Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Landslag

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson623
Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir aðstoð og áhuga á liðnu ári. Eins og alltaf þá umfaðmar Borgin okkur, sem búum á Skagaströnd, óhagganleg en síbreytileg. Borgin hefur séð bæði góða tíma og slæma í litla bæjarfélaginu okkar en vonandi mun hún sjá gott ár 2017 hjá okkur öllum.
Ólafur Bernódusson669
Ólafur Bernódusson fær sér kaffisopa á toppi Tindastóls austanverðum í súldarveðri 26. ágúst 2007. Sauðárkrókur sést í baksýn, vestari hvísl Héraðsvatna rennur til sjávar og stóra vatnið er Miklavatn en næst því er svo Áshildarholtsvatn en nær sjónum er Tjarnartjörn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 912
Síldarverksmiðjan í Djúpavík og sér út Reykjarfjörð. Myndin a tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn012
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum uppi í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni hefur hópurinn stillt sér upp við altarið í skálinni en þar er sagt að Guðmundur Arason - Guðmundur góði - hafi reglulega gert bæn sína. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Karl Lúðvíksson, fjórar óþekktar stúlkur, Gissur Jóhannsson situr, Sigurjón Ástmarsson heldur á fánanum, Þorvaldur Skaftason stendur við hlið hans svo kemur óþekktur skáti en þá Bergur Jón Þórðarson með myndvél um hálsinn. Framan við Berg, dökkklædd, situr Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn010
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni er hópurinn hálfnaður upp og sér yfir Hólastað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 876
Hrefna Björnsdóttir er konan sem stendur hærra á myndinni en hin konan er óþekkt. Þegar myndin var tekin af þeim voru þær úti í Árbakkasteini, sem er ekki fjölfarinn staður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 902
Kamburinn er fjallið á milli Veiðleysufjarðar og Reykjarfjarðar syðri. þessi mynd sýnir fjallið að norðanverðu - Reykjarfjarðar megin - og ef vel er skoðað má sjá byggðina í Kúvíkum við víkina á myndinni. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Ólafur Bernódusson627
Myndin var tekin á Hágerðisvelli þegar þar stóð yfir golfmót 23. júní 2007. Golfurum sem reyna sig á Háagerðisvelli bera honum vel söguna því hann þykir erfiður en skemmtilegur með brautum sem bjóða upp á mismunandi áskoranir.
Ólafur Bernódusson642
Skagaströnd 17. júní 2008. Hluti Skagavegar, Bankastræti og hluti innbæjarins sjást ekki á myndinni.
Ólafur Bernódusson637
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Egill Örn Ingibergsson að fara að klippa á borða og opna þannig gönguleiðina. Steindór Haraldsson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri halda borðanum. Eins og sjá má mætti fjöldi manns við opnunina og gengu síðan hringinn um Höfðann. Síðan þá hefur gönuleiðin um Höfðann notið mikilla vinsælda enda býður hún upp á fallegt útsýni, og holla útiveru.
Árni Geir Ingvarsson - safn 883
Gamla íbúðarhúsið í Reykjarfirði. Byggt 1916-1917 af Þórarni Söbeck, sem var bóndi þar frá 1917-1921. Húsið var timburhús og stóð fram yfir aldamótin 2000. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Adolf H Berndsen - safn091
Þessi mynd var tekin yfir Skagaströnd árið 1964. Gaman getur verið að rýna í hana og bera saman við það sem sést frá sama sjónarhorni í dag.
Árni Geir Ingvarsson - safn 923
Þetta par er óþekkt en myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) í Kúvíkum líklega kringum 1940. Herbert átti þá heima í Kúvíkum en stundaði vinnu í verksmiðjunni í Djúpavík. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 072
Myndin var tekin í Höfðahólum á Snæfellsnesi. Hjólförin í brekkunni eru eftir þekktan fjölmiðlamann og "náttúruverndarsinna" sem eignaðist Ford Bronco fljótlega eftir að farið var að flytja þá til landsins 1966 og vildi kanna getu hans. Á myndinni leiða, Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004) til vinstri og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) til hægri, Sigurð Magnússon (d. 2.8.2002).
Árni Geir Ingvarsson - safn 979
Myndin af þessum konum var tekin á þeim fáfarna stað, Árbakkasteini. Til vinstri er Hrefna Björnsdóttir en hin konan er óþekkt. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 877
Myndin var tekin 1960. Vitinn á myndinni er Gjögursviti. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Ólafur Bernódusson679
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.
Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Jónmundur Ólafsson til hægri að hressa sig á kakósopa uppi á Borgarhausnum áður en haldið er niður aftur. Jónmundur var elstur af þeim sem fóru í gönguna en hann var þá 74 ára og hafði aldrei áður komið á Borgarhausinn. Annars var göngufólkið á öllum aldri eða frá 6 ára til 74 ára.
Elínborg Jónsdóttir - safn 28
Á myndinni er verið að breiða úr ull á grasvelli til þurkunar eftir að hún hafði verið þvegin í stórum potti með sjóðandi vatni og síðan skoluð í bæjarlæknum. Myndin var tekin hjá bænum Másstöðum í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær og fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 903
Síldarsöltun á plani og síldarbræðsla í verksmiðjunni í fullum gangi á Djúpuvík. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 974
Gömul mynd af Skagaströnd sem sýnir mörg þeirra húsa sem nú eru horfin og líka auð svæði sem nú eru þétt byggð. Áberandi til vinstri er húsið Gunnarshólmi eða Grafarbakki eins og það var oft kallað. Það nafn festist við húsið því það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Húsið endaði svo ævi sína sem æfingahús fyrir slökkviliðið á Skagaströnd eftir að hafa staðið autt í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina
Árni Geir Ingvarsson - safn 724
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru ?Ellen Lind Sigurjónsdóttir? til vinstri og Indriði Björnsson til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 075
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminja - og munasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Jón Karl Snorrason úr lofti yfir Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á níunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 911
Séð heim að byggðinni í Djúpavík í Reykjarfirði syðri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) sem ólst upp í Kúvíkum og á Gjögri. Kúvíkur var lengi eini verslunarstaðurinn í Strandasýslu eða allt til ársins 1846 þegar Borðeyri fékk löggildingu sem verslunarstaður. Í dönskum skjölum voru Kúvíkur kallaðar lýsishöfn, sú eina á landinu sem þannig var flokkuð. Kemur þetta til vegna þess að mikilvægasta verslunarvara Árneshreppsbúa var hákarlalýsi. Eftir að einokunarverslun var lögð af höfðu kaupmenn fasta búsetu á staðnum. Verslunarstaðurinn var þá oftast nefndur eftir firðinum og kallaður Reykjarfjörður. Í dag er byggðin löngu horfin en reist hefur verið sumarhús á svæðinu og vegslóði lagður að því.
(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=8&id_art=653)
Hjördís Sigurðardóttir - safn062
Góðviðrisdagur á Höfðanum. Frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Fríða Hafsteinsdóttir, Bergur Jón Þórðarson og Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) . Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 886
Hvar var þessi mynd tekin árið 1964? Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 871
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af tjaldsvæðinu, bílastæðinu og Borgarvirki sjálfu sem gnæfir yfir í baksýn.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn030
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru þáverandi sambýlisfólk, Garðar Geirfinnsson og Íris Valgeirsdóttir að taka sér pásu á leiðinni upp.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 004
Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri kátur með tvo til reiðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 855
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Þarna spilar Lúðrasveit Reykjavíkur inni í virkinu fyrir fjölmarga gesti sem mættu á vígsluhátíðina þeirra á meðal hópur frá Húnvetningafélaginu í Reykjavík.
Ólafur Bernódusson639
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er einn af nokkrum hópum sem mættu við opnunina og gengu Höfðann. Samfara því tóku hóparnir þátt í ratleik sem haldinn var í tilefni opnunarinnar. Á myndinni er hópurinn að ráða ráðum sínum og hvíla sig augnablik uppi á Spönskudys sem er norðast á Höfðanum. Í hópnum eru, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Magnús B. Jónsson (snýr baki í myndavélina), óþekktur strákur, Steindór R. Haraldsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Ívan Árni Róbertsson (snýr baki í myndavélina) nær, Sigurbjörg Birta Berndsen fjær, Róbert Björn Ingvarsson nær, Björk Sveinsdóttir fjær og Guðrún Pálsdóttir. Með rauðröndótta húfu er Guðrún Anna Halldórsdóttir en með svart/græn köflótta húfu er Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 881
Suður af Djúpuvík gnæfir klettabelti og þar fellur Djúpavíkurfoss fram af klettabrúninni. Á síðari tímum hefur fossinn stundum verið nefndur Eiðrofi og fylgir því nafni þjóðsögn um stúlku sem kastaði sér í fossinn vegna svika unnusta síns.
(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=10&id_art=650)
Árni Geir Ingvarsson - safn 767
Bergsstaðir stóðu utan í berginu sem er norðan við Ránarbrautina, neðan við Vetrarbrautina. Húsið byggði Hafsteinn Sigubjarnarson en í ævisögu sinni segir hann frá því að hann þurfti að flytja úr húsinu því það var fyrir skipulaginu. Skipulagið gerði ráð fyrir að Skeifan mundi koma niður einmitt þar sem Bergsstaðir stóð. Skeifan, sem er efsti hluti Hólabrautarinnar, hefur aldrei orðið að veruleika þó svo að Hólabrautin sveigi vissulega í skeifu þeim fáu húsum sem þar eru. Inni í miðri skeifunni gerði svo skipulagið ráð fyrir kirkju, sem eins og allir vita, reis á allt öðrum stað í þorpinu. Bergsstaðir eru horfnir en þó eru skepnuhús að hluta til þar sem húsið stóð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 910
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með óþekktri vinkonu sinni, líklega í Kúvíkum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 885
Falleg mynd frá Djúpuvík. Greinilega stendur eitthvað til því það er fullt af fólki á bryggjunni. Síldarverksmiðan er til vinstri og söltunarplanið fremst á bryggjukantinum framan við hana. Báturinn, sem sést í forgrunni á myndinni hét Nonni, venjulega kallaður skemmtibáturinn Nonni. Tómas Jónsson frá Reykjanesi sá um þennan bát og var skipstjóri á honum. Báturinn var notaður í sendiferðir fyrir verksmiðjuna, til dæmis út á Gjögur eða yfir fjörðinn með fólk. Þegar lítið var um að vera var farið með fólk i skemmtiferðir um fjörðinn, og jafnvel til Hólmavíkur.
Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 2.4.2007) sennilega kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 874
Leitarflokkur staddur í Grjótdal fyrir ofan Reykjarfjörð. Mennirnir voru við leit að Jakobi Söbeck frá Reykjarfirði sem hvarf að heiman, en fannst þarna í dalnum. Mennirnir eru: efri röð frá v/ Kristinn frá Kambi, Páll Sæmundsson Djúpuvík, Neðri röð frá v/ Kristmundur Sörlason frá Gjögri Guðmundur Ágústsson frá Kjós, Marteinn Þorláksson frá Veiðileysu og Kristján frá Flareyri.
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina. Herbert vann við byggingu verksmiðjunnar sem unglingur og síðan í vinnslunni þar í nokkur ár. Hann var afkastamikill áhugaljósmyndari og eignaðist sína fyrstu myndavél mjög snemma, löngu áður en þær urðu almenningseign.
Hallgrímur Kristmundsson safn010
Ekki er vitað hvaða þorp þetta er en ágiskun að þetta sé gömul mynd af hluta Akureyrar. Sé svo er það Vaðlaheiðin sem sést hinum megin við fjörðinn. Ef þú þekkir staðinn endilega sendu okkur þá athugasemd
Árni Geir Ingvarsson - safn 904
Hlaðinn síldarbátur á Reykarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Hallgrímur Kristmundsson safn070
Hafnarsvæðið á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1944 - 1947. Stóra síldarskemman var enn í byggingu þegar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 866
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið við virkið. Í baksýn er Víðidalsfjall með þokuslæðu í efstu brúnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 721
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 922
Trilla full af fólki beygir fyrir bryggjuendann í Djúpavík í blíðviðri. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina einhverntíma kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 853
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Á netinu má finns eftirfarandi lýsingu á Borgarvirki og sögu þess:

"Borgarvirki er klettaborg er stendur á ásnum milli Vesturhóps og Víðidals og er um 177 metra yfir sjávarmáli. Talið er að Borgarvirki sé gosstapi sem myndaðist við eldgos á hlýskeiði ísaldar. Efst í virkinu er 5-6 metra djúp skeifulaga dæld með skarð er snýr til austurs. Þar er hlaðinni grjótveggur frá fornu en hann var endurhlaðinn á árunum 1940-50 og víðar á Borgavirki má sjá hleðslur. Borgarvirki er friðað vegna minja, en inn í virkinu eru rústir af tveimur skálum og skammt frá þeim hruninn brunnur.

Samkvæmt sögnum var Borgarvirki nýtt sem virki á þjóðveldisöld. Og segir sagan að þar hafi Víga-Barði Guðmundsson í Ásbjarnarnesi verið á ferð. Hann deildi við Borgfirðinga eins og segir frá í Heiðarvíga sögu. Sagt er að óvinir hans hafi komið að sunnan með óvígan her. En Barði barst af því njósnir og kom sér og sínum mönnum fyrir í Borgarvirki, þar sem ómögulegt reyndist að sækja að honum. Tóku Borgfirðingar á það ráð að ætla að svelta Barða og hans menn inni. Þegar matinn þraut tóku virkisbúar sig til og hentu síðasta mörsiðrinu (sláturkeppnum) út úr virkinu. Voru þá Borgfirðingar vissir um að Barði hefði nægar vistir og héldu heim á leið. Frábært útsýni er úr Borgarvirki og þar hefur verið sett upp útsýnisskífa. Í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi er haldnir einstakir tónleikar í Borgarvirki í júlí hvert ár".
( Heimild:http://www.hunathing.is/ferdamenn/athyglisverdir-stadir/borgarvirki)

Hjördís Sigurðardóttir - safn083
Eftir nokkra undirbúningsvinnu er hér verið að koma golfskálanum á Háagerðisvelli fyrir á undirstöðum sínum sumarið 1991. Skálinn hafði áður gegnt hlutverki rafmagnsverkstæðis Hólaness hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 967
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók þessa mynd á Reykjarfirði en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Báturinn á myndinni er óþekktur en á skiltinu á stýrishúsinu má lesa að hann var frá Höfðakaupstað. Ef þú veist hvaða bátur þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 076
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminjasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Guðrún Guðmundsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið upp úr 1990. Ljósa húsið til vinstri er Drangey sem hefur nú verið rifið. Brúna húsið er Ásgarður en lengst til hægri er Herðubreið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 898
Óþekkt kona í Djúpuvík líklega einhverntíma á fimmta ártugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.32007). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 870
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af virkinu yfir hátíðasvæðið og hluta tjaldsvæðisins. Til vinstri er danspallurinn sem settur var upp því dansað var þar eftir formlega vígslu virkisins. Í baksýn er Vesturhópsvatn.
Hjördís Sigurðardóttir - safn086
Hópur fólks að þökuleggja flötina -"greenið"- á einni af brautunum á golfvellinum á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Guðmundur Kristinsson er með appelsínugulu gúmmívetlingana en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson678
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns á aldrinum 6 til 74 ára kom með í gönguna í blíðu veðri. Að fjallgöngunni lokinni beið göngufólksins kaffiveisla í golfskálanum á vegum kvennanna í Spákonuhofinu. Á myndinni eru þeir Stefán Jósefsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að njóta veðurblíðunnar uppi á Borgarhausnum.
Ólafur Bernódusson638
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að fá kort og blað til að fylla út vegna ratleiks sem haldinn var í sambandi við opnunina. Margir eru lagðir af stað en á myndinni er Sigurður Sigurðarson, með svarta prjónahúfu, að afhenda gögnin. Gylfi Sigurðsson er í brúnum frakka, Guðrún Guðbjörnsdóttir kona hans er með skrautlegan trefil, Steindór Haraldsson er til hægri með gleraugu og Árni Ólafur Sigurðsson rýnir í gögnin. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 980
Konan á myndinni er óþekkt. Myndina tók Herbert Ólafsson (25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar (Siglufjörður?). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson631
Lárus Ægir Guðmundsson kann vel við sig úti í náttúrunni enda göngugarpur með afbrigðum. Á þessari mynd, sem tekin í Hólsdal við Siglufjörð, er Lárus á ferð í miðri lúpínubreiðu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 862
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fánanum á suðurenda virkisins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 860
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki að fylgjast með hátíðahöldunum af veggjum virkisins. Valdimar Benónýsson bóndi á Ægissíðu á Vatnsnesi gerði vísu af tilefni vígslunnar. Vísan varð fleyg enda vel gerð og skemmtileg:

Hlaðinn varðinn vitni ber
Víga-Barða stríði.
Þessi garður ennþá er
ættarjarðar prýði.

Árni Geir Ingvarsson - safn 857
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af óþekktum ræðumanni í Borgarvirki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 978
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Myndin var tekin í Reykarfirði syðri, sennilega á Djúpavík en ekki er vitað hvenær. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson675
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.
Á myndinni er Sigurður Bjarnason með dætrum sínum, Svövu Sigurðardóttur til vinstri og Ingu Láru Sigurðardóttur til hægri, í vatnspásu á leiðinni á toppinn. Vinstra megin við Sigurð situr Magnús B. Jónsson að fá sér vatnssopa en hægra megin við þau feðgin stendur Stefán Ægir Lárusson og skyggnir umhverfið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 957
Þegar síldarverksmiðjan var reist á Djúpavík 1934 - 1935 var ekki vegasamband þangað því vegur var ekki lagður norður í Árneshrepp fyrr en 1965. Þess vegna var sjórinn í raun þjóðvegurinn þangað og þaðan. Á myndinni má sjá litla trillu, fulla af fólki, líklega á leiðinni frá Kúvíkum inn að Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 859
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af bílaflotanum á bílastæðinu við virkið. Greinilegt að Willys jeppar hafa verið vinsælir bílar á þessum tíma.
Jósef H Sigurðsson - safn 067
Kambakot í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) séð úr lofti.
1

4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita