Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Dýr

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason022

Þessi mynd er sú þriðja í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Á þessari mynd réttir Ole Lárusi hjálparhönd og klifrið hefst yfir milligerðið. Drengurinn sem fylgist sposkur með er óþekktur.

Guðmundur Guðnason091
Allt klárt fyrir vígslu Höfðaskóla haustið 1958. Jón Sölvason (d. 17.8.1969) frá Réttarholti er gráhærði maðurinn lengst til vinstri en Strákurinn til hægri er Rúnar Jósefsson úr Reykholti.
Guðmundur Guðnason001
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason995
Séð heim að Spákonufellsrétt meðan beðið er eftir fjársafninu af fjalli. Fremst á myndinni er efnistökukrús sem seinna var fyllt upp .
Guðmundur Guðnason131
Aftan á þessari mynd stendur: "Þetta erum við hjónin og hundurinn". Þá er bara spurningin hver eru hjónin? Myndin virðist vera tekin erlendis en það er þó ekki víst. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason090
Sjónvarpsöldin gengin í garð. Í sjónvarpinu er séra Ólafur Skúlason. Takið eftir að sjónvörpin eru tvö.
Guðmundur Guðnason093

Maðurinn til vinstri er Sigurjón Jóhannsson (d. ?) frá Sunnuhlíð en ungi berhöfðaði maðurinn er Jón S. Pálsson frá Breiðabliki. Á myndinni eru þeir að setja hrúta á bíl - eða taka þá niður - sennilega vegna hrútasýningar. Líklega var bíllinn í eigu Sigurjóns.

Guðmundur Guðnason143
Hesti hleypt á hestamannamóti í Húnaveri sennilega á sjöunda áratugnum. Knapi og hestur óþekktir.
Guðmundur Guðnason140
Í Hofsrétt sumarið 1965. Gígja Axelsdóttir frá Litla -felli og Jón Sigurðsson bóndi á Árbakka, tengdasonur Eggerts Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sigfúsdóttur konu hans í Sólheimum.
Guðmundur Guðnason151
Aftan á þessari mynd stendur: "Ferð á Hnjúkshnjúk". Torfi Sigurðsson frá Mánaskál er sitjandi lengst til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason027
Hér er Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri með tvo til reiðar, sennilega á hlaðinu á Jaðri.
Guðmundur Guðnason024

Þessi mynd er sú síðasta í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2545 og 2546. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Lárus á síðustu metrunum með að komast yfir milligerðið. Eitthvað hefur það gengið brösuglega a.m.k. hefur hann misst hattinn og Ole er glottaralegur við að aðstoða Lárus.

Guðmundur Guðnason141
Fjársafnið að koma af fjalli til að verða réttað í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason146
Árni Kristófersson (d.11.10.1982) Árnesi á spjalli við óþekktan mann í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason194
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Á myndinni er verið að brjóta málin til mergjar. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason172
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Maðurinn með hattinn er Páll Jónsson skólastjóri, Rúnar Ingvarsson er í ljósu peysunni og maðurinn með sixpensarann er Eggert Skarphéðinsson úr Sólheimum.
Guðmundur Guðnason021

Hólmfríður Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli

Guðmundur Guðnason160

Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Mennirnir sem standa við réttarveggin eru Markús Sigurjónsson bóndi á Reykjarhóli til vinstri og Kristinn Helgason áður bóndi á Íbishóli til hægri.

Guðmundur Guðnason200
Bjarnarhöfn eða Bankastræti 8. Til vinstri sér í fjós Kárastaðabræðra.
Guðmundur Guðnason164

Í Stafnsrétt 1963. Guðmundur Guðmundsson (d. 29.8.1976) bóndi að Fossum er sá sem er með höndina í fatla. Hinn maðurinn er Baldur Sigurðsson frá Vesturhlíð í Lýtingsstaðahreppi.

Guðmundur Guðnason205
Spáð í spilin í stóðrétt í Spákonufellsrétt 1964. Uppi á réttarveggnum situr Gunnlaugur Sigmarsson. Maðurinn lengst til hægri er Pálmi Sigurðsson úr Pálmalundi (Hólabraut 27), næst honum kemur baksvipur Einars Haraldssonar úr Dagsbrún, þá kemur Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð. Maðurinn í úlpunni með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum en maðurinn í mittisjakkanum með hvíta húfu er Árni Kristófersson úr Árnesi. Maðurinn lengst til vinstri er líklega Ingvar Sigtryggsson. Aðrir eru óþekktir
Guðmundur Guðnason174
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Kári Kristjánsson frá Kárastöðum skyggnist um eftir fé sínu.
Guðmundur Guðnason050
Þessi knapi, sem er óþekktur, er á afar fjölsóttu hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Guðmundur Guðnason201
Stóðréttir í Spákonufellsrétt. Frá vinstri í almenningnum eru: Georg Hjartarson frá Vík (d.13.9.2001), Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum (d. 10.9.1989), Kristinn Guðmundsson úr Bræðraborg (d. 1.12.1986), Sævar Hafsteinsson, Óskar Jóhannesson og Pétur Jóhannsson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason214
Óþekktur knapi á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason202
Þessi mynd af systrunum í Skálholti var sennilega tekin um 1960. Frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Benjamínsdóttir (d. 10.6.1999) og Sóley Benjamínsdóttir. Foreldrar þeirra voru Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) og Lára Loftsdóttir (d. 21.4.2010).
Guðmundur Guðnason071
Aftan á þessari mynd stendur: "Sverrir Haraldsson og 3 strákar. Myndin tekin á Litla-Vatnsskarði". Fleira er ekki vitað um myndina en ef þú veist hvaða stráka er um að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason223
Þetta er tekið í Stafnsrétt sennilega 1968. Maðurinn fremst á myndinni er Halldór Sigurðsson gullsmiður og hrossaræktandi í Stokkhólma í Skagafirði.
Guðmundur Guðnason103

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Frá hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Brúnn Georgs Agnarssonar". Mennirnir á hliðarlínunni eru Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) frá Bollastöðum nær og Þorkell Sigurðsson (d. 7.10.2008) á Barkarstöðum
fjær.

Guðmundur Guðnason319
Réttað í Spákonufellsrétt. Rauðhærði drengurinn í grænu peysunni er Guðmundur Viðar Guðmundsson en drengurinn til vinstri við hann er Heimir Sigmarsson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason210
Skrautreið um keppnissvæðið á Hvammsbökkum við kappreiðar 1961. Mikill fjöldi gesta fylgist með því sem fram fer.
Guðmundur Guðnason039
Hross réttuð í Spákonufellsrétt. Maðurinn, sem ber yfir bakið á skjótta hestinum fremst á myndinni, er Páll Jóhannesson frá Sunnufelli ( Sunnuvegur 3) . Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason136
Sumarréttir í Hofsrétt 1965. Fénu var smalað til réttar um mitt sumar til að rýja það. Á myndinni bera saman bækur sínar Lúðvík Kristjánsson frá Steinholti (með sígarettu), Lárus Árnason í Ási og Björn Sigurðsson á Jaðri sem snýr baki í myndavélina.
Guðmundur Guðnason038
Guðrún Árnadóttir líklega 1963.
Guðmundur Guðnason145
Sumarréttir í Hofsrétt 1965 -rúningur. Stúlkan á myndinni er Kristín Sigurðardóttir, maðurinn með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson, sem er að rýja kind en Jónína Valdimarsdóttir heldur í kindina. Öll áttu þau heima á Kárastöðum á Skagaströnd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn002
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) með verðlaunahrútinn Sóma. Ólafur Bernódusson hjálpar til að halda við Sóma. Myndin er tekin ca 1960 í fjárhúsunum við Bjarmaland.
Guðmundur Guðnason135
Flekkótt kind með tvö flekkótt lömb. Ekki er ólíklegt að Guðmundur ljósmyndari hafi átt þessa kind og þótt hún falleg enda var hann áhugamaður um sauðfé. Myndin var tekin á túninu við Ægissíðu þar sem Guðmundur átti heima.
Guðmundur Guðnason028
Ásgeir Axelsson bóndi á Litla-Felli á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason087
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær myndin var teklin.
Guðmundur Guðnason996
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti (Óli í Braut) í svörtum frakka með skinnhúfu spjallar við Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum undir réttarvegg í Spákonufellsrétt. Takið eftir réttarpelanum í úlpuvasa Sigurbjörns og svipunni í stígvélinu. Stúlkan á myndinni er Kristín Sigurðardóttir sem ólst upp á Kárastöðum. Strákurinn á hjólinu er óþekktur.
Guðmundur Guðnason133
Réttarstörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn með skeggið er Jónatan Jónsson. Maðurinn lengst til hægri er líklega Björn Helgason frá Læk. Aðrir eru óþekktir og ártalið er ekki vitað.
Kári Kristjánsson 046
Kári Kristjánsson (f. 5.12.1914 - d. 11.12.1990) frá Kárastöðum í réttunum. Fyrir aftan hann sést í Hartmann Jóhannesson.
Guðmundur Guðnason023
Af einhverjum ókunnum ástæðum hafa þessir menn límt á sig gerviskegg. Lengst til hægri er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu en hinir tveir eru óþekktir. Ef þú veist hverjir þeir eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason161

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Frá Hestamannamóti á Vallabökkum í Skagafirði". Fleira er ekki vitað um myndina.

Guðmundur Guðnason138
Guðbergur Stefánsson frá Kambakoti, seinna í Rjúpnafelli á Skagatrönd, við réttarstörf í Hofrétt 1965.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn028
Henry Kristjánsson (d.22.6.1972) frá Kárastöðum á hrútasýningu við fjárhúsin í Bjarmalandi. Myndin er tekin einhverntíma kringum 1960.
Guðmundur Guðnason097
Kindur á túni fyrir vestan Sænska húsið (Hólabraut 23), sem sést í baksýn. Líklega eru þetta kindur sem Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967) í Baldursheimi átti því hann átti fjárhús þarna. Nú eru á þessu svæði tvö hús; Hólabraut 21 og Hólabraut 19. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason139
Er þetta Konráð Guðmundsson úr Garðhúsum (Konnabænum) ? Ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason165
Hjónin frá Réttarholti; Þorbjörg Halldórsdóttir (d. 30.6.1970) og Jón Sölvason (d. 17.8.1969). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var tekin framan við Flankastaði (Bankastræti 7) en þar bjó Þórbjörn sonur þeirra með sína fjölskyldu.
Guðmundur Guðnason152
Í Hofsrétt sumarið 1965. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Árnason Náttbrún (Ólafsvöllum), Lárus Árnason Ási og Páll Jóhannesson Sunnuvegi 3. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jón Sigurðsson (f:14.4.1927, d:1.9.1983) sem um tíma bjó á Árbakka.

Guðmundur Guðnason074
Sigurður Þorbjörnsson frá Akurgerði á fermingardaginn sinn 1967.
Guðmundur Guðnason196

Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.

Guðmundur Guðnason156
Björn Jónsson Gili Svartárdal með tvo til reiðar í Stafnsrétt 1963.
Guðmundur Guðnason207

Stóðrétt í Spákonufellsrétt árið 1964. Brosandi maðurinn með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum (d. 10.9.1989). Stefán Hólm og Georg Hjartarson eru fyrir miðri mynd. Maðurinn í dökku peysunni er líklega Ásgeir Axelsson og aðeins nær til hægri við hann er Sigmar Jóhannesson á ljósri blússu. Til hægri, utan við dilkdyrnar í miðjunni, sér á dökkan kollinn á Pálma Sigurðssyni. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason183
Guðmunda Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum.
Guðmundur Guðnason150
Sigurður Kristinsson úr Bræðraborg í Hofsrétt sumarið 1965. Konan er Guðlaug Eggertsdóttir (f:15.2.1946 , d:23.7.2011) sem bjó um tíma á Árbakka.

Guðmundur Guðnason209
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Á myndinni er Kristinn Jóhannsson glaðbeittur við vinnu sína við að taka gærur af skrokkunum. Bak við hann sér í Bjarna Loftsson að rista fyrir.
Guðmundur Guðnason163

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Sigurður Ísólfsson við orgel Skálholtsdómkirkju". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.

Guðmundur Guðnason208
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Ræsing. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason159
Þessi mynd er frekar óskýr en maðurinn á myndinni er sennilega Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu.
1
2
3
4
5

13
Leita í myndasafninu
Leita