Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Selma P. Jónsdóttir 18
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1975. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni Jónsson 47
Jólakort gert af Bjarna Jónssyni, líklega árið 1970. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 52
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 13
Mynd á jólakorti eftir Bjarna Jónsson, líklega frá 1990. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Skagaströnd - safn543
Þessi mynd tengist Skagaströnd ekki nema á óbeinan hátt. Hún er af Brjefspjaldi frá 1920 og sýnir hvernig fólk var flutt á milli staða ef það var sjúkt og eða var flutt til greftrunar. Ef grannt er skoðað mé sjá að maður með húfu liggur í kassanum milli hestanna. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hún kemur úr póst- og jólakortasafni Elísabetar Árnadóttur (d.16.3.2017) frá Réttarholti.
Guðmundur Guðnason090
Á þessari mynd er verið að koma með fjársafnið til réttar í Spákonufellsrétt. Maðurinn með tvo til reiðar er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Lárus var oft gangnaforingi í göngum frá Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason158
Aftan á þessari mynd af Bergi Þórðarsyni stendur: Bergur Jón Þórðarson á Núpsskjóna. Húnaver og Bólstaðarhlíð í baksýn.
Óþekktur ljósmyndari208
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns. </p><p><br></p>
Guðmundur Guðnason145
Fjársafn við Spákonufellsrétt. Á árum áður var algengt að menn ættu nokkrar kindur í fjárhúsum einhversstaðar. Tölur um fjáreign bæjarbúa eru nokkuð á reiki en talan 3000 fjár er oft nefnd sem fjáeign á árunum í kringum 1960 og upp úr því. Í dag eru kindur í eigu Skagstrendinga nær tölunni 20.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn031
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni - sem var sett saman úr tveimur myndum löngu fyrir tilveru Photoshop - er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í hlutverki sínu sem létt ruglaður írskur herforingi en hesturinn kom ekkert fram í sýningunni. Myndina gerði Jónas Baldursson.
Ólafur Bernódusson555
Vorið 1992 voru þessir þrír krakkar í fjöruferð í fjöruna fyrir neðan rækjuvinnsluna. Þar rákust þau á þennan smáhval - hnýðing - rekinn í fjörunni. Að sjálfsögðu létu þau vita af þessum merka fundi og fengu mynd af sér í Morgunblaðinu að launum. Krakkarnir eru frá vinstri: María Markovic, Eva Dögg Bergþórsdóttir og Sveinþór Ari Arason.
Óþekktur ljósmyndari210
<p>Hjónin Regína og Fritz Berndsen á Bergi með óþekkta stúlku og kálf. </p>
Guðmundur Guðnason136
Mjóadalsrétt á Laxárdal. Bærinn í baksýn er Gautsdalur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Guðmundur Guðnason128
Gömul mynd af réttastörfum í ókunnri rétt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari320
Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) frá Kambakoti og Reykholti var mikill veiðmaður og góð skytta. Hann skaut margan refinn gegnum tíðina og á þessari mynd, sem tekin var 1969 af Stefáni Jósefssyni, heldur hann á einum þeirra. Hlauplanga haglabyssan, sem hann er með, var af gerðinni Husqvarna en slíkar byssur voru nokkuð algengar á þessum tíma
Guðmundur Guðnason199
Séð yfir Stafnsrétt 1969. Hér er verið að rétta hross.
Guðmundur Guðnason191
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970 þar sem menn eru að ræða málin. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn104
Þessi mynd sýnir Höfðann (Spákonufellshöfða) fyrir 1934 því á myndinni er hann óskemmdur af grjótnámi, sem hófst þar 1934 þegar sprengt var í Höfðanum til að fá grjót til uppfyllingar í hafnargerð á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason193
Í Stafnsrétt 1970. Ekki er vitað hverju fólkið er svona spennt fyrir en fólkið er óþekkt þannig að ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn012
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi glöð og kát í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason303
Réttir - líklega í Skrapatungurétt. Maðurinn lengst til hægri er Einar Guðlaugsson (d. 1.4.2008). Maðurinn með vindilinn líklega Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal en hann er að tala við hjónin Jökul Sigtryggsson og Valgerði Kristjánsdóttur frá Núpi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason187
Myndin var tekin árið 1970 sennilega í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en er sennilega úr Svartárdal og Blöndudal að mestu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason207
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapar og hestar bíða ræsingar. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason215
Knapar og áhorfendur á kappreiðamóti á Hvammsbökkum 1961. Til hægri, með hendur í blússuvösunum, er Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 226
Fjársafni smalað að Stafnsrétt í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason305
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn í bláu peysunni rétt vinstra megin við miðja mynd er Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta-Gili og Skarphéðinn Einarsson frá Blönduósi er í ljósri lopapeysu að skoða mark á lambi. Stelpurnar tvær til hægri á myndinni eru: Helga Sigríður Ævarsdóttir í rauðri peysu og Helga Ólína Aradóttir með flétturnar. Ingibjörg Karlsdóttir (d. sept. 2014) er konan í úlpunni á miðri mynd og Arnar Árnason er drengurinn til hægri í fjólubláu peysunni.
Guðmundur Guðnason 2 223
Réttað í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og óvíst hvort tekist hefur að bera kennsl á fólk á myndinni. Maðurinn lengst til hægri inni í fjáhópnum er sennilega Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) frá Blálandi og maðurinn sem hallar sér yfir réttarvegginn gæti verið Þorkell Magnússon (d.30.8.1868) frá Goðhól. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 380
Hópreið félagsmanna úr hestamannafélaginu Snarfara á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né af hvaða tilefni efnt var til hópreiðarinnar. Fremstur í röðinni er Sigurbjörn Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn133
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Félagar í hestamannafélaginu Snarfara tóku þátt í göngunni á fákum sínum.
Ólafur Bernódusson 556
Sveinn Ingi Grímsson var refaskytta á Skagaströnd og í Skagabyggð í mörg ár. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er hann nýkominn úr vel heppnuðum grenjatúr. Hann náði báðu fullorðnu dýrunum og þremur ylfingum þeirra.
Bjarni Jónsson 53
Þetta er mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008). Var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 51
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1988. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 41
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, líklega frá árinu 1981. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 5
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Guðmundur Guðnason160
Aftan á myndinni stendur: <em>"Bergur Jón Þórðarson á Lækjardalsrauð. Myndin tekin á Laxárdal".</em>
Séra Pétur og Dómhildur - safn111
<p>Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað: <em>Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson. Þannig ferðaðist hann til allra prestsverka fyrstu árin. Þá var aðeins vegur... </em>Pétur hafði aðsetur á Höskuldsstöðum en ferðaðist þaðan til annarra kirkna í Höskuldsstaðasókn t.d. á Skagaströnd og úti á Hofi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. </p>
Óþekktur ljósmyndari241
Félagar úr hestamannafélaginu Snarfara á Skagaströnd á hestamannamóti á Vindheimamelum 1974. Í fremri röð eru Jóna Kristjánsdóttir og Magnús Hjaltason. Aftari röð frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) og Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989).
Guðmundur Guðnason134
<p>Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað:" <em>Í Spákonufellsrétt. Réttarstjóri Jón Sölvason í Réttarholti sést á miðri myndinni". </em>Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Jón Sölvason dó 17.8.1969 þannig að augljóslega var myndin tekin fyrir þann tíma. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Óþekktur ljósmyndari167
Á myndinni er verið að rétta hross í Landsendarétt. Réttin stóð á við Landsenda en nyrsti endi Höfðans er kallaður það. Landsendarétt var því á sjávarbakkanum norðan við Réttarholt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari209
Myndin er af Laufey Jónsdóttur (d. 25.12.1969) frá Reykholti með kúna sína hana Gránu.
Guðmundur Guðnason074
J. Konráð S. Klemensson (d. 20.11.1986) Garðhúsum við réttastörf - sennilega í Hofsrétt. Lengst til vinstri er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti.
