Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Landslag
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Snjór
Neðsti Flokkur
Skagafjörður
454 myndir
Flæði
Reitir
hem017
Óþekktur ljósmyndari550
Myndin sýnir nokkur af húsunum sem stóðu á Kálfshamarsnesi. Húsið lengst til vinstri er líklega Klettur en stóra dökka húsið hægra megin við Klett er verslunar- og fiskvinnsluhús. Steypta húsið næst í röðinni er Skólahúsið og ljósa húsið með bröttu risi er líklega Iðavellir sem nú stendur á Skagaströnd. Önnur hús eru óþekkt. Ef þú þekkir húsin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Kálfshamarsvík 1999
Mynd tekin í Kálfshamarsvík sumarið 1999. Yfirlitsmyndir og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) frá Ósi og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn segja sögur af fólki sem bjó í Kálfshamarsvík. hljóð og mynd í góðu lagi: Lengd 30 mínútur. Myndataka: líklega Sigursteinn Guðmundsson.
Óþekktur ljósmyndari569
Texti myndarinnar segir allt sem segja þarf nema að húsið á Hólanesi í baksýn var fært þaðan kringum 1920 upp að Spákonufelli (Litla-Felli). Þar stendur húsið enn (2022). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 048
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin í mars 1991. Græna húsið með rauða þakinu var Kárastaðir sem nú eru horfnir. Hægra megin við það eru Flankastaðir sem hafa verið rifnir og nýtt hús byggt á sama grunni. Húsið sem sést á milli þeirra, nokkru fjær, er Héðinshöfði sem einnig er horfinn. Í Héðinshöfða voru tvær íbúðir. Þá er líka horfið hvíta húsið með græna þakinu, sem ber í endann á stóru skemmunni. Þar var rekin verslunin Borg á sínum tíma og seinna rafmagnsverkstæðið Neistinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1510
Fjaran við Sandlækinn, rétt norðan við bæinn, er vinsæl til útivistar, sérstaklega hjá barnafólki og fólki með hunda. Þaðan tekur Höfðinn sig vel út með Arnarstapann vestast. Bátshræið sem er á myndinni, á hvolfi, er Ólafía Hu. Hún endaði þarna einhverntíma á árunum 1944 - 1949 vegna vélabilunar.
Óþekktur ljósmyndari656
Myndin var tekin af Höfðanum yfir hafnarsvæðið á Skagaströnd um 1940. Síldarbátar liggja við akkeri því viðlegupláss er fullt. Stóra húsið á höfninni er Hafnarhúsið sem var svo tekið niður á árunum 1943 eða 44, til að rýma fyrir verksmiðjunni, en síðan endurreist á þeim stað sem það stendur nú. Húsið var upphaflega reist þar sem það er á myndinni 1935. Gamla kaupfélagið er stóra húsið til vinstri en hægra megin við það er verslunarstjórahúsið eða Skagaströnd eins og það var líka kallað. Lengst til vinstri má sjá bryggjukar í byggingu í dráttarbrautinni framan við Bjarmanes.
Höfðaskóli - safn607
Líklega var þessi mynd tekin kringum 1990 af Skagaströnd. Næst okkur á henni eru tvö hús sem eru horfin. Til vinstri eru Kárastaðir en fyrir miðri mynd eru Flankastaðir sem voru rifnir og nýtt hús byggt á sama stað. Lengra frá er Héðinshöfði, sem einnig er horfið. Þá er líka búið að rífa litla húsið norðan við stóru skemmuna, sem áður hýsti verslunina Borg og seinna rafmagnsverkstæði Neistans. Gamla Hólaneskirkja var svo rifin í febrúar 1992 þó hún sé uppistandandi á þessari mynd.
2001113
Á myndinni sem var tekin einhverntíma upp úr 1990 er verið að sá grasfræi í Spákonufelli fyrir sunnan og neðan skíðaskálann. Á henni er Guðjón ? frá Landgræðslunni að sá með tveimur hjálparmönnum frá Skagaströnd. Þeir eru Jón Örn Stefánsson til hægri og Albert Ingi Haraldsson til vinstri.
Ásgrímur Jónsson Vor á Þingvöllum 1930
Ásgrímur Jónsson fæddist 4. mars 1876. Hann var við nám í Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn á árunum 1900 – 1903. Ásgrímur var fyrstur Íslendinga til að gera myndlistina að aðalstarfi. Frægastur er hann fyrir landslagsmálverk sín sem seljast á háu verði, séu þau yfirleitt föl. Þá er hann einnig þekktur fyrir myndskreytingar íslenskra þjóðsagna og ævintýra. Ásgrímur hlaut margs konar viðurkenningar fyrir list sína m.a. fékk hann fálkaorðuna og var gerður að heiðursprófessor við Háskóla Íslands. Þegar Ásgrímur lést, 5. apríl 1958 ánafnaði hann íslensku þjóðinni öll eftilátin verk sín ásamt húseign sinni að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Myndin á þessu jólakorti eftir Ásgrím heitir: "Vor á Þingvöllum 1930".
Ljósmyndakeppni 2022 90
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Mikael Garðar Hólmgeirsson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Gréta 095
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma kringum 1940. Á henni er hluti af fjörunni sem náði frá Hólsnefinu á Höfðanum og inn að Bjargi/Breiðabliki áður en hafnargerð hófst með uppfyllingu út í Spákonfellsey 1934. Kletturinn til vinstri er Einbúinn sem, eins og sést, var í fjöruborðinu. Húsin á myndinni eru: Efri Lækur (Litli Lækur) lengst til vinstri hvítt hús með dökku þaki. Háa húsið með þremur gluggum á efstu hæðinn er Karlsskáli. Milli Efra Læks og Karlsskála sér í Jaðar. Hitt háa húsið, það með dökka þakinu, er Lækur. Hvítt hús bak við Læk er Lundur og hægra megin við Lund er Lækjarbakki. Lengst til hægri sést í Karlsminni þar sem Carl Berndsen hóf verslun sína áður en hann flutti sig á Hólanesið. Bátarnir á myndinni eru óþekktir
Ljósmyndakeppni 2022 84
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigríður Björk Sveinsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Gréta 051
Myndin var tekin yfir Buðlungavíkina þar sem áform eru uppi um að byggja upp sjóböð og fleira. Norðan við víkina er karaslippurinn þar sem mörg bryggjukör voru smíðuð á sínum tíma. Litli skúrinn var kamar sem notaður var af þeim sem unnu að smíði kerjanna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 411
Sumarið 1987 fór hópur fólks frá Skagaströnd í nokkurra daga gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hluti hópsins að hvíla sig efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Fólkið er, frá vinstri: Jane Sillar, William Sillar, Kristinn Guðmundsson og tveir óþekktir (?Hjörtur Guðmundsson og Hafsteinn Pálsson?).
Gréta 089
Gamli bærinn á Syðra Hóli. Búið er að slá túnið beggja megin við bæinn en ekki fyrir framan hann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1142
Tunglskinskvöld á Skagaströnd haustið 2017.
Óskar Kristinsson - safn 240
Nyrst á Spákonufellshöfðanum er þessi klettadrangur sem kallast Arnarstapi. Stapinn er illkleifur en efst á honum er ca tveggja fermetra grastó. Stapinn er vinsæll varpstaður sjófugla og oftar en ekki verpir gæs þar uppi á vorin. Séður norðan frá t.d. frá Sandlæknum minnir stapinn svolítið á hundshaus með lafandi eyru.
Óþekktur ljósmyndari561
Þessi mynd af útbænum á Skagaströnd var tekin 1910. Eyjan, sem talað er um í textanum, er Spákonfellsey sem í dag er hluti af Skagastrandarhöfn. Skagastrandarverslun var líka of oft kölluð Höfðaverslun. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn482
Myndin var tekin á toppi Spákonfells - á Borgarhausnum - við vörðuna sem þar er og geymir gestabókina. Hún var líklega tekin kringum 2000 og á henni eru nemendur eldri bekkja Höfðaskóla það ár á útivistardegi að vori. Með hópnum eru tveir kennarar; Ólafur Bernódusson og Lárus Ægir Guðmundsson. Getur þú fundið þá á myndinni ?
Ljósmyndakeppni 2022 77
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ólafur Bernódusson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 19
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Kristinn Rúnar Kristjánsson og sendi inn í flokkinn "Heimili". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ingibergur Guðmundsson 409
Myndin var tekin sumarið 1987 af hluta hóps Skagstrendinga í gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hópurinn í nestisstoppi líklega efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Kristinn Guðmundsson.
Ljósmyndakeppni 2022 95
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Guðbjörg Viggósdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Óþekktur ljósmyndari661
Þessi mynd af Spákonufelli var tekin fyrir 1927 því þá var kirkjan, sem er lengst til hægri, rifin og ný kirkja síðan vígð á Skagaströnd 17. júní 1928. Þessi hús stóðu nokkurn vegin þar sem kirkjugarðurinn er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 408
Sumarið 1987 fóru nokkrir Skagstrendingar í gönguferð um Hornstrandir á eigin vegum. Á þessari mynd er hópurinn í Hlöðuvík að reyna að komast þurrum fótum yfir Hlöðuvíkurósinn. Í baksýn er Skálakamburinn. Á spýtunni er William Sillar en næstur er líklega Kristinn Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ljósmyndakeppni 2022 23
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ljósmyndakeppni 2022 88
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Lára Guðmundsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 83
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigurbjörnsson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
2001025
Aftan á þessa mynd skrifaði Þórður Jónsson: "Frk Hrefna Hjálmarsd. Reykjavík Jólin 1961 Bestu jóla og nýársóskir. Þakka skemmtilegar samverustundir í Vaglaskógi. Kær kveðja Þórður Jónsson og fjölskylda Ska." Á myndinni má sjá megin hluta Skagastrandar eins og þorpið var sumarið 1961. Mörg af húsunum sem sjást á myndinni eru nú horfin.
2001027
Þessi mynd var tekin að vetri líkleg einhventíma upp úr 1960. Næst okkur fyrir miðri mynd er verslunarstjórahúsið sem nú er löngu horfið. Á henni eru Bogabrautin og Hólbrautin nánast óbyggðar, leikskólinn ekki kominn né viðbyggingin við Höfðaskóla.
Gréta 045
Þessi mynd hefur verið tekin fyrir 1934 því þá hófst hafnargerð á Skagaströnd og uppfylling var keyrð út í Spákonufellsey. Uppfyllingin kom þar sem tunnurnar eru í fjörunni á myndinni. Fram að því var fjara framan við Einbúann eins og sjá má. Sögur segja að í Einbúanum sé álfabyggð og muni þeir bregðast illa við ef Einbúanum verður raskað á einhvern hátt.
Ljósmyndakeppni 2022 78
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Jóhanna R. Blöndal og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ingibergur Guðmundsson 410
Hlöðuvík í friðlandinu á Hornströndum séð ofan af Skálakambi sumarið 1987. Húsin sem sjást á henni eru bærinn að Búðum og appelsínugula húsið er neyðarskýli. Fjallið hinum megin við víkina er Álfsfell.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita