Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Dýr
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Landslag
Snjór
Neðsti Flokkur
Réttir
737 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson914
24. janúar 2088 fengu þeir á Hafrúnu Hu 12 sérkennilegan afla á línuna. Það var þorskurinn á myndinni því í baki hans var fastur fimm metra langur haki. þorskurinn var greinilega búinn að vera að dragnast með hakann í bakinu í nokkurn tíma því skaftið var með hrúðurkörlum á. Skipstjórinn á Hafrúnu, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, heldur í hakann á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1266
Árni Halldór Eðvarðsson í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 127
Vilhelm B. Harðarson á hestbaki. Myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma kringum 1966.
Ólafur Bernódusson896
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi flytur uppgefna kind á fjórhjólinu sínu til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson854
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri skera hákarl áður en honum er komið í kösina. Þar er hann látinn verkast ca 2 mánuði áður en hann er hengdur upp til þurrkunar í tvo til þrjá mánuði áður en hans er neytt.
Ólafur Bernódusson775
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á Arnari Hu 1 sýnir hér branduglu sem settist á Arnar úti á sjó og var fönguð. Henni virtist líða ágætlega vel um borð og át hrátt kjöt með ágætri lyst úr höndum Finns. Henni var svo sleppt þegar komið var í höfn og lét sig þá hverfa án þess að þakka fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það sumarið 2005.
Ólafur Bernódusson897
Jónmundur Ólafsson (d. 19.4.2017) fyrrverandi bóndi Kambakoti í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson901
Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skeggjastöðum fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson898
Páll Jóhannesson fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson905
Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi glaðbeittur við fjárdrátt í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson904
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2007 af fólki að fylgjast með réttarstörfunum. Frá vinstri: Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka, Elna Ragnarsdóttir og Laufey Inga Stefánsdóttir.
Ólafur Bernódusson 2 713
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri komu með góðan afla í maí 2001 á Dagrúnu. Aflinn var fjórir hákarlar í sömu umvitjun en þeir lögðu oft hákarlalóð á vorin um leið og þeir voru á grásleppu. Hákarlarnir voru allir skornir, kæstir og þurrkaðir og síðan etnir með góðri lyst á þorrablótum vítt um landið.
Ólafur Bernódusson893
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) með tvo til reiðar við Kjalarlandsrétt á gangnadegi 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson970
Það hlýtur að vera stór stund hjá æðarungunum þegar þeir fara í fyrsta sinn á flot. Á myndinni leiðir æðarkolla nokkra unga sína fyrstu skrefin út í sjó þar sem þeir munu eyða mestum hluta ævi sinnar eftir það. Æðarfuglinn nær 10 - 20 ára aldri og kollan verpir 4 - 6 eggjum í maí til júní. Þá reytir hún dún af brjósti sínu og fóðrar hreiðrið innan með honum. Það var einmitt þessi dúnn og nýtingin á honum sem gerði það að verkum að æðarfugl var friðaður á Íslandi 1786 að takmörkuðu leiti en síðan 1847 hefur hann verið alfriðaður. Varð hann þannig fyrsta villta dýrið sem var friðað á Íslandi. Talað er um að það þurfi 60 hreiður til að fá eitt kíló af dún sem selst á háu verði eftir þurrkun og hreinsun. Útungunartími æðareggja er um fjórar vikur og strax og ungarnir koma úr eggjunum leiðir kollan þá út á sjó í fæðuleit. Áætlað er að um 975 þúsund æðarfuglar hafi vetursetu á Íslandi.
Ólafur Bernódusson767
Í mars 2005 flæktist þessi myndarlegi æðarkóngur í grásleppunet hjá Stefáni Jósefssyni. Æðarkóngur er fremur sjaldgæfur við Ísland því varpstöðvar hans eru á nyrsu slóðum svo sem á Ellesmerlandi í Kanada, nyrst á Grænlandi, Svalbarða og eyjum nyrst á jörðinni. Eins og sést á myndinni er fuglinn skrautlegur í meira lagi en fuglinn á myndinni er að sjálsögðu bliki þ.e. karlfugl.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1063
Jón Örn Stefánsson sleppir Gjóði sem náðist um borð í Arnari Hu 1. Gjóður er ekki algengur á Íslandi en hefur þó sést hér nokkrum sinnum. Hann er fiskiæta skyldur fálka, um 60 cm að stærð með vænghaf allt að 180 cm. Myndin var tekin 19. október 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1116
Sigurður Jónsson djúpt hugsi á tröppunum við heimili sitt að Fjallsminni 18. ágúst 2006. Hjá honum, íhugull og slakur, er besti vinur hans - kisi.
Ólafur Bernódusson789
Þessi hákarl kom á línuna hjá Öldunni Hu 112 16. janúar 2006. Hjá hákarlinum stendur Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður og eigandi Öldunnar. Hákarlinn var auðvitað skorinn og verkaður til að gleðja bragðlaukana haustið 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1064
Sigrún Lárusdóttir með tvo til reiðar við að liðka hrossin sín í apríl 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1261
Mæðgur. Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emilíu Marey Einarsdóttur meðan þær virða fyrir sér kindur í réttinni sunnan við Kjalarland 8. september 2018.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1122
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) til vinstri spjallar við Skarphéðinn Einarsson til hægri í réttunum 4. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1215
Rjúpan er eftirsótt af mörgum á jólaborðið. Hún er af orraætt, staðfugl á Íslandi en verpir í mörgum öðrum löndum á norrænum slóðum. Kvenfuglinn, eða hænan, er um 500 gr að þyngd en karlfuglinn, sem kallast karri, er um 550 gr. Rjúpa skiptir þrisvar á ári um lit, hvít á vetrum, brún á sumrin og gráleit á haustin. Hún verpir að jafnaði 12 eggjum þannig að frjósemin er mikil enda verður hún að meðaltali ekki nema þriggja til fjögurra ára gömul þó þær elstu verði 6- 7 ára. Rjúpnafjöldi á Íslandi sveiflast mikið og eru ca 10 ár milli toppa. Ekki er fullljóst hvað veldur þessum sveiflum en þær tengjast ekki skotveiðum manna segja vísindamenn. Helstu óvinir rjúpunnar eru fálki og refur auk mannsins sem sækir í að veiða hana á leyfðum veiðitímabilum. Mjög vel er fylgst með rjúpnastofninum á Íslandi og líklega eru fáir fuglastofnar jafn vel vaktaðir af vísindamönnum.
Ólafur Bernódusson906
Árni Geir Ingvarsson mundar myndavélina í Kjalarlandsrétt 8. september 2007. Framan við hann spjalla Jónmundur Ólafsson (d. 19.4.2017) til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
Ólafur Bernódusson895
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri á Skagaströnd fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1096
Hvalskurður á hafnarbakkanum á Skagaströnd. Hrefnuveiðibátar voru stundum við veiðar á Húnaflóa á sumrin og komu þá gjarnan með aflann í land á Skagaströnd og gerðu að hrefnunum á bryggjunni. Beinagrindina og annan úrgang tók svo viðkomandi bátur með sér í næstu veiðiferð og skilaði aftur í lífríkið í sjónum einhversstaðar utan veiðislóða. Á þessari mynd er Birgir Árnason (d.2.2.2005), hafnarvörður í köflóttri skyrtu og grænleitum buxum, að hjálp áhöfn eins hvalbátanna við hvalskurðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á níunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason053
<P>Verðlaun afhent á hestamannamóti. Ef þú veist hverjir eru á myndinni og/eða hvar mótið fór fram vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1390
Myndin var tekin af ungum áhugamönnum um sauðfé í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Krakkarnir sem eru að kíkja á mörk kindanna eru Ólafur Halldórsson og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Guðmundur Guðnason705
Dregið í dilka í Hofsrétt?. Maðurinn með hattinn fremst á myndinni er Konráð Klemensson (Konni gamli).
Ólafur Bernódusson930
Bræðurnir Rúnar Jósefsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri hafa skotið marga refi gegnum tíðina. Þessi sem Rúnar heldur á 16. maí 2008 var merkilegur fyrir þær sakir að hann var þrífættur því hann vantaði annan framfótinn. Fótinn hafði hann misst, einhverra hluta vegna, töluvert fyrr því þar sem hann átti að vera var bara vel gróið ör.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 30
Aðalsteinn Jörgensen bjargar hananum vini sínum úr uppslætti sem haninn hafði asnast upp í. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 228
Hann er glæsilegur haninn sem var á Breiðabliki í ágúst 2014. Hann hélt uppi ströngum aga á hænunum sínum sem elskuðu hann og virtu á sinn hátt. Takið eftir sporanum sem er ógnandi aftan á hægri fæti hanans.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 142
Þegar þessi mynd var tekin var stór gryfja eftir efnistöku rétt vestan við Spákonufellsrétt. Vatn safnaðist gjarnan í gryfjuna og var því vinsælt hjá yngri kynslóðinni að leika sér í pollinum meðan fullorðna fólkið stritaði í réttinni. Á steininum er líklega Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Vilhelm B. Harðarson og Aðalsteinn Jörgensen. Langt er nú orðið síðan gryfjan var fyllt upp aftur.
Ólafur Bernódusson971
11. júní 2010 fengu þeir félagarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Sævar Hallgrímsson til hægri sjaldgæfan flatfisk í netin á Ólafi Magnússyni Hu 54. Um var að ræða sandhverfu. Sandhverfa lifir í ísöltu vatni t.d. í sjónum við árósa og jafnvel uppi í ósum. Hún er mjög sjaldgæf hér við land en þykir frábær matfiskur. Stærsta sandhverfan sem vitað er til að veiðst hafi hér við land veiddist í febrúar 2018 við Ingólfshöfða en hún vóg 12 kíló og var 82 sentimetra löng.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1057
Einar Guðmannsson til vinstri með frænda sínum Páli Valdimar Magnússyni (d. 12.3.2011) í fjáragi heima á Vindhæli í september 2005.
Ólafur Bernódusson902
Lárus Ægir Guðmundsson fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson899
Erna Högnadóttir húsfreyja á Vindhæli fylgist eð réttarstörfum í Kjalarlandrétt 8. september 2007. Stúlkan við hlið hennar er óþekkt.
Ólafur Bernódusson903
Nágrannarnir Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi til vinstri og Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II til hægri á spjalli í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1258
Þau eru ekki gömul börnin á myndinni úr réttunum 8. september 2012 en áhuginn leynir sér ekki. Maðurinn í bláröndóttu peysunni er Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli. Sá sem bograr við að skoða mark á lambi er Jóhann Ásgeirsson bóndi í Kambakoti og næst honum eru börnin hans tvö Freyja Dís Jóhannsdóttir og Logi Hrannar Jóhannsson. Með þeim eru svo Victoria Hólmgeirsdóttir með hvíta húfu og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1267
Myndin var tekin 8. september 2012 í Kjalarlandsrétt af glöðu fólki við réttarstörf. Fólkið er: Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og svo feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildur Jakobsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1070
Þessi mynd var tekin 20. janúar 2010 af hestaáhugafólkinu, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Axelsson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) og Hrönn Árnadóttir. Manneskjan lengst til hægri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson900
Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009) fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1271
Líklega þekkir Logi Hrannar Jóhannsson frá Kambakoti vel kindina sem hann er að klappa á myndinni úr Kjalarlandsrétt 8. septeber 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1257
Árni Halldór Eðvarðsson með tvo til reiðar í göngum 8. september 2012.
Ólafur Bernódusson843
Kría að segja ljósmyndaranum til syndanna.
Ólafur Bernódusson781
Víðirinn í Mosárdal var þakinn af litlum lirfum eins og þeim sem sjást á myndinni, liklega víðifetalirfum. Þessir skrautlegu "ormar" breytast síðan í falleg fiðrildi næsta vor eftir að hafa farið gegnum púpustig.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1189
Unglingar í bæjarvinnunni að dytta að Spákonufellsrétt í júlí 2010. Unglingarnir eru frá vinstri talið: Þórður Indriði Björnsson, Sara Rut Fannarsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson og Jóhann Örn Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1253
Þessi tvö bíða eftir safninu af fjalli í göngum 8. september 2012. Þeirra hlutverk Var að standa fyrir og beina safninu rétta leið í almenninginn við réttina hjá sunnan við Kjalarland. Fólkið er Páll Jóhannesson og Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016) sem bæði höfðu áhuga á kindum og fjárbúskap.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 402
Mávarnir á bryggjunni eru stundum til vandræða. Þeir hópast að fiskkörunum þegar verið er að landa og kroppa í góðgætið sem í þeim er. Á þessari mynd frá því í ágúst 2013 nýta sílamávar og silfurmávar sér tækifærið þessar mínútur sem það tekur að ná hinum körunum upp úr bátnum.
Arnar HU 1 - safn 66
Þessi undarlegi fiskur, Pálsfiskur (Zenopsis conchifera), kom í trollið hjá Arnari HU 1 á Grindavíkurdýpi í apríl 2008. Pálsfiskur er afar sjaldgæfur við Ísland því hann veiðist mest í Indlandshafi og við Ástralíu. Þó finnst hann í einhverju mæli á strandsvæðum við Atlantshaf. Pálsfiskur getur orðið allt að 80 cm langur en fiskurinn á myndinni var um 30 cm.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1071
Deilt er um hvort hundurinn sé besti vinur mannsins eða hvort það sé hesturinn. Þetta fólk var úti að labba með besta vin sinn? í febrúar 2010 og áttu spjall við tónlistarskólann. Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Pétur Eggertsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1260
Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka í réttarstörfum í réttinni sunnan við Kjalarland 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1074
Sigurður G. Jónsson í Fjallsminni með besta vin sinn - kisa - á öxlinni. Myndin var tekin af þeim félögum í göngutúr í lok október 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1263
Karen Líf Sigurbjargardóttir 8. september 2012 í Kjalarlandsrétt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1270
Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1269
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gráhærði maðurinn er Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) en hinn maðurinn er óþekktur. Í baksýn er Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1273
Systurnar Sigríður Ólína Ágústsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Arnar HU 1 - safn 20
Mokafla af ufsa um borð í Arnari HU 14. ágúst 2003 hleypt niður í móttökuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason163
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn á miðri mynd er Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð. Aðrir eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 111
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Siglfirðingurinn Hilmar J. Stefánsson og Ragnar Högnason. Þeir eru allir með guðlax í fanginu. Guðlax er mjög sérkennilegur fiskur sem þykir herramanns matur. Hann er mjög feitur fiskur með mildu bragði og getur orðið mjög stór, allt að 185 cm og 70 kg. Hann er sjaldgæfur flækingur á Íslandsmiðum og þykir mjög fallegur. Það sérkennilegasta við hann er þó það að hann er eini fiskurinn sem vitað er um að er með heitt blóð. (Heimild: Wikipedia). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1484
Hundurinn aðstoðar eiganda sinn Björgvin ? við að beita í skúrnum hjá Vík ehf lok nóvember 2012.
1
…
8
9
10
…
13
Leita í myndasafninu
Leita