Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Snjór
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
316 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson353
Mikill snjór var á Skagaströnd 1989. Þessi mynd var tekin í mars í útbænum.
Ólafur Bernódusson355
Snjór í Bankastæti í mars 1989
Ólafur Bernódusson356
Bogabraut 27 í mars 1989
Guðmundur Guðnason092
Snjómokstur á götunni fyrir ofan Ægissíðu. Maðurinn á myndinni er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) í Ægissíðu. Húsið sem sér í bakvið jarðýtuna var Melstaður sem stóð suðaustan við Laufás.
Ólafur Bernódusson534
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á myndinni sést mjólkurbíllinn og dráttarvélar bændanna með mjólkurílátin sín. Allir voru bændurnir á öflugum dráttarvélum enda ófært fyrir önnur farartæki en þau sem voru vel búin t.d. með fjórhjóladrif.
Óþekktur ljósmyndari217
Þórsmörk á kafi í snjó veturinn 1951. Í þórsmörk bjuggu lengi hjónin Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) með börnum sínum.
Ólafur Bernódusson513
Stöku sinnum laumast borgarísjakar inn Húnaflóann alla leið frá Grænlandi. Þessi var á ferðinni utan við Skagaströnd í september 1993. Björgunarbáturinn Þórdís er í forgunni.
Skagaströnd - safn019
Á góðviðrisdögum þyrptist fólk á skíði í Spákonufelli og skemmti sér í brekkunum. Þessi mynd var tekin á einum slíkum skíðadegi í nægum snjó.
Óþekktur ljósmyndari237
Skautaferð inn á Vindhælistjörn á níunda áratugnum. Fólkið er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari346
Þessi mynd var tekin fyrir 1906 og er af gamla íbúðarhúsi danska kaupmannsins sem byggt var 1774 en rifið 1908. Svarta húsið var fjós og hesthús kaupmannsins og líklega pakkhús að hluta til. Hvíta húsið hægra megin við bátinn var Búðin og áfast við hana er pakkhús/kornhlaða sem líklega var aðal lagergeymsla Búðarinnar. Búðin stóð fram á sjöunda áratuginn og var undir það síðast notuð sem sementsgeymsla fyrir KAST = Kaupfélag Skagstrendinga. Kornhlaðan var sennilega rifin um eða rétt fyrir miðja 20 öldina. Hægra megin við þessar byggingar, á kafi í snjó er Sæmundsenbúðin. Báturinn á myndinni hét Traffik og var eign Hoephnersverslunar.
Skagaströnd - safn188
Hafís við Skagaströnd sennilega 1965. Myndin er dæmigerð fyrir veðrið á hafísvorum; þokuslæðingur logn og frekar kalt.
Skagaströnd - safn018
Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum.
Skagaströnd - safn205
Mikill og almennur skíðaáhugi var á Skagaströnd á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda. Fólkið á þessari mynd gekk á skíðum frá Skagaströnd út að Háagerði og til baka einn sunnudag veturinn 1983. Myndin var tekin efst á Bogabrautinni áður en lagt var af stað. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldóra Þorláksdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Börnin tvö framan við röðina eru óþekkt. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Jón Jónsson237
Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Jóhannes William Grétarsson, Linda Hafdal Gunnarsdóttir og Sigurður Berndsen?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990.
Jón Jónsson349
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Viggó Magnússon og Sigríður Einarsdóttir skíðakennari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 465
Víkingur Viggósson við snjómokstur á veginum norðan við Hafurstaði. Sennilega var myndin tekinn annað hvort árið 1995 eða 1996.
Jón Jónsson346
Á árunum sem skíðalyfta var rekin í Spákonufelli var almennur áhugi á skíðamennsku á Skagaströnd. Fjöldi barna, unglinga og fullorðinna mættu í brekkurnar um helgar þegar færi gafst. Á þessari mynd, sem tekin var einhverntíma að vorlagi kringum 1985, eru ungir skíðagarpar að fá afhent viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í páskamóti. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson en konan í hvíta jakkanum er Sigríður Einarsdóttir skíðakennari. Með þeim á myndinni eru ungir skíðamenn frá Skagaströnd.
Jón Jónsson337
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, óþekkt og Soffía Lárusdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn369
Þessi mynd var tekin 3. mars 1995 á Sunnuvegi en þá var allt á kafi í snjó á Skagaströnd. Veturinn 1995 var með snjóþyngstu vetrum sem menn muna.
Jón Jónsson347
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Friðrik Birgisson, Brynjar Pétursson, Sigríður Einarsdóttir skíðakennari og Skúli Tómas Hjartarson.
Jón Jónsson343
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Áslaug Gunnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 460
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin upp Bogabraut og sýnir tvo menn að moka ofan af þaki Bogabrautar 15. Húsið til hægri er Bogabraut 12.
Árni Geir Ingvarsson - safn 457
Unnið að snjómokstri í Hafstaðabrekkunni áður en veginum var breytt í það horf sem hann er í í dag. Myndin var sennilega tekin 1995 eða 1996.
Jón Jónsson236
Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Linda Rós Rúnarsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) og Jón Heiðar Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 456
Fjórhjóladrifið er ekki alltaf nóg til að komast áfram. Hér hefur einhver fest sig í snjó en þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst segir einhversstaðar.
Skagaströnd - safn415
<p>Húsin á Brandaskarði fara stundum á kaf ef mikið snjóar því þá skefur yfir þau. Þessi mynd var tekin í október 1995 þegar verið var að moka snjó af þakinu á bænum. Þegar myndin var tekin var farið að glitta í þilið og þakið var fundið. Gröfunni stjórnaði Guðmundur Björnsson.</p><p><br></p>
Skagaströnd - safn412
Það getur stundum verið nauðsynlegt að hafa bakdyr á húsum. Þannig var það veturinn 1995 á Strandgötu 10 því eins og sést þá eru framdyrnar rækilega á kafi undir skaflinum sem hefur skafið fram af þaki hússins.
Skagaströnd - safn413
Ofsaveður gekk yfir Skagaströnd 24. október 1995. Foktjón varð víða um bæinn en á þessari mynd sjást fjárhús - "Snorrahúsin"- sem hrundu að hluta til í veðrinu. Þessi hús stóðu undir bergjunum austan við beygjuna á Vetrarbrautinni. Þök fuku af hlöðum, útihúsum og bílskúrum í veðrinu ásamt því að nokkrar flaggstangir í bænum þoldu ekki álagið og brotnuðu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 466
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af Gylfa Sigurðssyni að moka frá útidyrunum sínum að Bogabraut 12. Ljósmyndarinn stendur upp á ca 4 metra þykkum snjó á Bogabrautinni.
Jón Jónsson352
Þó skíðalyfta væri rekin í hlíðum Spákonufells um árabil fyrir svigskíðafólk nýtti áhugafólk um skíðagöngu sér snjóinn í fjallinu líka til að stunda sína íþrótt. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) á gönguskíðum en hjá honum eru frá vinstri: Guðmundur Björnsson að klæða sig í skíðaklossa en bak við hann er líklega Þórunn Bernódusdóttir. Einar Haukur Arason sem hallar sér upp að Volkswagen Variantinum, Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 417
Snjómokstur á Mánabraut. Eins og sjá má er af nógu að taka. Sennilega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 - 1996 þegar allt fór á kaf í snjó.
Ólafur Bernódusson354
Litlu mundaði að vöruflutningabíll, fulllestaður af rækjuafurðum, ylti í sjóinn fyrir neðan Hafnarhúsið á Skagaströnd í mars 1989. Steypta þekjan á planinu gaf sig undan þunga bílsins þannig að annað afturhjólið sökk á kaf.
Ólafur Bernódusson352
Mikill snjór var á Skagaströnd 1989. Þessi mynd var tekin við Vélaverkstæðið. Drengurinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari196
Þessi mynd er á bls 289 í Byggðin undir Borginni (1989) og undir henni stendur<em>:" Á skíðum í Tjaldklauf. Árið 1940 festi Umf. Fram kaup á skíðum og leigði út. Á myndinni eru frá vinstri Guðmundur Lárusson, Ægir Einarsson, Jörgen Berndsen og Ingvar Sigtryggsson".</em>
Ólafur Bernódusson536
Óvenju snjólétt hefur verið á Skagaströnd það sem af er vetri 2016 - 2017. Þessi mynd er sett hér inn til að minna fólk á að svo hefur ekki alltaf verið. Til dæmis var gríðarlegur snjór á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Fljótlega var því gripið til þess ráðs að þjappa snjóinn með jarðýtu og síðan var ekið ofan á snjósköflunum kannski tveggja metra þykkum. Þessi mynd var tekin í Mýrinni og sýnir fannfergið þar.
Ólafur Bernódusson535
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Á þessari mynd er verið að reyna að moka snjó í Bankastræti hjá Flankastöðum (Bankastræti 7) þó svo virðist sem jarðýtan sé uppi á þaki hússins.
Ólafur Bernódusson537
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Fljótlega var því gripið til þess ráðs að þjappa snjóinn með jarðýtu og síðan var ekið ofan á snjósköflunum kannski tveggja metra þykkum. Myndin var tekin frá Bogabraut og húsið sem er á kafi er Bogabraut 26. Ef vel er skoðað sést "akbrautin" ofan á snjóskaflinum.
Óþekktur ljósmyndari245
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 þegar verið var að moka Mánabrautina. Fremst til hægri er vélaverkstæðið á kafi í snjó og ekki dugir minna en ein traktorsgrafa, hjólaskófla og jarðýta af stærstu gerð til að ráða við verkefnið.
Ólafur Bernódusson544
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995. Þá var gripið til þess ráðs að í stað þess að moka göturnar var troðin slóð ofan á snjónum og ekið í slóðinni. Á þessari mynd er snjótroðarinn, sem sannarlega nýttist vel þennan vetur, að draga hálfgám sem sorpinu var safnað í. Á myndinni er snjótroðarinn í ca tveggja metra hæð á Bogabrautinni.
Guðmundur Guðnason230
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir hafís á Bótinni - sem er víkin norðan við Höfðann, milli Finnstaðaness og Höfðans. Ísinn gerði oft mikinn usla í grásleppu- og þorskanetum sjómanna á Skagaströnd á hafísvorum með því að slíta af þeim bólin og draga þau svo með sér eitthvað út í buskann.
Skagaströnd - safn181
Þessi mynd var tekin vorið 1965 en þá rak hafís inn á Húnaflóa með tilheyrandi vandræðum fyrir sjófarendur. Konan á myndinni er Ardís Ólöf Arelíusdóttir.
Guðmundur Guðnason253
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Á þessari mynd er skíðmennskan í fullum gangi en dráttarvélin var í eigu Ásgeirs Axelssonr (d. 8.6.2011) Litla-Felli.
Jón Jónsson341
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og Soffía Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason259
Skíðamót var haldið við dráttarvélknúna togbraut í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Þessir kappar mættu til að fylgjast með mótinu. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Jón Ingi Ingvarsson, óþekktur og Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson238
<p>Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli með aðstoð bróður síns Ingibergs Guðmundssonar, sem snýr baki í ljósmyndarann. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Árni Max Haraldsson, og María Jóna Gunnarsdóttir. Barnið sem sér í á bak við Ingiberg er Karen Peta Karlsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990. </p>
Jón Jónsson348
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
Árni Geir Ingvarson - safn 467
Þessi mynd var tekin af Skúffugarðinum þegar allt er á kafi í snjó.
Jón Jónsson344
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Guðmundur Guðnason257
Myndin var tekin á skíðamóti við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 174 - 1978. Á myndinni grúfa keppendur sig yfir blað með árangri sínum. Fremst á myndinni til vinstri rennir Jóhannes Sveinsson sér en aðrir á myndinni eru frá vinstri: Jón Pálssson með myndavél, Páll Jónsson og Rannveig Jónsdóttir. Lengst til hægri sér í Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 388
Í nokkur ár kringum 1980 var komið á Norrænni fjölskylduskíðakeppni. Hún fólst í því að hver sem var gekk á skíðum ákveðna vegalengd og fyllti út eyðublað fyrir hverja ferð. Þátttakendur gátu svo fengið barmmerki, kopar, silfur og gulllituð eftir að hafa gengið ákveðið margar ferðir. Ferðirnar voru síðan taldar saman hjá öllum þátttakendum á landinu og svo var fjöldi ferða borinn saman við höfðatölu í hverju landi fyrir sig og það norðurlandanna sem hafði hæsta hlutfallið stóð uppi sem sigurvegari. Á myndinni er ?Vilborg Másdóttir? að ganga eina ferð á merktri braut sem lá meðfram Hólabergjunum og síðan niður með Vetrarbraut og út undir Réttarholt eftir skurðunum og svo meðfram Höfðanum og upp með Vetrarbrautinni til baka. Gaman er að skoða baksvið þessarar myndar, sem er efsti hluti Hólabrautar og Fellsbrautar, því þar hafa götumyndirnar breyst mikið síðan þessi mynd var tekin. Ef þú getur staðfest að það sé Vilborg sem er á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 359
Hafís á Húnaflóa. Myndin var líklega tekin 1960 - 1965.
Jón Jónsson335
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Jón Jónsson334
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Anna Þór Birgisdóttir og Jóney Gylfadóttir.
Jón Jónsson342
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson.
Skagaströnd - safn418
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd undirbúa sig fyrir veiðiskap í Hraunvatni þeir Magnús B. Jónsson sem mokar og Gunnlaugur Sigmarsson sem bíður tilbúinn með borinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 459
<p>1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Hér er Guðmundur Björnsson að moka frá húsinu að Fellsbraut 15 svo íbúarnir komist út. </p>
Skagaströnd - safn414
Gunnar Albertsson mokar snjó frá Gamla Hólanesfrystihúsinu á Hólanesi í október 1995. Sér til hjálpar hefur hann traktorsgröfu undir stjórn Guðmundar Björnssonar.
Skagaströnd - safn417
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.
Jón Jónsson338
<p>Þetta fólk var í forystusveit skíðafólks á Skagaströnd meðan skíðalyfta var rekin í Spákonufelli. Frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Á þessari mynd eru þau að afhenda verðlaun á skíðamóti kringum 1985. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 411
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni sést yfir hluta af Hólabraut nær okkur og Bogabraut fjær.
1
2
3
4
5
6
Leita í myndasafninu
Leita