Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Landslag
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
Hallgrímur Kristmundsson safn027
Mynd af Skagaströnd líklega tekin rétt fyrir 1950. Hafnarhúsið er komið á sinn stað en það var upphaflega byggt á hafnarsvæðinu þar sem síldarverksmiðjan reis seinna. Framan við það (vestan við það) er "Dokkin", sem átti að verða lífhöfn fyrir litla báta en var aldrei notuð sem slík. Hún var svo fyllt upp með sanddælingu þegar verið var að dýpka höfnina. Uppfylling er komin fyrir Skúffugarðinn en ekki er búið eð reka niður stálþilið sem þar er. Mörg húsanna á myndinni eru nú horfin en önnur komin í staðin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 863
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 032
Pása við Einbúann. Standandi maðurinn er óþekktur en liggjandi til vinstri er Adolf J. Berndsen og til hægri er bróðir hans Karl Berndsen (d.12.2.1995).
Árni Geir Ingvarsson - safn 868
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið og tjaldsvæðið. Margir komu að og gistu í tjöldum á svæðinu. Meðal þeirra var hópur á vegum Húnvetningafélgsins í Reykjavík. Á miðri mynd má sjá danspallinn sem komið var fyrir á svæðinu því að lokinni vígslunni var dansað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 882
Vatnsleiðsla í sundur í hlíðinni fyrir ofan síldarverksmiðjuna í Djúpavík í Reykjarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 007
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni dregur Landrover jeppi lítinn Moskvits yfir Laxá við Illugastaði á Þverárfjallsleið áður en hún var brúuð. Ökumaður Landrover jeppans var líklega Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 016
Systkinin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson (d.26.7.1967) nálægt Broddanesi á Ströndum þar sem Jón var alinn upp. Myndin var tekin einhvertíma á fimmta áratugnum.
Jón Jónsson 456
Eyrarlandshnjúkur í Laxárdal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 906
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er á myndinni með óþekktri vinkonu sinni. Myndin hefur líklega verið tekin í Kúvíkum við Reykjarfjörð syðri. Ekki er vitað hvenær en Herbert var fæddur 1920.
Jón Jónsson 452
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin. Konan í gulu peysunni er óþekkt en til hægri er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016).
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn033
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Signý Richter, Þorbjörg Magnúsdóttir og baksvipur Guðrúnar Sigurðardóttur.
Adolf H Berndsen - safn063
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1930 - 1934. Eins og sjá má er ekki byrjað að keyra út uppfyllingu fram í Spákonufellsey en það var gert 1934 þegar framkvæmdir hófust við hafnargerðina. Kaupfélagið var byggt 1929-1930 en verslunarstjórahúsið, sem er vinstra megin við kaupfélagið, var byggt kringum 1910. Næst okkur á myndinni er frystihúsið eins og það var á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 59
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) á heimahögum vestur á Ströndum. Líklega er brúin í baksýn brúin yfir Fossá skammt norðan við Asparvík.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 73
Sigurjón Ingólfsson í Námaskarði líklega kringum 1980.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 057
Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Lengst til vinstri er Óli Bogason, maðurinn í miðjunni er óþekktur en til hægri er ?Sveinbjörn Blöndal? (d.7.4.2010).
Jón Jónsson 451
Séð heim að Fossum í Svartárdal.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 122
Falleg mynd af Spákonufellinu. Lengst til vinstri er Sunnuhlíð (Bogabraut 19). Húsið hefur verið rifið og annað byggt á sama stað.
Adolf H Berndsen - safn045
Þessi mynd var tekin utan af sjó og sýnir skipafjölda á legunni framan við Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Fjöldi skipa er á legunni því höfnin er full af skipum. Eyjan sem sést á myndinni er Spákonufellsey og garðurinn lengst til vinstri er sá sem byggður var á uppfyllingu frá landi út í eyjuna. Stóra húsið vinstra megin við eyjuna er Hafnarhúsið, sem var byggt á höfninni 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ef grannt er skoðað má sjá uppslátt hægra megin við eyjuna en þar er verið að steypa vegg, sem enn stendur, vestan við höfnina.
