Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason108
Þessi mynd var tekin neðan við Einbúann á þeim tíma sem sjór féll upp að honum. Það þýðir að myndin hefur sennilega verið tekin ekki seinna en 1934 því það ár var hafist handa við hafnargerð á þessu svæði. Þá var stutt bryggja, byggð um 1922, rétt austan við Hólsnefið, sem er systi oddi Höfðans. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Litli/efri Lækur, Jaðar, óþekkt, Karlsskáli, Lækur, Lundur, Lækjarbakki og Karlsminni. Bátarnir eru óþekktir en Spákonufellið er í baksýn.
Guðmundur Guðnason136
Mjóadalsrétt á Laxárdal. Bærinn í baksýn er Gautsdalur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Ólafur Bernódusson544
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995. Þá var gripið til þess ráðs að í stað þess að moka göturnar var troðin slóð ofan á snjónum og ekið í slóðinni. Á þessari mynd er snjótroðarinn, sem sannarlega nýttist vel þennan vetur, að draga hálfgám sem sorpinu var safnað í. Á myndinni er snjótroðarinn í ca tveggja metra hæð á Bogabrautinni.
Óþekktur ljósmyndari244
Síldarverksmiðjan í byggingu 1945 eða 1946. Næst okkur á myndinni er frysti - og sláturhús Kaupfélags Skagstrendinga en lengst til hægri sér í endan á bryggjunni sem var neðan við (sunnan við) frystihúsið í skjóli við Hólsnefið.
Guðmundur Guðnason128
Gömul mynd af réttastörfum í ókunnri rétt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari320
Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) frá Kambakoti og Reykholti var mikill veiðmaður og góð skytta. Hann skaut margan refinn gegnum tíðina og á þessari mynd, sem tekin var 1969 af Stefáni Jósefssyni, heldur hann á einum þeirra. Hlauplanga haglabyssan, sem hann er með, var af gerðinni Husqvarna en slíkar byssur voru nokkuð algengar á þessum tíma
Óþekktur ljósmyndari302
Í bókinni Byggðin undir Borginni á bls. 63 segir svo um þessa mynd: <em>" Verslunarstaðurinn árið 1910; fremst er verslunarstjórahúsið, þá assistentastofan, pakkhúsið og búðin. Fjær eru Gamli-Lækur og Jaðar. Á grindurnar í hægra horninu var breiddur fiskur, en Höphnersverslun hafði þá mesta fiskverkun. Spákonufellið gnæfir yfir og til hægri er Einbúinn".</em>
Ólafur Bernódusson517
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd er einn af nemendunum að stíga fyrsta skrefið út í óvissuna. Calle situr á brúninni og fylgist með en fleiri nemendur bíða eftir að röðin komi að þeim.
Guðmundur Guðnason 2228
Þessi mynd var tekin af fjársafni sem verið er að reka yfir ?Svartá? á leiðinni til réttar í Stafnsrétt. Smalamennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason230
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir hafís á Bótinni - sem er víkin norðan við Höfðann, milli Finnstaðaness og Höfðans. Ísinn gerði oft mikinn usla í grásleppu- og þorskanetum sjómanna á Skagaströnd á hafísvorum með því að slíta af þeim bólin og draga þau svo með sér eitthvað út í buskann.
Skagaströnd - safn104
Þessi mynd sýnir Höfðann (Spákonufellshöfða) fyrir 1934 því á myndinni er hann óskemmdur af grjótnámi, sem hófst þar 1934 þegar sprengt var í Höfðanum til að fá grjót til uppfyllingar í hafnargerð á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason193
Í Stafnsrétt 1970. Ekki er vitað hverju fólkið er svona spennt fyrir en fólkið er óþekkt þannig að ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason211
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapinn er Einar Höskuldsson frá Mosfelli.
Skagaströnd - safn181
Þessi mynd var tekin vorið 1965 en þá rak hafís inn á Húnaflóa með tilheyrandi vandræðum fyrir sjófarendur. Konan á myndinni er Ardís Ólöf Arelíusdóttir.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn013
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi í Spákonufellsrétt við réttarstörf.
Ólafur Bernódusson505
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir verkstjóri, Ragna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson og Rakel Petrea Finnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari295
Skagaströnd 1935 - 1940. Síldarskipin bíða eftir þjónustu, ker í byggingu í dráttarbrautinni og Hafnarhúsið er risið (1935).
Guðmundur Guðnason187
Myndin var tekin árið 1970 sennilega í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en er sennilega úr Svartárdal og Blöndudal að mestu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari182
Réttað í Landsendarétt. Landsendarétt var staðsett við Landsenda sem er nyrsti endi Höfðans. Réttin var sem sagt á flötinni norðan við Réttarholt.
Guðmundur Guðnason207
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapar og hestar bíða ræsingar. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn086
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í hesthúsferð í júní 1997. Þar fengu þau meðal annars að klappa folöldum sem virtust álíka forvitin um krakkana eins og þeir voru um folöldin. Á myndinni eru Gunnar Sveinsson standandi, og Rúnar Jóhannsson sem krýpur með börnunum. Barnið næst okkur er Ellen Sigurjónsdóttir en hjá Rúnari er Unnar Leví Sigurbjörnsson og Stefán Velemir sem klappar folaldinu.
Guðmundur Guðnason189
Fjársafnið rekið til réttar í Spákonufellsrétt árið 1970. Fólkið á myndinni er óþekt.
Guðmundur Guðnason 2 226
Fjársafni smalað að Stafnsrétt í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason305
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn í bláu peysunni rétt vinstra megin við miðja mynd er Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta-Gili og Skarphéðinn Einarsson frá Blönduósi er í ljósri lopapeysu að skoða mark á lambi. Stelpurnar tvær til hægri á myndinni eru: Helga Sigríður Ævarsdóttir í rauðri peysu og Helga Ólína Aradóttir með flétturnar. Ingibjörg Karlsdóttir (d. sept. 2014) er konan í úlpunni á miðri mynd og Arnar Árnason er drengurinn til hægri í fjólubláu peysunni.
Jón Jónsson237
Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Jóhannes William Grétarsson, Linda Hafdal Gunnarsdóttir og Sigurður Berndsen?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990.
Guðmundur Guðnason276
Þessi mynd var tekin í Almannaskarði við Höfn í Hornafirði á hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974 , árið sem hringvegurinn opnaði. Nær okkur á myndinni er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) en Ómar Jakobsson nýtur útsýnisins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 380
Hópreið félagsmanna úr hestamannafélaginu Snarfara á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né af hvaða tilefni efnt var til hópreiðarinnar. Fremstur í röðinni er Sigurbjörn Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn133
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Félagar í hestamannafélaginu Snarfara tóku þátt í göngunni á fákum sínum.
Skagaströnd - safn273
Hér er unnið að plægingu á stýrisstreng fyrir vatnsveitu í Hrafndal sumarið 1996. Myndin var tekin af gröfunni á kafi í mýri neðan og vestan við skíðaskálann. Þrátt fyrir að vera á tvöföldu bæði að framan og aftan sökk grafan eins og sést. Allt fór þó vel enda vanur maður á gröfunni, Guðmundur J. Björnsson.
Guðmundur Guðnason274
Þessi mynd var tekin í hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974. Á henni er fólk að undirbúa sig undir að tjalda á náttstað við Dynjanda í Hornafirði. Í baksýn sjást Vesturhorn og Stokknes. Næst okkur á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) en aftan við hana sést Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) en aftan við Sigmar sér í Eðvarð Jóhannesson. Næst rútunni og snúa baki í ljósmyndarann eru sennilega Guðmunda Sigurbrandsdóttir og Ólafur Guðmundsson. Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) heldur á rauðri fötu og grænum poka en lengst til hægri, með grænan poka, er Kristinn Guðmundsson.
Óþekktur ljósmyndari263
Litla Berg til vinstri og Stóra Berg til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á tveimur fyrstu áratugum 20. aldar. Skóli var haldinn á Stóra Bergi 1909 og nokkur næstu ár. <font size="1">(Byggðin undir Borginni bls 147)</font>
Óþekktur ljósmyndari327
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann stóð niður við sjó við Landsenda (nyrsta enda Höfðans) en brann eftir að flutt var úr honum einhverntíma á sjöunda áratugnum. Til hægri við bæinn grillir í Landsendarétt sem þarna var.
Óþekktur ljósmyndari265
Á Kántrýhátíð 1984 sem haldin var á tjaldsvæðinu. Á myndinni eru knaparnir frá vinstri: Jón Gunnarsson, Jónatan Hjaltason, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011), Hallbjörn Hjartarson og Ólafur Ásgeirsson.
Óþekktur ljósmyndari346
Þessi mynd var tekin fyrir 1906 og er af gamla íbúðarhúsi danska kaupmannsins sem byggt var 1774 en rifið 1908. Svarta húsið var fjós og hesthús kaupmannsins og líklega pakkhús að hluta til. Hvíta húsið hægra megin við bátinn var Búðin og áfast við hana er pakkhús/kornhlaða sem líklega var aðal lagergeymsla Búðarinnar. Búðin stóð fram á sjöunda áratuginn og var undir það síðast notuð sem sementsgeymsla fyrir KAST = Kaupfélag Skagstrendinga. Kornhlaðan var sennilega rifin um eða rétt fyrir miðja 20 öldina. Hægra megin við þessar byggingar, á kafi í snjó er Sæmundsenbúðin. Báturinn á myndinni hét Traffik og var eign Hoephnersverslunar.
Óþekktur ljósmyndari351
Spákonufellsbærinn 1949. Bærinn stóð þar sem nú er kirkjugarður Skagstrendinga.
Guðmundur Guðnason213
Óþekktur knapi á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Ef þú þekkir manninni eða einhvern meðal áhorfenda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari246
Bankastræti í júní 1986. Síðan þessi mynd var tekin hafa fjögur af húsunum horfið þó byggt hafi verið nýtt í stað eins þeirra. Í húsaröðinni til vinstri er Höfðaberg, sem er lengst frá okkur, horfið. Höfðakot sem stendur við enda götunnar er horfið og í hægri röðinni eru horfin húsin á Flankastöðum og Kárastöðum en þau eru hús númer tvö og þrjú frá okkur talið. Nýtt hús hefur svo risið að Flankastöðum.
Guðmundur Guðnason209
Óþekkt fólk á kappreiðum 1961 á Hvammsbökkum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason199
Séð yfir Stafnsrétt 1969. Hér er verið að rétta hross.
Guðmundur Guðnason191
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970 þar sem menn eru að ræða málin. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason195
<p>Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Á myndinni frá vinstri má greina Maríu Steingrímsdóttur bónda á Brandsstöðum en fjórði maður frá henni, með gleraugu, er Markús? bóndi á Reykjahóli og síðan Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) bóndi á Bollastöðum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Þórður Jónsson048
Fjársafnið rekið í almenninginn á Spákonufellsrétt. Maðurinn með ljósu húfuna, annar frá vinstri er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) Steinholti, fjórði frá vinstri er Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fimmti er Baldvin Jóhannesson (d. 1.1.1981) Ásholti og sjötti ?Vilhjálmur Skaftason? Dagsbrún og drengurinn við hlið hans er líklega Kári Lárusson Ási. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn188
Hafís við Skagaströnd sennilega 1965. Myndin er dæmigerð fyrir veðrið á hafísvorum; þokuslæðingur logn og frekar kalt.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn012
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi glöð og kát í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason303
Réttir - líklega í Skrapatungurétt. Maðurinn lengst til hægri er Einar Guðlaugsson (d. 1.4.2008). Maðurinn með vindilinn líklega Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal en hann er að tala við hjónin Jökul Sigtryggsson og Valgerði Kristjánsdóttur frá Núpi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn018
Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum.
Óþekktur ljósmyndari172
Kristján Guðmundsson bóndi í Háagerði slær með hestasláttuvél sem hann hefur beitt tveimur hestum fyrir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari283
Þessi mynd var líklega tekin á þriðja áratugnum. Á henni njóta lífsins á Höfðanum þau: Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987) og systir hennar Magdalena Helgadóttir (d. ?).
Þórður Jónsson023
Skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd á ferð í Vindhælisstapa í vetrarveðri. Ártal ekki vitað en líklega var myndin tekin um 1960. Frá vinstri: Jóhanna Valdemarsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Ellertsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Sigríður Pálsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Sigurfari var stofnaður 26. mars 1959 en aðal hvatamaður þess, og fyrsti félagsforingi, var Ingólfur Ármannsson kennari við Höfðaskóla. Ingólfur kom frá Akureyri en þar var öflugt skátastarf sem hann hafði tekið þátt í. Sigurfari starfaði í u.þ.b. áratug lengst af undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eftir að Þórður flutti frá Skagaströnd 1966 eða 1967 fjaraði undan félaginu og lagði það upp laupana smátt og smátt.
Guðmundur Guðnason253
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Á þessari mynd er skíðmennskan í fullum gangi en dráttarvélin var í eigu Ásgeirs Axelssonr (d. 8.6.2011) Litla-Felli.
Skagaströnd - safn205
Mikill og almennur skíðaáhugi var á Skagaströnd á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda. Fólkið á þessari mynd gekk á skíðum frá Skagaströnd út að Háagerði og til baka einn sunnudag veturinn 1983. Myndin var tekin efst á Bogabrautinni áður en lagt var af stað. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldóra Þorláksdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Börnin tvö framan við röðina eru óþekkt. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Guðmundur Guðnason215
Knapar og áhorfendur á kappreiðamóti á Hvammsbökkum 1961. Til hægri, með hendur í blússuvösunum, er Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson341
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og Soffía Lárusdóttir.
umf Fram302
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, eru Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri í heimsókn að Brandaskarði ásamt fleiri krökkum. Þar var margt að sjá og snerta t.d. þessir litlu kettlingar.
Guðmundur Guðnason219
Skeiðað eftir vellinum á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knapinn er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 223
Réttað í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og óvíst hvort tekist hefur að bera kennsl á fólk á myndinni. Maðurinn lengst til hægri inni í fjáhópnum er sennilega Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) frá Blálandi og maðurinn sem hallar sér yfir réttarvegginn gæti verið Þorkell Magnússon (d.30.8.1868) frá Goðhól. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram307
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, voru krakkarnir í heimsókn að Brandaskarði. Þar fengu þau að gera ýmislegt skemmtilegt meðal annars að gefa kálfi mjólk úr pela. Á myndinni eru frá vinstri: Anton Einarsson, Eydís Einarsdóttir leiðbeinandi, Pálll Halldórsson, Bergrós Hafsteinsdóttir (með rauða húfu), Alma Eik Sævarsdóttir leiðbeinandi, Sylvía Hrólfsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Birkir Gunnarsson er að gefa kálfinum, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Anna Dís Ragnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason309
Hvílir lúinn fót við réttarvegg.
Guðmundur Guðnason259
Skíðamót var haldið við dráttarvélknúna togbraut í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Þessir kappar mættu til að fylgjast með mótinu. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Jón Ingi Ingvarsson, óþekktur og Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson349
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Viggó Magnússon og Sigríður Einarsdóttir skíðakennari.
1
…
9
10
11
…
25
Leita í myndasafninu
Leita