Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson236
Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Linda Rós Rúnarsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) og Jón Heiðar Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990.
Guðmundur Guðnason 2 429
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Sama má segja um réttina - ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 367
Þessi brú var (er ?) yfir Hólmsá í Skaftartungu. Augljóslega hefur verið vandasamt að aka rútum og lengri bílum yfir hana. Ökumaður þessarar rútu virðist þó kunna sitt fag því hann fer eins langt til hægri og hægt er til að ná beygjunni inn á brúna.
Guðmundur Guðnason 2 502
<p>Árið 1977 gengu þeir félagar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), sem myndin er af, og Sigurður Jónsson um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Myndin var tekin á náttstað þeirra við Vesturá þar sem Guðmundur átti æskuár sín. Bærinn var löngu kominn í eyði þegar myndin var tekin. </p>
Guðmundur Guðnason 2 428
Hér er réttað í óþekktir rétt (Vindhælisrétt?) á óþekktum tíma. Ekki er hægt að þekkja fólkið á myndinni vegna þess hve filman er orðin máð.
Skagaströnd - safn414
Gunnar Albertsson mokar snjó frá Gamla Hólanesfrystihúsinu á Hólanesi í október 1995. Sér til hjálpar hefur hann traktorsgröfu undir stjórn Guðmundar Björnssonar.
Óþekktur ljósmyndari365
Skagaströnd Iceland er ritað á þessa mynd. Margir mundu e.t.v. ekki kannast við staðinn ef ekki væri fyrir Spákonufellið sem gnæfir yfir í baksýn. Annars sýnir myndin hvernig umhorfs var við Einbúann - klettinn sem er til hægri á myndinni - áður en hafist var handa við hafnargerð 1934 með uppfyllingu hérna megin við Einbúann. Stóra húsið á miðri mynd var fjós og hesthús og sennilega pakkhús að hluta. Hvíta húsið til vinstri var aðsetur verslunarstjórans. Við hornið á hesthúsinu vinstra megin sér í Assistentastofu, sem var húsnæði aðstoðarmanns verslunarstjórans. Litla húsið í Einbúanum var þvottahús og húsið sem sést fram undan stóra hesthúsinu til hægri var Sæmundsenbúð. Ljósmyndin er líklega handmáluð en er upprunalega póstkort sem á stendur 17. nóvember 1913 svo sennilega hefur myndin verið tekin þá.
Guðmundur Guðnason 2 369
Skatastaðir í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 443
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt en skeggjaði maðurinn er Jónatan Jónsson (d.17.7.1971) frá Hólagerði á Skagaströnd. Til hægri, í ljósum jakka, er Björn Helgason (d. 11.3.1983) frá Læk.
Jón Jónsson338
<p>Þetta fólk var í forystusveit skíðafólks á Skagaströnd meðan skíðalyfta var rekin í Spákonufelli. Frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Á þessari mynd eru þau að afhenda verðlaun á skíðamóti kringum 1985. </p>
Guðmundur Guðnason 2 456
Þessi mynd var líklega tekin í sundinu milli Gamla kaupfélagsins til hægri og Kaupfélagshússins til vinstri en það hús er nú löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en maðurinn á myndinni er Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri. Finnur er sparibúinn og vel ríðandi með tvo til reiðar.
Guðmundur Guðnason 2 482
Heimalningum á Balaskarði gefin mjólk að drekka. Konan í rósótta kjólnum er Signý Benediktsdóttir ( d. 7.1.1991) en hin konan er líklega Geirlaug Ingvarsdóttir dóttir Signýar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 416
Snjómokstur neðst á Mánabraut. Ekki dugir minna en jarðýta af stærstu gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 40
Gripur nr. 40. Mynd úr Hvalfirði í grænleitum leðurramma.
Skagaströnd - safn410
Þessi mynd var tekin 16. janúar 1995 í vetrarbrimi. Myndin sýnir sjó ganga yfir brimvarnargarðinn ( Útgarð). Síðan þessi mynd var tekin hefur grjótvörn við garðinn verið stóraukin og endubætt og þó enn skvettist yfir garðinn í verstu brimum þá er það ekkert í líkingu við það sem myndin sýnir. Vitinn á enda garðsins hefur verið rifinn og röraviti verið reistur í staðinn.
Guðmundur Guðnason2 343
Á þessari mynd sjást uppáhalds skepnur Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar - kindur. Í baksýn má sjá gapandi sárið í Höfðanum eftir grjótnám þar. Til vinstri sjást svo nokkur fjárhús, sem karlarnir sem bjuggu í Bankastræti undir Höfðanum, áttu.
Guðmundur Guðnason 2 453
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal við heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og sér í mynni Vesturáarskarðs í baksýn. Fjölskylda Guðmundur bjó í dalnum á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Konan lengst til vinstri er Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) móðir Guðmundar. Ungi maðurinn sem bindur bagga er Pálmi (d. 23.3.1994), Ingvi (d. 31.12.1991), eða Rósberg (d. 9.1.1983) en þeir voru bræður Guðmundar (líklegast er að þetta sé Rósberg). Guðmundur sjálfur heldur í hestinn og faðir hans Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) hleður fúlgu úr heyinu í baksýn.
Magnús B Jónsson093
<p>Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru tveir fulltrúar Hafró, í hlífðarbuxum, að byrja að skera í hvalinn. Ólafur Bernódusson stendur til hægri með hendur í vösum og fylgist með en aðrir eru óþekktir. </p>
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn014
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Á myndinni tekur Gestur Arnarson við verðlaunum sínum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn405
Spákonufell í skini aftansólar með þokuslæðum sem gera Borgina dulúðlega.
Skagaströnd - safn370
Þessi mynd var tekin 11. apríl 1995 af snjómokstri í Bankastræti. Veturinn 1995 var með snjóþyngstu vetrum sem menn muna á Skagaströnd. Bankastrætið var t.d. ekki mokað fyrr en farið var að vora svolítið og menn farnir að vonast til að snjókomunni væri að linna. Ef grannt er skoðað má sjá límbandshringi á ljósastaurnum næst okkur en límbandið var sett á staurinn þar sem snjórinn stóð hæst á hverjum tíma. Enn ( í maí 2015) má sjá leyfarnar af límbandinu ef fólk hefur áhuga á.
Árni Geir Ingvarsson - safn 461
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin suður í Mýri þegar verið var að moka ofan af þökum húsa þar.
Guðmundur Guðnason 2 463
Konan með hrútinn er Ingibjörg Karlsdóttir frá Neðri Lækjardal, seinna á Blönduósi.
Jón Jónsson340
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Brynjar Pétursson, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson339
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Páll Jónsson frá Brandaskarð og Þórarinn Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason 2 375
Blönduós - gamalt póstkort. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 412
Smiðir dytta að þakinu á Steinholti eftir norðan áhlaup með miklum snjó. Höfðaberg, sem sést í baksýn, er löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 471
Þessi mynd af Skagaströnd hefur sennilega verið tekin kringum 1990 - 1995
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn007
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 386
Undirfell í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari364
Þessi mynd sýnir gömul vinnubrögð við að koma heyi heim að skepnuhúsum þeirra tíma. Myndin eykur líka skilning manns á af hverju hesturinn var kallaður "þarfasti þjónninn" fyrir öld dráttarvéla og annarra vélknúinna tækja í sveitum landsins. Hér er verið að reiða heim hey á fjórum hestum. Heyið var bundið í bagga á vellinum og síðan hengt á klakk á baki hestsins. Síðan var lestin teymd heim, oft af einhverjum hálstálpuðum krakka, sem sá svo um að koma með hestana til baka fyrir næstu ferð. Á þessari mynd er þó fullorðin maður sem teymir en krakki "situr á milli" á aftasta hestinum. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær en líklega hefur hún verið handmáluð.
Skagaströnd - safn415
<p>Húsin á Brandaskarði fara stundum á kaf ef mikið snjóar því þá skefur yfir þau. Þessi mynd var tekin í október 1995 þegar verið var að moka snjó af þakinu á bænum. Þegar myndin var tekin var farið að glitta í þilið og þakið var fundið. Gröfunni stjórnaði Guðmundur Björnsson.</p><p><br></p>
Guðmundur Guðnason 2 371
Breiðavað í Langadal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 459
<p>1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Hér er Guðmundur Björnsson að moka frá húsinu að Fellsbraut 15 svo íbúarnir komist út. </p>
Steinþór Karlsson 1
Loftmynd af Spákonufelli tekin úr norð-vestri. Efst trónir Spákonufellsborgin sjálf eða Borgarhausinn eins og stundum er sagt. Framan við hann er Grenjadalur en norður af hausnum (nær okkur) er klettaborg sem heitir Molduxi. Hinum megin við hausinn, lengst til hægri á myndinni, er önnur hæð, Stóri speni. Lægðin sem afmarkast af Molduxa og hausnum sjálfum - fjær okkur á myndinni - er Leynidalur/Leynisdalur. Fjallið austur af Borgarhausnum þ.e. til vinstri á myndinni, heitir tveimur nöfnum: Hrútafjall eða Náttmálafjall. auðveldasta gönguleiðin upp á Borgarhausinn liggur meðfram snjóskaflinum sem er lengst til vinstri á myndinni og upp á rindann þar fyrir ofan og síðan eftir rindanum upp á hausinn sjálfan.
Skagaströnd - safn417
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.
Skagaströnd - safn413
Ofsaveður gekk yfir Skagaströnd 24. október 1995. Foktjón varð víða um bæinn en á þessari mynd sjást fjárhús - "Snorrahúsin"- sem hrundu að hluta til í veðrinu. Þessi hús stóðu undir bergjunum austan við beygjuna á Vetrarbrautinni. Þök fuku af hlöðum, útihúsum og bílskúrum í veðrinu ásamt því að nokkrar flaggstangir í bænum þoldu ekki álagið og brotnuðu.
Skagaströnd - safn412
Það getur stundum verið nauðsynlegt að hafa bakdyr á húsum. Þannig var það veturinn 1995 á Strandgötu 10 því eins og sést þá eru framdyrnar rækilega á kafi undir skaflinum sem hefur skafið fram af þaki hússins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 411
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni sést yfir hluta af Hólabraut nær okkur og Bogabraut fjær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 417
Snjómokstur á Mánabraut. Eins og sjá má er af nógu að taka. Sennilega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 - 1996 þegar allt fór á kaf í snjó.
Árni Geir Ingvarsson - safn 466
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af Gylfa Sigurðssyni að moka frá útidyrunum sínum að Bogabraut 12. Ljósmyndarinn stendur upp á ca 4 metra þykkum snjó á Bogabrautinni.
Jón Jónsson352
Þó skíðalyfta væri rekin í hlíðum Spákonufells um árabil fyrir svigskíðafólk nýtti áhugafólk um skíðagöngu sér snjóinn í fjallinu líka til að stunda sína íþrótt. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) á gönguskíðum en hjá honum eru frá vinstri: Guðmundur Björnsson að klæða sig í skíðaklossa en bak við hann er líklega Þórunn Bernódusdóttir. Einar Haukur Arason sem hallar sér upp að Volkswagen Variantinum, Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Magnús B Jónsson094
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru þeir Guðmundur til vinstri og Ólafur til hægri, kampakátir að skoða hvalinn í fjörunni.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn011
Myndin var tekin af stúlkum að leik á skautum á svelli við Hrafná 1966. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson336
Ungir skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Páll Jónsson frá Brandaskarð, Jóhannes Sveinsson og Sigurbjörn Kristjánsson.
Guðmundur Guðnason 2 349
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað "<em> Séð frá Varmahlíð, G.K.G.". </em>Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef til vill geta bílaáhugamenn giskað á það út frá útliti olíubílsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 379
Oft er snjóþungt á Skagaströnd á vetrum. Á þessari mynd er verið að aka burt snjó á horninu á Bogabraut og Norðurbraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 501
Árið 1977 gengu þeir félagar Sigurður Jónsson, sem myndin er af, og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Náttstaður þeirra var hjá bænum Vesturá þar sem þessi mynd var tekin. Bærinn var þá löngu kominn í eyði en þar átti Guðmundur æskuár sín.
Guðmundur Guðnason 2 411
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á hestbaki. Líklega var myndin tekin einhversstaðar á Laxárdal þar sem Guðmundur var alinn upp.
Guðmundur Guðnason 2 457
Líklega var þessi mynd tekin í Laxárdal þar sem fjölskylda Guðmundar ljósmyndara bjó á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Maðurinn á hestinum er líklega bróðir Guðmundar, Rósberg Snædal Guðnason (d. 9.1.1983). Maðurinn á bakvið er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn419
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina á hjarni og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd eru þeir Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri að gera færin sín klár til að renna í Hraunvatni.
Guðmundur Guðnason 2 352
Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson345
Þessi mynd var tekin að vorlagi einhverntíma kringum 1985. Á henni svífur Magnús B. Jónsson niður brekkuna í Spákonufelli í sólbráðinni.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn013
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Eins og sjá má á myndinni voru margir áhugasamir um skíðamennsku á þessum árum.
Guðmundur Guðnason 2 378
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>" Við Spákonufellsrétt 1959. Safnið komið inn".</em> Húsið í bakgrunninum var notað sem kaffiskúr og þar var selt kaffi (kvenfélagið?) á réttardögum. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2 354
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: <em>"Frá Vallabökkum í Skagafirði".</em> Konan á myndinni mun vera Elín Jóhannesdóttir (d. 1981) frá Merkigili síðar húsfreyja á Völlum í Hólmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn148
Anna Dúna Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Magnús B Jónsson095
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúfubak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðan á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur - tarfur - um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum, að undirbúa sýnatöku. Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn í blárri peysu, aðrir eru óþekktir. Til gamans má geta þess að reður hvalsins var sendur til Reðursafns Íslands að ósk eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum líffærum af hinum ýmsu spendýrum. Myndina tók Magnús B. Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari367
Þessa mynd af heyskap tók Evald Hemmert einhverntíma í kringum 1910. Myndin, sem hefur verið handmáluð, sýnir byggðina fyrir víkina og á Hólanesinu. Ef grannt er skoðaða má sjá mann á hesti með annan í taumi ríða fyrir víkina, líklega að koma úr verslunarferð.
Skagaströnd - safn404
Landsins forni fjandi, hafísinn, á víkinni fyrir norðan Höfðann, Bótinni. Ekki er vitað hvaða vor myndin var tekin.
1
…
11
12
13
…
25
Leita í myndasafninu
Leita