Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Snjór
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
316 myndir
Flæði
Reitir
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn011
Myndin var tekin af stúlkum að leik á skautum á svelli við Hrafná 1966. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn410
Þessi mynd var tekin 16. janúar 1995 í vetrarbrimi. Myndin sýnir sjó ganga yfir brimvarnargarðinn ( Útgarð). Síðan þessi mynd var tekin hefur grjótvörn við garðinn verið stóraukin og endubætt og þó enn skvettist yfir garðinn í verstu brimum þá er það ekkert í líkingu við það sem myndin sýnir. Vitinn á enda garðsins hefur verið rifinn og röraviti verið reistur í staðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 379
Oft er snjóþungt á Skagaströnd á vetrum. Á þessari mynd er verið að aka burt snjó á horninu á Bogabraut og Norðurbraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn419
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina á hjarni og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd eru þeir Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri að gera færin sín klár til að renna í Hraunvatni.
Jón Jónsson345
Þessi mynd var tekin að vorlagi einhverntíma kringum 1985. Á henni svífur Magnús B. Jónsson niður brekkuna í Spákonufelli í sólbráðinni.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn013
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Eins og sjá má á myndinni voru margir áhugasamir um skíðamennsku á þessum árum.
Jón Jónsson339
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Páll Jónsson frá Brandaskarð og Þórarinn Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 412
Smiðir dytta að þakinu á Steinholti eftir norðan áhlaup með miklum snjó. Höfðaberg, sem sést í baksýn, er löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn404
Landsins forni fjandi, hafísinn, á víkinni fyrir norðan Höfðann, Bótinni. Ekki er vitað hvaða vor myndin var tekin.
Skagaströnd - safn416
Í áratugi var litla sundlaugin á Skagaströnd bara opin á sumrin en með tilkomu hitaveitunnar er hún nú opin allt árið. Hún var venjulega opnuð í byrjun maí því þá var skólasund í 2-3 vikur. Þessi mynd var tekin í byrjun maí 1995 en þá var sundlaugin mikið meira en full af snjó. Gripið var til þess ráðs að moka snjónum úr lauginni með gröfu og handskóflum en allra síðasti snjórinn var bræddur með því að úða vatni yfir hann. Sundkennslan hófst örlítið síðar en ætlað var en nemendur Höfðaskóla fengu sína sundkennslu þetta vorið eins og áður.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn008
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og svo var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 561
Hér hefur Vilhjálmur Skaftason, sem stendur og virðir aðstæður fyrir sér, búinn að festa Súkkuna sína í skafli. Í baksýn býr Eðvarð Hallgrímsson sig undir að draga Súkkuna úr skaflinum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 537
Hér er fólk að fara á skíði við skíðalyftuna í hlíðum Spákonufells. Dökki kofinn sem sést á myndinni fauk í óveðri einn daginn og splundraðist. Lyftan var þá færð örlítið sunnar og lengd um ca 50 metra og annar kofi reistur fyrir stjórntæki lyftunnar. Lyftan hefur nú verið tekin niður fyrir allmörgum árum. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 607
M.s. Bakkafoss, skip Eimskipafélags Íslands, er hér í Skagastrandarhöfn á sjómannadaginn 1969. Ísinn fyllir Húnaflóa og hrafl er komið inn í höfnina.
Fisk Seafood - safn 027
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur sem fluttu fólkið fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Þekkja má á myndinni til vinstri: Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson, Guðrún Magnúsdóttir er í blárri úlpu og Erna Högnadóttir í rauðri úlpu með sígarettu í hendinni. Lengst til hægri er svo Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996).
Jón Jónsson 382
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Með það í huga að öll él birtir upp um síðir er alltaf tekið til eftir illviðriskafla og byrjað að moka göturnar til að gera þær bílfærar. Hér hafa verið kallaðar til jarðýta og grafa til að vinna á snjónum fyrir Víkina svo fólk komist um með góðu móti.
Héraðsskjalasafn A-Hún 354
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var m.a. Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 eftir að Sellgeth hafði brotnað í ísnum og sokkið. Áhöfnin komst út á ísinn og var seinna bjargað þaðan því fleiri selveiðiskip voru á svæðinu. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán slíkar selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Jón Jónsson 383
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Með það í huga að öll él birtir upp um síðir er alltaf tekið til eftir illviðriskafla og byrjað að moka göturnar til að gera þær bílfærar. Hér er búið að stinga í gegnum skaflana fyrir Víkina en eins og sjá má er þeir sumsstaðar tvær mannhæðir á þykkt.
Ólafur Bernódusson650
Helga Ólína Aradóttir þroskaþjálfi og sérkennari böðuð í vetrarsól.
Árni Geir Ingvarsson - safn 963
Snjómokstur í Bankastræti líklega vorið 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 5
Gylfi Sigurðsson mokar frá útidyrunum á húsi sínu á Bogabraut 12. Eins og sjá má er Bogabrautin á kafi í snjó. Líklega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 -96.
