Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Snjór
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
316 myndir
Flæði
Reitir
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 023
Þessir krakkar leika sér í snjónum við leikskólann Barnaból í mars/apríl 1978. Frá vinstri: Leifur Vilhelmsson, Brynjar Pétursson, Guðmundur Henry Stefánsson og Guðný Finnsdóttir?.
Helga Berndsen 056
Krakkar að renna sér á skíðum í Tjaldklaufinni í Höfðanum veturinn 1965. Tjaldklaufin var vinsælt skíðasvæði á þessum tíma áður en meira var byggt af íbúðarhúsum við Bankastrætið. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 291
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 af Ægisgrund 5 á kafi í snjó. Barnið á myndinni er Rebekka Laufey Ólafsdóttir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 073
Bogabraut 22 á kafi í snjó 27. mars 1989. Greinilega sést ekki mikið út um stofugluggana þar.
Helga Berndsen 133
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af hafís. Á myndinni eru börn að leik á strönduðum jaka í fjörunni neðan við Læk. Börnin eru Adolf H. Berndsen til vinstri, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) í miðið og Guðrún Einarsdóttir til hægri.
Helga Berndsen 130
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af Hafís. Þá notaði margur unglingurinn tækifærið og stundaði þann hættulega leik að fara út á ísinn og stökkva milli jaka. Ekki þarf að spyrja að leikslokum ef þau hefðu farið niður um vakir á ísnum en sumsstaðar var þunnur hemi yfir vökunum sem ekki hélt þunga manns. Á myndinni eru þrír að leik á ísnum við Höfðann.
Ólafur Bernódusson974
Ólafur Bernódusson hvílir sig á snúrustaur við heimili sitt 1. apríl 2006 eftir hring á gönguskíðum. Eins og sjá má er mikill snjór ennþá því það rétt grillir í hinn snúrustaurinn aftan við Ólaf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1393
Það er um að gera að nýta sér snjóinn ef það er hægt. Hér hefur Árni Geir Ingvarsson fundið góða og ódýra leið til að halda bjórnum sínum köldum upp við þvottahúsdyrnar hjá sér. Myndin var tekin 24. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1094
Myndin var tekin 17. janúar 2004 eftir að nokkurra daga illviðri slotaði. Mikil ísing og ofankoma varð til þess að tveir bátar sukku í höfninni eins og sjá má og litlu mátti muna með fleiri báta. Bátarnir voru báðir hífðir upp og þeir endurnýjaðir eftir þörfum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 83
Myndin var tekin utan við Gamla pósthúsið (Bogabraut 10) líklega kringum 1970. Á henni eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir?, Vilhelm B. Harðarson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1392
Árni Geir Ingvarsson lítur út um þvottahúsdyrnar hjá sér á Fellsbrautinni 3. nóvember 2012 eftir snjókomu undanfarinna daga.
Ólafur Bernódusson981
Vindhæli 26. mars 2013. Frá Vindhæli eru miklar örlaga- og átakasögur frá fyrri tímum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1391
Af augljósum ástæðum er ekki vitað hvaða barn er á myndinni í óða önn að byggja sér snjóhús í djúpum skafli. Myndin var tekin 19. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1086
Í óveðri 29.-30. desember 2012 fuku þakplötur af hluta af húsinu á Strandgötu 10. Plöturnar flettust af en héngu fastar á suðukantinum á þakinu eins og sést á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1087
Mynd tekin á gamlársdag 2012 eftir að vonsku veðri dagana á undan hafði slotað. Bak við og undir skaflinum á myndinni er Fellsbraut 15 með jólaljósin kveikt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 16
Hafís þekur Húnaflóa vorið 1968. Svarti díllinn á myndinni er Árbakkasteinninn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1476
Ekki er vitað hvaða tveir menn eru hér að bjarga bíl úr snjóskafli í vonsku veðri 21. nóvember 2012.
