Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 196
Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1960-1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 712
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf og afmörkuðu hann með því móti eins og sjá má á myndinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og unga fólkið er óþekkt nema stúlkan sem er næst okkur á myndinni en það er Helga Dögg Jónsdóttir.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn011
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni eru þeir að taka pásu áður en lagt er á mesta brattann. Á myndinni eru þekktir nokkrir skátar úr Sigurfara á Skagaströnd. Lengst til vinstri situr Ólafur Bernódusson, fimmta frá vinstri í grárri peysu er Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Gissur Jóhannsson situr við steininn lengst frá okkur. Þorvaldur Skaftason er sá með svarta hattinn, Karl Lúðvíksson krýpur á steininum og Sigurjón Ástmarsson stendur á honum lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 921
Trillubátur á ferð í hvítalogni á Reykjarfirði fram af Kúvíkum en þar átti ljósmyndarinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), heima á þeim tíma sem myndin var tekin líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Hallgrímur Kristmundsson safn067
Þessi þrjú hús stóðu upp undir Höfðanum mjög norðarlega. Húsið sem sér í til vinstri er Laufás en á miðri mynd er Melstaður og svarta húsið til hægri er Ægissíða. Laufás er eina húsið af þessum þremur sem enn stendur og er notkun þó ekki sé um fasta búsetu að ræða.
Árni Geir Ingvarsson - safn 865
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Þar var reistur danspallur því að víslu lokinni var dansað. Fjöldi manns sótti vígsuhátíðina meðal annars hópur á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík og gistu margir í tjöldum á svæðinu. Á þessari mynd er Borgarvirkið sjálft í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 854
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki sem sótti hátíðina en það gerðu fjölmargir. Í Borgarvirki má finna rústir af tveimur hlöðnum húsum og einnig samanhruninn brunn.
Jón Jónsson 385
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Það hefur/hafði sínar ljósu hliðar m.a. að þá kom nægur snjór í skíðabrekkuna í Spákonufelli þegar þar var skíðalyfta og oft mikið fjör. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er ungur skíðamaður Brynjar Pétursson? á fleygiferð í brekkunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 856
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd þegar fólk var að koma sér fyrir inni í virkinu. Ræðustóllinn bíður eftir ræðumönnum sem voru allmargir við þetta tækifæri. M.a. fór prófessor Sigurður Nordal yfir sögu Borgarvirkis.
Árni Geir Ingvarsson - safn 956
Þessi bær er óþekktur (?Seyðisfjörður?). Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú veist hvaða bær þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 767
Bergsstaðir stóðu utan í berginu sem er norðan við Ránarbrautina, neðan við Vetrarbrautina. Húsið byggði Hafsteinn Sigubjarnarson en í ævisögu sinni segir hann frá því að hann þurfti að flytja úr húsinu því það var fyrir skipulaginu. Skipulagið gerði ráð fyrir að Skeifan mundi koma niður einmitt þar sem Bergsstaðir stóð. Skeifan, sem er efsti hluti Hólabrautarinnar, hefur aldrei orðið að veruleika þó svo að Hólabrautin sveigi vissulega í skeifu þeim fáu húsum sem þar eru. Inni í miðri skeifunni gerði svo skipulagið ráð fyrir kirkju, sem eins og allir vita, reis á allt öðrum stað í þorpinu. Bergsstaðir eru horfnir en þó eru skepnuhús að hluta til þar sem húsið stóð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 910
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með óþekktri vinkonu sinni, líklega í Kúvíkum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 885
Falleg mynd frá Djúpuvík. Greinilega stendur eitthvað til því það er fullt af fólki á bryggjunni. Síldarverksmiðan er til vinstri og söltunarplanið fremst á bryggjukantinum framan við hana. Báturinn, sem sést í forgrunni á myndinni hét Nonni, venjulega kallaður skemmtibáturinn Nonni. Tómas Jónsson frá Reykjanesi sá um þennan bát og var skipstjóri á honum. Báturinn var notaður í sendiferðir fyrir verksmiðjuna, til dæmis út á Gjögur eða yfir fjörðinn með fólk. Þegar lítið var um að vera var farið með fólk i skemmtiferðir um fjörðinn, og jafnvel til Hólmavíkur.<br>Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 2.4.2007) sennilega kringum 1940.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn010
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst september 1963 af skátum á leið upp í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni er hópurinn hálfnaður upp og sér yfir Hólastað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 963
Snjómokstur í Bankastræti líklega vorið 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 904
Hlaðinn síldarbátur á Reykarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Héraðsskjalasafn A-Hún 123
Kristín Indriðadóttir (d.1941) frá Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) í söðli á hestbaki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 866
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið við virkið. Í baksýn er Víðidalsfjall með þokuslæðu í efstu brúnum.
Ólafur Bernódusson642
Skagaströnd 17. júní 2008. Hluti Skagavegar, Bankastræti og hluti innbæjarins sjást ekki á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 721
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 922
Trilla full af fólki beygir fyrir bryggjuendann í Djúpavík í blíðviðri. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina einhverntíma kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 746
Margir óttast að starri geri sér hreiður við híbýli þeirra vegna lúsarinnar sem fylgir starranum. Hafa sumir gripið til þess ráðs að koma fyrir gerfi-uglu á áberandi stað á húsum sínum því starrinn óttast ugluna. Á myndinni hefur Pétur Eggertsson á Hólabrautinni fengið hjálp við starrafælinguna frá Smyrli sem situr á mæni hússins. Ljósmyndarinn, Árni Geir, hefur síðan leikið sér svolítið með myndina og dregið smyrillinn frekar fram en samt látið myndina halda sér að mestu leiti.
Adolf H Berndsen - safn091
Þessi mynd var tekin yfir Skagaströnd árið 1964. Gaman getur verið að rýna í hana og bera saman við það sem sést frá sama sjónarhorni í dag.
Héraðsskjalasafn A-Hún 352
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni og karlarnir komnir út á ísinn í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 923
Þetta par er óþekkt en myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) í Kúvíkum líklega kringum 1940. Herbert átti þá heima í Kúvíkum en stundaði vinnu í verksmiðjunni í Djúpavík. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 072
Myndin var tekin í Höfðahólum á Snæfellsnesi. Hjólförin í brekkunni eru eftir þekktan fjölmiðlamann og "náttúruverndarsinna" sem eignaðist Ford Bronco fljótlega eftir að farið var að flytja þá til landsins 1966 og vildi kanna getu hans. Á myndinni leiða, Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004) til vinstri og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) til hægri, Sigurð Magnússon (d. 2.8.2002).
Jósef H Sigurðsson - safn 042
Hugrún Sigurðardóttir í slökun með kettlinginn sinn heima í Hólaneshúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hugrún var fædd 1973.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 076
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminjasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Guðrún Guðmundsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið upp úr 1990. Ljósa húsið til vinstri er Drangey sem hefur nú verið rifið. Brúna húsið er Ásgarður en lengst til hægri er Herðubreið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 898
Óþekkt kona í Djúpuvík líklega einhverntíma á fimmta ártugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.32007). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 704
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir úr vinnuskólanum að slétta svæðið þar sem þrír Olís-tankar stóðu. Svæðið var síðan þökulagt og gert aðlaðandi til útivistar.
Jón Jónsson 369
Þessi mynd var tekin kringum 1940 í fjörunni, sem þá var, austan við Einbúann, sem er lengst til hægri á myndinni. Konurnar eru María Magnúsdóttir og óþekkt vinkona hennar. María er líklega sú sem situr dökka hestinn. Eins og flestir þekkja er nú komin uppfylling og byggingar á svæðið sem þær stöllur eru að fara um á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 454
Skagaströnd á fimmta áratugnum. Þrátt fyrir að mörgum finnist byggðaþróunin ganga hægt þá væri mynd sem tekin væri í dag all mikið frábrugin þessari.
Ólafur Bernódusson640
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að spá í gönguleiðarkortið einhversstaðar á leið sinni um Höfðann. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Hafliðadóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Björk Sveinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 869
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hluta tjaldsvæðisins. Fólk kom víða að og margir gistu í tjöldum á svæðinu.
Ólafur Bernódusson674
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er áð við álfastein á leiðinni upp með Skagaströnd í baksýn. Hönd er lögð á steininn til að komast í samband við álfana í honum. Margrét Einarsdóttir reynir að ná sambandi með tvíþumla ullarvettling á hinni hendinni til að bæta sambandið. Beint aftan við Margréti er Ólafur Bernódusson og til hægri er Helgi Gunnarsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 727
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Alma Eik Sævarsdóttir og Ellen Lind Sigurjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 914
Frídagur í Djúpavík. Drengurinn á myndinni er óþekktur en maðurinn í baksýn er Skúli Alexandersson (d.23.5.2015) alþingismaður frá Kjós. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Ólafur Bernódusson623
Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir aðstoð og áhuga á liðnu ári. Eins og alltaf þá umfaðmar Borgin okkur, sem búum á Skagaströnd, óhagganleg en síbreytileg. Borgin hefur séð bæði góða tíma og slæma í litla bæjarfélaginu okkar en vonandi mun hún sjá gott ár 2017 hjá okkur öllum.
Ólafur Bernódusson669
Ólafur Bernódusson fær sér kaffisopa á toppi Tindastóls austanverðum í súldarveðri 26. ágúst 2007. Sauðárkrókur sést í baksýn, vestari hvísl Héraðsvatna rennur til sjávar og stóra vatnið er Miklavatn en næst því er svo Áshildarholtsvatn en nær sjónum er Tjarnartjörn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 912
Síldarverksmiðjan í Djúpavík og sér út Reykjarfjörð. Myndin a tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn012
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum uppi í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni hefur hópurinn stillt sér upp við altarið í skálinni en þar er sagt að Guðmundur Arason - Guðmundur góði - hafi reglulega gert bæn sína. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Karl Lúðvíksson, fjórar óþekktar stúlkur, Gissur Jóhannsson situr, Sigurjón Ástmarsson heldur á fánanum, Þorvaldur Skaftason stendur við hlið hans svo kemur óþekktur skáti en þá Bergur Jón Þórðarson með myndvél um hálsinn. Framan við Berg, dökkklædd, situr Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 874
Leitarflokkur staddur í Grjótdal fyrir ofan Reykjarfjörð. Mennirnir voru við leit að Jakobi Söbeck frá Reykjarfirði sem hvarf að heiman, en fannst þarna í dalnum. Mennirnir eru: efri röð frá v/ Kristinn frá Kambi, Páll Sæmundsson Djúpuvík, Neðri röð frá v/ Kristmundur Sörlason frá Gjögri Guðmundur Ágústsson frá Kjós, Marteinn Þorláksson frá Veiðileysu og Kristján frá Flareyri.<br> Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina. Herbert vann við byggingu verksmiðjunnar sem unglingur og síðan í vinnslunni þar í nokkur ár. Hann var afkastamikill áhugaljósmyndari og eignaðist sína fyrstu myndavél mjög snemma, löngu áður en þær urðu almenningseign.
Hallgrímur Kristmundsson safn010
Ekki er vitað hvaða þorp þetta er en ágiskun að þetta sé gömul mynd af hluta Akureyrar. Sé svo er það Vaðlaheiðin sem sést hinum megin við fjörðinn. Ef þú þekkir staðinn endilega sendu okkur þá athugasemd
Árni Geir Ingvarsson - safn 876
Hrefna Björnsdóttir er konan sem stendur hærra á myndinni en hin konan er óþekkt. Þegar myndin var tekin af þeim voru þær úti í Árbakkasteini, sem er ekki fjölfarinn staður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 902
Kamburinn er fjallið á milli Veiðleysufjarðar og Reykjarfjarðar syðri. þessi mynd sýnir fjallið að norðanverðu - Reykjarfjarðar megin - og ef vel er skoðað má sjá byggðina í Kúvíkum við víkina á myndinni. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Hallgrímur Kristmundsson safn070
Hafnarsvæðið á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1944 - 1947. Stóra síldarskemman var enn í byggingu þegar myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson627
Myndin var tekin á Hágerðisvelli þegar þar stóð yfir golfmót 23. júní 2007. Golfurum sem reyna sig á Háagerðisvelli bera honum vel söguna því hann þykir erfiður en skemmtilegur með brautum sem bjóða upp á mismunandi áskoranir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 742
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Á myndinni eru Stefán Sveinsson til vinstri og Rúnar Jóhannsson til hægri að smala þeim í aðhald þar sem hægt var að skoða mörkin til að komast að hver átti þessar hafnarrollur.
Ólafur Bernódusson637
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Egill Örn Ingibergsson að fara að klippa á borða og opna þannig gönguleiðina. Steindór Haraldsson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri halda borðanum. Eins og sjá má mætti fjöldi manns við opnunina og gengu síðan hringinn um Höfðann. Síðan þá hefur gönuleiðin um Höfðann notið mikilla vinsælda enda býður hún upp á fallegt útsýni, og holla útiveru.
Árni Geir Ingvarsson - safn 883
Gamla íbúðarhúsið í Reykjarfirði. Byggt 1916-1917 af Þórarni Söbeck, sem var bóndi þar frá 1917-1921. Húsið var timburhús og stóð fram yfir aldamótin 2000. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 6
Snjó mokað af þökum húsa við Bogabraut líklega veturinn 1995 - 96. Þá þurfti að moka af þökum húsa við Bogabraut og Sunnuveg vegna hrunhættu af snjóþunga. Einnig var mokað af þaki Vélaverkstæðisins. Moksturinn var snúinn vegna þess hve erfitt var að koma snjónum frá sér.
Elínborg Jónsdóttir - safn 31
Sláttur í sumarblíðu á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Í baksýn standa Víðidalsfjöllin á haus í Flóðinu í Vatnsdalsánni. Hestasláttuvélar voru ekki fluttar til landsins í neinu magni fyrr en eftir 1925. Þær þóttu algjör munaður miðað við að áður var allt slegið með orfi og ljá. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 5
Gylfi Sigurðsson mokar frá útidyrunum á húsi sínu á Bogabraut 12. Eins og sjá má er Bogabrautin á kafi í snjó. Líklega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 -96.
Árni Geir Ingvarsson - safn 853
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Á netinu má finns eftirfarandi lýsingu á Borgarvirki og sögu þess:<br><br>"Borgarvirki er klettaborg er stendur á ásnum milli Vesturhóps og Víðidals og er um 177 metra yfir sjávarmáli. Talið er að Borgarvirki sé gosstapi sem myndaðist við eldgos á hlýskeiði ísaldar. Efst í virkinu er 5-6 metra djúp skeifulaga dæld með skarð er snýr til austurs. Þar er hlaðinni grjótveggur frá fornu en hann var endurhlaðinn á árunum 1940-50 og víðar á Borgavirki má sjá hleðslur. Borgarvirki er friðað vegna minja, en inn í virkinu eru rústir af tveimur skálum og skammt frá þeim hruninn brunnur.<br><br>Samkvæmt sögnum var Borgarvirki nýtt sem virki á þjóðveldisöld. Og segir sagan að þar hafi Víga-Barði Guðmundsson í Ásbjarnarnesi verið á ferð. Hann deildi við Borgfirðinga eins og segir frá í Heiðarvíga sögu. Sagt er að óvinir hans hafi komið að sunnan með óvígan her. En Barði barst af því njósnir og kom sér og sínum mönnum fyrir í Borgarvirki, þar sem ómögulegt reyndist að sækja að honum. Tóku Borgfirðingar á það ráð að ætla að svelta Barða og hans menn inni. Þegar matinn þraut tóku virkisbúar sig til og hentu síðasta mörsiðrinu (sláturkeppnum) út úr virkinu. Voru þá Borgfirðingar vissir um að Barði hefði nægar vistir og héldu heim á leið. Frábært útsýni er úr Borgarvirki og þar hefur verið sett upp útsýnisskífa. Í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi er haldnir einstakir tónleikar í Borgarvirki í júlí hvert ár". <br>( Heimild:http://www.hunathing.is/ferdamenn/athyglisverdir-stadir/borgarvirki)<br>
Hjördís Sigurðardóttir - safn083
Eftir nokkra undirbúningsvinnu er hér verið að koma golfskálanum á Háagerðisvelli fyrir á undirstöðum sínum sumarið 1991. Skálinn hafði áður gegnt hlutverki rafmagnsverkstæðis Hólaness hf.
Ólafur Bernódusson632
Vogmær er fremur sjaldgæfur fiskur sem rekur stundum á fjörur eftir brim. Þetta eintak, ásamt nokkrum öðrum, rak í fjöruna utan við Skagaströnd um áramótin 2006-7. Vogmær er mjög fallegur fiskur en þykir ekki góður til átu. Útlit Vogmeyjarinnar er afar sérkennilegt og frábrugðið öðrum fiskum við strendur Íslands. Fiskar af vogmeyjarætt eru þekktir fyrir hversu langir og þunnvaxnir þeir eru. Vogmærin er yfirleitt 1,5- 3.5 m á lengd en hefur þó fundist allt að 6 metra löng. Augun eru stór og munnurinn sérstakur þar sem hann lengist fram í trjónu þegar hann er opnaður. Stirtlan og sporðurinn eru skærrauð ásamt löngum bakugganum sem gengur eftir endilöngu bakinu. Aðrir uggar eru annað hvort afar litlir eða ekki til staðar. Sporðurinn er líka rauður og vísar upp á við. Í kringum augun er hún svört og einnig ofan á höfði og hnakka. Fyrir ofan raufina og hryggjarliði má sjá stóran, kringlóttan, svartan blett en að öðru leyti er hún silfurgljáandi. <br>(Heimild: https://is.wikipedia.org/wiki/Vogm%C3%A6r)
Árni Geir Ingvarsson - safn 967
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók þessa mynd á Reykjarfirði en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Báturinn á myndinni er óþekktur en á skiltinu á stýrishúsinu má lesa að hann var frá Höfðakaupstað. Ef þú veist hvaða bátur þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 979
Myndin af þessum konum var tekin á þeim fáfarna stað, Árbakkasteini. Til vinstri er Hrefna Björnsdóttir en hin konan er óþekkt. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 877
Myndin var tekin 1960. Vitinn á myndinni er Gjögursviti. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Ólafur Bernódusson651
Guðrún Sigurðardóttir í snjónum fyrir utan Bogabraut 14 um miðjan desember 2006 en þá bjó hún þar.
1
…
14
15
16
…
25
Leita í myndasafninu
Leita