Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 457
Núpur í Láxárdal, nú í eyði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 984
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) laumar aukabita í heimilishestinn sinn í Djúpavík í Reykjarfirði. Sonur Þórunnar, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina sennilega í kringum 1940. Þau mæðgin fluttu síðar til Skagastrandar einhverntíma kringum 1950 og bjuggu saman þar, lengst á Akri eða Hólabraut 13.
Jón Jónsson 452
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin. Konan í gulu peysunni er óþekkt en til hægri er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016).
Elínborg Jónsdóttir - safn 30
Heyskapur á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Þarfasti þjónninn sannar enn einu sinni gildi sitt með því að draga heim sátur af þurru heyi af vellinum. Fólkið á myndinni er óþekkt en í baksýn er Flóðið í Vatnsdalsánni.
Jón Jónsson 478
Myndin var tekin norður eftir Króksbjargi. Fossárfoss fellur í sjó fram en lengra frá er Stapinn með gati gegnum og Stapaey.
Jón Jónsson 479
Feðgarnir Ragnar Jónsson til vinstri og Jón Jónsson til hægri staddir úti á Skaga við ?Þangskála?
Adolf H Berndsen - safn063
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1930 - 1934. Eins og sjá má er ekki byrjað að keyra út uppfyllingu fram í Spákonufellsey en það var gert 1934 þegar framkvæmdir hófust við hafnargerðina. Kaupfélagið var byggt 1929-1930 en verslunarstjórahúsið, sem er vinstra megin við kaupfélagið, var byggt kringum 1910. Næst okkur á myndinni er frystihúsið eins og það var á þessum tíma.
Jón Jónsson 459
Við Stafnsrétt í Svartárdal.
Jón Jónsson 460
Miðgil í Langadal. Miðgil er löngu komið í eyði.
Ingibergur Guðmundsson 290
Þessi mynd var tekin norður Bankastræti í apríl 1989. Þá var gríðarlegur snjór á Skagaströnd. Baldur Eðvarðsson er að moka upp bílinn en hjá honum stendur Ágúst ? verkstjóri í frystihúsinu en hann bjó í Bankastræti 10.
Jón Jónsson 474
Skeggstaðir í Svartárdal.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 73
Sigurjón Ingólfsson í Námaskarði líklega kringum 1980.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 058
Ekki er vitað hvaða ár þessi mynd var tekin en það gæti hafa verið kringum 1965. Eins og sjá má er höfnin og Húnaflóinn fullur af hafís þannig að ekki er hægt að sækja sjóinn.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 057
Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Lengst til vinstri er Óli Bogason, maðurinn í miðjunni er óþekktur en til hægri er ?Sveinbjörn Blöndal? (d.7.4.2010).
Jón Jónsson 473
Veðramót í Gönguskörðum í Skagafirði.
Jón Jónsson 480
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal einhverntíma kringum 1970.
Jón Jónsson 451
Séð heim að Fossum í Svartárdal.
Adolf H Berndsen - safn045
Þessi mynd var tekin utan af sjó og sýnir skipafjölda á legunni framan við Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Fjöldi skipa er á legunni því höfnin er full af skipum. Eyjan sem sést á myndinni er Spákonufellsey og garðurinn lengst til vinstri er sá sem byggður var á uppfyllingu frá landi út í eyjuna. Stóra húsið vinstra megin við eyjuna er Hafnarhúsið, sem var byggt á höfninni 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ef grannt er skoðað má sjá uppslátt hægra megin við eyjuna en þar er verið að steypa vegg, sem enn stendur, vestan við höfnina.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 170
Viggó Brynjólfsson með mjólkurbrúsa. Ef til vill keypti hann mjólk af Hafsteini Sigurbjarnarsyni (d.18.5.1974) í Reykholti?
Helga Berndsen 038
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1965 í réttarskúrnum við Spákonufellsrétt. Þar seldu konur úr kvenfélaginu Eining kaffi og meðlæti á réttardögum. Á myndinni er allt til reiðu fyrir söluna. Frá vinstri: óþekktur strákur, Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) Stóra Bergi, Steinunn Jónsdóttir (d.6.4.1982) frá Stórholti, Guðríður Valdimarsdóttir (d.?) úr Vinaminni og Helga Berndsen úr Karlsskála sem heldur um dóttur sína Guðrúnu Einarsdóttur.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 003
Á myndinni er Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d. 12.7.2001) (Bogga í Kambakoti) með börn sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Myndin hefur líklega verið tekin 1953 eða 54. Á hestinum situr Óskar Axelsson, en strákurinn í röndóttu peysunni er Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011). Bogga heldur svo á systur þeirra Guðríði Gígju Axelsdóttur í fanginu. Líklega standa þau við gamla bæinn á Höfðahólum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 131
Rúnar Jósefsson kampakátur með lambhrút í fanginu í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 144
Veturinn 1990 var allmikill snjór á Skagaströnd. Þá var gripið til þess ráðs eins og stundum áður að þjappa skaflana og gera þá ökufæra í stað þess að moka þeim burt. Á myndinni stendur heimilisbíllinn á ca 2 metra þykkum skafli utan við Hólabraut 25.