Adolf H Berndsen - safn110
Flötin á níundu braut á Háagerðisvelli er rétt hjá golfskálanum. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þrír óþekktir kylfingar að búa sig undir að pútta og klára þannig hringinn á þessum fallega stað.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn095 - Copy
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir með son sinn Guðjón Dunbar á bakinu við Hvítserk í september 2005.
Jón Jónsson 481
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Borgarvirki. Maðurinn til vinstri er Georg Rafn Hjartarson (d. 13.9.2001) og næst kemur konan hans Helena Martha Ottósdóttir (d.22.11.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 068
Á þessari mynd eru nokkur hús sem nú eru horfin. Húsið næst okkur voru vinnubúðir notaðar fyrir menn sem unnu að endurbyggingu verksmiðjunnar. Örlög hússins urðu þau að það kviknaði í því eina nóttina og skemmdist húsið mikið. Það sem heillegt var af því var síðan selt hingað og þangað. Gula húsið þar fyrir aftan, Héðinshöfði, var rifið en í því voru tvær íbúðir þegar myndin var tekin. Hvíta húsið enn lengra frá var Gunnarshólmi eða Grafarbakki. Þess örlög urðu, eftir að hafa staðið autt um árabil, að slökkviliðið fékk það til að æfa sig á og var það brennt. Hvíta litla húsið vinstra megin við Héðinshöfða var Þórsmörk en yfir það sést Bjarmaland eða Grafarholt. Það hús stendur enn í mars 2018 en búið er að rífa viðbygginguna norðan við húsið. Lengst til hægri grillir í brúnt hús, hálft í hvarfi við hvítan vöruflutningavagn. Það hús er nú á golfvellinum á Háagerð sem golfskáli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Ólafur Bernódusson 690
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu.Á þessari mynd er duflið komið á kerru aftan í björgunarsveitarbílnum og er á leiðinna á eyðingarstað. Tunnan fremst á kerrunni inniheldur sprengiefnið. Bjarni er strax að leggja úr höfn aftur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 040
Þessi mynd var tekin við Laxá í Aðaldal í veiðtúr nokkurra félaga frá Skagaströnd líklega kringum 1980. Sigurbjörn Björgvinsson reynir að veiða en Jóhann Björn Þórarinsson og Steindór Gíslason (d.1985) fylgjast með. Steindór er lengst til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 146
Fjallgöngufólk á Spákonufellsborg eða á Borgarhausnum eins og yfirleitt er sagt. Skagaströnd er í baksýn við fólkið, sem er frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Milan Djurica og Kristinn Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 212 - Copy
Þessi fallega mynd var tekin þegar sólargangur er hvað stystur á Skagaströnd eða 12. desember 2012. Þá skríður sólin rétt yfir sjódeildarhringinn um hádaginn eins og sést á þessari mynd sem var tekin klukkan 12:45.
Ólafur Bernódusson739
Dagurinn er stuttur 13. desember og sólin lágt á lofti eins og sést á þessari mynd, sem tekin var þann dag 2012 um hádegisbil, þegar sólin fór hæst þann daginn. Eins og sést var kalt því Skagastrandarhöfn er með þunnu íslagi.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 53
Þessar ungu stúlkur eru frá Reykholti. Í miðjunni í fremri röðinni er Áslaug Hafsteinsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Í aftari röð eru frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Stúlkan lengst til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson987
Í júlí 2010 fóru nokkrir Skagstrendingar í nokkurra daga útilegu í Reykjarfjörð nyrðri á Hornströndum. Hópurinn var einstaklega heppinn með veður þessa daga sem voru nýttir til gönguferða um nágrennið. Á myndinni er hluti hópsins að borða í kvöldsólinni. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Gunnar Svanlaugsson, tveir óþekktir, Sigurjón Atli Sigurðsson. Ólafur Bernódusson situr við enda borðsins en við endann nær okkur er baksvipur Láru Guðmundsdóttur. Hægra megin við borðið eru talið inn eftir borðinu: Amy Ósk Ómarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Steindór R. Haraldsson og Jóney Hrönn Gylfadóttir. Fjallið til vinstri í baksýn er Geirólfsnúpur en upp á hann fór hluti hópsins þennan dag.
Ólafur Bernódusson751
Borgarísjaki á Húnaflóa í september 2002. Frá þessu sjónarhorni minnir hann dálítið á Hólaneskirkju.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 127
Vilhelm B. Harðarson á hestbaki. Myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma kringum 1966.
Ólafur Bernódusson749
Hófsóleyar eða lækjasóleyjar (Caltha palustris) mynda fallegan gullinn veg eftir skurði milli Blönduóss og Skagastrandar í áttina að Sölvabakka, enda kann hún best við sig í votlendi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 44
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Þórarinn Ingvarsson klifra í klettum á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 900
Myndin var tekin á síldarsöltunarplaninu á Djúpuvík og sennilega er verið að þrífa eftir söltunartörn. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Fólkið á henni er óþekkt.
Jón Jónsson 467
Sjómannadagur á Skagaströnd fyrir 1970. Það sem sést á myndinni er mikið breytt í dag, nóvember 2017. Rörið milli verksmiðjunnar og mjölskemmunnar er horfið ásamt undirstöðum þess. Í gegnum þetta rör var síldarmjölinu dælt frá verksmiðjunni út í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt. Stóru tankarnir eru báðir horfnir og frystihúsinu, sem er stóra gráa húsið með rauða þakinu, hefur verið mikið breytt með viðbyggingum og málun. Miklar landfyllingar eru komnar framan við skemmuna og þar er kominn viðlegukantur fyrir minni báta ásamt því að hafnarvigtin er staðsett þar. Gamla Salthúsið sem stendur uppi í Höfðanum til vinstri er nú orðið gistiheimili fyrir ferðamenn. Það sem er óbreytt er að enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi og endamarkið er á svipuðum slóðum og báturinn er á myndinni.
Jón Jónsson 477
Þessi mynd sýnir þorpið Drangsnes í Strandasýslu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 864
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd inni í virkinu af hluta gesta sem sóttu hátíðina.
Adolf H Berndsen - safn075
Myndin var tekin af útbænum á Skagaströnd. í forgrunninum eru hús frystihúss kaupfélagsins. Til vinstri er verslunarstjórahúsið, þá Kaupfélagið og ljósa húsið hægra megin er Gamla búðin. Hægra megin við Einbúann eru, frá vinstri: skúr, Karlsskáli, Lækur og Lækjarbakki. Norðan við (vinstra megin við) Karlsskála er Efri Lækur og fjær, Jaðar. Á myndinni sést vel hvernig Einbúinn skagaði fram í fjöruna, sem annars var óslitin frá Höfðanum inn að Bjargi. Kanturinn sem liggur til hægri var byggður á uppfyllingu úr grjóti úr Höfðanum út í Spákonufellsey þar sem höfnin var byggð. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Jón Jónsson 457
Núpur í Láxárdal, nú í eyði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 858
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fjórum óþekktum blómarósum sem sóttu þennan viðburð.
Jón Jónsson 478
Myndin var tekin norður eftir Króksbjargi. Fossárfoss fellur í sjó fram en lengra frá er Stapinn með gati gegnum og Stapaey.
Jón Jónsson 479
Feðgarnir Ragnar Jónsson til vinstri og Jón Jónsson til hægri staddir úti á Skaga við ?Þangskála?
Jón Jónsson 460
Miðgil í Langadal. Miðgil er löngu komið í eyði.
Jón Jónsson 474
Skeggstaðir í Svartárdal.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 058
Ekki er vitað hvaða ár þessi mynd var tekin en það gæti hafa verið kringum 1965. Eins og sjá má er höfnin og Húnaflóinn fullur af hafís þannig að ekki er hægt að sækja sjóinn.
