Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 125
Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli og Ólafur Ögmundsson
María Magnúsdóttir - safn 012
Rækjan eða stóri kampalampi hefur oft verið kölluð rauða gullið vegna tekna sem veiðar hennar og vinnsla hafa gefið þjóðfélaginu. Á Skagaströnd var rekin Rækjuvinnsla í fremstu röð í áratugi sem veitti fjölda manns atvinnu og þar með góðar tekjur. Eftir að veiðar drógust mjög saman við Ísland var vinnslunni hætt og starfsfólkinu sagt upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 743
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Kindunum var smalað í aðhaldið sem sést á myndinni þar sem Rúnar Jóhannsson er að athuga markið á þeim svo hægt sé að finna eiganda kindanna. Sjá einnig mynd nr 10073.
Árni Geir Ingvarsson - safn 942
Benedikt Benjamínsson kallaður Strandapóstur. Var póstur norður um Strandir í 25 ár þar af tvö ár alla leið frá Stað í Hrútafirði og norður í Árnes, og um tíma alla leið í Ófeigsfjörð. Gerðist símstöðvarstjóri í Djúpuvík, og síðar útibústjóri fyrir kaupfélag. Þarna er hann á hesti sínum Fálka fyrir ofan símstöðvarhúsið á Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1940. (Heimild: Benedikt Strandapóstur ævisaga)
Páll J. Pálsson safn 10
Myndin var tekin 1946 af Páli Tómasyni (d.3.6.1963) bónda á Bakka í Skaghreppi þar sem hann situr á hestasláttuvél og slær. Til hægri á myndinni eru þrjú börn hans og eiginkona, talið frá vinstri: Björg Þóra Pálsdóttir, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013), Lilja Guðrún Pálsdóttir og eiginkonan María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975).
Héraðsskjalasafn A-Hún 123
Kristín Indriðadóttir (d.1941) frá Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) í söðli á hestbaki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 746
Margir óttast að starri geri sér hreiður við híbýli þeirra vegna lúsarinnar sem fylgir starranum. Hafa sumir gripið til þess ráðs að koma fyrir gerfi-uglu á áberandi stað á húsum sínum því starrinn óttast ugluna. Á myndinni hefur Pétur Eggertsson á Hólabrautinni fengið hjálp við starrafælinguna frá Smyrli sem situr á mæni hússins. Ljósmyndarinn, Árni Geir, hefur síðan leikið sér svolítið með myndina og dregið smyrillinn frekar fram en samt látið myndina halda sér að mestu leiti.
Ólafur Bernódusson632
Vogmær er fremur sjaldgæfur fiskur sem rekur stundum á fjörur eftir brim. Þetta eintak, ásamt nokkrum öðrum, rak í fjöruna utan við Skagaströnd um áramótin 2006-7. Vogmær er mjög fallegur fiskur en þykir ekki góður til átu. Útlit Vogmeyjarinnar er afar sérkennilegt og frábrugðið öðrum fiskum við strendur Íslands. Fiskar af vogmeyjarætt eru þekktir fyrir hversu langir og þunnvaxnir þeir eru. Vogmærin er yfirleitt 1,5- 3.5 m á lengd en hefur þó fundist allt að 6 metra löng. Augun eru stór og munnurinn sérstakur þar sem hann lengist fram í trjónu þegar hann er opnaður. Stirtlan og sporðurinn eru skærrauð ásamt löngum bakugganum sem gengur eftir endilöngu bakinu. Aðrir uggar eru annað hvort afar litlir eða ekki til staðar. Sporðurinn er líka rauður og vísar upp á við. Í kringum augun er hún svört og einnig ofan á höfði og hnakka. Fyrir ofan raufina og hryggjarliði má sjá stóran, kringlóttan, svartan blett en að öðru leyti er hún silfurgljáandi. <br>(Heimild: https://is.wikipedia.org/wiki/Vogm%C3%A6r)
Elínborg Jónsdóttir - safn 19
Jón Kristmundur Jónsson (d. 1947) bóndi á Másstöðum í Vatnsdal á hestbaki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 932
Tveir herramenn í kaupstaðarferð á Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafson (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær, líklega hefur það verið á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Elínborg Jónsdóttir - safn 33
Þetta fólk er í útreiðartúr. Önnur frá hægri er Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal. Hitt fólkið er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Elínborg Jónsdóttir - safn 7
Elínborg M. Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og fræðimaður að gefa hænunum heima á Másstöðum í Vatnsdal.
Adolf H Berndsen - safn090
Landsendarétt stóð við Landsenda, sem er nyrsti endi Spákonufellshöfða, eða á sjávarbakkanum skammt norðan við Réttarholt. Eins og sjá má var meginhluti réttarinnar hlaðinn úr grjóti og enn (í júní 2017) má sjá leifar réttarinnar sem er löngu aflögð sem slík.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 010
Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) mátar sig í hnakkinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum fyrir utan bæinn á Höfðahólum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 25
Það þótti aumt bú í gamla daga sem ekki átti að minnsta kosti eina kú. Fólkið í slíkum þurrabúðum var alltaf upp á aðra komið með mjólk og smjör var verðmikill gjaldmiðill í viðskipum manna á milli. Þess vegna þótti sveitafólki vænt um kúna sína og gerði henni til góða eins og það gat. Kýrin á myndinni hét Skrauta og var á bænum Másstöðum í Vatnsdal þegar Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) var að alast þar upp.
Jón Jónsson 469
Fossar í Svartárdal á réttardegi. Fjársafnið er að koma af heiðinni til réttar í Stafnsrétt. Fossar eru nú í eyði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 984
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) laumar aukabita í heimilishestinn sinn í Djúpavík í Reykjarfirði. Sonur Þórunnar, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina sennilega í kringum 1940. Þau mæðgin fluttu síðar til Skagastrandar einhverntíma kringum 1950 og bjuggu saman þar, lengst á Akri eða Hólabraut 13.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 039
Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) með heimilishestinn og dætur sínar tvær, Dagný Sigmarsdóttur til vinstri og Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til hægri. Myndin var tekin suður í Mýri líklega kringum 1970.
Jón Jónsson 453
Fjárrekstur í Svartárdal á leið að Stafnsrétt.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 008
Guðríður Gígja Axelsdóttir fær að prófa að fara á bak með stuðningi móður sinnar Sveinbjargar Óskar Björnsdóttur (d.12.7.2001). Bróðir hennar Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) heldur í hestinn. Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri stendur við lend hestsins og sennilega var hann eigandi hans. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54 fyrir utan gamla bæinn á Höfðahólum.
Jón Jónsson 488
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga af prúðbúnum hestamönnum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 34
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum. Rúnar Jósefsson er glaðbeittur með lamb í fanginu en hjá honum stendur Vilhelm B. Harðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 455
Fjársafn bíður við Stafnsrétt í Svartárdal eftir að vera réttað.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 003
Á myndinni er Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d. 12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) með börn sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Myndin hefur líklega verið tekin 1953 eða 54. Á hestinum situr Óskar Axelsson, en strákurinn í röndóttu peysunni er Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011). Bogga heldur svo á systur þeirra Guðríði Gígju Axelsdóttur í fanginu. Líklega standa þau við gamla bæinn á Höfðahólum.
Jón Jónsson 497
Fólkið á þessari mynd úr Stafnsrétt er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 730
Steypireyður er stærsta skepna jarðarinnar og er reyndar talinn stærsta skepna sem nokkurn tíma hefur verið til enda geta þeir orðið 200 tonn að þyngd og yfir 30 metra langir. Einn slíkan rak dauðan í fjöruna sunnan við bæinn Ásbúðir á Skaga í ágúst 2010. Bræðurnir á Hrauni á Skaga þeir Jóhann og Steinn Rögnvaldssynir voru fengnir til að skera hvalinn og hreinsa beinan eins vel og kostur var því beinagrindin er varðveitt eftir langt hreinsunarferli, sem fól meðal annars í sér langa suðu á beinunum til að ná úr þeim lýsinu. Eftir þurrkun voru beinin síðan flutt til Húsvíkur þar sem þau voru sett saman og hægt er að sjá beinagrindina á hvalasafninu þar. Snemma á öldinni var mikið veitt af steypireyð þannig að hann var kominn í útrýmingarhættu en hann er alfriðaður í dag.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 58
Á árum áður var það nánast lífsspursmál að eiga kú til heimilisþarfa. Á þessari mynd er Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) í Reykholti með kusu sína.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 340
Köttur í vanda á gluggasillu á Herðubreið í maí 2011. Þangað hafði hann stokkið og komist upp með harmkvælum en þorði svo ekki að stökkva niður. Hjálp er á leiðinni því konan innan við gluggann hjálpaði kisu inn og bjargaði henni þannig.
Ólafur Bernódusson894
Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II með tvo til reiðar rekur fé til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
María Magnúsdóttir - safn 163
Aftan á myndinni stendur, ritað með blýanti: "Magnús Guðmundsson 9 ára 15 október 1943 Til Ragnheiðar Björnsdóttir".
Héraðsskjalasafn A-Hún 120
Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm háhyrningar voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Nokkru síðar uppgötvuðust tveir hnúfubakar í annarri vök dálítið bnorðar. Þeir voru einnig drepnir og fólk gerði sér mat úr þeim. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að öðrum hnúfubaknum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berndsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir munnlegri frásögn Steingíms Jónssonar). Myndin tók Evald Hemmert.
Páll J. Pálsson safn 20
Bræðurnir Baldvin Hjaltason til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014) frá Skeggjastöðum á leið að smala heimahagana haustið 1959. Myndin var tekin á hlaðinu á gamla bænum á Bakka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 797
Þessi mynd var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni árið 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu og meðal skemmtiatriða voru ýmis konar hestasýningar. Þar á meðal átti að snara kálf af hestbaki.Kálfurinn var reyndar ekkert hrifinn af uppátækinu og stauk úr gerðinu þannig að sýningaratriðið var í hættu um tíma. Allt fór þó vel og kálfurinn var snaraður eins og vera bar. Myndin sýnir nokkra hestamenn sem eru að ráða ráðum sínum og fólkið bíður eftir framkvæmdinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 189
Hafsteinn J. Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) með tvo til reiðar.
Jón Jónsson 369
Þessi mynd var tekin kringum 1940 í fjörunni, sem þá var, austan við Einbúann, sem er lengst til hægri á myndinni. Konurnar eru María Magnúsdóttir og óþekkt vinkona hennar. María er líklega sú sem situr dökka hestinn. Eins og flestir þekkja er nú komin uppfylling og byggingar á svæðið sem þær stöllur eru að fara um á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 742
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Á myndinni eru Stefán Sveinsson til vinstri og Rúnar Jóhannsson til hægri að smala þeim í aðhald þar sem hægt var að skoða mörkin til að komast að hver átti þessar hafnarrollur.
Elínborg Jónsdóttir - safn 31
Sláttur í sumarblíðu á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Í baksýn standa Víðidalsfjöllin á haus í Flóðinu í Vatnsdalsánni. Hestasláttuvélar voru ekki fluttar til landsins í neinu magni fyrr en eftir 1925. Þær þóttu algjör munaður miðað við að áður var allt slegið með orfi og ljá. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Jósef H Sigurðsson - safn 042
Hugrún Sigurðardóttir í slökun með kettlinginn sinn heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hugrún var fædd 1973.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Páll Jóhannesson teymir tvo hyrnda hrúta hjá gömlu torfhúsi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn066
Hendrik Berndsen er hér með óvenjulegum leikfélaga. Máfinum Títí og Hendrik var vel til vina um tíma. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1975.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 004
Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri kátur með tvo til reiðar.
Jón Jónsson 483
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn040
Ungur óþekktur drengur fær að prófa að fara á hestbak við Undirfellsrétt í september 2004. Rúnar Jóhannsson heldur í hestinn og Guðrún Soffía Pétursdóttir passar upp á drenginn.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 012
Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það hefur sennilega verið við gamla bæinn í Höfðahólum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri og svo kemur Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001)með börnin sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Guðríður Gígja Axelsdóttir er í fangi móður sinnar, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) er í röndóttri peysu og Óskar Axelsson er lengst til hægri. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 011
Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri með tvo hesta.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 030
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) frá Þórsmörk fyrir utan heimili sitt með fallegan hrút. Siggi Mona, eins og hann var kallaður, átti nokkrar kindur í kofa lóðinni hjá sér eins og svo margir aðrir Skagstrendingar á sínum tíma. Myndin hefur líklega verið tekin á sjötta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 54
Réttað í Spákonufellsrétt. Því miður er fólkið á myndinni óþekkt þar sem hún er mjög óskýr. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 30
Heyskapur á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Þarfasti þjónninn sannar enn einu sinni gildi sitt með því að draga heim sátur af þurru heyi af vellinum. Fólkið á myndinni er óþekkt en í baksýn er Flóðið í Vatnsdalsánni.
Jón Jónsson 454
Fjárrekstur að Stafnsrétt í Svartárdal
Jón Jónsson 459
Við Stafnsrétt í Svartárdal.
Jón Jónsson 482
Hér eru bændur úr Svartárdal og víðar að rétta í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn066
Fólk á leið í útreiðartúr framan við Karlsskála á Skagaströnd. Fólkið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 480
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal einhverntíma kringum 1970.
Helga Berndsen 038
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1965 í réttarskúrnum við Spákonufellsrétt. Þar seldu konur úr kvenfélaginu Eining kaffi og meðlæti á réttardögum. Á myndinni er allt til reiðu fyrir söluna. Frá vinstri: óþekktur strákur, Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) Stóra Bergi, Steinunn Jónsdóttir (d.6.4.1982) frá Stórholti, Guðríður Valdimarsdóttir (d.?) úr Vinaminni og Helga Berndsen úr Karlsskála sem heldur um dóttur sína Guðrúnu Einarsdóttur.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 131
Rúnar Jósefsson kampakátur með lambhrút í fanginu í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 73
Á myndinni er gamli bærinn í Kambakoti.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 96
Á myndinni eru tvö ungviði. Drengurinn er Vilhelm B. Harðarson en kálfurinn er nafnlaus. Myndin var líklega tekin kringum 1968.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 121
Líklega eru þetta systurnar frá Reykholti, dætur Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) og Laufeyjar Jónsdóttur (d.25.12.1969). Ef þú þekkir hver er hver vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 101
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) á hestbaki. Hafsteinn var bóndi, kaupmaður, skáld og rithöfundur sem kenndur var við Reykholt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 56
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) frá Reykholti á baki hests sem henni þykir greinilega mjög vænt um. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
7
8
9
…
13
Leita í myndasafninu
Leita