Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Dýr

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason123
Óþekktur maður í réttum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason312
Fé rekið til réttar í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason148

Aftan á þessari mynd af fjórum konum stendur : Frá v. Kamilla frá Dalvík, 2. Sigrún Ármannsdóttir, 3. ?, 4. Sigríður frá Dalvík. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason171
Óþekkt barn að róla sér í útbænum undir stjórn barnapíu . Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Guðmundur Guðnason251
Íslenskur hundur fyrir utan Stóra Berg, sem nú er horfið. Í baksýn sér í Iðavelli. Þetta var Skúmur sem Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) átti en hann bjó á Stóra Bergi.
Guðmundur Guðnason225

Verðlaun afhent á hestamannamóti. Maðurinn sem er að taka við verðlaunabikarnum er Friðgeir Jóhannsson frá Ósi á Skaga (bróðir Kristinn Jóhannssonar á Skagaströnd). Maðurinn sem afhendir bikarinn er Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1963 -1965 á skeiðvellinum við Húnaver.

Guðmundur Guðnason199
Í Spákonufellsrétt sennilega sumarið 1961. Þá tíðkaðist að smala fé til réttar um mitt sumar til að rýja kindurnar. Feðginin frá Ólafsvöllum, Jón Árnason og Ingiríður Jónsdóttir eru að rýja.
Guðmundur Guðnason216

Mynd frá kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Mennirnir á myndinni eru Þorkell Sigurðsson frá Barkarstöðum í Svartárdal og Ingólfur Bjarnason frá Bollastöðum.

Guðmundur Guðnason162
Réttastörf í Stafnsrétt 1963.
Guðmundur Guðnason173
Hér er hópur Skagstrendinga í heimsókn í ókunnri kirkju. Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) er annar frá vinstri, Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.2992) er fimmti frá vinstri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) kona hans er í hvítri kápu með veski. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er í miðjunni og leiðir tvo drengi. Við hlið drengsins hægra megin eru hjónin Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) er lengst til hægri. Aftast lengst til hægri er Hallbjörn Hjartarson en þriðja frá hægri í þeirri röð er Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason224
Óþekktur knapi á fjölsóttu hestamannamóti. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason166
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn til vinstri, með derhúfu, er Magnús Indriðason frá Húsey. Þriðji frá hægri er Jakob Sigurðsson (d. 27.5.1991) frá Steiná síðar á Hóli. Til hægri er Ottó Þorvaldsson frá Víðimýrarseli og teymir hyrnda kind.
Guðmundur Guðnason191
Réttað í Spákonufellsrétt haustið 1962.
Guðmundur Guðnason186
Þessi mynd var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Á myndinni er réttarstörfum að ljúka og fólk er að skoða hross og spá í lífið og tilveruna. Guðmundur Ó. Guðmundsson er fjórði frá vinstri í ljósum buxum. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason167
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason170
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri eru: Óskar Jóhannesson, Kári Lárusson frá Ási, Frits M.Bjarnason Bjargi og bak við hann grillir í Jóhannes Hinriksson frá Ásholti.
Guðmundur Guðnason189

Sorg ríkti á Skagaströnd í september 1962 eftir að Íris Jónsdóttir drukknaði í Skagastrandarhöfn. Hafði hún ekið bíl sínum í höfnina og komst ekki út úr honum. Á þessari mynd er verið að bera kistu Írisar til kirkju eftir húskveðju á heimili hennar. Líkmennirnir eru frá vinstri: Gunnlaugur Árnason, Sigurjón Magnússon, Sigmundur Magnússon, Jón Jónsson, Bjarni Loftssson og Gunnar Albertsson. Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjalddsson.

Guðmundur Guðnason328

Aftan á þessari mynd stendur skrifað :" Þessi mynd er tekin af Ingva og er af Birni Karlssyni á fótfúna skjóna 28. Á. 35" . Myndin virðist vera tekin í Laxárdal.
Guðmundur Guðnason445
Kári Kristjánsson (d. 11.,12.1990) frá Kárastöðum ríðandi á Bjargs-Grána.
Guðmundur Guðnason185

Fyrirtæki á Skagaströnd tóku þátt í sýningu í Reykjavík þar sem þau kynntu starfssemi sína og framleiðsluvörur. Á þessari mynd er Vigdís Finnbogadóttir forseti að smakka á framleiðsluvörum Marska. Adolf Berndsen er í baksýn í köflóttri peysu innan undir jakkanum.

Guðmundur Guðnason318
Drengirnir á myndinni taka sér hvíld frá réttarstörfunum. Til vinstri er Bergur Jón Þórðarson en til hægri er Óskar Þór Kristinsson.
Guðmundur Guðnason304
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn á miðri mynd er Garðar Stefánsson ( d. 14.3.1999) frá Kúskerpi. Til vinstri í bakgrunninum er Björg Bjarnadóttir í ljósri lopapeysu og Finnbogi Jónsson í köflóttri skyrtu og regnbuxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason195
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum og óþekkt stúlka á hestbaki við Spákonufellsrétt 1962.
Guðmundur Guðnason517
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) hressir sig á einum snapsi í Vindhælisrétt.
Guðmundur Guðnason511
Fjársafnið kemur af fjalli í Spákonufellsrétt á gangnasunnudegi 1958.
Geirfugl
Mynd af geirfugli og sagan um hvenær sá síðsti var drepinn. Geirfugl var stór fugl allt að 70 cm hár og 5 kg en ófleygur og því auðveld bráð. Hann gaf 1,5 kg af kjöti auk fitu og lýsis og var því mikilvægur afli fyrir margan fátæklinginn. Ekki er vitað hvenær þetta póstkort var gefið út en það gerði Helgi Árnason (26.11.1974 - 24.10.1954). Um hann er sagt í "Íslenskar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940" : "..... var um skeið mesti póstkortaútgefandi á Íslandi....."
Guðmundur Guðnason178
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðni Sveinsson Ægissíðu (d.15.11.1971), Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d. 2.6.1987) og óþekktur maður.
Guðmundur Guðnason215

Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Á þessari mynd sést óþekkt kona þvo kjötskrokk sem síðan er rúllað áfram eftir brautinni í loftinu yfir í annan sal þar sem skrokkarnir voru kældir, metnir, stimplaðir og settir í sérstaka grisjupoka áður en þeir voru frystir. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Soffía Sigurðardóttir í Valhöll, sést aðeins í andlit Magnúsínu ? í Grund. Guðrún Angantýsdóttir þvær skrokk.

Guðmundur Guðnason190
Myndin var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Réttarstörfum er líklega lokið og menn að undirbúa heimferð. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason182
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Eggert Skarphéðinsson frá Sólheimum skoðar mark á kind. Maðurinn til hægri er Ingvi Guðnason en á milli þeirra er drengurinn Magnús Blöndal.
Guðmundur Guðnason184
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Drengurinn á myndinni er Guðmundur Viðar Guðmundsson en baksvipinn á Ágúst Jakobsson Blálandi.
Guðmundur Guðnason193
Réttað í Spákonufellsrétt 1962. Páll Jóhannesson er maðurinn í ljósu úlpunni með svartan kraga. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason306
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn með ljósu húfuna er Garðar Stefánsson (d. 14.3.1999) frá Kúskerpi, Magdalena Jónsdóttir (d.3.4.1972) frá Sölvabakka er stúlkan á miðri mynd og Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta - Gili er í blárri peysu hægra megin við hana. Stefán Ágústsson (d.22.11.1989) frá Ytri - Ey er á myndinni í bakgrunni og einnig Hallgrímur Einarsson (d.3.4.1998) frá Neðri - Mýrum. Milli Magdalenu og Frímanns sér í Þorstein Hafþórsson Blönduósi í rauðum vatnsbuxum.
Guðmundur Guðnason176
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri á myndinni eru: Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir Reykholti, Kári Kristjánsson Kárastöðum og Sigurður Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason157
Fólkið á kóræfingunni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason180
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Ljóshærði drengurinn í lopapeysunni er Kjartan Bjarnason frá Holti. Maðurinn með hendur í vösum er Sigmar Jóhannesson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason158
Tvær vaskar konur í Stafnsrétt 1963. Sigurbjörg Stefánsdóttir til vinstri og Þóra Sigurðardóttir frá Hvammi til hægri.
Guðmundur Guðnason177

Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni sem var eðlilega á þjóðlegum nótum með glímusýningu og menn gengu um klæddir að hætti fornmanna eins og þessir tveir óþekktu kappar. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.

Guðmundur Guðnasonr682
Réttarstörf í Hofrétt. Maðurinn sem sést aftan á lengst til hægri er Bernódus Ólafsson en maðurinn með húfuna er Henrý Kristjánsson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason181
Fólkið í þessum sönghópi er talið frá vinstri: Jóhanna Björnsdóttir frá Gili, Sigurjón Stefánsson Steiná, Sigfús Guðmundsson frá Eiríksstöðum, Friðrik Björnsson Gili og Sigurbjörg R. Stefánsdóttir. Myndin var tekin þegar karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt tónleika á Húnavöku. Ártalið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason188
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri:. Pétur Sigfússon bóndi í Álftagerði Seyluhreppi, Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð í Svartárdal og Jónas Haraldsson á Völlum í Skagafirði sem skoðar markið á hrossinu. Sá með gleraugun er Björn Eysteinn Jóhannesson bóndi í Stokkhólma í Vallhólmi. Ljósklæddi maðurinn til hægri er Guðmundur Ó. Guðmundsson en hann var um skeið skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Guðmundur Guðnason149
Í Hofsrétt sumarið 1965. Hrönn Árnadóttir hjálpar Ingu Jónsdóttur í Náttbrún (Ólafsvöllum) að finna kindurnar sínar í safninu. Strákarnir á réttarveggnum eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason147
Ungu mennirnir á réttarveggnum í Hofsrétt sumarið 1965 eru Bergur Jón Þórðarson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason315
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Maðurinn sem er að draga kind á miðri mynd er Páll Jóhannesson. Maðurinn til hægri í köflóttu skyrtunni er Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) og lengst til hægri, með hatt, er Konráð Klemensson (d. 20.11.1981) frá Garðhúsum - Konnabæ. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason302
Réttastörf - líklega í Skrapatungurétt. Maðurinn sem stendur uppi á réttarveggnum og myndar er Sigurður Jónsson en drengurinn lengst til vinstri er Auðunn Sigurðsson sonur hans sem er að tala við Bjarna Snorrason frá Sturluhóli. Maðurinn sem sést aftan á, í gulum bol, er Valdimar Guðmannsson frá Bakkakoti. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason218
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Maðurinn lengst til hægri er Ólafur Ólafsson (d. 4.8.2001) frá Kambakoti. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason192
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason204
Hjónin Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg bíða komu Kristjáns Eldjárn forseta Íslands í opinbera heimsókn til Blönduóss 1969. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason198
Fjársafnið rennur til réttar í Stafnsrétt 1969. Maðurinn er óþekktur.
Guðmundur Guðnason317
Þessi skúr var við Spákonufellsrétt. Þarna seldu kvenfélagskonur gjarnan kaffi og með því á réttardögum. Skiltið málaði Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og hafði Ólaf Guðmundsson (d.6.10.1985) frá Brautarholti sem fyrirmynd.
Guðmundur Guðnason206
Handtak á fjöllum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin og mennirnir á henni eru líklega Konráð Guðmundsson í Garðhúsum til vinstri og Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) úr Miðnesi til hægri.
Guðmundur Guðnason213
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Ágúst Jakobsson frá Blálandi til vinstri og Henry Kristjánsson frá Kárastöðum herða að gærunni eftir að hafa saltað hana og brotið saman á ákveðinn hátt. Gærurnar voru geymdar saltaðar og seldar þannig til fullvinnslu.
Guðmundur Guðnason220
Hestarnir teknir til kostanna á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason330
Þessi mynd sýnir réttarstörf í Mjóadalsrétt en sennilega var hún tekin um mitt sumar þegar verið er að rýja féð. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason222

Þessar konur eru á leið upp veginn frá Fossá, en sá vegur lá til Stafnréttar. Myndin var sennilega tekin 1968.

Guðmundur Guðnason522
Þorkell Magnússon úr Goðhól (d. 30.8.1968) dregur lamb í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason514
Réttastörf í Vindhælisrétt. Frá vinstri: Ingvi Guðnason Valhöll (d. 31.12.1991), Ólafur Jónasson Syðri Ey (d. 8.9.1980) og Þorkell Magnússon úr Goðhól ( d. 30.8.1968).
Guðmundur Guðnason527
Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19)(d. 7.12.1973) með hrút.
1
2
3
4
5

13
Leita í myndasafninu
Leita