Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Landslag
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson594
Þessir óþekktu unglingar úr vinnuskólanum nýttu kaffitímann sinn í góðu veðri uppi á Einbúanum. Vonandi hafa þau ekki raskað neinu á Einbúanum því ef það er gert er yfirvofandi reiði huldufólksins sem þar býr. Myndin var tekin í júní 1997.
Héraðsskjalasafn A-Hún 33
Myndin var líklega tekin af Hólsnefinu sem er syðsti oddi Höfðans. Húsin næst okkur á myndinni eru fiskvinnsluhús en bryggjan, sem byggð var rétt austan við Hólsnefið, var fram af ljósa húsinu. Annars var lending í víkinn sem sést á myndinni og hefur nú verið fyllt upp. Ljósa tvílyfta húsið var verslunarstjórahús en gömlu húsin til hægri á myndinni voru verslunarhús. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1910.
María Magnúsdóttir - safn 066
Aftan á þessari mynd stendur: "Hellir neðan við Syðri-Hóli". Fólkið á myndinni er óþekkt en a.m.k. konurnar eru prúðbúnar með hatta. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 75
Þessi mynd af Skagaströnd hefur verið tekin af Höfðanum sennilega 1948. Skúffugarðurinn er í smíðum og "Dokkin", sem var leiksvæði krakka í útbænum, er vestan við Hafnarhúsið. Hún var seinn fyllt upp með sanddælingu úr höfninni. Á myndinni má sjá mörg hús sem nú eru horfin.
Óþekktur ljósmyndari 390
Myndin var tekin af krökkum úr Höfðaskóla í skólaferð að Hvítserk sem sést í baksýn. Frá vinstri: Stefán Sveinsson, Baldur Eðvarðsson, Gunnar Ásgeirsson, óþekktur, Jóhann Ásgeirsson, Hjalti Kristjánsson, óþekktur, Rafn Ingi Rafnsson?, óþekktur, Viggó Magnússon, Þorsteinn Jónsson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Hólmgeir Kristmundsson (nær), Ægir Jónsson (fjær), Jón Arnarson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Eiríkur Lýðsson, Hólmfríður Oddsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Elín Rafnsdóttir, Hallgrímur Oddsson? og óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 56
Vitinn í Kálfshamarsvík. Á myndinni stendur að hann sé 16 metra hár en í raun er hann 16,3 metrar. Vitann teiknaði Guðjón Samúelsson sem var húsameistari ríkisins 1920 - 1950. Vitinn var byggður 1940 en ekki tekinn í notkun fyrr en 1942 því ekki tókst að afla ljóstækja í hann fyrr. Gasljós var í vitanum til 1973 en þá var hann rafvæddur. (heimild: http://www.sjominjar.is/vitar/kalfshamarsviti/)
Héraðsskjalasafn A-Hún 29
Þessi gamla mynd sýnir "Litlu bryggjuna" sem lengi var aðal bryggja smærri báta á Skagaströnd. Bryggjan hallaði fram, eins og sjá má, sem auðveldaði löndun og aðra vinnu við litla báta. Húsið til vinstri á myndinni er Hafnarhúsið sem byggt var á þessum stað 1935 en síðan flutt á núverandi stað þegar það þurfti að víkja fyrir verksmiðjubyggingunni einhverntíma á árunum 1943- 1946. Síldarsöltunarbásarnir sjást svo líka til vinstri og í baksýn sjást m.a. gömlu verslunarhúsin á Skagaströnd og yfir Einbúann sér í Kaupfélagshúsið sem byggt var 1929.
Árni Geir Ingvarsson - safn 706
Hér er verið að auka og bæta grjótvörnina fyrir Víkina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 105
Bærinn Hólmi stóð við Fossá í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Hólmi er nú kominn í eyði fyrir mörgum árum og húsin rústir einar. Fjallið í baksýn er Fjallsöxlin sem er nyrsta fjallið af Skagastrandarfjöllunum. Myndina tók Björn Bergmann (d.30.5.1985) en ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 728
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Alma Eik Sævarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 136
Gömul mynd af Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 735
Á myndinni er verið að vinna við grjótvörn í víkinni frá Hólanesi inn að Hrafná. Sjórinn var farinn að éta úr landinu og veginum á bakkanum en með grjótvörninni tókst að stöðva ágang sjávar á svæðinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 191
Gömul mynd af Skagaströnd líklega tekin kringum 1950.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn009
Fánahylling á skátamóti að Hólum í Hjaltadal. Dagur frá 4. september 1963 segir frá þessu skátamóti á eftirfarandi hátt undir fyrirsögninni: "SKÁTAMÓT AÐ HÓLUM Í HJALTADAL". <br>"Um s.l. helgi gengust St.Georgs-skátar á Akureyri fyrir útilegu að Hólum í Hjaltadal. Þar voru samankomnir skátar frá Höfðakaupstað, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Dalvík og Akureyri, um 70 manns. <br>Laugardagskvöldið leið við leiki og varðeld, en á sunnudagsmorgun kl. 10 f.h., að afloknum föstum dagskrárliðum, svo sem morgunþvotti, tjaldskoðun og fánahyllingu, var gengið til kirkju þar sem sr. Björn Björnsson sagði sögu kirkjunnar og kirkjugripa, að aflokinni bænagjörð.<br>Eftir hádegi lögðu 29 skátar frá Akureyri og Dalvík af stað á heyvagni dregnum af dráttarvél, og var ekið að Skriðulandi í Kolbeinsdal og þaðan síðan gengið sem leið liggur, fram Kolbeinsdal og yfir Heljardalsheiði og var komið niður að Atlastöðum í Svarfaðardal eftir 7 klst. rólega göngu. <br>Þeir, sem eftir urðu á Hólum, gengu upp í Gvendarskál og yfirgáfu síðan staðinn um kl.5."
Ólafur Bernódusson673
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er hópurinn nýlagður af stað og labbar í fallegum brekkum í Hólkotsdal.
Ólafur Bernódusson641
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd eru nokkrir krakkar við hringsjána á Höfðanum að finna svör við spurningum í ratleik, sem haldinn var í sambandi við opnunina. krakkarnir eru, frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson, Róbert Björn Ingvarsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir fjær og Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Ólafur Bernódusson633
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að lýsa leiðinni og rekja aðdragnda að gerð hennar. Friðmar Eiríksson situr og hlustar meðn tveir óþekktir strákar skoða kort af leiðinni.
Páll J. Pálsson safn 10
Myndin var tekin 1946 af Páli Tómasyni (d.3.6.1963) bónda á Bakka í Skaghreppi þar sem hann situr á hestasláttuvél og slær. Til hægri á myndinni eru þrjú börn hans og eiginkona, talið frá vinstri: Björg Þóra Pálsdóttir, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013), Lilja Guðrún Pálsdóttir og eiginkonan María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975).
Árni Geir Ingvarsson - safn 867
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið og bílastæðið. Pallurinn á myndinni til hægri var danspallur sem reistur var í tilefni hátíðarinnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 927
Strandferðaskipið ms Skjaldbreið kemur til hafnar á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). <br>Ms Skjaldbreið var lengi í strandsiglingum á Íslandi en 16. janúar 1962 strandaði skipið á skeri nálægt Bjarnarey á Breiðafirði í vonsku veðri. 18 manns voru um borð og komust níu þeirra við illan leik í gúmmíbát sem þá slitnaði frá skipinu og rak burt. Því fólki var bjargað eftir fjóra og hálfan tíma um borð í vélbátinn Sigurfara. Skjaldbreiðin rann fljótlega af skerinu með lestarnar fullar af sjó en skilrúm héldu þannig að hægt var að dæla sjó úr vélarrúm með eigin dælum skipsins. Því var lagt við ankeri á staðnum því ekki þótti óhætt að hreyfa það í svo vondu veðri. 18. janúar fór skipið svo fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms í fylgd með varðskipinu Þór. Þar voru lestarnar þéttar til bráðabirgða en síðan fór það til Reykjavíkur í fylgd vaðskipsins. (Heimild: Morgunblaðið 13. og 14. tölublað 17.og 18.janúar 1962)
Héraðsskjalasafn A-Hún 102
Á myndinni má sjá sérkennileg jarðlög í Krósbjargi og gatklett sem skagar fram úr bjarginu. Kletturinn er stutt norðan við Fossinn sem fellur fram af bjarginu sunnan við Stapann, sem er lítil eyja rétt framan við bjargið. Myndin tók Björn Bergmann (d.30.5.1985).
Héraðsskjalasafn A-Hún 196
Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1960-1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 712
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf og afmörkuðu hann með því móti eins og sjá má á myndinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og unga fólkið er óþekkt nema stúlkan sem er næst okkur á myndinni en það er Helga Dögg Jónsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 454
Skagaströnd á fimmta áratugnum. Þrátt fyrir að mörgum finnist byggðaþróunin ganga hægt þá væri mynd sem tekin væri í dag all mikið frábrugin þessari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 921
Trillubátur á ferð í hvítalogni á Reykjarfirði fram af Kúvíkum en þar átti ljósmyndarinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), heima á þeim tíma sem myndin var tekin líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 869
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hluta tjaldsvæðisins. Fólk kom víða að og margir gistu í tjöldum á svæðinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 865
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Þar var reistur danspallur því að víslu lokinni var dansað. Fjöldi manns sótti vígsuhátíðina meðal annars hópur á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík og gistu margir í tjöldum á svæðinu. Á þessari mynd er Borgarvirkið sjálft í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 854
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki sem sótti hátíðina en það gerðu fjölmargir. Í Borgarvirki má finna rústir af tveimur hlöðnum húsum og einnig samanhruninn brunn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 914
Frídagur í Djúpavík. Drengurinn á myndinni er óþekktur en maðurinn í baksýn er Skúli Alexandersson (d.23.5.2015) alþingismaður frá Kjós. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Héraðsskjalasafn A-Hún 100
Kú á beit í Kálfshamarsvík. Fjær sjást bæirnir Saurar og Ós.
Héraðsskjalasafn A-Hún 104
Myndin var tekin norður eftir Króksbjargi. Fremst er Fossárfoss sem er einn af fáum fossum á Íslandi sem fellur beint í hafið. Lengra frá er Gatklettur og enn lengra frá er Stapinn sem er litla eyjan á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 34
Fjöldi síldarskipa í höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1936. Ekki er ólíklegt að einhver þessara skipa hafi verið frá Færeyjum því Færeyingar voru duglegir að stunda veiðar á Íslandsmiðum á þessum tíma.
Héraðsskjalasafn A-Hún 193
Síldveiðibátar í vari á Kálfshamarsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma snemma á fimmta áratugnum.
María Magnúsdóttir - safn 062
Það ríkir friðsæld á þessari mynd sem var líklega tekin kringum 1940 - 45. Hún hefur verið tekin nokkurn vegin eins og hún væri tekin niður eftir Mánabrautinni í dag. Árbakkasteinarnir rísa upp úr móskunni, lítill bátur er í fjörunni og annar á floti og ber í steinana.
Héraðsskjalasafn A-Hún 101
Saurar í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Saurar eru löngu komnir í eyði og bærinn hruninn að mestu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 38
Húsið næst okkur á myndinni var hús verslunarstjóra verslunarinnar sem sést örlítið fjær eins og tvö sambyggð hús. Á sínum tíma voru tvær verslanir á núverandi Skagaströnd. Var önnur á Hólanesi en hin, sú sem er á myndinni, var á Skagaströnd. Svæðinu var sem sagt skipt í Hólanes og Skagaströnd, sem var svæðið kringum Einbúann. Húsið lengst til hægri á myndinni er óþekkt en ef þú veist hvað það hét vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 720
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann, sem er húsið með brúna þakinu á myndinni. Húsið lengst til hægri er gamli lyftuskúrinn en hann stendur einn eftir af því sem tengdist skíðalyftunni en hún lá frá skúrnum og langt upp í hlíð fjallsins. Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010.
Héraðsskjalasafn A-Hún 58
Fossárfoss er einn af fáum fossum á Íslandi sem falla beint í sjó. Eyjan á myndinni er kölluð Bjargastapi en sumir segja að nafnið eigi við um allt svæðið sem sést á myndinni næst okkur. Fossinn, sem fellur fram af Króksbjargi, er falin gersemi því hann sést ekki af þjóðveginum og þess vegna aka ókunnugir fram hjá þessum fallega stað óséðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 701
Loftmynd af Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en það hefur verið fyrir 1997 því íþróttahúsið hefur enn ekki verið byggt. Á myndinni má sjá að enn standa olíu- og lýsistankarnir á og við Höfðann og ekki er búið að rífa þrærnar við verksmiðjuna.Tankarnir og þrærnar eru nú horfnar fyiri nokkru.
Ólafur Bernódusson634
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Hjalti Reynisson fallbyssuskytta að gera sig kláran fyrir að skjóta úr fallbyssunni góðu sem hleypt var af í tilefni dagsins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 32
Gömul mynd af Skagaströnd tekin af Höfðanum snemma á 20. öldinni. Ljósmyndarinn var Pétur Hannesson sem starfaði sem slíkur á Sauðárkróki 1913 - 1928. Fyrir þann tíma lærði og stafaði Pétur á Akureyri og í Reykjavík þannig að ekki er ljóst hvaða ár myndin var tekin. Fremst á myndinni eru verslunarhúsin á Skagaströnd. Til vinstri við þau er Sæmundsenbúð og lengra frá er Lækur (Efri-Lækur) og Jaðar. Nær sjónum eru svo Lækjarbakki, Karlsminni þar sem rekin var verslun um tíma og Viðvík sem var veitinga- og gistihús um árabil. Aðrar byggingar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 711
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en stúlkan í appelsínugula samfestingnum er Helga Dögg Jónsdóttir. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 103
Króksbjarg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 723
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Örn Stefánsson, Torfi Friðrik Magnason, Amy Ósk Ómarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og tvö óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 705
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þrír ungir drengir á vegum vinnuskólans að búa til lítið steinalagt torg þar sem Shell tankurinn stóð við enda vegslóðans upp á Höfðann. Drengirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Almar Fannarsson og Jóhann Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 703
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þrír ungir menn úr vinnuskólanum að slétta svæðið þar sem þrír Olís-tankar stóðu. Svæðið var síðan þökulagt og gert aðlaðandi til útivistar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Viktor Örn Valdimarsson og Torfi Friðrik Magnason.
Hallgrímur Kristmundsson safn022
Óþekktur línu bátur í höfn á Skagaströnd. Innbærinn á Skagaströnd í bakgrunninum.Myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma upp úr 1940.
Ólafur Bernódusson635
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að hlusta á tölu Magnúsar B. Jónssonar sveitarstjóra í skjóli fyrir kaldri norð-austan gjólunni sem var þennan dag. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Guðrún Pálsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Signý Richter.
Árni Geir Ingvarsson - safn 722
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Amy Ósk Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson652
Bogabraut 19 jólaskreytt í kvöldhúminu 15.desember 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 890
Myndin var líklega tekin á árunum 1950 - 1955 á veginum austanvert í Vatnsdal. Vatnið sem er til vinstri er þá Hnausatjörnin og brúin sem sést í hægra megin brúin yfir Árfarið svonefnda. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson - safn 704
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir úr vinnuskólanum að slétta svæðið þar sem þrír Olís-tankar stóðu. Svæðið var síðan þökulagt og gert aðlaðandi til útivistar.
Jón Jónsson 369
Þessi mynd var tekin kringum 1940 í fjörunni, sem þá var, austan við Einbúann, sem er lengst til hægri á myndinni. Konurnar eru María Magnúsdóttir og óþekkt vinkona hennar. María er líklega sú sem situr dökka hestinn. Eins og flestir þekkja er nú komin uppfylling og byggingar á svæðið sem þær stöllur eru að fara um á myndinni.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn011
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni eru þeir að taka pásu áður en lagt er á mesta brattann. Á myndinni eru þekktir nokkrir skátar úr Sigurfara á Skagaströnd. Lengst til vinstri situr Ólafur Bernódusson, fimmta frá vinstri í grárri peysu er Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Gissur Jóhannsson situr við steininn lengst frá okkur. Þorvaldur Skaftason er sá með svarta hattinn, Karl Lúðvíksson krýpur á steininum og Sigurjón Ástmarsson stendur á honum lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson640
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að spá í gönguleiðarkortið einhversstaðar á leið sinni um Höfðann. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Hafliðadóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Björk Sveinsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn067
Þessi þrjú hús stóðu upp undir Höfðanum mjög norðarlega. Húsið sem sér í til vinstri er Laufás en á miðri mynd er Melstaður og svarta húsið til hægri er Ægissíða. Laufás er eina húsið af þessum þremur sem enn stendur og er notkun þó ekki sé um fasta búsetu að ræða.
Ólafur Bernódusson674
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er áð við álfastein á leiðinni upp með Skagaströnd í baksýn. Hönd er lögð á steininn til að komast í samband við álfana í honum. Margrét Einarsdóttir reynir að ná sambandi með tvíþumla ullarvettling á hinni hendinni til að bæta sambandið. Beint aftan við Margréti er Ólafur Bernódusson og til hægri er Helgi Gunnarsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 727
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Alma Eik Sævarsdóttir og Ellen Lind Sigurjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 856
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd þegar fólk var að koma sér fyrir inni í virkinu. Ræðustóllinn bíður eftir ræðumönnum sem voru allmargir við þetta tækifæri. M.a. fór prófessor Sigurður Nordal yfir sögu Borgarvirkis.
Árni Geir Ingvarsson - safn 956
Þessi bær er óþekktur (?Seyðisfjörður?). Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú veist hvaða bær þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
2
3
4
5
…
8
Leita í myndasafninu
Leita