
316 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason924

Konan sem situr með barnið (líklega Pálínu Harðardóttur) er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Konan sem situr hjá henni er Bára Þórðardóttir. Strákarnir í sófanum eru talið frá hægri: Valdimar Valdimarsson (Númason), Ernst Berndsen, Vilhelm Harðarson og Ólafur Valdimarsson (Númason). Myndin tekin ca 1970

Björn Bergmann 019
Hafís á Húnaflóa 1963 eða 1965
Guðmundur Guðnason905
Árbakkasteinninn stendur upp úr hafísnum sem annars þekur Húnaflóann í grennd við Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin Hafísárið 1965.
Guðmundur Guðnason993
Jarðýta mokar snjó við Ægissíðu þar sem Guðmundur ljósmyndari þessarar myndar átti heima. Í baksýn sést í Melstað hinum megin við götuna. Maðurinn á myndinni er sennilega Guðni Sveinsson faðir Guðmundar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn 047
Vetur á Skagaströnd og allt á kafi í snjó. Myndin er líklega tekin veturinn 1995-96 þegar mikill snjór var í bænum. Á myndinni er Skafti Fanndal Jónasson að moka upp bílinn sinn.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn022
Á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda var mikill skíðaáhugi á Skagaströnd. Skíðalyfta var keypt og starfrækt í hlíðum Spákonufells, skíðaskálinn var byggður og skíðaáhuginn var almennur. Haldin voru fjölmenn skíðamót í svigi, bruni og skíðagöngu þar sem allir skemmtu sér vel. Fólkið á þessari mynd tók sig til og gekk á gönguskíðum frá Skagaströnd og út að Háagerði einn sunnudag vorið 1983. Þegar þangað kom beið Jón Jónsson eftir fólkinu með heitt kakó í potti og samlokur í rússajeppa sem hann átti. Standandi frá vinstri á myndinni: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Sitjandi: Jón Jónsson (d.9.7.1991), Gylfi Sigurðsson, Bára Þorvaldsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Anna Bára Sigurjónsdóttir. Myndina tók Ólafur Bernódusson fyrir utan Háagerðisbæinn.
Magnús B Jónsson055
Ólafur Bernódusson rennir sér á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Í baksýn má sjá að margir eru á leiðinni upp með lyftunni. Myndin var tekin að vori ca 1980.
Magnús B Jónsson064
Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó), rennir sér á skíðasvæði Skagstrendinga í suðuhlíðum Spákonufells. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson062
Magnús B. Jónsson í sveiflu á skíðunum á skíðasvæði Skagstrendinga í Spákonufelli. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson065

Ólafur Bernódusson rennir sér á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin tekin ca 1980.

Magnús B Jónsson050
Skíðalyftan í suðurhlíðum Spákonufells. Myndin var sennilega tekin kringum 1980.
Magnús B Jónsson081
Allt á kafi í snjó á Skagaströnd, Brautarholt er fremst á myndinni sem tekin var upp Fellsbrautina.
Magnús B Jónsson053
Vormynd af Skagaströnd tekin frá skíðasvæðinu í suðurhlíðum Spákonufells. Myndin sennilega tken um 1980.
Guðmundur Guðnason285
Áramótabrenna. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason258
Þessi mynd var tekin á skíðamóti við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Maðurinn fyrir miðri mynd, með dökk gleraugu, er Björn Sigurbjörnsson þáverandi formaður USAH. Erna Högnadóttir er þriðja frá vinstri og Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) er aftan við Björn. Aðrir eru óþekktir.
Magnús B Jónsson054
Árni Geir Ingvarsson lítur eftir skíðalyftunni á Skagaströnd. Alltaf þurfti að vera maður á lyftunni til að skammta út stafina/diskana fyrir þá sem vildu fara upp með henni. Í baksýn grillir í Lárus Ægi Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason252
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Maðurinn í úlpunni sem stendur við kaðalinn er Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) en hann átti dráttarvélina og stjórnaði henni. Ásgeir var með spotta í hendinni sem tengdur var við ádrepara vélarinnar til að geta drepið á og þannig stoppað kaðalinn ef á þurfti að halda.
Magnús B Jónsson066
Áð fyrir utan lyftuskúrinn á skíðasvæði Skagstrendinga í suðurhlíðum Spákonufells eftir góðan skíðadag. Frá vinstri á myndinni eru: Baldur Magnússon, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Ragnar Jónsson, Guðrún Pálsdóttir og Vilhelm Jónsson. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson071
Verðlaunahafar í sínum flokki á páska - skíðamóti á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Viggó Magnússon og Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn083
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson(d. 25.12.2010) fréttaritara blaðsins á Skagaströnd á þessum tíma, sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndin er skönnuð úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd eru karlarnir um borð að reyna að stjaka ísnum frá svo þeir komist á miðin. Það var mikilvægt að komast í netin því bæði fiskaðist vel og svo var líka mikil hætta á að ísinn sliti baujurnar af netatrossunum eða hreinlega tæki þær með sér þannig að þær fundust aldrei aftur.
Magnús B Jónsson063
Magnús B. Jónsson á fullri ferð á skíðunum á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson058
Baldur Magnússon á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd ca 1980.
Magnús B Jónsson074
Hópur skíðagöngufólks gengur upp þáverandi tún við Hágerði - núverandi Golfvöll. Fremstur fer Magnús B. Jónsson og síðan kona hans Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir. Þriðji er Bernódus Ólafsson en aðrir eru óþekktir. Í baksýn grillir í Höfðann í skafrenningnum sem var þennan dag.
Magnús B Jónsson069
Hér er handagangur í öskjunni. Verið er að afhenda viðurkenningarskjöl og verðlaun á skíðamóti. Eins og sjá má voru margir þátttakendur enda skíðaiðkun vinsæl á Skagaströnd á þessum árum. Myndin var tekin ca 1980. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson og konan í ljósa jakkanum er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn082
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd hefur Þórður ljósmyndari farið út á ísinn og tekur mynd af Vísi þar sem hann er að reyna að komast á miðin milli ísjakanna.
Guðmundur Guðnason914