Ólafur Bernódusson 802
Nokkrir sjómenn á bryggjunni að fylgjast með þegar Húnabjörg kom með bilaðan bát í drætti til hafnar 10. febrúar 2007. Frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Lýður Hallbertsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Guðmundur128
Frá vinstri: Réttarholt, Sólvangur, Ægissíða og Ásholt að vetri
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 742
Þó ótrúlegt megi virðast er ekki alltaf gott veður á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af kirkjunni í svarta byl 29. desember 2012. Væntanlega hafa þeir sem gátu kúrt heima hjá sér við lestur eða að spila meðan bylurinn gekk yfir.
Arnar HU 1 - safn 116
Síðutogarinn Arnar HU 1 var fyrsta skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist en það var 1968. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er skipið að þræða sig gegnum hafíshrafl. Arnar reyndist mikið happaskip og lagði grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Arnar HU 1 - safn 94
Það er kalsamt og erfitt starf að berja ísingu af heilu skipi. Það skiptir þó miklu máli að það sé gert í tíma því hún hefur mikil áhrif á stöðugleika skipsins og mörg dæmi eru þekkt um slys sem urðu vegna mikillar ísingar á skipum. Á myndinni er verið að berja ísingu af rekkverki um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 735
Vilhelm Harðarson hreinsar snjó af stéttinni heima hjá sér með snjóblásara 3. febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1055
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir nýta stutta dagsbirtu 27. desember 2009 til að ganga á skíðum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1212
Guðmundur J. Björnsson mokar snjó á gröfunni sinni frá Fellsbraut 15 í janúar 2006 svo íbúarnir komist út af heimili sínu.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 45
Arnar Hu 1 brýst gegnum ísspöng á miðunum norð-vestur af landinu. Trollið er ekki í sjó enda erfitt og hættulegt að toga innan um hafís. Myndin var tekin kringum 1970.
Guðrún Guðbjörnsdóttir136
Guðberg Stefánsson (d.15.9.1991) og Guðrún Guðbjörnsdóttir spjalla í fannfergi á Fellsbrautinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 77
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ólafur Bernódusson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þessi skemmtilega mynd sýnir börn, flest frá Skagaströnd, á skíðum í Tindastóli. Hér á ljósmyndasafninu er mynd af jólakorti eftir Sigurlaugu Jónasdóttur (d.30.12.2004) sem minnir á þessa mynd. Sú mynd er númer 18239.
Ólafur Bernódusson917
Guðrún Pálsdóttir stendur hjá ísuðum endurvarpanum á toppi Steinnýjarstaðafjalli í mars 2008.
Ólafur Bernódusson761
Myndin var tekin 15. janúar 2004 af þremur mönnum úr björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd við að bjarga bíl úr snjó vestan við Vélaverkstæðið. Þá var ný afstaðin stórhríð með miklu fannfergi svo miklu reyndar að þakið á verkstæðinu gaf sig undan snjóþunganum. Mennirnir eru óþekktir
Ólafur Bernódusson916
Guðrún Pálsdóttir á leið upp á Steinnýjarstaðafjall í mars 2008. Í baksýn "Skín við sólu Skagafjörður" með Málmey, Drangey og Þórðarhöfða.
Helga Berndsen 131
Líklega var þessi mynd tekin veturinn 1965. Á henni eru að leik í snjónum við Karlsskála, frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson939
Ólafur Bernódusson við vörðu á toppi Kistufells við Hesteyrarfjörð um páska 2009. Í baksýn sést eyðibyggðin á Hesteyri þar sem rekin er nokkur ferðaþjónusta á sumrin annars hefur refurinn þar frítt spil.
Ólafur Bernódusson751
Borgarísjaki á Húnaflóa í september 2002. Frá þessu sjónarhorni minnir hann dálítið á Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 209 - Copy
Basl í snjómokstri 2. nóvember 2012. Grafan er hálf útaf og bjargar sér frá veltu með því að styðjast við gálgann. Karlarnir eru að koma fyrir dráttarvír milli hennar og stærri hjólagröfu sem kom til bjargar. Eins og sjá má er skyggnið mjög takmarkað í snjókófinu.
Ólafur Bernódusson915
Þessir hressu krakkar sköpuðu þennan glæsilega snjókarl í mars 2008 á íþróttavellinum enda var þá nægur efniviður í karlinn á vellinum. Krakkarnir eru frá vinstri: Laufey Sigurpálsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Birkir Freyr Gunnarsson og Páll Halldórsson.
Ólafur Bernódusson980
Syðri-Hóll í vetrarböndum 8. mars 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 425
Flutningabíll fór út af veginum sunnan við Árbakka 10. apríl 2013 í vondu veðri og slæmu skyggni. Á myndinni er stór vinnuvél að draga bílinn upp á veginn aftur sem hann komst ekki af sjálfsdáðum.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 027
Aðalheiður Sif Árnadóttir til vinstri og Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir til hægri að leika sér í snjónum við leikskólann Barnaból í mars 1978.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1207
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. nóvember 2012. Þegar viðrar eins og myndin sýnir þurfa eigendur báta að vera vel vakandi og moka úr þeim snjó sem safnast í þá í skafrenningnum fram af bryggjubrúninni. Ef það er ekki gert er hætta á að yfirvigtin á þeim geti lagt þá á hliðina og þar með sökkt þeim.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1206
Það getur oft verið lítið skyggni þegar norðanáttin blæs og myndar skafhríðarkóf fyrir víkina. Þessi mynd var tekin í einu slíku veðri 2. nóvember 2012 en þá fór snjómoksturstæki með önnur hjólin fram af brúninni á Strandgötunni. Á myndinni er annað tæki að draga gröfuna upp á götuna aftur. Engin slys urðu við óhappið enda kom snjórinn í veg fyrir að grafan færi alveg á hliðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1215
Rjúpan er eftirsótt af mörgum á jólaborðið. Hún er af orraætt, staðfugl á Íslandi en verpir í mörgum öðrum löndum á norrænum slóðum. Kvenfuglinn, eða hænan, er um 500 gr að þyngd en karlfuglinn, sem kallast karri, er um 550 gr. Rjúpa skiptir þrisvar á ári um lit, hvít á vetrum, brún á sumrin og gráleit á haustin. Hún verpir að jafnaði 12 eggjum þannig að frjósemin er mikil enda verður hún að meðaltali ekki nema þriggja til fjögurra ára gömul þó þær elstu verði 6- 7 ára. Rjúpnafjöldi á Íslandi sveiflast mikið og eru ca 10 ár milli toppa. Ekki er fullljóst hvað veldur þessum sveiflum en þær tengjast ekki skotveiðum manna segja vísindamenn. Helstu óvinir rjúpunnar eru fálki og refur auk mannsins sem sækir í að veiða hana á leyfðum veiðitímabilum. Mjög vel er fylgst með rjúpnastofninum á Íslandi og líklega eru fáir fuglastofnar jafn vel vaktaðir af vísindamönnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1032
Hann er stórsnjó boltinn sem krakkarnir á myndinni gerðu. Krakkarnir eru frá vinstri: Elín Ósk Björnsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir og Victoría Hólmgeirsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 58
Þessi mynd var tekin af Arnari HU 1 við hlið risa borgarísjaka á miðunum í apríl 2005. Það var Arnar Ólafur Viggósson sem tók myndina úr gúmmíbát Arnars HU 1. Myndin birtist í Morgunblaðinu 25. 4. 2005 með eftirfarandi texta: "Það fer ekki mikið fyrir frystitogaranum Arnari HU 1 þar sem hann skríður meðfram borgarísjaka af stærstu gerð. Ísjakinn var að lóna við Óðinsboða á Húnaflóa þegar Arnar var að koma inn til löndunar með aflaverðmæti upp á 115 m.kr. á laugardag."Við settum út tuðruna að gamni og strákarnir fóru upp að jakanum. Þetta var eins og eyja að stærð - minnti mann á þegar maður sér Grímsey úr fjarska," sagði Árni Sigurðsson skipstjóri. "Það var svo mikil bráðnun á jakanum í sólinni að á nokkrum stöðum voru fossar fram af brúninni á honum. Það eru nokkrir stórir jakar þarna að þvælast en þessi var langstærstur."
