Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Landslag
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 268
Ekki er mikið eftir sýnilegt af Spákonufellsey. Megnið af henni er undirstaða hafnarinnar á Skagaströnd og hluti hennar hefur verið þakinn stórgrýti sem brimvörn hafnarinnar. Á myndinni má þó sjá hluta eyjarinnar vaxinn grastoppum og skarfakáli. Fjær sér í hluta grjótvarnarinnar.
Ólafur Bernódusson980
Syðri-Hóll í vetrarböndum 8. mars 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1255
Þessi mynd af sólinni í hádegisstað var tekin 13. desember 2012. Þá gægist sólin rétt yfir sjódeildarhringinn og lýsir upp himinn með fallegum litum. Þegar sólin er svona lágt á lofti eins og á myndinni verður fólk að fara varlega í akstri vegna hættunnar á að sólin blindi ökumenn.
Ólafur Bernódusson 731
Vonandi ráða álfarnir í Einbúanum yfir þekkingu til að hita hýbýli sín því annars hlítur að hafa verið ansi kalt hjá þeim þegar þessi mynd var tekin 15. desember 2006.
Ólafur Bernódusson981
Vindhæli 26. mars 2013. Frá Vindhæli eru miklar örlaga- og átakasögur frá fyrri tímum.
Ólafur Bernódusson779
Göngufólk í göngu við Skaftafell fækkar fötum í blíðunni. Frá vinstri: Gunnar Svanlaugsson, Bjarki Sigurðarson, Brynja Stefánsdóttir, Inga Sigurðardóttir, Stefán Ægir Lárusson, baksvipur Sigríðar Stefánsdóttur, óþekktur, Sigurður Sigurðarson, Lára Guðmundsdóttir og Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1305
Óli Albertsson frá Keldulandi um miðjan apríl 2012.
Ingibergur Guðmundsson 313
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slá frá sökklinum og hreinsa timbrið. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri
Guðmundur Guðnason103
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Á þessari mynd er hópurinn að koma með Fagranesinu frá Ísafirði og að Arngerðareyri innst í Ísafjarðardjúpinu. Þar biðu rúturnar en fólkið fór sem sagt með viðlegubúnað sinn með Fagranesinu. Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991) og Hallbjörn Björnsson. Bryggjan á Arngerðareyri í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Húsið sem ber yfir bílinn er Gunnarshólmi oft kallað Grafarbakki vegna þess að það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Sólheimar yngri er húsið til hægri við bílinn og Sólheimar eldri er húsið sem stendur nær okkur með flötu þaki. Við sjáum ofan á þakið á Valhöll og hægra megin við það er Steinholt. Bjarmaland er svo hægra megin með hlöðu og fjárhús á bak við.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 579
Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka og Magnús B. Jónsson þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd spjalla saman og dytta að girðingum um miðjan maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 622
Stelkur á staur íhugar ástandið í morgunþoku 1. júní 2014.
Árni geir Ingvarsson - safn
Myndin er af klettadrangi sem var úti á Höfða rétt norðan við staðinn þar sem gamli, aflagði vegurinn endar. Upphaflega var kerlingin með "bók" og virtist vera að lesa í henni. Bókin er horfin þegar þessi mynd var tekin. Sagt var að þetta væri tröllkona/kerling að bíða eftir manninum sínum koma af sjónum. Hann kom ekki en hún sat og beið of lengi þannig að hún breyttist í stein þegar sólin náði að skína á hana. Því miður er kerlingin nú horfin vegna veðrunar þannig að þessi mynd er skemmtileg minning um horfna tíð.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Myndin var tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Húsið lengst til hægri, Héðinshöfði, er nú horfið.
Arnar HU 1 - safn 13
Tryggvi Hlynsson með kunnuglegan bakgrunn við brottför Arnars HU 1 frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 447
Bátur leggur að bryggju við Sægarð í norð austan roki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á árinu 2014:
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Þessi mynd af Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1992 - 1996. </p>
Guðmundur Guðnason283
Fjölmenn hópferð yfir Kjöl. Ekki er vitað hverjir hér eru á ferð.
