Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason173
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) Höfðakoti, Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) Sólheimum og Stefán Jósefsson Reykholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1259
Þröstur Líndal Gylfason, bóndi á Kjalarlandi, að draga kindurnar sínar í dilk í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason196
<P>Árni Másson frá Réttarholti heldur í hestinn sinn við Spákonufellsrétt eftir göngurnar haustið 1962. Hesturinn var í eigu föður Árna, Más Hall Sveinssonar og hét hann Krummi. </P>
Ólafur Bernódusson 825
Myndin var tekin á Höfðanum 18. maí 2008. Á henni eru nokkrir hrafnsungar í laupnum, en það er hreiður hrafnsins kallað. Krummi leggur mikla vinnu í að útbúa laupinn og skreytir hann gjarnan með litríku plastrusli, vírbútum og öðru sem hann finnur. Hrafnshjónin eru hvert öðru trygg og eru í hjúskap ævilangt. Hann verpir snemma þannig að þegar ungarnir koma úr eggjunum eru aðrir fuglar að byrja að verpa. Þetta kemur sér vel fyrir krumma því hann hikar ekki við að stela eggjum annarra fugla sér og ungum sínum til viðurværis. Annars er hann tækifærissinni í fæðuvali og étur flest sem að goggi kemur. Hrafninn er staðfugl og stærstur spörfugla á Íslandi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1272
Systurnar Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1260
Myndin var tekin af réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Fremst á myndinni er Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey. Vinstra megin við hann er Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka með skegg á spjalli við frístundabóndann Árna Halldór Eðvarðsson með grá húfu. Milli þeirra grillir í Magnús Guðmannsson bónda á Vindhæli. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1258
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst. Tanja Rán Einarsdóttir er til vinstri með svart hárband. Halla María Þórðardóttir er ljóshærð í rauðri úlpu. Linda Rún Einarsdóttir er í hvítri Henson hettupeysu til hægri. Daði Snær Stefánsson er í bláum samfestingi og Árni Halldór Eðvarðsson er með gráa húfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1043
Feðginin Sigurður Bjarnason og Inga Lára Sigurðardóttir hlaupa með hundi sínum 26. ágúst 2007. Í baksýn er fólk að snúast í kringum hrossahóp.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn123
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) með dóttur sína Lilju Bernódusdóttur (d.9.2.2020) að spjalla við verðlaunahrútinn Sóma. Bernódus lagði sig eftir að rækta gott fé og átti marga verðlaunahrúta. Hann seldi töluvert af lömbum á fæti á hverju hausti, einkum hrútum. Myndin var tekin vorið 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1444
Í ágúst 2011 var haldin sýning á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) í íþróttahúsinu. Á þessu málverki hefur Sveinbjörn málað son sinn Magnús Bjarna Blöndal (d.7.9.2001) þar sem hann er við uppáhalds iðju sína þ.e. að ríða út og temja.
Ólafur Bernódusson 965
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara naut af hestbaki. Fenginn var bolakálfur að láni til að snara. Snörnunin gekk vel því tuddi stóð grafkyrr og skipti sér ekkert af hestamanninum. Allt í einu var þó eins og hann áttaði sig og þá tók hann strikið og ruddist gegnum girðinguna sem hróflað hafði verið upp kringum hann, burt frá skarkala hátíðarinnar. Fljótlega náðist hann þó aftur en þá var hann gjörsamlega staður og neitaði algjörlega að láta reka sig. Þá gripu menn til þess ráðs að draga hann nauðugan viljugan inn í girðinguna aftur. Í það verk gengu þeir Magnús B. Jónsson sem togar í halann og Jonny King sem tekur á múlnum. Við þessa aðgerð nutu þeir félagar aðstoðar nokkurra ungmenna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1238
Starahópur á grindverki 22. mars 2012. Starinn (Sturnus vulgaris) er staðfugl á Íslandi frá 1940 þegar hann hóf varp í Hornafirði. Síðan hefur hann orpið víða. Fyrsta varpið, sem vitað er um á Skagaströnd, var rétt fyrir 2000. Starinn er félagslyndur þannig að þeir eru yfirleitt margir saman í hóp. Skemmtilegur og fjörugur fugl sem hermir oft eftir hljóðum úr umhverfinu. Þekkt er dæmi um að hægt sé að kenna honum að tala. Hann étur nánast allt sem honum er gefið t.d matarafganga en er minnst hrifinn af korni eins og snjótittlingum er gjarnan gefið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1362
Myndin var tekin 27. maí 2012 í Nes listamiðstöðinni. Á henni eru að kynnast og leika sér saman, Loppa Laglínudóttir og Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1509
13. nóvember 2011 var hesturinn á myndinni kominn í vetrarhárin og tilbúinn að mæta kuldum vetrarins. Ásdís Birta Árnadóttir gefur honum af sinni innri hlýju með því að klappa honum og spjalla við þennan vin sinn. Í baksýn er fallegasta fjall á Íslandi, Spákonufell.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn115
Á myndinni frá því í mars 1963 eru systkinin Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) og Ólafur Bernódusson að kjassa verðlaunahrútinn Sóma sem faðir þeirra átti. Ólafi var treyst til að passa bæði Lilju og hrútinn þegar honum þurfti að koma milli túna. Sómi var mikil rólyndis skepna þannig að oftar en ekki fékk Lilja að sitja á baki hans meðan þau þrjú röltu milli staða.
Guðrún Þórbjarnardóttir128
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni styður Jón afastrákinn sinn Hobba eða Þorbjörn Jensson á hestbaki
Guðrún Þórbjarnardóttir124
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Ekki er vitað hver maðurinn á hestinum er en það gæti verið sonur Jóns, Jens Jónsson (d.7.12.1975).
Ólafur Bernódusson 966
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara bolakálf af hestbaki. Tuddi var ekkert meira en til í að taka þátt í atriðinu og strauk úr girðingunni. Honum var þó fljólega náð aftur og farið með hann í girðinguna. Á myndinni heldur Vilhjálmur Skaftason í tudda meðan skepnan róar sig niður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1458
Myndin var tekin 11. september 2011 af Hallgrími Hjaltasyni bónda á Skeggjastöðum 2 á hesti sínum við smölun.
Selma P. Jónsdóttir 29
Þetta jólakort með snjótittlingum er gerði Selma P. Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Guðrún Þórbjarnardóttir167
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Matthías Sigursteinsson á hestbaki á Blönduósi 1960.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 16
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Á þessari mynd er Ragnar S. Ingvarsson að laumast að lundum í lundabyggð einhversstaðar. Ragnar hefur líklega verið áhafnarmeðlimur á Auðbjörgu Hu 6 þegar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1690
Ingvar Jónsson (d.18.1.2002) í Sólheimum með hestinn sinn og barn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert barnið er.
Ólafur Bernódusson 1037
Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen skoðar hnúfubak sem dregin var til hafnar á Skagaströnd á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Bægslin á hnúfubak eru mjög stór og gjarnan eru á þeim stórir hrúðurkarlar eins og líka má sjá á trjónu hvalsins.
Ólafur Bernódusson 947
Á árum áður var laxveiði í Blöndu stundum með öðrum veiðarfærum en nú í dag. Þá var áin kolmórauð enda Blönduvirkjun ekki til. Veitt var með stórum spón og laxinn húkkaður í 99 % tilvika. Á myndinni er verið að landa einum en til þess var notuð ífæra með stórum krók. Maðurinn er óþekktur.
Selma P. Jónsdóttir 23
Mynd frá Þingvöllum á jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Óþekktur ljósmyndari620
Jakob Pálsson (d.14.2.1955) á Karlsminni á hesti sínum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1035
Í ágúst 1998 drógu Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson dauðan hnúfubak til hafnar á bát sínum Benna Ólafs. Daginn eftir var hvalurinn dreginn upp í fjöru og tveir starfsmenn frá Hafrannsóknarstofnun komu til að skoða hann og taka úr honum sýni. Hvalurinn vakti mikla athygli og margir komu og skoðuðu hann í fjörunni. Á myndinni er starfsstúlka frá Hafró, til hægri á myndinni í sjóbuxum, að taka húðsýni og margir krakkar fylgjast með. Annar starfsmaður er í grænum stígvélum til vinstri á myndinni. Mennirnir tveir, hinum megin við hnúfubakinn, eru séra Guðmundur Karl Brynjarsson í ljósri peysu og Gunnlaugur Sigmarsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir099
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er hestur Jóns, Bleikur, tilbúinn að flytja eiganda sinn á milli bæja.
Erla B. Axelsdóttir 1
Þetta jólakort gerði Erla B. Axelsdóttir 1983. Erla B. Axelsdóttir (12.4.1948) var við nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og í Skidmore College í Saratoga Springs New York. Erla hefur haldið tugi einkasýninga og sýnt verk sín á fjölmörgum samsýningum bæði á Íslandi og erlendis.
gunnar033
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er verið að landa myndarlegum blöðrusel úr Húna Hu 1 á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason198
Kindur voru eitt af uppáhalds myndefnum Guðmundar Guðnasonar, sem tók þessa mynd. Myndin var tekin af fé í dilk í Spákonufellsrétt 1962.
Arnar HU 1 - safn 71
Beinhákarl er ekki vinsæll meðafli á Arnari Hu 1. Erfitt er að ná þessari risaskepnu úr trollinu. Ráðið er að skera gat á belginn og hífa hann úr og í sjóinn aftur. Ekki vilja menn fá hann niður í móttöku enda er lifrin úr þessari friðsemdar skepna ekki nýtt lengur. Á myndinni er búið að ná hákarlinum úr trollinu ásamt nokkru af karfanum í trollinu og karlarnir eru að bisa við að koma honum í sjóinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) (Tóta á Akri) með klárinn sinn. Myndin var sennilega tekin vestur í Kúvíkum þar sem Þórunn bjó áður en hún fluttir til Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1255
Gangnamenn reka hluta af safninu eftir þjóðveginum til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gangnamennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 787
Á myndinni, sem tekin var 18. ágúst 2006, hvílast vinirnir Sigurður Jónsson og Kisi á tröppunum við heimili sitt í Fjallsminni.
Guðmundur Guðnason703
Réttastörf í Hofsrétt?. Konan fremst á myndinni er Árný Magnúsdóttir frá Sunnuhlíð. Maðurinn í köflóttu peysunni til vinstri er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum. Rauðhærði strákurinn á myndinni er Óskar Jóhannesson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1462
Börn í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Frá vinstri Almar Atli Ólafsson, systir hans Harpa Hlín Ólafsdóttir og Ólafur Halldórsson.
Guðmundur Guðnason320
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Maðurinn á miðri mynd er Konráð Klemensson (d. 20.11.1981) frá Garðhúsum/Konnabænum en maðurinn til vinstri er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir. Um Konráð orti Kristján Hjartarson frændi hans: "Aldurhniginn, axlasiginn einn ég þekki mann, árans stritið, ekki vitið er að drepa hann".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1256
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli er í bláröndóttri peysu en aftan við hann sér í son hans Guðmann Einar Magnússon. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir með bróður sinn Loga Hrannar Jóhannsson, Victoria Sif Hólmgeirsdóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1170
Feðgarnir Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri í réttinni við Vindhæli 10. september 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 740
Myndin var tekin í réttinni við Vindhæli 10. sept 2005. Á henni eru Einar Guðmannsson til vinstri og föðurbróðir hans Guðmundur Einarsson bóndi á Vindhæli til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir147
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Jens Jónsson (d.7.12.1975) með tvö af börnum sínum. Hobbi (þorbjörn Jensson) situr á kúnni Bót og systir hans Karen styður við hann. Myndin var tekin í túninu við Réttarholt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1261
Systurnar frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri, í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Guðrún Þórbjarnardóttir050
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er fjársafn skagstrendinga rekið síðasta spölinn heim að Spákonfellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn550
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból skoða hnúfubakskálf í fjörunni hjá hafnarvigtinni í ágúst 1998. Krakkarnir eru frá vinstri: Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, tveir óþekktir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir starfsmaður, þrjú óþekkt börn og Guðrún Hrólfsdóttir starfsmaður. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1461
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Fólk á fullu að draga fé sitt í dilka. Fólkið er, frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson og Elva Þórisdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1065
Vinkonurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Sigríður Stefánsdóttir til hægri á göngu með hundinn hennar Helgu 22. apríl 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1257
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emelíu Marey Einarsdóttur í fanginu í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst.
Guðrún Þórbjarnardóttir129
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er konan hans, Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970), að gefa heimiliskúnni Bót eitthvað til að maula. Maðurinn og stúlkurnar í baksýn eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 1039
Á ágústkvöldi 1998 drógu félagarnir, Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson, hnúfubak til lands á bát sínum Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin morguninn eftir þegar þeir félagar voru að undirbúa að draga hvalinn upp í fjöru. Guðmundur stendur á lunningunni en hjá honum er dóttir hans Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Eins og sjá má var hvalurinn álíka langur og báturinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1035
Pétur Eggertsson og Snati hvíla lúin bein á bekk á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Bjarni Jónsson 1
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, ekki er vitað hvenær hann gerði myndina. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 48
Þessi mynd Bjarna Jónssonar rataði á jólakort, líklega árið 1984. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Guðrún Þórbjarnardóttir130
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Kristín Eva ?? og hundurinn Kobbi (Kóbbi). Ef þú veist hver Kristín Eva er vinsamlega sendu okkur þá athugsemd.
Bjarni Jónsson 30
Jólakort eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1036
Tveir starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar taka sýni úr 8 metra löngum hnúfubakskálfi sem Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson drógu til hafnar á bát sínum Benna Ólafs Hu í ágúst 1998.
Ólafur Bernódusson 1044
Kúrekinn Hallbjörn J. Hjartarson - faðir Kántrýhátíðanna - kom ríðandi með hópreið hestamanna að sviðinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Þar fór hann af baki og hóf að skemmta gestum af sviðinu. Hjá honum á myndinni er hestamaðurinn Jóel Berg Friðriksson.
Bjarni Jónsson 46
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd, sem var á jólakorti, líklega 1979. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
1
…
9
10
11
12
13
Leita í myndasafninu
Leita