Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Landslag
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 410
Það getur brimað illa við gömlu Spákonufellsey sem skýlir höfninni á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin á einum þessara brim-daga og sýnir þann ógnarkraft sem býr í haföldunum.
Guðmundur Guðnason 2 370
Gil í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 353
Brún í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason243
Þessi staður er óþekktur. Ef þú veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 374
Bergsstaðir í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 490
Loftmynd af Skagaströnd sennilega tekin kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 379
Skrapatunga í Laxárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 367
Þessi brú var (er ?) yfir Hólmsá í Skaftartungu. Augljóslega hefur verið vandasamt að aka rútum og lengri bílum yfir hana. Ökumaður þessarar rútu virðist þó kunna sitt fag því hann fer eins langt til hægri og hægt er til að ná beygjunni inn á brúna.
Steinþór Karlsson 1
Loftmynd af Spákonufelli tekin úr norð-vestri. Efst trónir Spákonufellsborgin sjálf eða Borgarhausinn eins og stundum er sagt. Framan við hann er Grenjadalur en norður af hausnum (nær okkur) er klettaborg sem heitir Molduxi. Hinum megin við hausinn, lengst til hægri á myndinni, er önnur hæð, Stóri speni. Lægðin sem afmarkast af Molduxa og hausnum sjálfum - fjær okkur á myndinni - er Leynidalur/Leynisdalur. Fjallið austur af Borgarhausnum þ.e. til vinstri á myndinni, heitir tveimur nöfnum: Hrútafjall eða Náttmálafjall. auðveldasta gönguleiðin upp á Borgarhausinn liggur meðfram snjóskaflinum sem er lengst til vinstri á myndinni og upp á rindann þar fyrir ofan og síðan eftir rindanum upp á hausinn sjálfan.
Guðmundur Guðnason 2 369
Skatastaðir í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 349
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað "<em> Séð frá Varmahlíð, G.K.G.". </em>Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef til vill geta bílaáhugamenn giskað á það út frá útliti olíubílsins.
Guðmundur Guðnason 2 501
Árið 1977 gengu þeir félagar Sigurður Jónsson, sem myndin er af, og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Náttstaður þeirra var hjá bænum Vesturá þar sem þessi mynd var tekin. Bærinn var þá löngu kominn í eyði en þar átti Guðmundur æskuár sín.
Skagaströnd - safn405
Spákonufell í skini aftansólar með þokuslæðum sem gera Borgina dulúðlega.
Árni Geir Ingvarsson - safn 471
Þessi mynd af Skagaströnd hefur sennilega verið tekin kringum 1990 - 1995
umf Fram 328
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin yfir Blönduós en líklega hefur það verið kringum 1975. </p>
Skagaströnd - safn404
Landsins forni fjandi, hafísinn, á víkinni fyrir norðan Höfðann, Bótinni. Ekki er vitað hvaða vor myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari367
Þessa mynd af heyskap tók Evald Hemmert einhverntíma í kringum 1910. Myndin, sem hefur verið handmáluð, sýnir byggðina fyrir víkina og á Hólanesinu. Ef grannt er skoðaða má sjá mann á hesti með annan í taumi ríða fyrir víkina, líklega að koma úr verslunarferð.
Guðmundur Guðnason 2 415
Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurður Jónsson. Líklega var þessi mynd tekin af þeim félögum við Merkigil í Skagafirði á leið til messu í Ábæjarkirkju en þangað sóttu þeir saman árlega í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 004
Loftmynd af Skagaströnd líklega tekin öðru hvoru megin við aldamótin 2000. Fróðlegt að bera saman gróðurinn austan við tjaldsvæðið þá og nú eftir gróðursetningu Skógræktarfélags Skagastrandar á trjáplöntum á svæðinu.
Minjasafn773
Gömul mynd frá Skagaströnd, lílklega tekin 1946 eða 1947. Ekki er búið að reka niður stálþil um Skúffugarðinn né fylla upp í "Dokkina". Hafnarhúsið er komið á sinn stað og verið að ljúka við smíði mjölskemmunnar. Mörg af húsunum sem sjást á myndinni eru nú horfin. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðný Finnsdóttir 12. desember 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 534
Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) nýtur hér útvistar í óþekktri hraunbreiðu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 605
Á þessari mynd af Skagaströnd má sjá nokkur horfin hús. Lengst til vinstri er Karlsminni sem ekki er til lengur, þá kemur Strandgata 10, sem enn stendur, en þar við hliðina er Viðvík sem er horfin. Síðan koma tvö hús sem enn standa, Höfðatún og Vík en þá kemur að fjárhúsum og lengra frá, með rauðu þaki, glittir í Bergsstaði sem einig hefur verið rifið. Næst er svo Sævarland og bak við það hægra megin er Sæból sem brann til grunna á sínum tíma. Lengst til hægri er svo Oddagata 1 sem enn er búið í.
Árni Geir Ingvarsson - safn 585
Þessi mynd af Skagaströnd sýnir vel framkvæmdir við byggingu raðhúsanna við Mánabraut 1 - 11 á sínum tíma. Á myndinni má líka sjá nokkur hús sem nú eru horfin t.d. Héðinshöfða, niðri í horninu hægra megin, Efri-Læk, sem ber yfir suðurenda plötunnar að Mánabraut 7, og Efri-Jaðar, sem ber yfir vinkilbygginguna til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 637
Þessi mynd sýnir útbæinn á Skagaströnd. Fremst á myndinni er olíutankur sem nú er horfinn. Yfir hann sér í langa brúna húsalengju. Þetta hús var samsett úr allmörgum einingum sem komu til Skagastrandar frá Kröfluvirkjun þar sem þau voru notuð sem vinnubúðir. Það sama gilti um húsin á Skagaströnd því í þeim bjuggu menn sem voru að vinna við breytingaframkvæmdir við síldarverksmiðjuna. Örlög hússins urðu þau að það kviknaði í þeim eina nóttina og brunnu þau að hluta en íbúarnir og gestir þeirra sluppu ómeiddir á síðustu stundu. Heillegu húseiningarnar voru svo seldar nokkrum aðilum sem fjarlægðu þær af staðnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 574
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir til vinstri og Þórarinn Brynjar Ingvarsson til hægri leika sér við að klifra, sennilega í Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1980.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 032
Þessi mynd af Hornbjargi hefur sennilaga verið tekin á heimsiglingu til Skagastrandar. Hornbjargið er vinsæll viðkomustaður göngumanna um Hornstrandir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 621
Árni Geir Ingvarsson. Myndin var líklega tekin seint á sjöunda áratugnum. Skeifan í baksýn hægra megin við Árna og Höfðahólar vinstra megin við hann.
Árni Geir Ingvarsson - safn 596
Á þessari mynd sést greinilega staðsetning bæjarins Höfðahóla á Skagaströnd. Bærinn er nú löngu horfinn. Einnig er fróðlegt að skoða Borgina eins og hún leit út á sumrin áður en lúpínu var sáð í melana.
María Magnúsdóttir - safn 061
Aftan á þessari mynd stendur: "Sveinbjörn Albertsson með Björn Magnússon Syðra-Hóli". Sveinbjörn var bróðir Jóhönnu Albertsdóttur móður Björns. Myndin var að öllum líkindum tekin í klettafjörunni neðan við Syðra Hól.
Guðmundur Guðnason 2 351
Þessi mynd sýnir Svartárbrúna og Ártún í baksýn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason2 342
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er grjótnám í Höfðanum í fullum gangi. Sennilega var myndin tekin kringum 1950 af hlaðinu í Ægissíðu, þar sem ljósmyndarinn bjó.
Steinþór Karlsson 2
Þessi loftmynd er af Spákonufellsborg eða Borgarhausnum sjálfum, tekin úr suð-austri. Hausinn er um 900 metra langur frá austri til vesturs og rennisléttur að ofan, vaxinn mjúkum, viðkvæmum mosa. Auðveldasta og öruggasta gönguleið upp á Borgarhausinn er eftir rindanum hægra megin á myndinni. Fremst á Borgarhausnum til hægri er stór grjótvarða en í henni er kistill með gestabók fyrir þá sem þar koma. Útsýn af Borgarhausnum er einstaklega gott í góðu skyggni. Hæðin sem ber yfir miðjan hausinn heitir Molduxi. Eins og sjá má eru gilin tvö í forgrunninum nánast ófær fyrir bratta enda heita þau Ófærugil og Illagil. Spákonufellið er um 640 metra hátt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 485
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af húsunum í Skeifunni, sem er efsti hluti Hólabrautarinnar, en síðan hefur gatan tekið á sig nýja mynd með fleiri húsum.
Guðmundur Guðnason 2 376
Gunnsteinsstaðir í Langadal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 355
Eiríksstaðir í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari366
Þessi mynd hefur verið tekin einhverntíma á árunum 1929 - 1933 af Höfðanum yfir hafnarsvæðið. Á myndinni má sjá Spákonufellsey sem nú er ein af undirstöðum hafnarinnar því 1934 var byrjað á uppfyllingu frá landi og út í eyju jafnframt því sem hluti hennar var brotin niður í uppfyllinguna. Húsið lengst til hægri var heimili verslunarstjóra og stóra húsið með græna þakinu er gamla kaupfélagið sem byggt var 1929-1930. Gula húsið með rauða þakinu til vinstri er Garður. Úti á víkinni liggja nokkrir bátar við legufæri enda hafnaraðstaða lítil sem engin á þessum tíma. Lengra frá sést Árbakkasteinn. Ljósmyndin hefur líklega verið handmáluð á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 371
Breiðavað í Langadal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 502
<p>Árið 1977 gengu þeir félagar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), sem myndin er af, og Sigurður Jónsson um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Myndin var tekin á náttstað þeirra við Vesturá þar sem Guðmundur átti æskuár sín. Bærinn var löngu kominn í eyði þegar myndin var tekin. </p>
Óþekktur ljósmyndari365
Skagaströnd Iceland er ritað á þessa mynd. Margir mundu e.t.v. ekki kannast við staðinn ef ekki væri fyrir Spákonufellið sem gnæfir yfir í baksýn. Annars sýnir myndin hvernig umhorfs var við Einbúann - klettinn sem er til hægri á myndinni - áður en hafist var handa við hafnargerð 1934 með uppfyllingu hérna megin við Einbúann. Stóra húsið á miðri mynd var fjós og hesthús og sennilega pakkhús að hluta. Hvíta húsið til vinstri var aðsetur verslunarstjórans. Við hornið á hesthúsinu vinstra megin sér í Assistentastofu, sem var húsnæði aðstoðarmanns verslunarstjórans. Litla húsið í Einbúanum var þvottahús og húsið sem sést fram undan stóra hesthúsinu til hægri var Sæmundsenbúð. Ljósmyndin er líklega handmáluð en er upprunalega póstkort sem á stendur 17. nóvember 1913 svo sennilega hefur myndin verið tekin þá.
Minjasafn 40
Gripur nr. 40. Mynd úr Hvalfirði í grænleitum leðurramma.
Guðmundur Guðnason2 343
Á þessari mynd sjást uppáhalds skepnur Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar - kindur. Í baksýn má sjá gapandi sárið í Höfðanum eftir grjótnám þar. Til vinstri sjást svo nokkur fjárhús, sem karlarnir sem bjuggu í Bankastræti undir Höfðanum, áttu.
Guðmundur Guðnason 2 352
Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 375
Blönduós - gamalt póstkort. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 386
Undirfell í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn403
<p>Þegar þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1943 - 1946 var mikil uppbygging á Skagaströnd. Verksmiðjuskorsteinninn er risinn en ekki búið að fjarlægja vinnupallana kringum hann. Grindin í stóru mjölskemmunni er að rísa og byggingarefni liggur út um allt. Sundlaugin er í byggingu og niðri í horninu lengst til vinstri er búið að steypa undirstöðu fyrir olíutank sem þar reis síðar. Járnplötur sem voru efni í tankinn liggja við hlið sökkulsins. Fjósið sést norðan við kaupfélagið enda ekki búið að byggja Kaupfélagsskemmunna en sökklar hennar eru þó komnir. Ef grannt er skoðað má sjá á myndinni mörg hús sem nú eru horfin eða hafa vikið fyrir nýjum. Myndina tók Guðmundur Guðnason. </p>
Guðmundur Guðnason 2 489
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á ferðalagi á hálendinu. Skálinn í baksýn er sennilega Hvítárskáli Ferðafélags Íslands við Hvítárvatn. Þar er sagt að sé draugagangur.
Guðmundur Guðnason 2 387
Kirkjugestir við Ábæjarkirkju í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn092
Frá Kúvíkum í Reykjarfirði syðri á Ströndum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 594
Hafnir á Skaga. Hafnir eru í Skagabyggð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 634
Hluti af útbænum á Skagaströnd. Á myndinni, sem tekin er af Vetrarbrautinni (Nýja veginum), má sjá allmörg hús sem ekki eru til lengur. Lengst til vinstri eru Kárastaðir sem hafa veið rifnir. Útihúsin við Bjarmaland eru horfin og sama má segja um Höfðakot, sem er fyrir miðri mynd, með grænu þaki. Höfðaberg, sem stendur upp í Höfðanum og ber yfir Sólheima, er horfið eins og Gunnarshólmi (Grafarbakki), sem er húsið lengst til hægri á myndinni, grænt og gult á litinn. Þegar ákveðið hafði verið að Gunnarshólmi ætti að hverfa fékk slökkviliðið á Skagaströnd að kveikja í því til að æfa sig í að slökkva í því aftur. Að lokum var því svo leyft að brenna til grunna undir eftirliti slökkviliðsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 563
<p>Á þessari gömlu mynd af innbænum er byggðin strjálli en í dag. Fellsbraut, Suðurvegur, Sunnuvegur og Túnbraut eru að mestu óbyggðar en einnig sýnir myndin horfin hús s.s. Stóra-Berg, Dagsbrún, Ólafsvellir, Brautarholt, fjárhús o.fl.. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 544
Spákonufell er bæjarfjall Skagstrendinga. Af toppi fjallsins - Spákonufellsborginni - er mjög víðsýnt og sagt að sjáist í sjö sýslur í góðu skyggni. Sífellt fleiri leggja leið sína á toppinn eftir merktri gönguleið sem byrjar við norðurenda Háagerðisgolfvallarins.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn091
Frá Kúvíkum í Reykjarfirði syðri á Ströndum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 624
Litli drengurinn á myndinni er Árni Geir Ingvarsson en fullorðna fólkið er óþekkt (?Oddur og Gerða?). Öll húsin á myndinni eru horfin. Í húsinu til vinstri (sést bara hálft) var einu sinni verslun og fiskvinnsla en það endaði æfi sína þegar það brann til grunna en þá var það bara notað sem geymsla. Húsið sem er fjær var kallað Skólahúsið og gegndi hlutverki skóla og jafnframt var það notað sem samkomuhús t.d. fyrir rómaða dansleiki sem þar voru haldnir á sínum tíma. Enn má sjá grunn húsins. Húsið til hægri var verbúð en það er ekki lengur til staðar. Nýtt salernishús og nestisaðstaða hefur verið byggt örlítið upp í hallanum vestan við verbúðina. Vitinn stendur að sjálfsögðu enn 17 metra hár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 595
Þessi mynd af Skagatrönd hefur líklega verið tekin kringum 1965. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fram af Bjarmanesi og viðbygging við skólann er ekki komin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 593
Eldri mynd af Skagaströnd. Næst okkur á myndinni er trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar í byggingu.
Árni Geir Ingvarsson safn 641
Þessi mynd af Skagaströnd hefur líklega verið tekin snemma á sjöunda áratugnum. Litla grænmálaða húsið með rauða þakinu í vinstra horni myndarinnar er Þórsmörk. Í vinstra horninu uppi grillir í byggingarnar á Óseyri og Bráðræði við sjávarbakkann.
Héraðsskjalasafn A-Hún 99
Kýr á beit í Kálfshamarsvík. Í baksýn er bærinn Saurar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 31
Heyskapur á Skagaströnd líklega árið 1906. Húsin til hægri eru verslunarhúsin á Skagströnd.
María Magnúsdóttir - safn 146
Þessi mynd er merkt með stimpli: GOODALL PHOTO CO WINNIPEG. Handskrifað aftan á myndina er líka: "Heimilið okkar. Hús og fjós tekið yfir ána í flóði. 1943. Home of Jón Hermannsson Hillmann. Medicine River - Meðala áin".
1
2
3
4
5
…
8
Leita í myndasafninu
Leita