Jón Jónsson 485
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga.
Jón Jónsson 481
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Borgarvirki. Maðurinn til vinstri er Georg Rafn Hjartarson (d. 13.9.2001) og næst kemur konan hans Helena Martha Ottósdóttir (d.22.11.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 730
Steypireyður er stærsta skepna jarðarinnar og er reyndar talinn stærsta skepna sem nokkurn tíma hefur verið til enda geta þeir orðið 200 tonn að þyngd og yfir 30 metra langir. Einn slíkan rak dauðan í fjöruna sunnan við bæinn Ásbúðir á Skaga í ágúst 2010. Bræðurnir á Hrauni á Skaga þeir Jóhann og Steinn Rögnvaldssynir voru fengnir til að skera hvalinn og hreinsa beinan eins vel og kostur var því beinagrindin er varðveitt eftir langt hreinsunarferli, sem fól meðal annars í sér langa suðu á beinunum til að ná úr þeim lýsinu. Eftir þurrkun voru beinin síðan flutt til Húsvíkur þar sem þau voru sett saman og hægt er að sjá beinagrindina á hvalasafninu þar. Snemma á öldinni var mikið veitt af steypireyð þannig að hann var kominn í útrýmingarhættu en hann er alfriðaður í dag.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 025
Friðrik Gunnlaugsson að leika sér í bílaleik á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 210 - Copy
Myndin var tekin 2. nóvember 2012 af bátum við Skúffugarðinn. Eigendur báta eru gjarnan á varðbergi þegar veður er eins og sést á myndinni og moka snjónum úr þeim áður en yfirvigtin verður of mikil.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 068
Á þessari mynd eru nokkur hús sem nú eru horfin. Húsið næst okkur voru vinnubúðir notaðar fyrir menn sem unnu að endurbyggingu verksmiðjunnar. Örlög hússins urðu þau að það kviknaði í því eina nóttina og skemmdist húsið mikið. Það sem heillegt var af því var síðan selt hingað og þangað. Gula húsið þar fyrir aftan, Héðinshöfði, var rifið en í því voru tvær íbúðir þegar myndin var tekin. Hvíta húsið enn lengra frá var Gunnarshólmi eða Grafarbakki. Þess örlög urðu, eftir að hafa staðið autt um árabil, að slökkviliðið fékk það til að æfa sig á og var það brennt. Hvíta litla húsið vinstra megin við Héðinshöfða var Þórsmörk en yfir það sést Bjarmaland eða Grafarholt. Það hús stendur enn í mars 2018 en búið er að rífa viðbygginguna norðan við húsið. Lengst til hægri grillir í brúnt hús, hálft í hvarfi við hvítan vöruflutningavagn. Það hús er nú á golfvellinum á Háagerð sem golfskáli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 906
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er á myndinni með óþekktri vinkonu sinni. Myndin hefur líklega verið tekin í Kúvíkum við Reykjarfjörð syðri. Ekki er vitað hvenær en Herbert var fæddur 1920.
Árni Geir Ingvarsson - safn 858
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fjórum óþekktum blómarósum sem sóttu þennan viðburð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 54
Réttað í Spákonufellsrétt. Því miður er fólkið á myndinni óþekkt þar sem hún er mjög óskýr. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 039
Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) með heimilishestinn og dætur sínar tvær, Dagný Sigmarsdóttur til vinstri og Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til hægri. Myndin var tekin suður í Mýri líklega kringum 1970.
Jón Jónsson 453
Fjárrekstur í Svartárdal á leið að Stafnsrétt.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn033
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Signý Richter, Þorbjörg Magnúsdóttir og baksvipur Guðrúnar Sigurðardóttur.
Jón Jónsson 454
Fjárrekstur að Stafnsrétt í Svartárdal
Þórunn Bernódusdóttir - safn 008
Guðríður Gígja Axelsdóttir fær að prófa að fara á bak með stuðningi móður sinnar Sveinbjargar Óskar Björnsdóttur (d.12.7.2001). Bróðir hennar Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) heldur í hestinn. Finnur Frímannsson (d.18.3.1969) frá Jaðri stendur við lend hestsins og sennilega var hann eigandi hans. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54 fyrir utan gamla bæinn á Höfðahólum.