Jón Jónsson 473
Veðramót í Gönguskörðum í Skagafirði.
Ólafur Bernódusson 700
Sigurður Sigurðarson á toppnum í gönguferð um nágrenni Landmannalauga 26. júlí 2012. Sigurður er mikill göngu- og útivistargarpur sem gjörþekkir svæðið við Landmannalaugar og víðar á hálendinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 53
Mynd af Skeifunni þ.e. efsta hluta Hólabrautar eins og hún var kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 49
Þessi mynd sýnir Skagaströnd 1981 eða 1982. Byggingaframkvæmdir standa yfir við Mánabraut þar sem byggðar voru sjö íbúðir í félagslega kerfinu. Ýmsar byggingar, sem nú eru horfnar, sjást á myndinni t.d. Héðinshöfði í hægra horninu, Efri-Lækur, Efri-Jaðar, Ásbyrgi, Drangey og fleiri.
Jón Jónsson 485
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga.
Ingibergur Guðmundsson 147
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fjallgöngufólkinu né hvenær. Frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Jane Sillar (d. 2017) og William Sillar.
Ólafur Bernódusson917
Guðrún Pálsdóttir stendur hjá ísuðum endurvarpanum á toppi Steinnýjarstaðafjalli í mars 2008.
Jón Jónsson 475
Ketubjarg á Skaga.
Ólafur Bernódusson916
Guðrún Pálsdóttir á leið upp á Steinnýjarstaðafjall í mars 2008. Í baksýn "Skín við sólu Skagafjörður" með Málmey, Drangey og Þórðarhöfða.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 044
Þessi klettur er nú horfinn. Hann var á Höfðanum vestanverðum rétt norðan við þar sem gamli vegslóðinn endar. Áður hafi "Kerlingin", eins og kletturinn var kallaður, haft "bók" í höndum en hún brotnaði af löngu áður en myndin var tekin. Sagan sagði að kerlingin væri í raun kona sem sat þarna og beið bónda síns af sjónum. Bóndinn kom ekki en kerlingin beið svo lengi að hún breyttist að lokum í stein. Nú er sem sagt kerlingin horfin í hafið til til fundar við bónda sínn ef sögnin er sönn. Myndin var tekin 1969.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 065
Þessi mynd er líklega frá um 1980, tekin norður eftir Bankastrætinu. Húsin tvö lengst frá okkur á myndinni, vinstra megin við götuna, eru horfin. Hvíta húsið með áfastri hlöðu var Höfðakot en húsið lengst frá var Höfðaberg. Tvö af húsunum hægra megin við götuna eru líka horfin. Græna, tvílyfta húsið með rauða þakinu var Kárastaðir. Nær okkur, appelsínugult var Flankastaðir. Þar hefur verið byggt nýtt hús á sama stað.
Ólafur Bernódusson939
Ólafur Bernódusson við vörðu á toppi Kistufells við Hesteyrarfjörð um páska 2009. Í baksýn sést eyðibyggðin á Hesteyri þar sem rekin er nokkur ferðaþjónusta á sumrin annars hefur refurinn þar frítt spil.
Ólafur Bernódusson 725
Þessi fallega kirkja á Höskuldsstöðum var vígð 31 mars 1963. Þá var aflögð gömul timburkirkja sem stóð á svipuðum stað og hún rifin nokkru síðar. Þessi mynd var tekin á fallegum vetrardegi 8. apríl 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1108
Þessi mynd var tekin af Skagaströnd einhverntíma á árunum 1945 - 1950. Skúffugarðurinn er enn í byggingu og sama má segja um mjölskemmurnar. Garður, Héðinshöfði og Þórsmörk eru húsin sem standa hægra megin á myndinni en þau eru öll horfin ásamt fleiri húsum sem sjást á þessari mynd.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita