Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Landslag

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
52_Kaupfelagid_og_Einbui_fra_Hofda
Skagaströnd séð frá Höfðanum. Árið er 1936 því þá var byggt fyrsta kerið í slippnum neðan við Bjarmanes. í forgrunni myndarinnar eru kaupfélagið og Einbúinn en sundlaugin hefur ekki verið byggð.
Þórður009

Tjaldbúðir skáta í útilegu að vetri til. Staðurinn óþekktur.

guðmundur192
Á myndinni er Fosshóll og brúin við Goðafoss yfir Skjálfandafljót. Þessi brú á Skjálfandafljót var byggð 1930, kom í stað gamallar hestabrúar frá 1882 og var á aðalveginum upp á Fljótsheiði fram til 1972.
Brúin var rækilega tekin í gegn í lok 10. áratugarins og þjónar í dag sem göngubrú yfir að útsýnissvæðinu við Goðafoss. Myndin tekin laust eftir stríðið.
guðmundur228
Hólsnefið - syðsti oddi Höfðans.
Jón040
Spákonufell í kvöldskini
óþekkt003

Lengi framan af öldum var land á núverandi Skagaströnd í eigu tveggja bæja. Bæirnir voru Spákonufell, sem var kirkjustaður, og Höfðahólar. Seinna bættust svo Hágerði og Finnsstaðir við. Þessi mynd er af Höfðahólum sem stóðu á berginu ofan við núverandi tjaldsvæði. Þar er nú fánastöng og minningarskjöldur um bæinn einnig má sjá þar nokkrar rústir ef vel er gáð. Síðustu ábúendur á Höfðahólum voru Axel Ásgeirsson (d. 21.9.1965) seinna á Litla Felli og Sigurbjörg Björnsdóttir ásamt börnum. Jóhannes Björnsson (d. 14.6.1977) og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004)foreldrar bræðranna: Páls, Sigmars, Vilbergs og Óskars nýttu fjárhúsin og túnin undir skepnur sínar en bjuggu ekki að Höfðahólum.

Jón059
Spákonufell haustið 1985
Óþekkt097
Skagastrandarhöfn þ.e. Skúffugarðurinn með Smágarði á góðum degi snemmsumars.
Mundi254
Myndin er tekin á heimaslóðum ljósmyndarans, Guðmundar Guðnasonar, í Laxárdal í Austur Húnavatnssýslu. Rústirnar munu vera af bænum Refsstöðum í Laxárdal.
mundi524
Tjaldbúðir í Tungudal við Ísafjarðarkaupstað. Myndin var tekin í Vestfjarðaferð starfsfólks Guðmundar Lárussonar 1973? Kári Sigurbjörn Lárusson stendur fyrir miðri mynd í ljósri skyrtu og brúnum buxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
hem002
Á myndinni er til vinstri verslunarstjórahúsið því næst er fjós og hesthús. Við norðurenda þess gægist fram hornið á Assistentastofu. Húsið sem er lengst til hægri upp í Einbúanum var þvottahús. Myndin er frá 1913 eða fyrr, áður en nokkrar landfyllingar komu til sögunnar kringum Einbúann.
mundi519
Fremst á miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali var kallað Grafarbakki vegna nálægðar við mógrafir. Húsið var að lokum notað til æfinga fyrir slökkvuliðið og brennt.
mundi518
Ásholt til vinstri og Ás til hægri. Myndin er tekin af hlaðinu í Ægissíðu þar sem ljósmyndarinn Guðmundur Guðnason átti heima.
Guðmundur Guðnason798
Fossinn fyir ofan bæinn Hof. Í baksýn eru Fjallsöxlin til vinstri og Steinnýjarstaðafjall til hægri. Milli þeirra er Litla skarð.
Guðrún Guðbjörnsdóttir111
Kristján Hjartarson þenur nikkuna og Jón Helgason spilar með á gítarinn við Goðafoss í góðu veðri.
Guðmundur Guðnason850
Vinaminni (Hólabraut 16) fyrir miðri mynd. Til hægri sér í Brautarholt. Þegar þessi mynd var tekin, sennilega í kringum 1960, lá akvegurinn, eins og sést, rétt sunnan við Vinaminni og svo var hægri beygja vestan við Brautarholt. Snjórinn sem liggur fyrir framan Vinaminni hylur malarkrús sem þar var en hún var vinsæll leikvangur og sullstaður barnanna í innbænum á sínum tíma. Í dag standa Hólabraut 12 og Hólabraut 14 á þessum slóðum.
Guðmundur Guðnason869
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason674
Bryggjan í Hagnesvík skoðuð á ferðalagi til Siglufjarðar 15. júní 1968. Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún er í ljósum frakka. Til hægri við hann er óþekktur heimamaður en Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi snýr baki í myndavélina.
Björn Bergmann 018
Myndin er tekin á árunum 1963 eða 1965 þegar hafís var á Húnaflóa. Á þessari mynd er myndarlegur borgarísjaki strandaður framan við Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason030
Rósberg Guðnason Snædal skáld og rithöfundur, f. 8.8.1991 og d. 9.1.1983, á heimaslóðum í Laxárdal sem þá voru komin í eyði. Rósberg var bróðir Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara.
Guðmundur Guðnason041
Mynd tekin yfir Blönduós.
Guðmundur Guðnason127
Þetta unga fólk er í fjallgöngu. Lengst til hægri er Fjóla Jónsdóttir en hin eru óþekkt en eru þó sennilega frændsystkini Fjólu - Snædal börn. Ef þú þekkir þeu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason058
Spákonufell að vetri til. Myndin tekin af hlaðinu á Ægissíðu, heimili Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar. Húsin til vinstri er Ásholt en til hægri sér í Ás.
Guðmundur Guðnason999
Gamla Blönduóskirkjan í forgrunni. Handan Blöndu blasir Kvennaskólinn við.
Guðmundur Guðnason217
Þessi mynd er tekin af planinu framan við gamla frystihúsið haustið 1961. Lengst til vinstri sér í grindverkið kringum sundlaugina og í hornið á búningsklefunum sem þá voru. Þá kemur spennistöðin og á bak við hana er verslunarstjórahúsið sem byggt var 1906 en rifið á níunda áratugnum. Stóra húsið á miðri mynd er svo kaupfélagið með áletruninni "Kaupfélag Skagstrendinga". Til hægri við kaupfélagið grillir í gömlu verslunarhúsin sem á þessum árum voru notuð sem geymslur undir sement, fóðurbæti og annað slíkt. Á myndinni má sjá að ekki var búið að fylla upp í víkina neðan við sundlaugina - gömlu vörina.
Guðmundur Guðnason103

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Frá hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Brúnn Georgs Agnarssonar". Mennirnir á hliðarlínunni eru Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) frá Bollastöðum nær og Þorkell Sigurðsson (d. 7.10.2008) á Barkarstöðum
fjær.

IMG_3284
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Guðmundur Guðnason230
Jón Haraldson í Gautsdal, lengst til hægri, skoðar snjósleða með félögum sínum. Maðurinn fyrir framan Jón bónda er sonur hans Gauti, sem nú er bóndi í Hvammi í Langadal.
Guðmundur Guðnason108
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Farangur hópsins handlangaður úr Fagranesinu upp á bryggju í Ögri. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Óþekkt kona, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) (með hatt), Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Guðmundur Viðar Guðmundsson, þrír óþekktir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Ingibjörg Axelma (Didda) Axelsdóttir (d. 6.3.2007) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
IMG_3294
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Þórður003
Skátamót í Vatnsdal árið 1960
05_Kaupfelagid_vetur

Myndin er tekin af Höfðanum sennilega 1942 eða 1943. Byggingar sem tengdust byggingu verksmiðjunnar og/eða hernum, braggar og skemmur, eru ekki komnar.

Guðmundur038
Spákonufell með skemmu við Ægissíðu í forgrunni.
Jón107
Spákonufell að vetri til hulin snjóblæju.
guðmundur227
Skagaströnd
Elísabet035
Hafnarsvæðið og hluti útbæjarins á Skagaströnd einhverntíma fyrir 1950
Jón061
Skagaströnd veturinn 1983
hem035
Fólk við dúntekju í æðarvarpinu í Eyjarey á hafísári.
mundi543
Myndin er tekin af hlaðinu á Ægissíðu, heimili Guðmundar ljósmyndara.
hem004
Frá Spákonufellshöfða myndin er tekin 1910 eða eldri. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
hem003
Spákonufellshöfði 1915 eða eldra.
hem024
Myndin er tekin frá Spákonufellsey árið 1915-20. Á henni sjást frá vinstri verslunarstjórahúsið, Flankastaðir, Þvottahúsið og hægra megin við Einbúann er Assistentastofa, en þar bjó verslunarþjónninn sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Pakkhús kemur svo, lengra frá, og verslunin, ljós á litinn, nær okkur. Næst er svo Sæmundsenbúð og lengst til hægri Brúarland.
mundi599
Skagstrendingar á ferðalagi. Lengst til vinstri er Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), síðan koma hjónin á Árbakka Jakob Guðmundsson og Helga Hermannsdóttir. Hjá þeim standa hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
hem017
Fremst á myndin má sjá Jóhönnu Hemmert sitja líklega ásamt dóttur sinni Hólmfríði á túninu og vinnufólkið er í heyskap. Lengst til hægri er íbúðarhús verslunarstjóra Höphnersverslunar ljóst á litinn. Það var byggt 1774 en rifið 1908. Næst því er fjós og hesthús kaupmannsins sem sennilega var einnig notað sem pakkhús að hluta. Lengra til vinstri er lítið hús sem ber í stærra hús en litla húsið er Assistentastofa eða íbúðarhús verslunarþjónsins sem starfaði í versluninni. Ljósa lágreista húsið er verslunin sjálf en áfast við hana er háreist pakkhús. Við hornið á pakkhúsinu sér í þúst en það er íbúðarhúsið Sæmundsenbúð. Til vinstri við fólkið koma Brúarland, Móar, Lækur, Lækjarbakki, Karlsminni og Viðvík í röð. Fyrir neðan Viðvík er bátur og í fjörunni er Semingssteinn. Á Hólanesinu handan við víkina er stórt íbúðarhús og verslun Carls Berndsen og fram af því Árnes. Litla húsið, vinstra megin við Hólaneshúsin er Stiesenbær. Nær fjöllunum til vinstri er Stóra Berg og efst Litla Berg. Innst með ströndinni til hægri sést Bráðræði. Myndin er tekin fyrir 1907 sennilega árið 1904.
045
Myndin er af Sandkúlunni sem er syðst í Katlafjalli ofan við bæinn Brandaskarð
Guðmundur Guðnason706
Mynd tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Fremst fyrir miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali gekk undir heitinu Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir Skagtrendinga.
Guðmundur Guðnason898
Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Gísli Snorrason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Myndin var tekin í mars 1962.
Guðmundur Guðnason868
Jóhann Ingibjörnsson á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason884
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir ferminguna 1965. Fremstur fer séra Pétur Þ. Ingjaldsson, þá Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Bergur Þórðarson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason932
Fjársafn við Stafnsrétt.
Björn Bergmann 019
Hafís á Húnaflóa 1963 eða 1965
Guðmundur Guðnason905
Árbakkasteinninn stendur upp úr hafísnum sem annars þekur Húnaflóann í grennd við Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin Hafísárið 1965.
Guðmundur Guðnason972

Myndin er tekin við Tröllafoss í ágúst 1961. Til vinstri er Þórir Konráð Guðmundsson frá Garðhúsum og til hægri Björgvin Brynjólfsson. Myndin er tekin úr bókinni "Minningar og lífssýn" eftir Björgvin Brynjólfsson bls. 258.

Guðmundur Guðnason142
Hestamannamót í Húnaveri sennilega á sjöunda áratugnum. Horft yfir mótssvæðið.
Guðmundur Guðnason071
Aftan á þessari mynd stendur: "Sverrir Haraldsson og 3 strákar. Myndin tekin á Litla-Vatnsskarði". Fleira er ekki vitað um myndina en ef þú veist hvaða stráka er um að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason080
Þetta eru Sturluhólssystkinin. Frá vinstri er Sturla, Bjarni og Guðrún Snorrabörn.
IMG_3285
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sést að miklar uppfyllingar hafa átt sér stað frá því að hún var tekin - hús hafa horfið - nýr viðlegukantur o.fl..
Guðmundur Guðnason162
Réttastörf í Stafnsrétt 1963.
Magnús B Jónsson053
Vormynd af Skagaströnd tekin frá skíðasvæðinu í suðurhlíðum Spákonufells. Myndin sennilega tken um 1980.
IMG_3287
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum. Neðst á myndinni er Röðulfell og Fellsborg til vinstri við það. Út frá þeim húsum má átta sig á breytingunum sem orðið hafa.
1
2
3
4
5

8
Leita í myndasafninu
Leita