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Á þessari mynd má sjá stökkpallinn sem sennilega mundi ekki standast kröfur dagsins í dag um slík mannvirki. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason922

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Hér hefur einn keppanda lent svolítið gleiður þannig að það er spurning hvort hann stóð mikið lengur? Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Ólafur Bernódusson121
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd syngur kirkjukórinn jólalög. Frá hægri á myndinni eru: Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir (leiðir barn), Bára Þorvaldsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Stjórnandinn er óþekktur og sama má segja um aðra á myndinni nema manninn lengst til vinstri en það er séra Oddur Einarsson þá sóknarprestur á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason859
Snjór í útbænum. Húsin eru frá vinstri: Þórshamar, Skálholt, Höfðaberg, Steinholt, Valhöll, Sólheimar (eldri) og fjárhúshlaða. Höfðaberg, Valhöll, Sólheimar og fjárhúshlaðan hafa nú öll verið rifin.
Guðmundur Guðnason920

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Á þessari mynd má sjá glæsileg tilþrif í skíðastökkinu. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason922
Óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason859
Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum með tvo hrúta við fjárhúsin hjá Bjarmalandi.
Guðmundur Guðnason971
Bjarmaland í vetrarsnjó. Þar bjuggu hjónin Hrólfur Jónsson og Sigríður Guðlaugsdóttir með dóttur sinni Áslaugu.Skúrinn lengst til vinstri sem er áfastur húsinu hýsti svo mann að nafni Einar ??
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn008
Halldór Gunnar Ólafsson 1983 fyrir utan Mánabraut 5 í miklum snjó
Ólafur Bernódusson033
Hér er verið að vinna við að ná upp bátnum Rúna Hu 101 sem Ólafur Ingibjörnsson gerði út frá Skagaströnd. Í illviðri hlóðst ísing á bátinn í Skagatrandarhöfn og hann sökk. Á myndinni er búið að koma böndum á Rúnu og stór kranabíll er byrjaður að lyfta henni úr kafi. Myndin er tekin á níunda áratugnum.
Magnús B Jónsson060
Guðbjörg Viggósdóttir að fara af stað með lyftunni upp brekkuna á skíðasvæði Skagstrendinga í suðurhlíðum Spákonufells. Nægur snjór og nægt fólk. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson061
Ólafur Bernódusson á leið upp með lyftunni á skíðasvæði Skagstrendinga í Spákonufelli. Myndin er tekin að vori til ca 1980.
Magnús B Jónsson068
Verðlaunahafar í páska - skíðakeppni á skíðasvæðinu í Spákonufelli ásamt kennaranum sínum. Frá vinstri: Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari.
Magnús B Jónsson080
Allt á kafi í snjó á Skagaströnd. Bogabrautin í forgrunni.
03_Skagastrond_vetur
Þessi vetrarmynd af Skagaströnd er tekin ca 1935 - 1937
Magnús B Jónsson052
Lárus Ægir Guðmundsson rennir sér í skíðabrekkunni í suðurhlíðum Spálkonufells. Myndin var tekin ca 1980.
Guðmundur Guðnason092
Frá vinstri: Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir aldar upp í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Lengst til hægri er Ásdís Þórbjarnardóttir sem var alin upp á Flankastöðum (Bankastræti 7).
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn 047
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Vesturhliðin á verksmiðjunni.
Guðmundur Guðnason256
Þessar ungu stúlkur tóku þátt í einhverri skíðakeppni við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Hjá þeim stendur þáverandi formaður USAH, Björn Sigurbjörnsson skólastjóri á Blönduósi. Aðrir eru óþekktir.
Magnús B Jónsson070
Ungir verðlaunahafar á páskamóti á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd með kennaranum sínum. Myndin var tekin ca 1980. Drengirnir með páskaeggin eru óþekktir nema sá í miðið er Brynjar Pétursson og kennarinn er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) frá Ísafirði. Ef þú þekkir hina drengina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson051
Skíðalyftan í suðurhlíðum Spákonufells. Óþekktur maður afgreiðir stafi út af lyftunni en Magnús B. Jónsson ber áburð á skíðin sín utan við lyftuskúrinn. Fyrir kom að það var svo mikill snjór á skíðasvæðinu að skúrinn fór á kaf ásamt lyftunni. Örlög skúrsins urðu síðan þau að hann splundraðist í ofsaveðri og dreifðist um nágrennið.
Magnús B Jónsson059
Stefán Ægir Lárusson kemur í mark í svigbraut á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson072
Hvílt á milli ferða á skíðasvæði Skagstrendinga í suðurhlíðum Spákonufells. Frá vinstri eru: Guðrún Pálsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir stúlkuna lengst til hægri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson056
Viggó Magnússon á fullri ferð eftir að hafa lokið við að renna sér gegnum svigbrautina á skíðsvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson067
Verðlaunahafar í einhverri skíðakeppni um páska. Verðlaunin voru páskaegg eins og sjá má. Myndin var tekin ca 1980. Verðlaunahafarnir eru, frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
Guðmundur Guðnason254
Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) Litla-Felli stendur vaktina við togbraut skíðamanna í Spákonufelli 1974 eða 1975. Ásgeir átti og sá um dráttarvélina sem notuð var til að knýja togbrautina.
Magnús B Jónsson057
Guðrún Pálsdóttir rennir sér í nýsnævi á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca. 1980
Guðmundur Guðnason260
Á þessari mynd sést vel togbrautin, sem var notuð með hléum á árunum 1974 - 1978, í Spákonufelli. Drifhjól var útbúið og tengt við drifúttak vélarinnar og svo var blökk komið fyrir uppi á hæðinni. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp. Bannað var að vera með trefla í lyftunni því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni og átti til að grípa vettlinga sem þá festust við kaðalinn og losnuðu ekki fyrr en á niðurleiðinni. Eitt sinn munaði litlu að slys yrði þegar kona gleymdi sér og fór upp með trefil um hálsinn. Kaðallinn greip endann og byrjaði að snúa honum um sig. Konan áttaði sig hvað verða vildi og gat losað sig við trefilinn rétt áður en hún kom að blökkinni uppi. Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) átti og sá um dráttarvélina og sést hann á myndinni aftan við vélina. Til vinstri er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) að búa sig undir að binda á sig skíðin. Aðrir eru óþekktir.
Magnús B Jónsson073
Maðurinn í dökku úlpunni er William Sillar sem er að prófa skíði í fyrsta sinn. Næst yst til hægri fylgist Guðrún Pálsdóttir spennt með. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason912

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason924

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Töluverður fjöldi fólks lagði á sig göngu upp í Hörfellið til að fylgjast með keppninni. Ef myndin er skoðuð vel sést einn keppandi vera að ljúka stökki sínu og næsti keppandi er tilbúinn efst í brekkunni. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason910

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Ólafur Bernódusson122
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd hefur fólk safnast saman á túninu í muggunni. Sigfús Jónsson þáverandi sveitarstjóri er lengst til hægri á myndinni en síðan verður hver að þekkja sig ef hægt er.
Guðmundur Guðnason918

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Óþekkti keppandinn á myndinni svífur fram af pallinum og leggur sig allan fram um að ná sem lengstu stökki. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason916

Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Á þessari mynd sýnir óþekktur keppandi góðan stíl í skíðastökkinu. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

1
2
3
4
5
6
Leita í myndasafninu
Leita