Árni Geir Ingvarsson - safn 1477
Sigrún Lárusdóttir og Hjalti Sævar Hjaltason á fjórhjóli að snúast við hesta 25. nóvember 2012.
Guðmundur Guðnason707
Myndin er tekin af Höfðanum yfir útbæinn og höfnina. Mörg af húsunum á myndinni eru horfin eins og Efri Sólheimar sem sést ofan á fremst til vinstri og Valhöll sem stendur hinum megin við götuna. Höfðaberg hét húsið næst okkur til hægri á myndinni og Höfðakot hægra megin við það. Niður með Skagaveginum eru síðan horfin útihúsin og viðbyggingar við Bjarmaland vinstra megin og Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður hægra megin við götuna. Kaupfélagshúsið, braggarnir og löndunarútbúnaður vegna síldarverksmiðjunnar á höfninni eru einnig horfin í dag.Ef grannt er skoðað sést hafís á sjónum þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1965 eða 1968.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1387
Þessi skólabörn voru á heimleið að loknum skóladegi í Höfðaskóla 5. nóvember 2012 þegar þessi mynd var tekin. Þeim þótti sjálfsagt að koma við í snjóhrúgu á leiðinni en börnin eru frá vinstri: Andri Már Gunnarsson, Erla Mjöll Daðadóttir, Brynjar Daði Finnbogason og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 745
Arnar HU 1 var fyrsti stuttogari Skagstrendings hf. Hann var keyptur nýr í Japan haustið 1973 og gerður út frá Skagaströnd til 1995. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Arnar í höfna á Skagaströnd mikið ísaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Snjómokstur á höfninni.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd eru menn að reyna jeppana sína í ófærð. Maðurinn á snjósleðanum er Sævar Rafn Hallgrímsson en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1201
Gylfi Sigurðsson á sínum daglega göngutúr á Þorláksmessu 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 825
Vinirnir Sigurður Bjarnason vinstra megin og Ágúst Jónsson hægra megin í göngutúr í köldu veðri seint í febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1599
Vetrarbrimið gengur yfir Útgarð á kuldalegum degi 10. janúar 2012.
Ólafur Bernódusson 986
Hafbjörg HU 100 sökk í höfninni á Skagaströnd 30. janúar 1985. Báturinn hét áður Rúna SF 101. Hafbjörgin var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og Högna Jenssonar en seinna keypti Ólafur Högna út úr félaginu og átti bátinn einn.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 31
Greinilega þarf að moka snjó úr þessum bát áður en hann fer á veiðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en líklega er báturinn Auðbjörg HU 6.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1689
Myndin var tekin 10. mars 1995 af Höfðaborg (Bankastræti 9). Á tröppunum stendur Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og býr sig undir að moka tröppurnar hjá sér.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1718
Stundum er svo snjóþungt að moka þarf af þökum húsa svo þau brotna ekki niður. Myndin sýnir fjóra óþekkta menn við þá iðju á Skagaströnd 30. janúar 2006. Ekki er vitað hvert húsið er.
Ingibergur Guðmundsson 423
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Mennirnir á myndinni eru: Magnús B. Jónsson til vinstri og Steindór R. Haraldsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 552
Þessi ungi drengur er óþekktur. Hann er líklega að leika sér í snjónum í Tjaldklaufinni en ekki er vitað hvenær. Tjaldklaufin var vinsæll leikstaður barna og unglinga þegar mikill snjór var þar. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
2
3
4
5
6
Leita í myndasafninu
Leita