Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Dýr

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson930
Bræðurnir Rúnar Jósefsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri hafa skotið marga refi gegnum tíðina. Þessi sem Rúnar heldur á 16. maí 2008 var merkilegur fyrir þær sakir að hann var þrífættur því hann vantaði annan framfótinn. Fótinn hafði hann misst, einhverra hluta vegna, töluvert fyrr því þar sem hann átti að vera var bara vel gróið ör.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 484
Jóhannes Sveinsson fiskar sér í soðið í höfninni á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvað varð um þyrsklinginn á færinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 596
Sonja Dröfn Helgadóttir viðrar hundana sína við kirkjuna á góðum degi í byrjun nóvember 2014
Guðmundur Guðnason144
Í Hofsrétt sumarið 1965. Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti leggur hendurnar á axlir Eiðs Hilmarssonar frá Hofi. Til vinstri er Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri að leita að sínu fé í safninu.
Arnar HU 1 - safn 49
Þröstur Árnason sýnir hér guðlax sem kom upp með vörpunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Guðlax þykir herramannsmatur sem mest veiðist í heitum sjó t.d. í grennd við Hawaii og Kaliforníu en slæðist hingað norður á miðin við Ísland stöku sinnum. Hann er mjög feitur fiskur og er oft líkt við lax. Guðlax er merkilegur fyrir þá sök að hann er með heitt blóð og er hann fyrsta fisktegundin sem þekkt er sem er þannig. Hann er góður félagi túnfisksins og synda þeir gjarnan saman um höfin. Hann getur orðið allt að 185 cm að lengd og yfir 70 kg. Ársafli á guðlaxi er mjög misjafn en árið 1992 veiddust 175 tonn af honum. (Heimild:https://is.wikipedia.org/wiki/Guðlax sótt 13.2.2019)
Árni Geir Ingvarsson - safn 1469
Hestar eru félagslyndar skepnur sem þekkja hvern annan aftur eftir langan aðskilnað. Einnig þekkist einelti meðal þeirra og ýmsir aðrir "mannlegir" lestir. Á þessari mynd hefur kastast í kekki með tveimur þeirra í lok júní 2012.
Guðmundur Guðnason179
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti, Lárus Árnason (d. 21.5.2011) Ási, Ragnheiður Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð, Kristín Björnsdóttir Jaðri, Anna Bára Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð og Kári Sigurbjörn Lárusson Ási. Á þessum tíma var mjög algengt að menn á Skagaströnd ættu nokkrar kindur og er talið að þá hafi verið allt að 3000 fjár í eigu Skagstrendinga og starfandi var Sauðfjárræktarfélag Skagstrendinga. Í dag (2016) má ætla að kindurnar séu milli 20 og 40. Ef grannt er skoðað má sjá skátaskálann upp í hlíð Spákonufells. Skálann ber yfir höfuð Önnu Báru. Skálann byggðu skátarnir á Skagaströnd en hann stóð einungis í nokkur ár því hann sligaðist að lokum undan snjó og eyðilagðist.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 591
Sigurður Jónsson í göngutúr með kisa sinn í bandi í lok maí 2014. Sigurður hefur kisa alltaf í bandi þegar þeir fara út og er þar fyrirmynd annarra kattaeigenda.
Guðmundur Guðnason021

Þessi mynd er önnur í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni (d.21.11.1988). Hinar myndirnar eru númer 2543, 2545, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen (d. ?) hjálpa Lárusi Jónssyni (d.3.7.1983) lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni. Á þessari mynd er Lárus að gera sig líklegan til að klöngrst yfir milligerðið. Ole fylgist með einhverju öðru utan myndar.
Guðmundur Guðnason204
Réttað í Spákonufellsrétt, sennilega 1964.
Guðmundur124
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn með hvítu húfuna er Gunnlaugur Björnsson úr Drangey áður Efri-Harrastöðum.
Maðurinn sem er lengst til vinstri með hatt er Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) í Blálandi.
Guðmundur Guðnason318
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt. Konan lengst til vinstri er Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994) frá Sævarlandi. Börnin sem halda í hrútinn eru Díana Kristjánsdóttir frá Grund og Heimir Sigmarsson. Stúlkan í köflóttu úlpunni, með rauða lambhúshettu, er Edda Sigurðardóttir. Brosmilda stúlkan milli Heimis og Eddu er Fjóla Sigurðardóttir frá Höfðakoti en í rauðu úlpunni er Málfríður Jóhannsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 622
Stelkur á staur íhugar ástandið í morgunþoku 1. júní 2014.
Guðmundur Guðnason165

Í Stafnsrétt 1963. Steingrímur Bergmann Magnússon réttarstjóri frá Eyvindarstöðum til vinstri og Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) bóndi á Brandsstöðum til hægri. Hægra megin við Steingrím eru Markús Sigurjónsson frá Reykjarhóli í Skagafirði og Sigurjón Guðmundsson frá Fossum.

Guðmundur Guðnason151
Í Hofsrétt sumarið 1965. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti. Konan á miðri mynd er Guðlaug Eggertsdóttir, sem bjó um tíma á Árbakka, dóttir Eggerts Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sigfúsdóttur konu hans í Sólheimum. Stúlkan til hægri er Gígja Axelsdóttir frá Litla-Felli.

Guðmundur Guðnason314
Réttað í Hofsrétt á Skaga. Maðurinn í köflóttu skyrtunni með ljósa húfu er Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) á Skagaströnd en sá í bláu peysunni með ljósa húfu og með hendur fyrir aftan bak er Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Lengst til hægri, í ljósum buxum, er Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) í Náttbrún. Næst lengst til hægri sér á bakið á Ingimar Sigvaldasyni (d.4.5.1991) frá Króki. Maðurinn með ljósu húfuna svolítið til vinstri á myndinni er Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007) frá Steinnýjarstöðum. Stúlkan í köflóttu skyrtunni fremst á myndinni til hægri er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason192
Réttað í Spákonufellsrétt haustið 1962. Þá var algengt að fólk á Skagaströnd ætti nokkrar kindur og fjársafnið var töluvert stórt þegar allt var talið saman. Í dag (2018) eru sárafáar kindur í staðnum en svæðið sem Sveitarfélagið Skagaströnd þarf að smala er þó jafn stórt og áður. Áður var oft gaman í Spákonufellsrétt þar sem kvenfélagið seldi réttarkaffi í réttarskúrnum og menn staupuðu sig og voru léttir í lund. Á þessari mynd er Jón Pálsson skólastjóri til hægri. Drengurinn í úlpunni er Jóhannes Pálsson (f. 1951 - d. 23.11.1986) og Ragnheiður Sigurjónsdóttir úr Sunnuhlíð aftan við hann. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason175
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri eru: Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir í Reykholti og Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum.
Guðmundur Guðnason017
Þessi mynd er af réttarstörfum í Mjóadalsrétt sem stóð sunnan við túnið í Gautsdal. Laxárdalsfjöll í baksýn Syðra- Horn til hægri Ytra- Horn og Illvirðishnjúkur til vinstri. Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason159
Þrjú börn á réttarvegg í Stafnsrétt 1963. Frá hægri: systkinin Stefán Guðmundsson og Guðrún Guðmundsdóttir frá Fossum. Barnið í köflóttu úlpunni lengst til vinstri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 758
Þessi smáhvalur - hnýðingur - kom í veiðarfæri Önguls ÍS 115 11. apríl 2007. Á myndinni er verið að landa hvalnum í höfninni á Skagaströnd en maðurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason860
Frá hrútasýningu á Skagaströnd. Maðurinn næst okkur á myndinni er Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.989) frá Kárastöðum.
Ólafur Bernódusson 770
Sigurbjörn Berg Sigurðsson skipstjóri heldur á sjaldséðum fiski sem hann fékk á línuna 12. febrúar 2010. Ekki er vitað hvað fiskurinn heitir og enginn sem sáu fiskinn höfðu séð hann áður. Ef þú veist hvaða fiskur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason141
Hestamannamót í Húnaveri sennilega á sjöunda áratugnum
Guðmundur Guðnason208

Réttað í stóðrétt á Spákonufellsrétt 1964. Frá vinstri eru: Stefán Hólm (d.22.7.2018) frá Bakka, Georg Hjartarson (d.13.9.2001) frá Vík, Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum með svipu í hendi, Jón Jónsson (d.9.7.1991) í köflóttri skyrtu og Jónas Skaftason (d.17.11.2017). Maðurinn með hvítu húfuna fyrir aftan Jónas er Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum og síðan Vilberg Jóhannesson (d.6.11.2002). Lengst til hægri, með dökkt hár, er Birgir Þórbjörnsson frá Flankastöðum en við hlið hans með kaskeiti á höfðinu er Sigurjón Jóhannsson (d.7.12.1973) frá Sunnuhlíð. Næst okkur til hægri, með köflótta húfu er Benjamín Sigurðsson (d.30.9.2004) úr Skálholti og bak við hann sér í Jónatan Jónsson (d.17.7.1971) sem bjó í fjárhúsum á túninu fyrir ofan Fellsborg í mörg ár en síðustu æviárin í skúr sem Höfðahreppur reisti honum suður í Mýri.

Guðmundur Guðnason181
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum á spjalli. Til hægri sér í Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) í Reyholti.
Guðmundur Guðnason148
Sumarréttir í Hofsrétt 1965. Á myndinni eru frá vinstri: Óþekktur, Haraldur Árnason, Jón Árnason (d.11.4.1986) Náttbrún (Ólafsvöllum), Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996) Sunnuhlíð, Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) Höfðakoti, Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) Ásholti og óþekktur.
Guðmundur Guðnason135
Guðbergur Stefánsson (d.15.9.1991) frá Kambakoti, seinna í Rjúpnafelli á Skagaströnd, skoðar eyrnamark á lambi í Hofsrétt 1965. Hinn maðurinn á myndinni er Jón Vilhjálmsson (d.31.8.2011) frá Brandaskarði. Stúlkan er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1484
Hundurinn aðstoðar eiganda sinn Björgvin ? við að beita í skúrnum hjá Vík ehf lok nóvember 2012.
Guðmundur Guðnason139
Hofsrétt (gamla) sumarið 1965. Þessi rétt, sem er staðsett norðan við Steinnýjarstaði, var hringlaga, hlaðin úr torfi og grjóti. Hún var byggð í kringum 1940 og enn má skoða rústir hennar þó langt sé síðan hún var síðast notuð.
Guðmundur Guðnason023

Þessi mynd er sú þriðja í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni (d.21.11.1988). Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2545 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen (d. ?) hjálpa Lárusi Jónssyni (d.3.7.1983) lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Hálfnað verk þá hafið er. Hér er Lárus komin hálfa leið yfir milligerðið og ætlar að komast af án hjálpar Ole.

Árni Geir Ingvarsson -safn 2 507
Sævar Hjaltason ríður út á fáki sínum í febrúar 2014.
Guðmundur Guðnason091
Kisi slakar á eftir erfiðan dag - sennilega á eldhúsbekknum í Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason913
Beðið eftir fjársafninu við Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason709
Kári Lárusson frá Ási með tvo til reiðar.
Guðmundur Guðnason765
Krakkarnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Hinrik Jóhannesson frá Ásholti, Guðrún Lárusdóttir frá Ási og Kári Lárusson frá Ási (Sigurbjörn Kári Lárusson).
Guðmundur Guðnason161
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 46
Þröstur Árnason býr sig undir að skera hákarl um borð í Arnari HU 1. Slíkar skepnur koma stöku sinnum í trollið og er þá gert að þeim og inyflunum skilað aftur í lífríkið í sjónum ásamt hausnum. Fiskurinn sjálfur er svo skorinn í stór stykki sem eru fryst í körum í lestinni. Töluverð eftirspurn er eftir hákarlinum af mönnum sem standa í hákarlsverkun og breyta þessum undarlega fiski í umdeilt gómsæti sem þykir ómissandi á þorrablótum landsmanna.
Guðmundur Guðnason087
Flekka með lömbin sín í forsælunni niðri í þurrum skurði. Kindur voru eitt af uppáhalds viðfangsefnum Guðmundar ljósmyndara
Guðmundur Guðnason183
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Inni í dilknum má þekkja Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) frá Sólheimum. Mennirnir, sem standa við grindina og fylgjast með, eru Steingrímur Jónsson (d.15.1.1991) Höfðakoti með ljósa húfu og Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) Blálandi með dökka húfu.
Guðmundur Guðnason202

Réttað í stóðrétt í Spákonufellsrétt. Sennilega 1964.

Guðmundur Guðnason858

Ólafur Bernódusson frá Stórholti með tvo hrúta á hrútasýningu á Skagaströnd um 1960

Guðmundur Guðnason001
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), sem tók þessa mynd, hafði yndi af dýrum. Hann átti nokkrar kindur með Guðna Sveinssyni föður sínum í Ægissíðu. Þessi flekkótta kind með tvö flekkótt lömb gæti hafa heitið Flekka og var í hjörð þeirra feðga.
Guðmundur Guðnason850

Hrútasýning í Húnaveri. Hrútadómar kynntir. Maðurinn sem heldur á töskunni er Halldór Pálsson sauðfjárræktarráðunautur, síðar búnaðarmálastjóri frá Guðlaugsstöðum í Blöndudal (bróðir Björns Pálssonar alþingismanns). Lengst til hægri er Júlíus Jónsson (d. 17.5.1991) á Mosfelli. Næst honum er Ingþór Líndal Sigurðsson (d. 13.10.1998) frá Uppsölum en sköllótti maðurinn er Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur á Blönduósi. Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) frá Holti í Svínadal heldur í hrútinn.

Guðmundur Guðnason856
Drengurinn á myndinni er ?Örn Berg Guðmundsson? en hrúturinn er óþekktur
Guðmundur Guðnason171
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Gylfi Jóhannsson Læjarbakka er lengst til vinstri, Ásgeir Axelsson (d.8.6.11) Litla-Felli er með uppbrettar ermar og Anna Bára Sigurjónsdóttir úr Sunnuhlíð er með skuplu á höfðinu.
Guðmundur Guðnason194
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum á hestbaki í réttunum 1962.
Guðmundur Guðnason167
Dregið í dilka í Stafnsrétt 1963. Til vinstri á myndinni er Grétar Símonarson bóndi í Goðdölum einnig má á myndinni þekkja Steingrím Bergmann Magnússon bónda á Eyvindarstöðum.
Guðmundur Guðnason200
Tekist á við hross í stóðréttum í Spákonufellsrétt. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991). Maðurinn til hægri við hann er Sigmar Jóhannesson ( d. 20.4.2000) og Lárus Árnason í Ási (d.21.5.2011) er lengst til hægri. Jónas Skaftason (d.17.11.2017) er lengst til vinstri. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason146
Í Hofsrétt sumarið 1965. Frá vinstri á myndinni eru: Óþekktur maður, Jón Árnason Náttbrún (d.11.4.1986) (Ólafsvöllum), óþekkt, Guðbergur Stefánsson (d.15.9.1991) Rjúpnafelli (áður Kambakoti), Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996) Sunnuhlíð, óþekktur drengur og Haraldur Árnason frá Litla Bergi.
Guðmundur Guðnason177
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri á myndinni: Rúnar Jósefsson Reykholti, Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir Reykholti, Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) Kárastöðum, Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) Sólheimum, Hrönn Árnadóttir og Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) Reykholti.
Guðmundur Guðnason186
Réttastörfum í Spákonufellsrétt 1969 að ljúka. Ágúst Jakobsson (Gústi púff) (d.1.6.1989) frá Blálandi fylgist með drætti á síðustu kindunum
Guðmundur Guðnason693
Réttað í Spákonufellsrétt. Lengst til vinstri er óþekktur maður, síðan koma bræður frá Vindhæli, Guðmundur Magnússon (d. 3.1. 2010) og Páll Magnússon (d. 12.3. 2011). Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti er maðurinn með skíðagleraugun fremst á myndinni. Til hægri við Ólaf er Baldvin Jóhannsson(d. 1.1.1981) frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason185
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) í Höfðabrekku, uppi á réttarveggnum, talar við Steingrím Jónsson (d.15.1.1992) í Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason915
Óþekktu barn með kött. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason292
Ekki er vitað hvaða hrossarétt er um að ræða á þessari mynd. Maðurinn á miðri myndinni, sem er að benda, er Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), hægra megin við hann er Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) í blárri úlpu. Skeggjaði maðurinn með gleraugun og húfuna er Gunnlaugur Sigmarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern af þeim, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á Kántrýhátíð 2001 var starfrækt hestaleiga. Á myndinni má sjá biðröð við hestaleiguna.
Guðmundur Guðnason316
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Drengurinn í úlpunni fremst á myndinni til vinstri er Guðmundur Kristinsson (Lilli), maðurinn í fjólubláu peysunni til vinstri er Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) frá Háagerði. Fremst á myndinni má sjá baksvipinn á Ólafi Guðlaugssyni (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi í blárri peysu og Hrólfi Jónssyni (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi í ljósum jakka. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason206

Hér er Kristín Sigurðardóttir á Kárastöðum á bakinu á Blesa frá Kárastöðum. Blesi varð mjög gamall og var alla tíð ákaflega barnvænn hestur. Myndin var tekin við Spákonufellsrétt eftir göngur, sennilega árið 1964.

Árni Geir Ingvarsson - safn
Margt var um manninn á Kántrýhátíðinni um verslunarmannahelgina 2001 og margt í boði fyrir hátíðagesti. Meðal annars var hægt að leigja þennan glæsilega tveggja hestafla hestvagn til að koma sér á milli staða í góða veðrinu. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson.
1

9
10
11
12
13
Leita í myndasafninu
Leita