Helga Berndsen 031
Þessi mynd var tekin 1960 þegar Guðrún Einarsdóttir, sem situr á sleðanum, var tveggja ára. Barnapían sem stendur hjá henni er frændi hennar, Sævar Rafn Hallgrímsson.
Jón Jónsson 488
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga af prúðbúnum hestamönnum.
Jón Jónsson 482
Hér eru bændur úr Svartárdal og víðar að rétta í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 59
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) á heimahögum vestur á Ströndum. Líklega er brúin í baksýn brúin yfir Fossá skammt norðan við Asparvík.
Adolf H Berndsen - safn066
Fólk á leið í útreiðartúr framan við Karlsskála á Skagaströnd. Fólkið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 34
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum. Rúnar Jósefsson er glaðbeittur með lamb í fanginu en hjá honum stendur Vilhelm B. Harðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 059
Stúlkurnar þrjár, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir, eru að leika hættulegan leik með því að fara út á ísinn. Jakarnir eru óstöðugir og valtir og ef þær detta í sjóinn getur verið erfitt að komast uppúr aftur. Að vísu eru þær á myndinni að leika sér rétt við fjöruborðið fyrir neðan Rækjuvinnsluna þannig að hættan er minni en ef farið er lengra frá landi.
Ingibergur Guðmundsson 280
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd frá því í mars 1987 er moksturinn langt kominn og vírinn að mestu kominn upp úr snjónum. Mokararnir á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson sem lyftir vírnum eins hátt og hægt er.
Ólafur Bernódusson 700
Sigurður Sigurðarson á toppnum í gönguferð um nágrenni Landmannalauga 26. júlí 2012. Sigurður er mikill göngu- og útivistargarpur sem gjörþekkir svæðið við Landmannalaugar og víðar á hálendinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 122
Falleg mynd af Spákonufellinu. Lengst til vinstri er Sunnuhlíð (Bogabraut 19). Húsið hefur verið rifið og annað byggt á sama stað.
Jón Jónsson 455
Fjársafn bíður við Stafnsrétt í Svartárdal eftir að vera réttað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 53
Mynd af Skeifunni þ.e. efsta hluta Hólabrautar eins og hún var kringum 1970.
Adolf H Berndsen - safn110
Flötin á níundu braut á Háagerðisvelli er rétt hjá golfskálanum. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þrír óþekktir kylfingar að búa sig undir að pútta og klára þannig hringinn á þessum fallega stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 49
Þessi mynd sýnir Skagaströnd 1981 eða 1982. Byggingaframkvæmdir standa yfir við Mánabraut þar sem byggðar voru sjö íbúðir í félagslega kerfinu. Ýmsar byggingar, sem nú eru horfnar, sjást á myndinni t.d. Héðinshöfði í hægra horninu, Efri-Lækur, Efri-Jaðar, Ásbyrgi, Drangey og fleiri.
Ingibergur Guðmundsson 288
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og sama gilti um lyftuskúrinn eins og sést á þessari mynd. Toglyftan sjálf var til vinstri við skúrinn en hún sést ekki á myndinni enda á bólakafi. Myndin var tekin í apríl 1989 þegar þó var farið að hlána og snjórinn að sjatna.
Ingibergur Guðmundsson 281
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Til að fjármagna starfsemina, þar á meðal byggingu skíðaskálans, tóku jólasveinar á vegum skíðadeildarinnar að sér að bera út jólapóstinn á Skagaströnd. Á myndinni eru þeir að leggja af stað með póstinn frá Skíðaskálanum á Þorláksmessu.
Jón Jónsson 497
Fólkið á þessari mynd úr Stafnsrétt er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn095 - Copy
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir með son sinn Guðjón Dunbar á bakinu við Hvítserk í september 2005.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 024
Gunnar Halldór Hallbjörnsson tekur bunu á snjóþotu á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Ingibergur Guðmundsson 147
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fjallgöngufólkinu né hvenær. Frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Jane Sillar (d. 2017) og William Sillar.
Ingibergur Guðmundsson 278
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd má þekkja Ingiberg Guðmundsson næst okkur og Magnús B. Jónsson næst honum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 73
Á myndinni er gamli bærinn í Kambakoti.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 58
Á árum áður var það nánast lífsspursmál að eiga kú til heimilisþarfa. Á þessari mynd er Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) í Reykholti með kusu sína.
1
…
16
17
18
…
25
Leita í myndasafninu
Leita