Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Selma P. Jónsdóttir 4
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Gréta 119
Ekkert er vitað um þessa mynd nema að aftan á henni stendur "Jonni". Miðað við umhverfið gæti hún hafa verið tekin einhversstaðar erlendis. Ef þú veist eihhvað um "Jonna" eða hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 369
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, slær túnið sitt með hestasláttuvél með tveimur hestum beittum fyrir. Myndin var líklega tekin kringum 1965.
Ljósmyndakeppni 2022 50
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ljósmyndakeppni 2022 75
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi inn í flokkinn "Heimili".
2001092
Myndin var líklega tekin veturinn 1995 sem var óvenju snjóþungur og illviðrasamur. Á henni er Guðmundur J. Björnsson að moka með gröfunni sinni ofan af þökum húsa á Brandaskarði en þau fóru oftar en einu sinni á kaf í snjó þennan vetur. Á myndinni er Guðmundur búinn að finna þakskeggshorn á einu húsanna undir vökulu auga heimilishundsins.
Gréta 044
Myndin var tekin á hlaðinu við Laufás. Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) bóndi i Háagerði er um það bil að stíga á bak. Yfir lendar hestsins sést í Sigurð Guðmundsson (d.2.12.1984) smið í Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1533
Náttúran er söm við sig. Á myndinni eru kettir að maka sig. Þeir verða kynþroska við 7 -12 mánaða aldur en meðganga katta er 63-65 dagar. Meðalfjöldi kettliga í goti er fjórir en þeir geta átt sinn hvorn föðurinn því þegar læða er breima þá losna mörg egg og hvert þeirra getur verið frjóvgað af mismunandi fressum. Kettlingarnir fæðast blindir og eru algjörlega bjargarlausir fyrstu 10 - 12 dagana. Meðalaldur heimiliskatta er 14 ár þó að það þekkist að þeir verði yfir 20 ára gamlir. Villikettir lifa yfirleitt ekki lengur en tvö til þrú ár.
Gréta 086
Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Aðalheiður Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum, Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) Laufási, Jóhanna Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum og Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og hestarnir eru nafnlausir. Ef þú veist hver Þórey er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn648
Langt er síðan þessi mynd var tekin milli við Grundar og Hjallholts. Á henni eru fjórir kettir í makindum, sem virðast vera ljósrit hver af öðrum. Í baksýn má sjá húsið Drangey, sem nú er horfið, til vinstri og Ásgarð til hægri.
Gréta 048
Á myndinni er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) í Laufási með hundinn sinn, Snata. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn490
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Þá fór hluti nemendanna á hestbak í gerði vestan við Spákonufellsrétt. Á myndinni eru, frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson sem teymir undir Dóru Rebekku Sævarsdóttur. Stúlkan í hvíta jakkanum er Eygló Amelia Valdimarsdóttir og lengst til hægri er Eva Rún Rúnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson1234
Þessi undarlegi fiskur - sæsteinsuga - kom upp í rækjutrolli. Hún er undarleg því hún hefur enga kjálka en kjafturinn á henni myndar kringlótta sogskífu og þegar hann flest út koma í ljós fjöldi lítilla beittra tanna. Þær notar hún til að festa sig við aðra fiska og gefur síðan frá sér efni sem kemur í veg fyrir að blóð fórnardýrsins storkni. Blóðið sýgur hún svo í sig og getur gengið að minni fiskum dauðum með því að sjúga úr þeim svo mikið blóð. Hún lifir í sjó frá 2 metra dýpi niður á 1100 metra. Þær ganga upp í ósalt vatn til að hrygna en drepast eftir hrygninguna. Þær geta orðið allt að 100 cm langar en yfirleitt eru þær 60 - 90 cm langar. Hér áður fyrr voru þær étnar í Evrópu og þóttu lostæti. (heimild: https://www.hafogvatn.is/is/sjavardyr/saesteinsuga)
Gréta 078
Anna Gísladóttir (d.22.7.1998) frá Neðri Harrastöðum klappar dráttarklár á hlaðinu við Laufás. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 14
Guðmundur Viðar Guðmundsson ríður út í fjörunni sunnan við Hólanesið. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
Ljósmyndakeppni 2022 53
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Berglind Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ljósmyndakeppni 2022 87
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
1
…
9
10
11
12
13
Leita í myndasafninu
Leita