Óþekktur ljósmyndari327
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann stóð niður við sjó við Landsenda (nyrsta enda Höfðans) en brann eftir að flutt var úr honum einhverntíma á sjöunda áratugnum. Til hægri við bæinn grillir í Landsendarétt sem þarna var.
Óþekktur ljósmyndari265
Á Kántrýhátíð 1984 sem haldin var á tjaldsvæðinu. Á myndinni eru knaparnir frá vinstri: Jón Gunnarsson, Jónatan Hjaltason, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011), Hallbjörn Hjartarson og Ólafur Ásgeirsson.
Guðmundur Guðnason213
Óþekktur knapi á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Ef þú þekkir manninni eða einhvern meðal áhorfenda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason209
Óþekkt fólk á kappreiðum 1961 á Hvammsbökkum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2228
Þessi mynd var tekin af fjársafni sem verið er að reka yfir ?Svartá? á leiðinni til réttar í Stafnsrétt. Smalamennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason195
<p>Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Á myndinni frá vinstri má greina Maríu Steingrímsdóttur bónda á Brandsstöðum en fjórði maður frá henni, með gleraugu, er Markús? bóndi á Reykjahóli og síðan Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) bóndi á Bollastöðum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Þórður Jónsson048
Fjársafnið rekið í almenninginn á Spákonufellsrétt. Maðurinn með ljósu húfuna, annar frá vinstri er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) Steinholti, fjórði frá vinstri er Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fimmti er Baldvin Jóhannesson (d. 1.1.1981) Ásholti og sjötti ?Vilhjálmur Skaftason? Dagsbrún og drengurinn við hlið hans er líklega Kári Lárusson Ási. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason211
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapinn er Einar Höskuldsson frá Mosfelli.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn013
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi í Spákonufellsrétt við réttarstörf.
Óþekktur ljósmyndari172
Kristján Guðmundsson bóndi í Háagerði slær með hestasláttuvél sem hann hefur beitt tveimur hestum fyrir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari182
Réttað í Landsendarétt. Landsendarétt var staðsett við Landsenda sem er nyrsti endi Höfðans. Réttin var sem sagt á flötinni norðan við Réttarholt.
Barnaból - safn086
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í hesthúsferð í júní 1997. Þar fengu þau meðal annars að klappa folöldum sem virtust álíka forvitin um krakkana eins og þeir voru um folöldin. Á myndinni eru Gunnar Sveinsson standandi, og Rúnar Jóhannsson sem krýpur með börnunum. Barnið næst okkur er Ellen Sigurjónsdóttir en hjá Rúnari er Unnar Leví Sigurbjörnsson og Stefán Velemir sem klappar folaldinu.
Guðmundur Guðnason189
Fjársafnið rekið til réttar í Spákonufellsrétt árið 1970. Fólkið á myndinni er óþekt.
umf Fram302
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri í heimsókn að Brandaskarði ásamt fleiri krökkum. Þar var margt að sjá og snerta t.d. þessir litlu kettlingar.
Guðmundur Guðnason219
Skeiðað eftir vellinum á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knapinn er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram307
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, voru krakkarnir í heimsókn að Brandaskarði. Þar fengu þau að gera ýmislegt skemmtilegt meðal annars að gefa kálfi mjólk úr pela. Á myndinni eru frá vinstri: Anton Einarsson, Eydís Einarsdóttir leiðbeinandi, Pálll Halldórsson, Bergrós Hafsteinsdóttir (með rauða húfu), Alma Eik Sævarsdóttir leiðbeinandi, Sylvía Hrólfsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Birkir Gunnarsson er að gefa kálfinum, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Anna Dís Ragnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason309
Hvílir lúinn fót við réttarvegg.
Guðmundur Guðnason321
Skarphéðinn Eiríksson frá Vatnshlíð á hestbaki.
Guðmundur Guðnason 2345
Það var virðulegur blær á Skrapatungurétt á þessum réttardegi með tveimur fánum á hliðinu. Líklega hefur réttin verið byggð 1957 en hún er enn notuð á hverju hausti.
1
…
5
6
7
…
13
Leita í myndasafninu
Leita