Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason696
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Guðmunda Árnadóttir frá Flankastöðum. Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti er maðurinn fremst á myndinni með skíðagleraugun. Aftan við hann er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason657
Gangnahestur með reiðtygjum.
Guðmundur Guðnason519
Konan á miðri mynd er líklega Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir frá Reykholti (Sævarlandi) (d. 24.11. 1994) að sinna réttarstörfum í Spákonufellsrétt. Til hægri við hana, aftar, er Jóhannes Hinriksson frá Ásholti (d. 27.10.1973) með gleraugu og ljósa derhúfu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason512
Bergur Jón Þórðarson er drengurinn sem er að leita lamba í Spákonufellsrétt 1958 þá 7 - 8 ára gamall. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason530
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Konráð Klemensson Konnabæ (Garðhúsum) (d. 20.11.1981), Gunnlaugur Björnsson Harrastöðum (d. 8.5.1978 ), Ágúst Jakobsson Blálandi (d. 1.6.1989) ), Sveinn Ingi Grímsson og óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason516
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Páll Jónsson frá Reykholti (d. ?) er á miðri mynd. Aðrir eru óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason529
Slegist við hross í stóðréttum í Spákonufellsrétt. Mennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason575
Vormynd af Spákonufellinu. Í forgrunni eru nokkrar kindur með lömb en Guðmundur ljósmyndari hafði gaman af kindum og tók mikið af myndum af þeim.
Guðmundur Guðnason513
Hér eru þeir Hartmann Jóhannesson frá Garði (d. 1976) til vinstri og Þorkell Magnússon frá Goðhól (d. 30.8.1968) að draga sundur fé í Vindhælisrétt.
Guðmundur Guðnason518
Maðurinn fremst á myndinni er Jónatan Jónsson (17.7.1971) , kenndur við Hólagerði. Hann er við réttarstörf í Spákonufellsrétt. Til hægri sér í Jóhann Jakobsson Blálandi (d. 24.3.1987) að fanga lamb.
Guðmundur Guðnason906
Þessi mynd var tekin af fjölmenni á hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Guðmundur Guðnason688
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn í ljósa jakkanum til vinstri er sennilega Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) frá Þórmörk á tali við Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason038
<p>Myndin var tekin við Höfðahólabæinn. Sitjandi á hestinum er Óskar Axelsson. Síðan<br>kemur móðir hans, Sveinbjörg Björnsdóttir (. 12.7.2001), með dóttur sína Guðríði Axelsdóttur í fanginu og<br>þá sonur hennar Ásgeir Guðni Axelsson (d. 8.6.2011) . Þau fluttu síðar að Litla-Felli 1955 eftir að hafa verið síðustu ábúendur í Höfðahólum.</p>
Guðmundur Guðnason515
Pétur Jónsson Stóra Bergi ( d. 18.2.1966) til vinstri og Árni Daníelsson Eyjarkoti (d. 28.6.1970) til hægri við réttastörf í Spákonufellsrétt að sumri til þegar fénu var smalað til rúnings. Maðurinn sem bograr yfir kind til vinstri er Andrés Guðjónsson kaupmaður í Andrésarhúsi (d. 5.10.1968).
Guðmundur Guðnason525
Guðni Sveinsson frá Ægissíðu (d. 15.11.1971) hugar að marki á kind í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason533
Stóðréttir í ókunnri rétt. Hávaxni maðurinn í ljósu úlpunni er Magnús Blöndal (d. 7.9. 2001), hjá honum er Ásgeir Axelsson Litla Felli (d. 8.6.2011) og skeggjaði maðurinn með prjónahúfuna er Gunnlaugur Sigmarsson.
Guðmundur Guðnason030
Engu er líkara en þessi óþekkti knapi sé að spjalla við folaldið á myndinni. Ef þú veist hver knapinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason690
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn til hægri, sem snýr baki í myndavélina, er Lárus Árnason (d.21.5.2011) frá Ási. Aðrir eru óþekktir en konan lengst til vinstri gæti verið ? Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti.
Guðmundur Guðnason686
Réttastörf við rúning í Hofsrétt í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason026
Myndin sýnir reiðskjóta tvegga tíma, hestinn og vélhjólið. Hjá reiðskjótunum stendur Ólafur Bjarnason (d. 6.10.1959) frá Stafni sem var hagyrðingur og skemmtikraftur. Róbert Snædal gerir Ólafi góð skil í bókum sínum.
Ólafur Bernódusson394
Sem unglingur var Þröstur Árnason með andarækt og seldi hann úr þeim eggin til fólks á Skagaströnd. Þetta fyrirtæki Þrastar endaði þó illa því minkur komst í andabúið og drap allar endurnar. Þröstur kom þó við krók á móti bragði og tókst að veiða og drepa minkinn. Á þessari mynd frá því í apríl 1990 er Þröstur með minkinn í hendinni og fórnarlömb minksins liggja á jörðinni í kring.
Ólafur Bernódusson418
Sveinn Ingi Grímsson var grenjaskytta um árabil. Hér er hann nýkominn af greni sumarið 1990 með yrðling sem hann tók lifandi eftir að hafa eytt foreldrum hans. Það merkilega við yrðlinginn er að hann er greinilega blendingur villts dýrs og búrdýrs sem hefur sloppið úr búri sínu.
Bjarni Jónsson 11
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd af smalamennsku um vetur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 33
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 16
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1976. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni Jónsson 16
Rjúpur á jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá árinu 1994. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 34
Bjarni Jónsson gerði þetta jólakort líklega árið 1983. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Halldór Pétursson 12
Þessi mynd er af jólakorti eftir Halldór Pétursson frá árinu 1970. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Bjarni Jónsson 35
Mynd á jólakorti frá 1982 eftir Bjarna Jónsson. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Guðmundur Guðnason526
Réttað í Spákonufellsrétt. Drengurinn í köflóttu úlpunni er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði (Hólabraut 9). Maðurinn í svörtu peysunni er óþekktur (?Sigurjón Magnússon frá Sólvangi?). Sigurður Guðmonsson frá Þórsmörk (d. 5.8.1981) er maðurinn með ljósu húfuna en Hrólfur Jakobsson Sóllundi (Hólabraut 8) (d. 27.12.1996) er lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason560
Ólöf Una Jónsdóttir í Ártúnum var greinileg óhrædd við dýr sem voru stærri en hún.
Guðmundur Guðnason692
Réttað í Spákonufellsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt. Þó er líklegt að baksvipurinn sé af Hartmann Jóhannessyni frá Garði því hann var oft með bláan "bát" á höfðinu.
Þríburakálfar 1920
Þetta póstkort sýnir þríbura kálfa sem færðir hafa verið inn á ljósmyndastofu til myndatöku 1920. Samkvæmt frétt í Vísi frá 21. október 1971, fæddust kálfarnir á Akureyri og voru undan kú sem var í eigu Ragnheiðar Benediktsdóttur, systur Einars Benediktssonar skálds. Hún var gift Júlíusi Sigurðssyni útibússtjóra Landsbankans á Akureyri en fram kemur í fréttinni að hann hafi ekki verið of hrifinn af búskap konu sinnar. Mjög óvenjulegt er að kýr beri þremur kálfum en það gerist þó annað slagið.
Guðmundur Guðnason510
Í Spákonufellsrétt 1958. Á myndinni þekkjast Pétur Jónsson Stóra Bergi (d. 18.2.1966) á miðri mynd með derhúfu og vettlinga og við hlið hans til hægri er Guðni Sveinsson frá Ægissíðu (d. 15.11.1971). Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sednu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason524
Guðlaugur Gíslason Vinaminni (Hólabraut 16) rekur fé í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason523
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti og bogni maðurinn til hægri er Lárus Árnason frá Ási (d. 21.5.2011).
Guðmundur Guðnason587
Kindin í forgrunni er þrílembd og var sjálfsagt tilefni myndatökunnar. Í baksýn má aftur á móti sjá útbæinn, sennilega seint á sjöunda áratugnum. Enn standa tankarnir tveir undir Höfðanum til vinstri á myndinni. Braggarnir standa, Garður og gamla húsið á Flankastöðum. Kárastaðir, Höfðakot og Höfðaberg eru líka öll horfin ásamt Gunnarshólma (Grafarbakka). Aftur á móti hafa nú verið byggð hús við Mánabraut og fleiri hús við Bankastræti.
Guðmundur Guðnason528
<p>Í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Elínborg Árnadóttir Sólheimum (d. 7.4.1979), Kristín Björnsdóttir Jaðri, óþekkt, Ólafur Guðmundsson Brautarholti (d. 6.10.1985), Már Hall Sveinsson Réttarholti (d. 1.3.2008), óþekktur, Kári Kristjánsson Kárastöðum (d. 11.12.1990), Steingrímur Jónsson Höfðakoti (d. 15.1.1992), óþekktur, Sigurlaug Jónsdóttir Ási (d. 15.8.2011) og óþekktur. </p>
Guðmundur Guðnason520
Drengurinn á myndinni er Árni Björn Birgisson Streumnesi. Aðrir sem eru þarna í Spákonufellsrétt eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason694
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn með húfuna fyrir miðri mynd er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10. 1973) frá Ásholti (ber í manninn sem er að klifra yfir hiðið). Næst lengst til hægri er svo Baldvin Jóhannsson (d. 1.1.1981) frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason532
Hér eru Húnvetnskir bændur með hrúta sína.Mennirnir eru frá vinstri: Ingvar Þorleifsson í Sólheimum og Auðunn Guðjónsson frá Marðanúpi síðan Árni Karlsson frá Víkum á Skaga (d. 19.7.2011) og Njáll Þórðarson á Blönduósi. Þá kemur Sigþór Sigurðsson í Brekkukoti, Reynir Hallgrímsson frá Kringlu, Heiðar Kristjánsson frá Hæli og óþekktur drengur. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason531
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Kenny Hallbjörnsdóttir, Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d.2.6.1987), óþekktir og Guðmann Magnússon frá Vindhæli (d.22.11.2000).
Guðmundur Guðnason614
Hrútarnir í forgrunninum eru fallegir en þeir eru á túninu við Stóra-Berg, líklega snemma á sjöunda áratugnum. Hrútarnir hafa sennilega verið úr fjárstofni systkinanna Vilborgar Jónsdóttur (d. 9.4.1985) , Péturs Jónssonar (d. 18.2.1966) og Páls Jónssonar (d. 19.7.1979). Viborg og Pétur bjuggu saman í Stóra - Bergi en Páll á Breiðabliki. Þau systkin áttu heinma á Hofi í Skagahreppi og þar bjuggu Vilborg og Pétur fram til ársins 1944. Páll var þá fluttur til Skagastrandar (1939) sem kennari og skólastjóri við Höfðaskóla. Húsin á myndinni eru: lengst til vinstri er Litla Berg (Fellsbraut 2) þá kemur Hjarðarholt (Fellsbraut 4) og lengst til hægri er Reykholt (Fellsbraut 6) en framan við húsið eru fjárhús og hlaða Hafsteins Sigurbjarnasonar í Reykholti.
Guðmundur Guðnason521
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti (d. 6.10.1985) skoðar mark á kind. Takið eftir neftóbakskrukkunni og vasaklútnum í vinstri hendi hans.
Brjefspjald frá 1916
Þessi fallega mynd af hesti prýðir "Brjefspjald" frá 1916. Aftan á það er skrifaður langur texti til Jakobínu Guðmundsdóttur Engihlíð í Langadal. Brjefspjaldið er dagsett 24. 2. 1916.
Guðmundur Guðnason028
Ekki er víst hver drengurinn á hestinum er en sennilega er hann annar bræðranna: Húnn Snædal eða Hólmsteinn Snædal en þeir eru synir Rósberg G. Snædal (d.9.1.1983) bróður Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) sem tók þessa mynd. Ef þú þekkir drenginn á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason561
Ólöf Una Jónsdóttir með dýrum í Ártúnum. Hólahornið og Svartárbrú í baksýn. Veiðikofi var á þessum tíma í norðan við túnið í Ártúnum (til hægri á myndinni).
Guðmundur Guðnason613
Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi fylgist með á hrútasýningu. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason034
Þessi knapi er óþekktur en myndin var tekin norðan við bæinn Hvamm í Laxárdal.
Óþekktur ljósmyndari150
<P>Þessi hestasteinn er staðsettur á túnbletti sunnan við Kántrýbæ. Hann er hugsaður fyrir þá sem koma ríðandi til að njóta þess sem Kántrýbær hefur upp á að bjóða. </P>
Bjarni Jónsson 21
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd, líklega árið 1995. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 36
Þessi mynd gerði Bjarni Jónsson 1982 á jólakort. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 23
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson. Myndin var líklega gerð 1995. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 31
Kindurnar á myndinni málaði Bjarni Jónsson á jólakort árið 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 14
Myndina af snjótittlingunum gerði Bjarni Jónsson á jólakort 1984. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 12
Þetta er jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá 1979. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Halldór Pétursson 11
Þessi mynd er af jólakorti eftir Halldór Pétursson frá árinu 1972. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Selma P. Jónsdóttir 17
Þessa mynd af heimkomu manns úr kaupstaðarferð gerði Selma P. Jónsdóttir, líklega 1976. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni Jónsson 29
Bjarni Jónsson gerði þetta jólakort árið 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 7
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá 1985. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
1
…
4
5
6
…
13
Leita í myndasafninu
Leita