Ólafur Bernódusson 857
Myndin var tekin af Geirólfsnúpi í norður sumarið 2010. Báturinn er að sigla á Reykjarfirði en bak við hann er Þaralátursnesið og bak við það er Þaralátursfjörður þá Furufjörður og Bolungarvík. Síðan koma Barðsvík, Smiðjuvík og Látravík. Yst og lengst til hægri rís Hornbjargið úr hafi.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Sunnan rok á Skagaströnd. Bak við fánastöngina sést húsið Ásbyrgi/Ásberg sem nú er löngu horfið.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var sennilega tekin snemma á áttunda áratugnum. Á henni má sjá nokkur hús sem er horfin í dag, víkina, sem nú er búið að fylla upp í, neðan við sundlaugina og fleira frá gömlum tíma.
Ólafur Bernódusson 794
Gylfi Sigurðsson með dætrum sínum á Geirólfsnúpi. Guðbjörg Hanna Gylfadóttir er vinstra megin og Jóney Hrönn Gylfadóttir til hægri. Þau voru þarna með hópi Skagastrendinga sem gekk um Hornstrandir nokkra daga í júli 2010. Út við sjóndeildarhring til vinstri rís Kálfatindur á Hornbjargi þverhníptur úr sæ.
Ólafur Bernódusson 786
Áning undir Jörundi á Hornbjargi 21. júlí 2010, Kálfatindur sveipaður þoku í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: Haraldur Árnason, Guðjörg Gylfadóttir, Ólafur Bernódusson, Gunnar Svanlaugsson, Sigurður Sigurðarson, Lárus Ægir Guðmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson 763
Myndin var tekin yfir Skagaströnd frá hringsjánni á Höfðanum 17. júní 2007. Konan á myndinni er Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 29
Gömul mynd af efsta hluta Skeifunnar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru einungis fjögur hús en þau eru orðin níu í dag (2019) á sama svæði. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Jórvík, Pálmalundur, Hólabraut 25 og Sænska húsið.
Guðrún Þórbjarnardóttir052
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er gömul mynd af Skagaströnd tekin úr Tjaldklaufinni á Höfðanum líklega kringum 1960. Allmargar byggingar á myndinni eru nú horfnar. Fremst til vinstri eru Flankastaðir þar sem nú stendur annað hús byggt á sama stað. Mun það vera þriðja húsið sem byggt er þarna. Fjær sést Héðinshöfði yfir þak Flankastaða og til hægri við sömu götu er Garður sem var rifinn 1977 eða 1978. Ef horft er yfir Héðinshöfða sést hlaða og útihús frá Efri -Læk og byggingin hægra megin við hlöðuna er Efri -Lækur. Þessar byggingar eru allar horfnar nú (2020). Yfir Efri - Læk sést Karlsminni og Viðvík sem ber í hvítt Höfðatún.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1235
Mynd frá 9. júlí 2011 af Trabant, sem margur bílaáhugamaðurinn vildi líklega gjarnan eiga í dag. Trabant var framleiddur í Austur Þýskalandi á árunum 1957 - 1990. Að mörgu leyti merkilegur bíll því hann var allur úr plastfiber og var framhjóladrifinn með sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, sem var nýung árið 1957. Vélin í honum var tvígengisvél og því þurfti að blanda bensínið á hann með smurolíu. Trabantinn var geysi vinsæll í A-Þýskalandi þannig að fólk þar þurfti að vera á biðlista í 10 - 13 ár eftir að fá að kaupa nýjan bíl. Þetta varð til þess að notaðir Trabantar voru gjarnan mun dýrari heldur en nýir fóru jafnvel á tvöföldu verði þess nýja. Auk útgáfunnar á myndinni voru líka framleiddir tveggja dyra station bílar. Á þeim rúmlega 30 árum sem Trabant var í framleiðslu voru smíðaðir 3.096.999 bílar. (heimild: https://en.wikipedia.org/wiki/Trabant)
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn143
Þessi mynd var tekin 26. júní 1995. Kletturinn, sem er áberandi á henni, er kerlingin sem var á Höfðanum. Hún er nú (2020) horfin. Áður var kletturinn þannig í laginu að hann leit út eins og kona sem var að lesa í bók. Þjóðsagan sagði að þetta væri kona sem hefði setið þarna og beðið manns síns sem var á sjó. Hann kom aldrei en hún lét sig ekki heldur sat áfram þar til hún breyttist í stein. Veðrun og illviðri brutu síðan kerlinguna niður með tímanum.
Ólafur Bernódusson 1109
Víkur á Skaga 18. ágúst 2014.
Ólafur Bernódusson 1110
Á myndinni, sem tekin var 18. ágúst 2014, er Guðrún Pálsdóttir búin að koma sér fyrir í sérkennilegri og fallegri jarðmyndun í bjarginu við fjöruna sunnan við Víkur á Skaga. Grjótið í forgrunninum hefur hrunið úr bakkanum ofan við þetta hringmyndaða "kubba-stuðlaberg" og eins og sjá má er það allt öðruvísi.
Ólafur Bernódusson931
Á vorin eru gjarnan einn til tveir útivistardagar í Höfðaskóla. Þá geta nemendurnir valið sér verkefni utan skólans. Eitt af verkefnunum í maílok 2008 var að ganga á Spákonufellið. Hópurinn á myndinni valdi það og myndin var tekin á Borgarhausnum 23. maí. Sitjandi frá vinstri: Stefán Velemir, Indriði Björnsson, Óskar Björnsson, Guðjón Páll Hafsteinsson, óþekkt, Viktor Örn Valdimarsson og Ingimar Guðjónsson. Standandi frá vinstri: Ágúst Ingi Ágústsson kennari, óþekkt, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Torfi Friðrik Magnason og Telma Dögg Bjarnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson973
Vinirnir Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Sigurður Sigurðarson til hægri njóta síðsumarkvölds á tjaldsvæðinu í Skaftafelli eftir stífan göngudag í ágústbyrjun 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1109
Fyrir tíma litfilmunnar voru myndir stundum litaðar með einhverri tækni. Líklega er þessi mynd fallegt dæmi um slíka vinnu. Við horfum ofan á þakið á Höfðakoti næst okkur en lágreista húsið með græna þakinu var Dvergasteinn. Til vinstri við hann er Skálholt. Niður með götunni, Skagavegi, eru síðan: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður en þrjú þau síðastnefndu eru löngu horfin. Guli skúrinn sem ber í höfnina var vigtarskúr því þar var hafnarvigtin staðsett. Litli hvíti skúrinn til hægri við hann var olíuafgreiðsluskúr fyrir Esso með bensín- og olíudælum fyrir utan og þvottaplani með gryfju til hægri. Til vinstri við hafnarvigtarskúrinn er gamla pakkhúsið sem var ein elsta byggingin á Skagaströnd á þessum tíma. Það er nú horfið eins og braggarnir tveir vinstra megin við það. Bogaskemman með rauða þakinu til vinstri var beitningaskúr og er nú horfinn en í húsinu vinstra megin við hann er nú Vélaverkstæði Skagastrandar.
Ólafur Bernódusson829
Hópur fólks í hlíðum Spákonufells á niðurleið eftir að hafa gengið kvöldgöngu á Spákonufellið - Þórdísargöngu - 4. júlí 2009 á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson780
Göngufólk á göngu í nágrenni Skaftafells í áttina að Morsárjökli. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Gunnar Svanlaugsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigríður Stefánsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Páll Halldórsson, Inga Sigurðardóttir og Torfhildur Rúna Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson773
Myndin var tekin 12. febrúar 2005 af bát sem strandaði undir Króksbjarginu. Líklegt verður að teljast að maðurinn, sem var einn um borð, hafi sofnað við stýrið og þess vegna lent uppi í fjöru. Maðurinn slapp óslasaður og báturinn skemmdist ótrúlega lítið. Björgunarsveitin Strönd kom bátnum á flot með Húnabjörginni og dró hann heim til Skagastrandar þar sem gert var við bátinn. Í baksýn sér í eyjuna eða Stapann og Fossárfoss, sem er einn af fáum fossum á Íslandi sem fellur beint í sjó.
Axel Jóhann Hallgrímsson 19
Þessi götumynd var tekin einhverntíma kringum 1960 niður eftir Hólabraut og er mjög ólík þeirri sem er í dag. Húsið næst okkur til hægri er Hólabraut 7 en húsið til vinstri er Goðhóll, sem nú er horfinn, en þar stendur nú húsið Hólabraut 10.
Ólafur Bernódusson933
Skagaströnd séð ofan af Borgarhausnum í maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1407
Síðasti hluti olíutanksins við Höfðann rifinn um miðjan nóvember 2011. Upphaflega var tankurinn helmingi hærri en hann er á myndinni og við hlið hans stóða annar tankur jafn stór. Báðir voru tankarnir byggðir fyrir síladarverksmiðjuna einhverntíma á árunum 1943-1946.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Spákonufellið með Spákonufellsborg efst, séð af sjó.
Ólafur Bernódusson 793
Sigurður Siguarson um borð í báti á siglingu undir Hornbjargi 23. júlí 2010 á leið úr Hornvík inn í Reykjarfjörð nyrðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Næst okkur á þessari mynd eru fjárhús/hesthús og hlaða sem tilheyra Réttarholti. Fjær til vinstri er Sólvangur og til hægri sér í Ásholt. Víkin á myndinni er kölluð Bótin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd er frá Kúvíkum í Reykjarfirði á Ströndum. Þarna var athafnasvæði Carls Jensen kaupmanns. Í Kúvíkum bjó líka Thorarensenfólk m.a. Jakob Thorarensen skáld. Kúvíkur eru nú löngu komnar í eyði og allar byggingar horfnar. Í Kúvíkum var lítið kot sem hét Kúvíkur. Þar fæddust og ólust upp að hluta systkinin: Bernódus, Herbert, Björg og Karitas Laufey Ólafsbörn sem öll bjuggu síðar á Skagaströnd.
IMG_5214
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Á myndinni eru menn úr björgunarsveitinni Strönd að létta bátinn með því að færa aflann og annað lauslegt yfir í björgunarbátinn Þórdísi. Begga var síðan dregin á flot af Húnabjörginni á næsta flóði og reyndist minna skemmd en menn óttuðust.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd er tekin af Hólaberginu nálægt því sem var bæjarhlað Höfðahóla. Myndin var tekin einhverntíma á tíunda áratugnum niður Ránarbrautina.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin einhverntíma á þriðja áratug 20. aldar. Á henni má sjá Einbúann og víkina vestan við hann. Víkin var í daglegu tali kölluð Vörin því þar lentu bátarnir gjarnan og aflanum var skipt milli manna í fjörunni. Þegar þessi mynd var tekin var búið að byggja bryggju nær Hólsnefinu og sést í efsta hluta hennar neðst á myndinni. Húsin lengst til vinstri eru fiskverkunarhús en íbúðarhúsið er verslunarstjórahúsið (seinna kallað Kaupfélagshúsið). Húsin lengst til hægri voru gömul verslunarhús og pakkhús.
Ólafur Bernódusson 765
Halldór Gunnar Ólafsson skoðar GPS tækið sitt á toppnum á Geirólfsnúpi 24. júlí 2010. Lengst til hægri í baksýn rís Hornbjarg úr sæ.
Guðmundur Guðnason287
Ferðalangar úr mörgum rútum fá sér frískt loft við vinnubúðir á ókunnum stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1049
Nokkur hópur fólks tók sig til og gekk á Spákonufellið á Jónsmessukvöldi 2009. Þar var hópurinn uppi á miðnætti og horfði þaðan á sólina snerta hafflötinn í norðri áður en hún tók að fikra sig aftur upp á himnafestinguna. Ólafur Benródusson hvílir sig á steini en Jón Ólafur Sigurjónsson nartar í harðfisk til hægri. Molduxinn gnæfir yfir í baksýn.
Ólafur Bernódusson 737
Kyrrlátt vetrarkvöld á Skagaströnd 18. febrúar 2011 með votti af norðurljósum yfir Katlafjallinu.
Ólafur Bernódusson 787
Gönguhópur frá Skagaströnd á leið af Hornbjargi niður í tjaldbúðirnar í Hornvík 21. júlí 2010. Jörundur gnæfir yfir til hægri . Á myndinni eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Haraldur Árnason, Ólafur Bernódusson, Amy Ósk Ómarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Gunnar Svanlaugsson og Lára Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1255
Gangnamenn reka hluta af safninu eftir þjóðveginum til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gangnamennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin yfir útbæinn. Lengst til vinstri sér ofan á þakið á Höfðabergi og í örlítið horn af Steinholti. Höfðakot er á miðri mynd með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu. Yfir Höfðakot má sjá Stórholt og til hægri við það eru Kárastaðir og hornið á Flankastöðum. Yfir þakið á Höfðabergi má aftur á móti sjá, frá vinstri: Skálholt, Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfða, Garð, Norður Skála, Skátaskálann og til vinstri við hann eru Braggarnir tveir og hús sem nú er kallað Bjarnaborg. Lengra frá er gamli beitningaskúrinn - Aðalbjargarskúrinn. Gamla Kaupfélagið ber í verksmiðjuna en til hægri við Kaupfélagið eru Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið), sundlaugin og frystihúsið. Mörg þessara húsa eru nú horfin en ný hafa risið á sömu stöðum í sumum tilvikum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið gert upp úr 1960.
Ólafur Bernódusson 756
Hjónin Jón Hallur Pétursson og Guðríður Friðriksdóttir á toppi Herðubreiðar 16. ágúst 2003 í hópi með göngufólki á vegum Ferðafélags Akureyrar. Vinstra megin við þau í fjarlægð sér í hvel Vatnajökuls.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1509
13. nóvember 2011 var hesturinn á myndinni kominn í vetrarhárin og tilbúinn að mæta kuldum vetrarins. Ásdís Birta Árnadóttir gefur honum af sinni innri hlýju með því að klappa honum og spjalla við þennan vin sinn. Í baksýn er fallegasta fjall á Íslandi, Spákonufell.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1181
Drengirnir á myndinni eru að reyna að veiða í Hrafnánni og sulla að gamni sínu 8. september 2010. Páll Halldórsson er með veiðistöngina, Daði Snær Stefánsson er að vaða en drengurinn sem snýr baki í okkur er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 806
Myndin var tekin í ágúst 2006 af bæjunum norðan við Harrastaðaána. Næst okkur eru Neðri-Harrastaðir, hvítu húsin til vinstri eru Efri-Harrastaðir og lengst frá er Brandaskarð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1721
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún sýnir hlut byggðarinnar við Bankastræti og Skagaveg. Brúna húsið til vinstri er Flankastaðir - Bankastræti 7- sem er horfið og nýtt hús byggt á sama stað. Aftan við Flankastaði er Höfðabrekka - Bankastræti 10 . Þá kemur Bjarnarhöfn - Bankastræti 8- og græna húsið er Kárastaðir - Bankastræti 5. Stóra húsið með græna þakinu er Stórholt - Bankastræti 3. Ef grannt er skoðað sér örlítið í Höfðakot - Bankastræti 6 - við hægra horn Stórholts. Það er horfið og nýtt hús byggt á þeirri lóð. Lengst til hægri ofan við Bankastæti er Höfðaberg, sem er horfið, en það stóð eitt og sér og hafði ekki götunúmer. Kofinn sem ber í Höfðaberg með rauðu þaki er fjárhús og hlaða sem eru horfin en hægra megin við það er Skálholt - Skagavegur 17 - og til hægri við Skálholt er Þórshamar _ Skagvegur 15. Gula húsið er Héðinshöfði - Skagavegur 11 - sem er horfið og á milli Þórshamars og Héðinshöfða sér örlítið í Þórsmörk _ Skagavegur 13 - en það er líka horfið.
Óskar Kristinsson - safn 248
Á myndinni má sjá byrjunarframkvæmdir vegna gróðursetningar á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Skagastrandar austan við tjaldstæðið við Hólabergin. Í dag er vinsælt að fara í göngutúr eftir Jónsstíg gegnum "skóginn", sem þarna er kominn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 241
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er af því sem þá var eftir af kerlingunni á Höfðanum. Það er klettanybban sem skagar lengst til vinstri. Áður var hún stærri og með bók í höndum - úr steini að sjálfsögðu. Sagan sagði að þetta hefði verið kona sem settist þarna til að bíða eftir karli sínum af sjó. Hann kom aldrei svo hún varð að lokum að steini. Því miður hefur kerlingin gefið sig fyrir veðri og vindum og er nú horfin fyrir nokkru. Skerið sem sést í baksýn er kallað Músasker en það er vestur af Sauðskerinu sem er við Reiðngsflötina norðarlega á Höfðanum.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita