Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Landslag
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason244
Stíflan í Hrafnánni var á sínum tíma gerð til að safna neysluvatni fyrir bæjarbúa. Í mörg ár var allt neysluvatn tekið þarna úr ánni en það gat stundum verið gruggugt á leysingum á vorin. Einnig kom það fyrir að skepnur, kindur eða hestar, drápust í ánni ofan við stífluna þannig að fólk var að drekka seyðið af þeim næstu mánuði. Í bókinni Byggðin undir Borginni segir á bls. 298:<br><em>........Vatnsveita Skagstrendinga þótti löngum mjög slæm. Notast var við árvatn úr Hrafná sem oft varð dökkt af óhreinindum,einkum í vorleysingum og því mjög óheppilegt til nútímalegs fiskiðnaðar og auk þess hvimleitt sem neysluvatn...........</em>
IMG_3297
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Guðmundur Guðnason286
Fólkið sem hér stendur með Gullfoss í baksýn eru hjónin Hertha W. Jónsdóttir og Stefán Gunnarsson (d. 2011) frá Æsustöðum. Með þeim er dóttir þeirra Sigríður Þrúða Stefánsdóttir.
Guðmundur Guðnason272
Byrjunarframkvæmdir við frystiklefann á uppfyllingunni við Skúffugarðinn austanverðan. Klefan byggði Hólanes hf. Í baksýn sést Arnar Hu 1, fyrsti skuttogari Skagstrendings hf sem kom í heimahöfn í fyrsta sinn 1973 frá Japan þar sem hann var smíðaður.
Guðmundur Guðnason627
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Hér hafa hann og bróðir hans og ferðafélagi , Rósberg G. Snædal, áð við Hrútatjarnarstein. Steinninn stendur við litla tjörn sem heitir Hrútatjörn. Að sögn kunnugra sást oft ljós í steininum á síðkvöldum og var það almenn trú að þar byggju álfar.
Skagaströnd úr lofti
Þessa mynd tók Jón Karl Snorrrason úr lofti rétt fyrir 1990. Myndin er óskýr því hún er blaðaúrklippa. Á henni stendur gamla Hólaneskirkja ennþá og miklar breytingar hafa orðið á hafnarsvæðinu síðan myndin var tekin. Þá má sjá olíutankana uppi á Höfðanum og lýsistankana austan við hann.
Óþekktur ljósmyndari152
Hér sést Skagaströnd af sjó. Myndin var tekin á sjómannadegi.
Guðmundur Guðnason898
Skagaströnd í kringum 1960. Myndin var tekin norðan frá.
Guðmundur Guðnason600
Þessi mynd er sennilega tekin 1961. Myndin er úr Kálfshamarsvík og sýnir flota síldarbáta sem eru í vari við Kálfshamarsnesið.
Guðmundur Guðnason673
Haganesvík í Fljótum. Myndin var tekin 15. júní 1968 .
Ólafur Bernódusson538
<p>Stapinn eða eyjan sem er fram af Króksbjargi rétt norðan við staðinn þar sem Fossá fellur fram af bjarginu. Gat er í gegnum eyjuna en það sést aðeins af sjó. Myndin ver tekin norðanfrá og til vinstri sér í hluta Króksbjargsins. Ef þú þekkir annað nafn á Stapanum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p><p><br></p>
Ólafur Bernódusson550
Töluvert margir aðilar gerðu út á grásleppu í grennd við Skagaströnd á litlum bátum áður fyrr. Þessi mynd var tekin með miklum aðdrætti vorið 1996 af einum þeirra við veiðarnar. Bólið sést til vinstri og Strandafjöllin eru í baksýn.
Ólafur Bernódusson539
Fossáin ryðst fram af Króksbjargi í vorleysingum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn096
Þetta er mynd af gömlu brúnni yfir Laxá í Refasveit. Brúin gat verið varasöm að vetri í hálku því það voru brekkur að henni beggja megin og vinkilbeygjur inn á hana. Þetta var ekki fyrsta brúin yfir ána því að áður var brú mun nær sjónum, nálægt þeim stað þar sem laxastigar eru nú í ánni. Nýja brúin sem notuð er í dag, er staðsett um það bil þar sem rafmagnsstaurarnir eru á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari339
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann brann eftir að flutt hafði verið úr honum fyrir nokkru. Á myndinni sést lítið sem ekkert af Landsendarétt sem stóð á sjávarbakkanum norðan við bæinn. Fyrir miðri mynd er greinileg gamla Réttarholtsvörin eins og skurður í fjörunni.
Skagaströnd - safn021
Spákonufellshöfði eða Höfðinn eins hann er kallaður í daglegu tali. Myndin er tekin norðanfrá og lengst til hægri er Sauðskerið þá Arnarstapinn og Landsendi þar sem hallar niður af Höfðanum til austurs.
Guðmundur Guðnason162
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Kjartan við birkirunna á Stóra - Núpi".</em> Ef þú veist hver þessi Kjartan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari333
Á árunum kringum 1960 var öflugt skátastarf á Skagaströnd. Skátafélagið hét Sigurfari og voru bæði stúlkna og drengjadeildir innan félagsins. Félagið byrjaði á framkvæmdum við skátaskála í Brandaskarði og var þar steyptur sökkull og plata undir skála. Lengra komst verkið ekki á þeim stað. Seinna byggði félagið sér myndarlegan skála í suð-vestur hlíðum Spákonufellsins, eiginlega beint upp af skíðaskálanum, sem stendur þar nú. Því miður var skálanum valinn staður þar sem mjög snjóþungt er og eftir nokkur ár lagðist skálinn saman undan snjóþunga en hafði verið notaður í tengslum við skátastarfið fram að því. Á þessari mynd, sem tekin var ofarlega í Hrafndal, sýnir hóp kvenskáta sem fóru í gönguferð kringum Borgina. Með þeim fór Bernódus Ólafsson sem "burðarmaður" en hann fylgdi stúlkunum fram Hrafndalinn en sneri við þegar þau voru komin fyrir enda Borgarinnar að austanverðu. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), María Bjarnadóttir (d. 1984), Kristín Lúðvíksdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Hrefna Þorbjörnsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir (nær), Ingibjörg Kristinsdóttir (fjær), Jóhanna Valdimarsdóttir (fjær), Guðrún Þórbjarnardóttir (í miðið), Þórunn Bernódusdóttir (nær), Helga Guðmundsdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Pálína Benjamínsdóttir.
Guðmundur Guðnason080
Óþekktur maður uppi á þrónum við verksmiðjuna. Þarna við hliðina var Skagastrandarradíó á síldarárunum.
Óþekktur ljósmyndari169
Myndin var tekin af Höfðanum 1946 eða 1947. Síldarverksmiðjan er í byggingu en virðist jafnframt vera komin í notkun því það rýkur úr skorsteininum. Einungis grindin er komin að skemmunni og enn eru vinnupallar á skorsteininum. Verkamenn sem unnu við bygginguna bjuggu í tjöldum sem sjást í forgrunni myndarinnar. Þá eru komnar undirstöður undir Kaupfélagsskemmuna norðan við gamla kaupfélagið.
Guðmundur Guðnason108
Þessi mynd var tekin neðan við Einbúann á þeim tíma sem sjór féll upp að honum. Það þýðir að myndin hefur sennilega verið tekin ekki seinna en 1934 því það ár var hafist handa við hafnargerð á þessu svæði. Þá var stutt bryggja, byggð um 1922, rétt austan við Hólsnefið, sem er systi oddi Höfðans. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Litli/efri Lækur, Jaðar, óþekkt, Karlsskáli, Lækur, Lundur, Lækjarbakki og Karlsminni. Bátarnir eru óþekktir en Spákonufellið er í baksýn.
Óþekktur ljósmyndari244
Síldarverksmiðjan í byggingu 1945 eða 1946. Næst okkur á myndinni er frysti - og sláturhús Kaupfélags Skagstrendinga en lengst til hægri sér í endan á bryggjunni sem var neðan við (sunnan við) frystihúsið í skjóli við Hólsnefið.
Óþekktur ljósmyndari246
Bankastræti í júní 1986. Síðan þessi mynd var tekin hafa fjögur af húsunum horfið þó byggt hafi verið nýtt í stað eins þeirra. Í húsaröðinni til vinstri er Höfðaberg, sem er lengst frá okkur, horfið. Höfðakot sem stendur við enda götunnar er horfið og í hægri röðinni eru horfin húsin á Flankastöðum og Kárastöðum en þau eru hús númer tvö og þrjú frá okkur talið. Nýtt hús hefur svo risið að Flankastöðum.
Ólafur Bernódusson517
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd er einn af nemendunum að stíga fyrsta skrefið út í óvissuna. Calle situr á brúninni og fylgist með en fleiri nemendur bíða eftir að röðin komi að þeim.
Skagaströnd - safn104
Þessi mynd sýnir Höfðann (Spákonufellshöfða) fyrir 1934 því á myndinni er hann óskemmdur af grjótnámi, sem hófst þar 1934 þegar sprengt var í Höfðanum til að fá grjót til uppfyllingar í hafnargerð á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson505
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir verkstjóri, Ragna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson og Rakel Petrea Finnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari283
Þessi mynd var líklega tekin á þriðja áratugnum. Á henni njóta lífsins á Höfðanum þau: Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) og systir hennar Magdalena Helgadóttir (d. ?).
Guðmundur Guðnason276
Þessi mynd var tekin í Almannaskarði við Höfn í Hornafirði á hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974 , árið sem hringvegurinn opnaði. Nær okkur á myndinni er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) en Ómar Jakobsson nýtur útsýnisins.
Guðmundur Guðnason274
Þessi mynd var tekin í hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974. Á henni er fólk að undirbúa sig undir að tjalda á náttstað við Dynjanda í Hornafirði. Í baksýn sjást Vesturhorn og Stokknes. Næst okkur á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) en aftan við hana sést Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) en aftan við Sigmar sér í Eðvarð Jóhannesson. Næst rútunni og snúa baki í ljósmyndarann eru sennilega Guðmunda Sigurbrandsdóttir og Ólafur Guðmundsson. Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) heldur á rauðri fötu og grænum poka en lengst til hægri, með grænan poka, er Kristinn Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason272
Jón Jónsson við Hraunfossa sem falla í Hvítá við Húsafell.
Guðmundur Guðnason329
Útbærinn að vetri til séð af Höfðanum. Margt hefur breyst síðan þessi mynd var tekin. Tankarnir lengst til hægri tilheyrðu síldarverksmiðjunni en hafa nú verið rifnir. Frystihúsið aftan við tankana var endurbyggt og breytt. Kaupfélagshúsið (verslunarstjórahúsið) til vinstri við sundlaugina hefur verið rifið. Nýir búningsklefar eru komnir við sundlaugina. Við Bankastrætið, sem er næst okkur á myndinni, er búið að rífa bæði Flankastaði (annað hús frá hægri við götuna) og Kárastaði (þriðja hús frá hægri). Nýtt hús hefur þó verið byggt á Flankastöðum. Húsið næst okkur til vinstri, Höfðaberg, er horfið og líka Höfðakot, sem er hægra megin við Höfðaberg, með fjárhúsum og hlöðu. Ef horft er niður eftir Skagavegi sér ofan á þakið á Steinholti næst okkur til vinstri. Þá koma Skálholt og Þórhamar en næstu þrjú hús, Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður eru öll löngu horfin. Braggarnir tveir sem grillir í norðan við stóru síldarverksmiðju-skemmuna eru báðir horfnir. Í öllum þessum húsum bjuggu góðir og gegnir Skagstrendingar með fjölskyldum sínum og lögðu sitt af mörkum til að gera Skagaströnd að því sem hún er í dag.
52_Kaupfelagid_og_Einbui_fra_Hofda
Myndin er tekin 1945 eða 1946 því sjá má að skorsteinn verksmiðjunnar er í byggingu. Sundlaugin er komin en enn vantar kyndihúsið við hana.
Guðmundur Guðnason308
Ægissíða sem var heimili ljósmyndara þessarar myndar, Guðmundar Guðnasonar. Ægissíða, sem nú er löngu horfin, stóð við þjóðveginn norður með Höfðanum rétt sunnan við Réttarholt. Í baksýn sést Skeifan sem er efsti hluti Hólabrautar. Lengst til vinstri er Hólabraut 31 eða Jórvík næst eru Hólabraut 27 og 25 og rauða húsið er Sænska húsið eða Hólabraut 23. Fleiri hús voru ekki komin á Skeifuna, þegar myndin var tekin, en nú er nánast fullbyggt við götuna.
Guðmundur Guðnason206
Handtak á fjöllum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin og mennirnir á henni eru líklega Konráð Guðmundsson í Garðhúsum til vinstri og Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) úr Miðnesi til hægri.
Guðmundur Guðnason273
þessi mynd var sennilega tekin á ferðalagi starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á árunum kringum 1975. Á myndinni er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) á spalli við Selmu Þórarinsdóttur (d. 14.9.1990) og Eið Hilmarsson.
Guðmundur Guðnason633
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Hér hafa hann og óþekktur ferðafélagi tjaldað á grænum bala.
Guðmundur Guðnason575
Vormynd af Spákonufellinu. Í forgrunni eru nokkrar kindur með lömb en Guðmundur ljósmyndari hafði gaman af kindum og tók mikið af myndum af þeim.
Guðmundur Guðnason884
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi árið 1963. Verksmiðjan er nú horfin og komin íbúðabyggð í staðin á svæðinu.
Bydg[1]
<P>Hér sjást húsin í útbænum. Ljósmyndarinn er óþekktur en myndin var sennilega tekin á árunum fyrir 1960. Eftirtektarvert er að á myndinni er ekki bíll við hvert hús eins og er í dag. Bankastræti sést lengst til vinstri og húsin nær Höfðanum eru, talið frá vinstri: Fjárhús sem tilheyrðu Flankastöðum, Höfðabrekka, Bjarnarhöfn og fjær (með grænu þaki) Höfðakot með sambyggðri hlöðu og yst er svo Höfðaberg. Hinum megin við Bankasrætið þ.e. nær okkur á myndinni eru frá vinstri: Höfðaborg, Flankastaðir, Kárastaðir og Stórholt. Fjær okkur á myndinni, við núverandi Skagaveg eru, talið frá <STRONG>hægri: </STRONG>Héðinshöfði, en yfir enda þess sér í Gunnarshólma (Grafarbakka), Þórsmörk er norðan við Héðinshöfða en yfir Þórsmörk sér í Bjarmaland. Fjárhús og hjallur tilheyrandi Þórsmörk ber svo í Þórshamar sem er með grænu þaki en Skálholt kemur síðast með ryðrauðu þaki. Langt í burtu sést svo Ásholt hjá Ásholtshólnum. </P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason868
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson548
Guðrún Pálsdóttir með Spákonufell í baksýn 1996.
Óþekktur ljósmyndari330
Þessi mynd, tekin af sjó einhverntíma á árunum 1965 - 1970, sýnir innbæinn eins og hann var þá. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fyrir framan Bjarmanes á Hólanesinu.
Óþekktur ljósmyndari278
Einbúinn upp af Skagastrandarhöfn. Sú saga gengur um Einbúann að ekki megi skerða hann á nokkurn hátt því í honum sé álfabyggð og sé hann skemmdur muni álfarnir hefna sín grimmilega á bæjarbúum. Eins og sést á þessari mynd gekk sjórinn upp að Einbúanum þangað til 1934 þegar uppfylling var gerð vestan við hann út í Spákonufellsey við byggingu hafnarinnar.
Ólafur Bernódusson547
Hólaneskirkja og Spákonufellið 1996.