Ólafur Bernódusson651
Guðrún Sigurðardóttir í snjónum fyrir utan Bogabraut 14 um miðjan desember 2006 en þá bjó hún þar.
Helga Berndsen 031
Þessi mynd var tekin 1960 þegar Guðrún Einarsdóttir, sem situr á sleðanum, var tveggja ára. Barnapían sem stendur hjá henni er frændi hennar, Sævar Rafn Hallgrímsson.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 058
Ekki er vitað hvaða ár þessi mynd var tekin en það gæti hafa verið kringum 1965. Eins og sjá má er höfnin og Húnaflóinn fullur af hafís þannig að ekki er hægt að sækja sjóinn.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 059
Stúlkurnar þrjár, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir, eru að leika hættulegan leik með því að fara út á ísinn. Jakarnir eru óstöðugir og valtir og ef þær detta í sjóinn getur verið erfitt að komast uppúr aftur. Að vísu eru þær á myndinni að leika sér rétt við fjöruborðið fyrir neðan Rækjuvinnsluna þannig að hættan er minni en ef farið er lengra frá landi.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 170
Viggó Brynjólfsson með mjólkurbrúsa. Ef til vill keypti hann mjólk af Hafsteini Sigurbjarnarsyni (d.18.5.1974) í Reykholti?
Ingibergur Guðmundsson 144
Veturinn 1990 var allmikill snjór á Skagaströnd. Þá var gripið til þess ráðs eins og stundum áður að þjappa skaflana og gera þá ökufæra í stað þess að moka þeim burt. Á myndinni stendur heimilisbíllinn á ca 2 metra þykkum skafli utan við Hólabraut 25.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 025
Friðrik Gunnlaugsson að leika sér í bílaleik á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Ingibergur Guðmundsson 278
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd má þekkja Ingiberg Guðmundsson næst okkur og Magnús B. Jónsson næst honum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 026
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból leika sér í snjónum í mars 1978. Frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sandra Ómarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir (fjær), Skúli Tómas Hjartarson (nær), Atli Þór Þórsson, Leifur Vilhelmsson, Guðný Finnsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 416
Snjómokstur neðst á Mánabraut. Ekki dugir minna en jarðýta af stærstu gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson336
Ungir skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Páll Jónsson frá Brandaskarð, Jóhannes Sveinsson og Sigurbjörn Kristjánsson.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn014
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Á myndinni tekur Gestur Arnarson við verðlaunum sínum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn370
Þessi mynd var tekin 11. apríl 1995 af snjómokstri í Bankastræti. Veturinn 1995 var með snjóþyngstu vetrum sem menn muna á Skagaströnd. Bankastrætið var t.d. ekki mokað fyrr en farið var að vora svolítið og menn farnir að vonast til að snjókomunni væri að linna. Ef grannt er skoðað má sjá límbandshringi á ljósastaurnum næst okkur en límbandið var sett á staurinn þar sem snjórinn stóð hæst á hverjum tíma. Enn ( í maí 2015) má sjá leyfarnar af límbandinu ef fólk hefur áhuga á.
Árni Geir Ingvarsson - safn 461
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin suður í Mýri þegar verið var að moka ofan af þökum húsa þar.
Jón Jónsson340
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Brynjar Pétursson, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn148
Anna Dúna Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn007
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Skagaströnd - safn411
<p>Veturinn 1995 var mjög snjóþungur eftir áramótin á Skagaströnd. Þessi mynd, sem var tekin 3. mars 1995, sýnir óþekktan mann á gangi á einum uppstyttudögunum, sem notar hundana sína til að draga sleðann fyrir sig. </p>
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn012
Þessi mynd frá 1977 sýnir vel hvernig skíðaaðstaðan í Spákonufellinu var á þessum árum. Dráttarvél var notuð til að snúa spili með kaðli sem fór svo í gegnum blökk uppi á toppi brekkunnar. Fólk hékk síðan í kaðlinum á leið upp brekkuna. Bannað var að vera með trefil um hálsinn því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni upp og gat gripið í trefilinn og þannig hert að hálsi viðkomandi. Nokkrum árum eftir að þessi mynd var tekin var svo keypt toglyfta og sett í brekkuna norðan við þá sem lyftan á myndinni er í. Enn síðar var svo byggður skíðaskáli á svæðinu, sem enn stendur. Eins og sjá má á myndinni vantaði ekki áhugasamt skíðafólk til að nýta sér þessa frumstæðu aðstöðu á góðum dögum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 539
<p>Skíðadeildin á Skagaströnd hafði mjög gott samband við jólasveinana. Á hverju ári tóku félagar deildarinnar að sér að taka við pökkum og kortum fyrir þá fjallabræður en þeir komu síðan til byggða og báru út í húsin í bænum rétt fyir jól. Á þessari mynd hafa þeir bræður fengið Eðvarð Hallgrímsson til að hjálpa sér með því að keyra þá um bæinn á jeppa sínum. Jólasveinarnir þurftu sannarlega ekki að kvarta undan áhugaleysi yngstu kynslóðarinnar því yfirleitt fylgdi hópur barna þeim bræðrum um bæinn. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 610
Hafísjakar á reki á legunni sunnan við Höfðann. Á Höfðanum má sjá hjalla sem notaðir voru tiil að þurrka skreið. Hjallarnir eru nú löngu horfnir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 545
Vetur geta verið mis snjóþungir. Þessi mynd var tekin á einum snjóþungum en á henni eru húsin númer 13 og 15 við Bogabraut að mestu á kafi í snjó. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 028
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur, sem fluttu fólkið, fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Fremst á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og sér aftan á Guðmund Kristinsson í ljósum fötum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 384
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Eftir langa illviðriskafla er gott að fara út og sýna sig og sjá aðra. Oft er líka eins og veðrið sé alveg sérstaklega gott eftir illviðriskafla. Á þessari mynd eru þær á spjalli upp á háum skafli, nágrannakonurnar Helga Jóhannesdóttir til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Jón Jónsson 399
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir hve snjóþyngsl geta verið mikil á Skagaströnd. Húsið, sem er á kafi í snjó á myndinni, er Hólabraut 17.
Héraðsskjalasafn A-Hún 120
Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm háhyrningar voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Nokkru síðar uppgötvuðust tveir hnúfubakar í annarri vök dálítið bnorðar. Þeir voru einnig drepnir og fólk gerði sér mat úr þeim. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að öðrum hnúfubaknum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berndsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir munnlegri frásögn Steingíms Jónssonar). Myndin tók Evald Hemmert.
Héraðsskjalasafn A-Hún 353
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Jón Jónsson 385
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Það hefur/hafði sínar ljósu hliðar m.a. að þá kom nægur snjór í skíðabrekkuna í Spákonufelli þegar þar var skíðalyfta og oft mikið fjör. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er ungur skíðamaður Brynjar Pétursson? á fleygiferð í brekkunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 6
Snjó mokað af þökum húsa við Bogabraut líklega veturinn 1995 - 96. Þá þurfti að moka af þökum húsa við Bogabraut og Sunnuveg vegna hrunhættu af snjóþunga. Einnig var mokað af þaki Vélaverkstæðisins. Moksturinn var snúinn vegna þess hve erfitt var að koma snjónum frá sér.
Héraðsskjalasafn A-Hún 352
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni og karlarnir komnir út á ísinn í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 780
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir gröfu við snjómokstur í miklum snjó við Karlsskála.
Ingibergur Guðmundsson 290
Þessi mynd var tekin norður Bankastræti í apríl 1989. Þá var gríðarlegur snjór á Skagaströnd. Baldur Eðvarðsson er að moka upp bílinn en hjá honum stendur Ágúst ? verkstjóri í frystihúsinu en hann bjó í Bankastræti 10.
Ingibergur Guðmundsson 280
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd frá því í mars 1987 er moksturinn langt kominn og vírinn að mestu kominn upp úr snjónum. Mokararnir á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson sem lyftir vírnum eins hátt og hægt er.
Ingibergur Guðmundsson 288
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og sama gilti um lyftuskúrinn eins og sést á þessari mynd. Toglyftan sjálf var til vinstri við skúrinn en hún sést ekki á myndinni enda á bólakafi. Myndin var tekin í apríl 1989 þegar þó var farið að hlána og snjórinn að sjatna.
Ingibergur Guðmundsson 281
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Til að fjármagna starfsemina, þar á meðal byggingu skíðaskálans, tóku jólasveinar á vegum skíðadeildarinnar að sér að bera út jólapóstinn á Skagaströnd. Á myndinni eru þeir að leggja af stað með póstinn frá Skíðaskálanum á Þorláksmessu.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 024
Gunnar Halldór Hallbjörnsson tekur bunu á snjóþotu á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 210 - Copy
Myndin var tekin 2. nóvember 2012 af bátum við Skúffugarðinn. Eigendur báta eru gjarnan á varðbergi þegar veður er eins og sést á myndinni og moka snjónum úr þeim áður en yfirvigtin verður of mikil.
Helga Berndsen 132
Vorið 1965 fylltist Húnaflói af hafís. Meðal annars kom ísinn auðvitað inn á höfnina á Skagaströnd. Til að sporna við því og vernda bátana í höfninni var strengdur sterkur vír frá Ásgarði (gömlu löndunarbryggjunni) og yfir í enda Skúffugarðs. Vírinn var látinn vera rétt við yfirborðið og þannig stöðvaði hann ísrekið inn í höfnina. Myndin sýnir aftur á móti víkina austan við Skúffugarðinn en hún fylltist af ís eins og sjá má.
Helga Berndsen 129
Vorið 1965 fyllti Húnaflói af hafís. Svo mikill var krafturinn í rekísnum að stórir jakar gengu á land eins og sjá má á þessari mynd þar sem Ernst Berndsen (d.21.8.1983) hefur stillt sér upp við einn jakann á Höfðanum.
1
2
3
4
5
6
Leita í myndasafninu
Leita