Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn086
Hópur fólks að þökuleggja flötina -"greenið"- á einni af brautunum á golfvellinum á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Guðmundur Kristinsson er með appelsínugulu gúmmívetlingana en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 898
Óþekkt kona í Djúpuvík líklega einhverntíma á fimmta ártugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.32007). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 780
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir gröfu við snjómokstur í miklum snjó við Karlsskála.
Árni Geir Ingvarsson - safn 911
Séð heim að byggðinni í Djúpavík í Reykjarfirði syðri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) sem ólst upp í Kúvíkum og á Gjögri. Kúvíkur var lengi eini verslunarstaðurinn í Strandasýslu eða allt til ársins 1846 þegar Borðeyri fékk löggildingu sem verslunarstaður. Í dönskum skjölum voru Kúvíkur kallaðar lýsishöfn, sú eina á landinu sem þannig var flokkuð. Kemur þetta til vegna þess að mikilvægasta verslunarvara Árneshreppsbúa var hákarlalýsi. Eftir að einokunarverslun var lögð af höfðu kaupmenn fasta búsetu á staðnum. Verslunarstaðurinn var þá oftast nefndur eftir firðinum og kallaður Reykjarfjörður. Í dag er byggðin löngu horfin en reist hefur verið sumarhús á svæðinu og vegslóði lagður að því.
(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=8&id_art=653)
Ólafur Bernódusson678
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns á aldrinum 6 til 74 ára kom með í gönguna í blíðu veðri. Að fjallgöngunni lokinni beið göngufólksins kaffiveisla í golfskálanum á vegum kvennanna í Spákonuhofinu. Á myndinni eru þeir Stefán Jósefsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að njóta veðurblíðunnar uppi á Borgarhausnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 974
Gömul mynd af Skagaströnd sem sýnir mörg þeirra húsa sem nú eru horfin og líka auð svæði sem nú eru þétt byggð. Áberandi til vinstri er húsið Gunnarshólmi eða Grafarbakki eins og það var oft kallað. Það nafn festist við húsið því það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Húsið endaði svo ævi sína sem æfingahús fyrir slökkviliðið á Skagaströnd eftir að hafa staðið autt í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina
Árni Geir Ingvarsson - safn 724
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru ?Ellen Lind Sigurjónsdóttir? til vinstri og Indriði Björnsson til hægri.
Elínborg Jónsdóttir - safn 19
Jón Kristmundur Jónsson (d. 1947) bóndi á Másstöðum í Vatnsdal á hestbaki.
Hjördís Sigurðardóttir - safn062
Góðviðrisdagur á Höfðanum. Frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Fríða Hafsteinsdóttir, Bergur Jón Þórðarson og Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) . Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 862
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fánanum á suðurenda virkisins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 932
Tveir herramenn í kaupstaðarferð á Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafson (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær, líklega hefur það verið á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 886
Hvar var þessi mynd tekin árið 1964? Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 857
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af óþekktum ræðumanni í Borgarvirki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 978
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Myndin var tekin í Reykarfirði syðri, sennilega á Djúpavík en ekki er vitað hvenær. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson675
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.
Á myndinni er Sigurður Bjarnason með dætrum sínum, Svövu Sigurðardóttur til vinstri og Ingu Láru Sigurðardóttur til hægri, í vatnspásu á leiðinni á toppinn. Vinstra megin við Sigurð situr Magnús B. Jónsson að fá sér vatnssopa en hægra megin við þau feðgin stendur Stefán Ægir Lárusson og skyggnir umhverfið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Elínborg Jónsdóttir - safn 33
Þetta fólk er í útreiðartúr. Önnur frá hægri er Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal. Hitt fólkið er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 957
Þegar síldarverksmiðjan var reist á Djúpavík 1934 - 1935 var ekki vegasamband þangað því vegur var ekki lagður norður í Árneshrepp fyrr en 1965. Þess vegna var sjórinn í raun þjóðvegurinn þangað og þaðan. Á myndinni má sjá litla trillu, fulla af fólki, líklega á leiðinni frá Kúvíkum inn að Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Jósef H Sigurðsson - safn 067
Kambakot í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) séð úr lofti.
Elínborg Jónsdóttir - safn 7
Elínborg M. Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og fræðimaður að gefa hænunum heima á Másstöðum í Vatnsdal.
Hallgrímur Kristmundsson safn027
Mynd af Skagaströnd líklega tekin rétt fyrir 1950. Hafnarhúsið er komið á sinn stað en það var upphaflega byggt á hafnarsvæðinu þar sem síldarverksmiðjan reis seinna. Framan við það (vestan við það) er "Dokkin", sem átti að verða lífhöfn fyrir litla báta en var aldrei notuð sem slík. Hún var svo fyllt upp með sanddælingu þegar verið var að dýpka höfnina. Uppfylling er komin fyrir Skúffugarðinn en ekki er búið eð reka niður stálþilið sem þar er. Mörg húsanna á myndinni eru nú horfin en önnur komin í staðin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 863
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 032
Pása við Einbúann. Standandi maðurinn er óþekktur en liggjandi til vinstri er Adolf J. Berndsen og til hægri er bróðir hans Karl Berndsen (d.12.2.1995).
Árni Geir Ingvarsson - safn 868
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið og tjaldsvæðið. Margir komu að og gistu í tjöldum á svæðinu. Meðal þeirra var hópur á vegum Húnvetningafélgsins í Reykjavík. Á miðri mynd má sjá danspallinn sem komið var fyrir á svæðinu því að lokinni vígslunni var dansað.
Adolf H Berndsen - safn090
Landsendarétt stóð við Landsenda, sem er nyrsti endi Spákonufellshöfða, eða á sjávarbakkanum skammt norðan við Réttarholt. Eins og sjá má var meginhluti réttarinnar hlaðinn úr grjóti og enn (í júní 2017) má sjá leifar réttarinnar sem er löngu aflögð sem slík.
Árni Geir Ingvarsson - safn 864
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd inni í virkinu af hluta gesta sem sóttu hátíðina.
Adolf H Berndsen - safn075
Myndin var tekin af útbænum á Skagaströnd. í forgrunninum eru hús frystihúss kaupfélagsins. Til vinstri er verslunarstjórahúsið, þá Kaupfélagið og ljósa húsið hægra megin er Gamla búðin. Hægra megin við Einbúann eru, frá vinstri: skúr, Karlsskáli, Lækur og Lækjarbakki. Norðan við (vinstra megin við) Karlsskála er Efri Lækur og fjær, Jaðar. Á myndinni sést vel hvernig Einbúinn skagaði fram í fjöruna, sem annars var óslitin frá Höfðanum inn að Bjargi. Kanturinn sem liggur til hægri var byggður á uppfyllingu úr grjóti úr Höfðanum út í Spákonufellsey þar sem höfnin var byggð. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 016
Systkinin Guðrún Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson (d.26.7.1967) nálægt Broddanesi á Ströndum þar sem Jón var alinn upp. Myndin var tekin einhvertíma á fimmta áratugnum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 010
Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) mátar sig í hnakkinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum fyrir utan bæinn á Höfðahólum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 25
Það þótti aumt bú í gamla daga sem ekki átti að minnsta kosti eina kú. Fólkið í slíkum þurrabúðum var alltaf upp á aðra komið með mjólk og smjör var verðmikill gjaldmiðill í viðskipum manna á milli. Þess vegna þótti sveitafólki vænt um kúna sína og gerði henni til góða eins og það gat. Kýrin á myndinni hét Skrauta og var á bænum Másstöðum í Vatnsdal þegar Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) var að alast þar upp.
Jón Jónsson 456
Eyrarlandshnjúkur í Laxárdal.
Jón Jónsson 469
Fossar í Svartárdal á réttardegi. Fjársafnið er að koma af heiðinni til réttar í Stafnsrétt. Fossar eru nú í eyði.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Páll Jóhannesson teymir tvo hyrnda hrúta hjá gömlu torfhúsi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson679
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.
Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Jónmundur Ólafsson til hægri að hressa sig á kakósopa uppi á Borgarhausnum áður en haldið er niður aftur. Jónmundur var elstur af þeim sem fóru í gönguna en hann var þá 74 ára og hafði aldrei áður komið á Borgarhausinn. Annars var göngufólkið á öllum aldri eða frá 6 ára til 74 ára.
Árni Geir Ingvarsson - safn 903
Síldarsöltun á plani og síldarbræðsla í verksmiðjunni í fullum gangi á Djúpuvík. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Ólafur Bernódusson651
Guðrún Sigurðardóttir í snjónum fyrir utan Bogabraut 14 um miðjan desember 2006 en þá bjó hún þar.
Ólafur Bernódusson631
Lárus Ægir Guðmundsson kann vel við sig úti í náttúrunni enda göngugarpur með afbrigðum. Á þessari mynd, sem tekin í Hólsdal við Siglufjörð, er Lárus á ferð í miðri lúpínubreiðu.
Ólafur Bernódusson638
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er fólk að fá kort og blað til að fylla út vegna ratleiks sem haldinn var í sambandi við opnunina. Margir eru lagðir af stað en á myndinni er Sigurður Sigurðarson, með svarta prjónahúfu, að afhenda gögnin. Gylfi Sigurðsson er í brúnum frakka, Guðrún Guðbjörnsdóttir kona hans er með skrautlegan trefil, Steindór Haraldsson er til hægri með gleraugu og Árni Ólafur Sigurðsson rýnir í gögnin. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 980
Konan á myndinni er óþekkt. Myndina tók Herbert Ólafsson (25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar (Siglufjörður?). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 075
Þessi mynd prýddi jólakort sem Sjóminja - og munasafnið á Skagaströnd gaf út til að fjármagna starfsemi sína. Myndina tók Jón Karl Snorrason úr lofti yfir Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á níunda áratugnum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn066
Hendrik Berndsen er hér með óvenjulegum leikfélaga. Máfinum Títí og Hendrik var vel til vina um tíma. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 859
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af bílaflotanum á bílastæðinu við virkið. Greinilegt að Willys jeppar hafa verið vinsælir bílar á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 860
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki að fylgjast með hátíðahöldunum af veggjum virkisins. Valdimar Benónýsson bóndi á Ægissíðu á Vatnsnesi gerði vísu af tilefni vígslunnar. Vísan varð fleyg enda vel gerð og skemmtileg:

Hlaðinn varðinn vitni ber
Víga-Barða stríði.
Þessi garður ennþá er
ættarjarðar prýði.

Árni Geir Ingvarsson - safn 871
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af tjaldsvæðinu, bílastæðinu og Borgarvirki sjálfu sem gnæfir yfir í baksýn.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn030
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru þáverandi sambýlisfólk, Garðar Geirfinnsson og Íris Valgeirsdóttir að taka sér pásu á leiðinni upp.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 004
Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri kátur með tvo til reiðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 855
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Þarna spilar Lúðrasveit Reykjavíkur inni í virkinu fyrir fjölmarga gesti sem mættu á vígsluhátíðina þeirra á meðal hópur frá Húnvetningafélaginu í Reykjavík.
Ólafur Bernódusson639
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er einn af nokkrum hópum sem mættu við opnunina og gengu Höfðann. Samfara því tóku hóparnir þátt í ratleik sem haldinn var í tilefni opnunarinnar. Á myndinni er hópurinn að ráða ráðum sínum og hvíla sig augnablik uppi á Spönskudys sem er norðast á Höfðanum. Í hópnum eru, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Magnús B. Jónsson (snýr baki í myndavélina), óþekktur strákur, Steindór R. Haraldsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Ívan Árni Róbertsson (snýr baki í myndavélina) nær, Sigurbjörg Birta Berndsen fjær, Róbert Björn Ingvarsson nær, Björk Sveinsdóttir fjær og Guðrún Pálsdóttir. Með rauðröndótta húfu er Guðrún Anna Halldórsdóttir en með svart/græn köflótta húfu er Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 881
Suður af Djúpuvík gnæfir klettabelti og þar fellur Djúpavíkurfoss fram af klettabrúninni. Á síðari tímum hefur fossinn stundum verið nefndur Eiðrofi og fylgir því nafni þjóðsögn um stúlku sem kastaði sér í fossinn vegna svika unnusta síns.
(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=10&id_art=650)
Jón Jónsson 483
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn040
Ungur óþekktur drengur fær að prófa að fara á hestbak við Undirfellsrétt í september 2004. Rúnar Jóhannsson heldur í hestinn og Guðrún Soffía Pétursdóttir passar upp á drenginn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 44
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Þórarinn Ingvarsson klifra í klettum á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 900
Myndin var tekin á síldarsöltunarplaninu á Djúpuvík og sennilega er verið að þrífa eftir söltunartörn. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Fólkið á henni er óþekkt.
Jón Jónsson 467
Sjómannadagur á Skagaströnd fyrir 1970. Það sem sést á myndinni er mikið breytt í dag, nóvember 2017. Rörið milli verksmiðjunnar og mjölskemmunnar er horfið ásamt undirstöðum þess. Í gegnum þetta rör var síldarmjölinu dælt frá verksmiðjunni út í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt. Stóru tankarnir eru báðir horfnir og frystihúsinu, sem er stóra gráa húsið með rauða þakinu, hefur verið mikið breytt með viðbyggingum og málun. Miklar landfyllingar eru komnar framan við skemmuna og þar er kominn viðlegukantur fyrir minni báta ásamt því að hafnarvigtin er staðsett þar. Gamla Salthúsið sem stendur uppi í Höfðanum til vinstri er nú orðið gistiheimili fyrir ferðamenn. Það sem er óbreytt er að enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi og endamarkið er á svipuðum slóðum og báturinn er á myndinni.
Jón Jónsson 477
Þessi mynd sýnir þorpið Drangsnes í Strandasýslu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 882
Vatnsleiðsla í sundur í hlíðinni fyrir ofan síldarverksmiðjuna í Djúpavík í Reykjarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 007
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni dregur Landrover jeppi lítinn Moskvits yfir Laxá við Illugastaði á Þverárfjallsleið áður en hún var brúuð. Ökumaður Landrover jeppans var líklega Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 012
Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það hefur sennilega verið við gamla bæinn í Höfðahólum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri og svo kemur Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001)með börnin sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Guðríður Gígja Axelsdóttir er í fangi móður sinnar, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) er í röndóttri peysu og Óskar Axelsson er lengst til hægri. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 011
Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri með tvo hesta.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 030
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) frá Þórsmörk fyrir utan heimili sitt með fallegan hrút. Siggi Mona, eins og hann var kallaður, átti nokkrar kindur í kofa lóðinni hjá sér eins og svo margir aðrir Skagstrendingar á sínum tíma. Myndin hefur líklega verið tekin á sjötta áratugnum.
1

15
16
17

25
Leita í myndasafninu
Leita