Óþekktur ljósmyndari345
Spákonufellsbærinn og kirkjan að Spákonufelli. Þessar byggingar stóðu þar sem kirkjugarðurinn sóknarinnar er í dag. Samkvæmt Byggðin undir Borginni<font size="1"> </font> var alkirkja á Spákonufelli a.m.k. allt frá 1318 því frá þeim tíma er til máldagi kirkjunnar. Kirkjan á myndinni var fyrsta timburkirkjan, sem þarna stóð, en hún var byggð 1852. Fram að því höfðu kirkjurnar verið byggðar úr torfi og grjóti. Þessi var notuð þar til ný kirkja var svo vigð á Skagaströnd 17. júní 1928 og enn ný kirkja þar í október 1991. <font size="1">(Heimildir: Byggðin undir Borginni bls 34 - 37 og Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012 bls 26 - 28 eftir Lárus Ægi Guðmundsson).</font>
Óþekktur ljósmyndari218
Gömul mynd af Bankastræti. Myndin var sennilega tekin upp úr 1940 en óvíst er með hvenær. Næst okkur á myndinni er búið að taka grunn að Höfðaborg (Bankastræti 9). Þar fyrir aftan sést grind að Flankastöðum (Bankastræti 7) og er þetta a.m.k. annað húsið sem byggt var á þessum reit undir Flankastaðanafninu. Þetta er þó ekki húsið sem stendur þarna í dag, það var byggt miklu síðar. Lágreista húsið sem ber yfir grindina að Flankastöðum var Kárastaðir (Bankastræti 5). Seinna var byggð önnur hæð ofan á Kárastaði og enn síðar var það rifið. Enn aftar eða fjær okkur á myndinni standa Draumaland og Dvergasteinn sem bæði eru horfin. Stórholt (Bankastræti 3) er ekki komið en það var byggt 1950 - 51. Lengst til hægri á myndinni er Þórshamar við Skagaveg og síðan Skálholt sem einnig stendur við Skagaveg. Húsið sem stendur vinstra megin við Skálholt, dálítið nær Höfðanum, er Höfðakot. Önnur hús á myndinni eru fjós, hlöður eða hest- eða fjárhús sem tilheyrðu þeim sem bjuggu við Bankastræti. Þó er húsið, sem stendur vinstra megin við grindina að Flankastöðum, sennilega eldra Flankastaðahús sem svo var aflagt með tilkomu hins nýja.Takið eftir að ekki er búið að gera götuna, Bankastræti, eins og við þekkjum í dag. Takið líka eftir fólkinu sem er í heyskap á blettinum neðan við Tjaldklaufina næst okkur á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari243
Myndin var tekin í fjörunni fyrir neðan Læk um 1960. Á henni eru tveir nótabátar, tvær trillur og ein skekta. Lágreista húsið lengst til vinstri er Viðvík þar sem rekið var gisti- og veitingahús á árunum 1867 og fram til 1883. Sæborg (Góubær) ber í skólahúsið og neðst húsið við Bogabraut, á þessum tíma, var Þorfinnshúsið (Bogabraut 9) sem sést yfir Sævarland.
Óþekktur ljósmyndari350
Húsaröðin næst: Steinholt (sér í hornið), Skálholt, Þórshamar, Þórsmörk og Garður. Vinstra megin eru: Bjarmaland (Grafarholt) í byggingu, Brúarland og Móar. Við sjóinn eru Karlsskáli, Efri - og neðri Lækur, Lundur, Jaðar, Lækjarbakki og Karlsminni. Myndin var tekin upp úr 1940.
Skagaströnd - safn023
Árbakkasteinn er í raun tvö sker sem standa fram af Hrafnánni. Næst okkur á myndinni er grjótgarður, sem byggður var á fimmta átratugnum, sem upphaf á hafnargerð, sem hugsuð var með varnargarði út í Árbakkastein og síðan þaðan til norðurs að Brúnkollu, sem er blindsker sunnan við enda Útgarðs. Ef þessar hugmyndir hefðu orðið að veruleika væri Skagastrandarhöfn að öllum líkindum lífhöfn í hvaða veðrum sem væri. Þá lá líka fyrir skipulag að Skagaströnd sem 5000 manna byggð sem byggja skyldi á stóriðju - síldarverksmiðjunni - og margfeldiáhrifum hennar. Því miður gleymdist að ræða við síldina til að tryggja hennar þátt í málinu þannig að draumarnir um svo fjölmenna og blómlega byggð runnu út í sandinn.
Skagaströnd - safn020
Kálfshamarsvík. Þar var áður töluverð byggð og skemmtilegt er að ganga um svæðið því þar eru öll bæjarstæði vel merkt og saga þeirra sögð í stuttu máli á aðgengilegum skiltum. Þess utan er þarna sérstaklega fallegt stuðlaberg sem gaman er að skoða.
Óþekktur ljósmyndari321
Trjáplöntur gróðursettar á skógræktarsvæði Skóræktarfélags Skagastrandar ofan við Hólabergin. Hér er verið að gróðursetja víðiplöntur í skjólbelti nyrst á svæðinu árið 1988. Fólkið á myndinni eru óþekktir frumkvöðlar. Myndina tók Jón Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari263
Litla Berg til vinstri og Stóra Berg til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á tveimur fyrstu áratugum 20. aldar. Skóli var haldinn á Stóra Bergi 1909 og nokkur næstu ár. <font size="1">(Byggðin undir Borginni bls 147)</font>
Óþekktur ljósmyndari351
Spákonufellsbærinn 1949. Bærinn stóð þar sem nú er kirkjugarður Skagstrendinga.
Óþekktur ljósmyndari302
Í bókinni Byggðin undir Borginni á bls. 63 segir svo um þessa mynd: <em>" Verslunarstaðurinn árið 1910; fremst er verslunarstjórahúsið, þá assistentastofan, pakkhúsið og búðin. Fjær eru Gamli-Lækur og Jaðar. Á grindurnar í hægra horninu var breiddur fiskur, en Höphnersverslun hafði þá mesta fiskverkun. Spákonufellið gnæfir yfir og til hægri er Einbúinn".</em>
Guðmundur Guðnason230
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir hafís á Bótinni - sem er víkin norðan við Höfðann, milli Finnstaðaness og Höfðans. Ísinn gerði oft mikinn usla í grásleppu- og þorskanetum sjómanna á Skagaströnd á hafísvorum með því að slíta af þeim bólin og draga þau svo með sér eitthvað út í buskann.
Skagaströnd - safn181
Þessi mynd var tekin vorið 1965 en þá rak hafís inn á Húnaflóa með tilheyrandi vandræðum fyrir sjófarendur. Konan á myndinni er Ardís Ólöf Arelíusdóttir.
Óþekktur ljósmyndari295
Skagaströnd 1935 - 1940. Síldarskipin bíða eftir þjónustu, ker í byggingu í dráttarbrautinni og Hafnarhúsið er risið (1935).
Þórður Jónsson023
Skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd á ferð í Vindhælisstapa í vetrarveðri. Ártal ekki vitað en líklega var myndin tekin um 1960. Frá vinstri: Jóhanna Valdemarsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Ellertsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Sigríður Pálsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Sigurfari var stofnaður 26. mars 1959 en aðal hvatamaður þess, og fyrsti félagsforingi, var Ingólfur Ármannsson kennari við Höfðaskóla. Ingólfur kom frá Akureyri en þar var öflugt skátastarf sem hann hafði tekið þátt í. Sigurfari starfaði í u.þ.b. áratug lengst af undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eftir að Þórður flutti frá Skagaströnd 1966 eða 1967 fjaraði undan félaginu og lagði það upp laupana smátt og smátt.
Skagaströnd - safn273
Hér er unnið að plægingu á stýrisstreng fyrir vatnsveitu í Hrafndal sumarið 1996. Myndin var tekin af gröfunni á kafi í mýri neðan og vestan við skíðaskálann. Þrátt fyrir að vera á tvöföldu bæði að framan og aftan sökk grafan eins og sést. Allt fór þó vel enda vanur maður á gröfunni, Guðmundur J. Björnsson.
Skagaströnd - safn185
Þessi mynd, sem er tekin af almanaki, sýnir bæinn Hnappstaði á Skagaströnd. Bærinn stóð á Hnappstaðatúni sem er við Oddagötu niður af Bogabraut. Bærinn er löngu horfinn.
1
2
3
4
5
…
8
Leita í myndasafninu
Leita