Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Snjór
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
316 myndir
Flæði
Reitir
Ljósmyndakeppni 2022 96
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Óskar Kristinsson - safn 242
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er húsið að Hólabraut 19. Aðalinngangurinn inn í húsið er í skotinu þar sem snjórinn nær alveg upp á þak. Til hægri er svo hurðin á bílskúrnum. Það er því ljóst að eigandinn átti töluverðan mokstur fyrir höndum til að geta gengið um eins og vant er.
Ingibergur Guðmundsson 422
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson.
2001027
Þessi mynd var tekin að vetri líkleg einhventíma upp úr 1960. Næst okkur fyrir miðri mynd er verslunarstjórahúsið sem nú er löngu horfið. Á henni eru Bogabrautin og Hólbrautin nánast óbyggðar, leikskólinn ekki kominn né viðbyggingin við Höfðaskóla.
2001088
Myndin var tekin um jól en ekki er vitað hvaða ár en það var líklega á tíunda áratugnum. Á henni eru karlar sem fóru í jeppaleiðangur í afar fallegu veðri frá Skagaströnd upp á Langavatn og þaðan að fjallabaki og komu niður Norðurárdal á Þverárfjallsveg. Rennt var fyrir silung í gegnum ís á Langavatni og í Rangártjörnum án mikils árangurs. Á myndinni eru Karl Rósinbergsson að moka snjó af ísnum og Gunnlaugur Sigmarsson bíður með ísborinn.
2001091
Þessi mynd var líklega tekin veturinn 1995 sem var óvenju snjóþungur og illviðrasamur. Á henni sér heim að Brandaskarði þar sem allt er á kafi í snjó nema súrheysturninn og stafninn á fjósinu. Guðmundur Björnsson, sem tók myndina, var fenginn á gröfunni sinni til að moka ofan af þökum húsanna og frá þeim svo ekki færi illa.
2001089
Myndin var líklega tekin í maí 1995. Veturinn var óvenju snjóþungur og meðal annars fylltist sundlaugin, sem þá var bara opin á sumrin, af snjó og rúmlega það. Mokað var upp úr lauginni með gröfu og vörubíl með krabba. Síðan var vatn látið renna í hana í ca. hálfan mánuð með opið niðurfall til að ná síðasta snjónum úr henni áður en hægt var að láta renna í hana á hefbundinn hátt.
2001026
Í ofsa vetrarveðri einhverntíma á árunum 1960 - 1964 fauk þakið af Skálholti í einu lagi. Það endaði flugferð sína á öðrum stóru tönkunum sem stóðu ofan við sundlaugina nærri Höfðanum í ca 150 - 200 metra fjarlægð frá Skálholti. Tankurinn beyglaðist töluvert við áreksturinn og þakið splundraðist. Myndin var tekin eftir að lægði svo hægt var að kanna skemmdirnar.
2001087
Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri búa sig undir að renna fyrir silung í gegnum ís á Langavatni. Myndin var tekin í jeppaleiðangri á tíu jeppum um jól en ekki er vitað hvaða ár.
Ingibergur Guðmundsson 424
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Á myndinni eru að moka þeir Vilhelm Þórarinsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri.
2001090
Veturinn 1995 var óvenju snjóþungur þannig að bílar snjóuðu í kaf, skaflar í íbúðagötum voru troðnir og bílar óku svo ofan á þeim i jafnvel tveggja metar hæð frá götunni. Þegar veður gaf færi á var bílum bjargað undan fönninni til þess að þeir skemmdust ekki. Á myndinni hefur Kristmundur Stefánsson, sem bjó efst á Ránarbrautinni, fengið gröfu til að moka frá bílnum sínum. Takið eftir að grafan stendur á skaflinum hátt ofan við bílinn.
Ingibergur Guðmundsson 550
Vetrarmynd úr Bankastrætinu. Menn eru að grafa upp bílana sína úr snjónum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en til hægri eru Kárastaðir (grænir) sem voru rifnir nokkru síðar. Lengst frá okkur, til vinstri, sér í Höfðaberg með grænt þak sem líka er löngu horfið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 551
Tvö óþekkt börn að renna sér á snjóþotu í Tjaldklaufinni. Þar er mjög góð og mikið notuð aðstaða til að leika sér á skíðum og sleðum þegar nægur snjór er á vetrum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir137
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) skreiðist upp úr snjónum við heimili sitt við Ægisgrund þar sem allt er á kafi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001086
Myndin var tekin um jól en ekki er vitað hvaða ár en það var líklega á tíunda áratugnum. Á henni eru karlar sem fóru í jeppaleiðangur í afar fallegu veðri frá Skagaströnd upp á Langavatn og þaðan að fjallabaki og komu niður Norðurárdal á Þverárfjallsveg. Rennt var fyrir silung í gegnum ís á Langavatni og í Rangártjörnum án mikils árangurs. Á myndinni eru karlarnir að bera saman bækur sínar út á Langavatni.
2001506
Guðni Sveinsson (d.15.11.1971) frá Ægissíðu tekur þátt í Norrænu skíðagöngukeppninni 1964. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Guðni tók þátt í keppninni fram á gamals aldur og hafði gaman af. Hjá Guðna stendur Jón Jónsson í Asparlundi (Bogabraut 24).
1
2
3
4
5
6
Leita í myndasafninu
Leita