Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram305
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Eydís Einarsdóttir, leiðbeinandi á námskeiðinu, að strjúka kettlingi í heimsókn að Brandaskarði.
Skagaströnd - safn212
Bændur í Austur Húnavatnssýslu tóku sig til og keyptu líflömb - líklega vestan af Ströndum - til að kynbæta hjá sér fjárstofninn. Lömbin voru flutt sjóleiðis til Skagastrandar þaðan sem þeim var svo ekið til nýrra heimkynna sinna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekinn né hvaða fólk er á henni en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 471
Unga stúlkan á hestbaki er óþekkt einnig konan (?Stína?)sem heldur í hestinn. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 224
Hér sitja þeir hesta sína gangnamennirnir Már Hall Sveinnsson (d. 1.3.2008) frá Réttarholti til vinstri og Gísli Kristjánsson frá Háagerði til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið upp úr 1960.
umf Fram306
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru Anna Dís Ragnarsdóttir og Ívan Árni Róbertsson sem heldur á litlum kettlingi. Myndin var tekin þegar krakkarnir fóru í heimsókn að Brandaskarði.
Guðmundur Guðnason 2 381
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: "Í Spákonufellsrétt. Pétur Jónsson Bergi". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er réttin greinilega í byggingu. Pétur Jónsson frá Stóra Bergi fæddist 9. október 1891 en dó 18. febrúar 1966.
Guðmundur Guðnason 2 470
Ungi knapinn er óþekktur sem og aðrir á myndinni. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram304
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Guðrún Anna Halldórsdóttir með kettling í fanginu í sveitaheimsókn að Brandaskarði.
Guðmundur Guðnason 2 446
Réttað í Spákonufellsrétt á óþekktum tíma. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 483
Signý Gunnlaugsdóttir á Balaskarði með kiðling í fanginu.
Óþekktur ljósmyndari364
Þessi mynd sýnir gömul vinnubrögð við að koma heyi heim að skepnuhúsum þeirra tíma. Myndin eykur líka skilning manns á af hverju hesturinn var kallaður "þarfasti þjónninn" fyrir öld dráttarvéla og annarra vélknúinna tækja í sveitum landsins. Hér er verið að reiða heim hey á fjórum hestum. Heyið var bundið í bagga á vellinum og síðan hengt á klakk á baki hestsins. Síðan var lestin teymd heim, oft af einhverjum hálstálpuðum krakka, sem sá svo um að koma með hestana til baka fyrir næstu ferð. Á þessari mynd er þó fullorðin maður sem teymir en krakki "situr á milli" á aftasta hestinum. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær en líklega hefur hún verið handmáluð.
Guðmundur Guðnason 2 428
Hér er réttað í óþekktir rétt (Vindhælisrétt?) á óþekktum tíma. Ekki er hægt að þekkja fólkið á myndinni vegna þess hve filman er orðin máð.
Guðmundur Guðnason 2 443
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt en skeggjaði maðurinn er Jónatan Jónsson (d.17.7.1971) frá Hólagerði á Skagaströnd. Til hægri, í ljósum jakka, er Björn Helgason (d. 11.3.1983) frá Læk.
Guðmundur Guðnason 2 482
Heimalningum á Balaskarði gefin mjólk að drekka. Konan í rósótta kjólnum er Signý Benediktsdóttir ( d. 7.1.1991) en hin konan er líklega Geirlaug Ingvarsdóttir dóttir Signýar.
Guðmundur Guðnason 2 453
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal við heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og sér í mynni Vesturáarskarðs í baksýn. Fjölskylda Guðmundur bjó í dalnum á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Konan lengst til vinstri er Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) móðir Guðmundar. Ungi maðurinn sem bindur bagga er Pálmi (d. 23.3.1994), Ingvi (d. 31.12.1991), eða Rósberg (d. 9.1.1983) en þeir voru bræður Guðmundar (líklegast er að þetta sé Rósberg). Guðmundur sjálfur heldur í hestinn og faðir hans Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) hleður fúlgu úr heyinu í baksýn.
Magnús B Jónsson093
<p>Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru tveir fulltrúar Hafró, í hlífðarbuxum, að byrja að skera í hvalinn. Ólafur Bernódusson stendur til hægri með hendur í vösum og fylgist með en aðrir eru óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason 2 463
Konan með hrútinn er Ingibjörg Karlsdóttir frá Neðri Lækjardal, seinna á Blönduósi.
Guðmundur Guðnason 2 354
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: <em>"Frá Vallabökkum í Skagafirði".</em> Konan á myndinni mun vera Elín Jóhannesdóttir (d. 1981) frá Merkigili síðar húsfreyja á Völlum í Hólmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 454
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal sem var heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) en fjölskylda hans bjó í dalnum á nokkrum bæum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Á myndinni er Guðmundur að teyma heim hesta með heybagga á klökkum. Á þennan hátt var heyið flutt heim að fjárhúsum af engjum sem gátu verið langt frá bænum. Oft voru þá krakkar og liðléttingar notaðir til að teyma hestana á milli.
Guðmundur Guðnason 2 494
Óþekkt stúlka á hestbaki. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn331
Kjartan Stefánsson Keen (d.22.12.2006) við Spákonufellsrétt 1991. Kjartan bjó lengi í Bjarmalandi og stundaði listmálun.
Óþekktur ljósmyndari375
Sigurður Jónsson í Fjallsmynni með kisa sinn á öxlinni. Sigurður er einn af fáum sem hefur köttinn sinn í bandi og fer reglulega í gönguferðir með hann um nágrennið. Kisi fær aldrei að fara einn út á lífið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 613
Kristinn Guðmundsson (d. 1.12.1986) í Bræðraborg í fjáragi við Spákonufellsrétt.
Sigurður Bjarnason - safn 018
Anna Bjarnadóttir frá Bjargi á Mósa sínum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 99
Kýr á beit í Kálfshamarsvík. Í baksýn er bærinn Saurar.
María Magnúsdóttir - safn 065
Óþekktur maður á hestbaki í túninu við Syðri Hól, sem er í baksýn. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 367
Jón Jónsson, sem tók þessa mynd, átti nokkrar kindur í fjárhúsi við heimili sitt. Eins og aðrir sauðfjáreigendur var hann stoltur af kindunum sínum og þótti vænt um þær. Myndin sýnir nokkrar þeirra á lóð sem nú er löngu byggð. Ef grannt er skoðað sést að ekki er búið að byggja neitt sunnan við Hólabrautina sem er til hægri á myndinni. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1950.
Héraðsskjalasafn A-Hún 100
Kú á beit í Kálfshamarsvík. Fjær sjást bæirnir Saurar og Ós.
Guðmundur Guðnason 2 360
<p> Á þessari mynd halda í hrúta sína á hrútasýningu á óþekktum stað, frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) Holti Svínadal, Eysteinn Erlendsson (d. 27.10.1969) frá Beinakeldu, Leifur Sveinbjörnsson (d. 22.2.2008) í Hnausum, Reynir Steingrímsson (d. 3.11.1989) í Hvammi, Vatnsdal og Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) á Auðkúlu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. </p>
Barnaból - safn087
Þessi mynd var tekin í heimsókn leikskólans Barnaból í hesthús í júní 1997. Á henni er óþekkt folald að lykta af þessum gestum sínum. Gestirnir eru frá vinstri: Tinna ?, Elías Gunnar Hafþórsson og Bryndís Brá?
umf Fram 317
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar.Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Krakkarni fengu að upplifa ýmislegt í búðunum meðal annars að fara á hestbak. Á myndinni er hópur krakka í hestamennsku.
Guðmundur Guðnason 2 432
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á miðri mynd, með gleraugu, er Jón Sölvason (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Maðurinn með húfuna lengst til hægri gæti verið Sigurjón Magnússon ?(d. 16.3.2007) frá Sólvangi. Ef þú getur staðfest að um Sigurjón sé að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Barnaból - safn085
Unnar Leví Sigurbjörnsson fékk að fara á bak með Rúnari Jóhannssyni í hesthúsferð leikskólans Barnaból í júní 1997.
Guðmundur Guðnason2 341
<p>Flaggað á réttardegi í Skrapatungurétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Á miðri mynd er Jón Guðmundsson (d. 3.7.1992) frá Sölvabakka boginn í baki og með húfu. Til hægri við hann í köflóttri skyrtu er Jökull Sigtryggsson frá Núpi þá kemur Magnús Daníelsson (d. 1.6. 1993) frá Syðri - Ey. Hallgrím Einarsson (d. 3.4.1998) frá Neðri-Mýrum má þekkja með ljósa húfu og í vinnugalla í hópnum vinstra megin við Jón. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Guðmundur Guðnason 2227
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á myndinni er Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhól á Skagaströnd - nú Hólabraut 10. Keli - eins og hann var kallaður - heldur á hundinum sínum, Vin. Vinur og Keli voru mjög miklir vinir og litu þeir hvor á annan sem jafningja. Þar sem Keli fór þar var Vinur nálægur. Bróðir Þorkels var Jón Magnússon skáld sem dó í febrúar 1944 en hans frægasta ljóð er sennilega Líknargjafinn þjáðra þjóða sem oft er sungið í kirkjum landsins á sjómannadegi.
Barnaból - safn 128
Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli hrossabóndann Gunnar Sveinsson. Á þessari mynd eru komin á bak þau Kristrún Lilja Sævarsdóttir (=Lilja Nótt Sævarsdóttir) og Daníel Guðmundsson. Gunnar Sveinsson heldur við krakkana en hin börnin á myndinni eru óþekkt.
Barnaból - safn 127
Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli hrossabóndann Gunnar Sveinsson. Á þessari mynd eru komnar á bak þær Jenný Lind Sigurjónsdóttir aftast, Anna María Magnúsdóttir í miðið og Eydís Inga Sigurjónsdóttir fremst en Gunnar heldur í hestinn. Ragnar Gunnarsson er í skræpóttri úlpu en Elva Ösp Gunnarsdóttir fylgist með til hægri. Þar standa líka starfsstúlkurnar Katrín Sigurjónsdóttir fjær og Bára Þorvaldsdóttir nær. Barnið sem Bára leiðir er óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 472
Fólkið á þessari mynd er óþekkt og það sama má segja um hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason2 340
Réttað í Skrapatungurétt sennilega um 1960. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 429
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Sama má segja um réttina - ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 456
Þessi mynd var líklega tekin í sundinu milli Gamla kaupfélagsins til hægri og Kaupfélagshússins til vinstri en það hús er nú löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en maðurinn á myndinni er Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri. Finnur er sparibúinn og vel ríðandi með tvo til reiðar.
Magnús B Jónsson094
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru þeir Guðmundur til vinstri og Ólafur til hægri, kampakátir að skoða hvalinn í fjörunni.
Guðmundur Guðnason2 343
Á þessari mynd sjást uppáhalds skepnur Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar - kindur. Í baksýn má sjá gapandi sárið í Höfðanum eftir grjótnám þar. Til vinstri sjást svo nokkur fjárhús, sem karlarnir sem bjuggu í Bankastræti undir Höfðanum, áttu.
Guðmundur Guðnason 2 411
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á hestbaki. Líklega var myndin tekin einhversstaðar á Laxárdal þar sem Guðmundur var alinn upp.
Guðmundur Guðnason 2 457
Líklega var þessi mynd tekin í Laxárdal þar sem fjölskylda Guðmundar ljósmyndara bjó á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Maðurinn á hestinum er líklega bróðir Guðmundar, Rósberg Snædal Guðnason (d. 9.1.1983). Maðurinn á bakvið er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 378
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>" Við Spákonufellsrétt 1959. Safnið komið inn".</em> Húsið í bakgrunninum var notað sem kaffiskúr og þar var selt kaffi (kvenfélagið?) á réttardögum. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Magnús B Jónsson095
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúfubak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðan á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur - tarfur - um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum, að undirbúa sýnatöku. Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn í blárri peysu, aðrir eru óþekktir. Til gamans má geta þess að reður hvalsins var sendur til Reðursafns Íslands að ósk eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum líffærum af hinum ýmsu spendýrum. Myndina tók Magnús B. Jónsson.
Skagaströnd - safn411
<p>Veturinn 1995 var mjög snjóþungur eftir áramótin á Skagaströnd. Þessi mynd, sem var tekin 3. mars 1995, sýnir óþekktan mann á gangi á einum uppstyttudögunum, sem notar hundana sína til að draga sleðann fyrir sig. </p>
Guðmundur Guðnason 2 473
Fólkið á myndinni er óþekkt og líka hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern eða veist hvaða rétt þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 350
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað <em>" Frá Hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Þórður á Grund."</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn029
Myndin sýnir fólk við réttastörf í Spákonufellsrétt 1965. Á þessum tíma var mikið um sauðfé á Skagaströnd líklega 2-3000 kindur sem settar voru á á hverjum vetri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 623
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn til vinstri, í brúna jakkanum, er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu. Hægra megin við hann, í bláum jakka með sixpensara og hendur í vösum, er Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) frá Árnesi. Maðurinn á miðri mynd, í brúnum jakka og lútir höfði, er líklega Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Konan í köflóttu skyrtunni fremst á myndinni er Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968) frá Valhöll. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn715
Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka með lambhrút í bandi eftir mikinn eltingaleik við hrútinn, sem ekki var sammála Jóhanni hvað varðar frelsi og útigang. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
María Magnúsdóttir - safn 032
Heyskapur við Syðra Hól. Á myndinni sést glöggt sú tækni sem notuð var við heyskap á sínum tíma þegar hesturinn var enn þarfasti þjónninn í sveitum landsins. Svona vélar, eins og sú á myndinni, gjörbreyttu heyskap til sveita sem fram að því hafði nánast eingöngu notast við orf, ljá og hrífur. Maðurinn á myndinni er líklega Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli)(d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 598
Réttað í Spákonufellsrétt. Hér á árum áður, allt fram á níunda áratuginn, var fjáreign almenn á Skagaströnd og allt að 3000 fjár í Höfðahreppi. í dag má telja kindurnar í sveitarfélaginu í tugum en ekki þúsundum eins og þá. Konan fremst á myndinni, í köflóttri skyrtu með skuplu á höfði, er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Stúlkan í grænu peysunni er líklega Ragnheiður Sigurjónsdóttir frá Sunnuhlíð og Anna Bára Sigurjónsdóttir, systir hennar, með henni með ljósa skuplu yfir hárinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 599
Fé rekið til réttar í Spákonufellsrétt. Hér á árum áður, allt fram á níunda áratuginn, var fjáreign almenn á Skagaströnd og allt að 3000 fjár í Höfðahreppi. Í dag má telja kindurnar í sveitarfélaginu í tugum en ekki þúsundum eins og þá. Myndin var tekin áður en þjóðvegurinn var lagður út með Spákonufellinu þar sem hann er nú. Fólkið á myndinni er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 256
Aftan á þetta póstkort er skrifað: "Þessi mind var tekin af þreskivjelini þegar var virið að þreska hjá okkur í haust sem leið. Manni minn vann með henni firir tíma". Eitthvað er stafsetningin farin að skolast til hjá bréfritara en meiningin er þó öllum augljós. Engin undirskrift er á kortinu né nafn viðtakanda. <br>
Páll J. Pálsson safn 7
Myndin var tekin 1946 á hlaðinu á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bóndi á Bakka að járna hest með aðstoð Þorgríms (d. 7.9.2013) sonar síns. Önnur börn Páls fylgjast með en þau eru frá vinstri: Páll Jónatan, María og Björg.
Páll J. Pálsson safn 27
Myndin var tekin á hlaðinu á Efri Harrastöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) árið 1913. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri talið: Guðjón Einarsson bóndi á Efri Harrastöðum, tveir óþekktir enskir menn, Einar Guðjónsson og Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968). Vikapilturinn sem stendur framan við hesta Einars er Sigvaldi Benediktsson. Ensku mennirnir komu til að leita að gulli í Harrastaðahelli en það reyndist allt vera glópagull (járnkís FeS2) sem þar fannst.
María Magnúsdóttir - safn 093
Þessi kona er óþekkt en gæti verið Rannveig?. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
6
7
8
…
13
Leita í myndasafninu
Leita