Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Helga Berndsen 132
Vorið 1965 fylltist Húnaflói af hafís. Meðal annars kom ísinn auðvitað inn á höfnina á Skagaströnd. Til að sporna við því og vernda bátana í höfninni var strengdur sterkur vír frá Ásgarði (gömlu löndunarbryggjunni) og yfir í enda Skúffugarðs. Vírinn var látinn vera rétt við yfirborðið og þannig stöðvaði hann ísrekið inn í höfnina. Myndin sýnir aftur á móti víkina austan við Skúffugarðinn en hún fylltist af ís eins og sjá má.
Helga Berndsen 129
Vorið 1965 fyllti Húnaflói af hafís. Svo mikill var krafturinn í rekísnum að stórir jakar gengu á land eins og sjá má á þessari mynd þar sem Ernst Berndsen (d.21.8.1983) hefur stillt sér upp við einn jakann á Höfðanum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 96
Á myndinni eru tvö ungviði. Drengurinn er Vilhelm B. Harðarson en kálfurinn er nafnlaus. Myndin var líklega tekin kringum 1968.
Ingibergur Guðmundsson 146
Fjallgöngufólk á Spákonufellsborg eða á Borgarhausnum eins og yfirleitt er sagt. Skagaströnd er í baksýn við fólkið, sem er frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Milan Djurica og Kristinn Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 121
Líklega eru þetta systurnar frá Reykholti, dætur Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) og Laufeyjar Jónsdóttur (d.25.12.1969). Ef þú þekkir hver er hver vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 101
Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) á hestbaki. Hafsteinn var bóndi, kaupmaður, skáld og rithöfundur sem kenndur var við Reykholt.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 040
Þessi mynd var tekin við Laxá í Aðaldal í veiðtúr nokkurra félaga frá Skagaströnd líklega kringum 1980. Sigurbjörn Björgvinsson reynir að veiða en Jóhann Björn Þórarinsson og Steindór Gíslason (d.1985) fylgjast með. Steindór er lengst til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 212 - Copy
Þessi fallega mynd var tekin þegar sólargangur er hvað stystur á Skagaströnd eða 12. desember 2012. Þá skríður sólin rétt yfir sjódeildarhringinn um hádaginn eins og sést á þessari mynd sem var tekin klukkan 12:45.
Jón Jónsson 475
Ketubjarg á Skaga.
Helga Berndsen 131
Líklega var þessi mynd tekin veturinn 1965. Á henni eru að leik í snjónum við Karlsskála, frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir.
Helga Berndsen 133
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af hafís. Á myndinni eru börn að leik á strönduðum jaka í fjörunni neðan við Læk. Börnin eru Adolf H. Berndsen til vinstri, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) í miðið og Guðrún Einarsdóttir til hægri.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 56
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) frá Reykholti á baki hests sem henni þykir greinilega mjög vænt um. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 073
Bogabraut 22 á kafi í snjó 27. mars 1989. Greinilega sést ekki mikið út um stofugluggana þar.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 30
Aðalsteinn Jörgensen bjargar hananum vini sínum úr uppslætti sem haninn hafði asnast upp í. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 044
Þessi klettur er nú horfinn. Hann var á Höfðanum vestanverðum rétt norðan við þar sem gamli vegslóðinn endar. Áður hafi "Kerlingin", eins og kletturinn var kallaður, haft "bók" í höndum en hún brotnaði af löngu áður en myndin var tekin. Sagan sagði að kerlingin væri í raun kona sem sat þarna og beið bónda síns af sjónum. Bóndinn kom ekki en kerlingin beið svo lengi að hún breyttist að lokum í stein. Nú er sem sagt kerlingin horfin í hafið til til fundar við bónda sínn ef sögnin er sönn. Myndin var tekin 1969.
Ólafur Bernódusson 725
Þessi fallega kirkja á Höskuldsstöðum var vígð 31 mars 1963. Þá var aflögð gömul timburkirkja sem stóð á svipuðum stað og hún rifin nokkru síðar. Þessi mynd var tekin á fallegum vetrardegi 8. apríl 2006.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 065
Þessi mynd er líklega frá um 1980, tekin norður eftir Bankastrætinu. Húsin tvö lengst frá okkur á myndinni, vinstra megin við götuna, eru horfin. Hvíta húsið með áfastri hlöðu var Höfðakot en húsið lengst frá var Höfðaberg. Tvö af húsunum hægra megin við götuna eru líka horfin. Græna, tvílyfta húsið með rauða þakinu var Kárastaðir. Nær okkur, appelsínugult var Flankastaðir. Þar hefur verið byggt nýtt hús á sama stað.
Ólafur Bernódusson987
Í júlí 2010 fóru nokkrir Skagstrendingar í nokkurra daga útilegu í Reykjarfjörð nyrðri á Hornströndum. Hópurinn var einstaklega heppinn með veður þessa daga sem voru nýttir til gönguferða um nágrennið. Á myndinni er hluti hópsins að borða í kvöldsólinni. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Gunnar Svanlaugsson, tveir óþekktir, Sigurjón Atli Sigurðsson. Ólafur Bernódusson situr við enda borðsins en við endann nær okkur er baksvipur Láru Guðmundsdóttur. Hægra megin við borðið eru talið inn eftir borðinu: Amy Ósk Ómarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Steindór R. Haraldsson og Jóney Hrönn Gylfadóttir. Fjallið til vinstri í baksýn er Geirólfsnúpur en upp á hann fór hluti hópsins þennan dag.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 127
Vilhelm B. Harðarson á hestbaki. Myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma kringum 1966.
Ólafur Bernódusson971
11. júní 2010 fengu þeir félagarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Sævar Hallgrímsson til hægri sjaldgæfan flatfisk í netin á Ólafi Magnússyni Hu 54. Um var að ræða sandhverfu. Sandhverfa lifir í ísöltu vatni t.d. í sjónum við árósa og jafnvel uppi í ósum. Hún er mjög sjaldgæf hér við land en þykir frábær matfiskur. Stærsta sandhverfan sem vitað er til að veiðst hafi hér við land veiddist í febrúar 2018 við Ingólfshöfða en hún vóg 12 kíló og var 82 sentimetra löng.
Ólafur Bernódusson896
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi flytur uppgefna kind á fjórhjólinu sínu til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1057
Einar Guðmannsson til vinstri með frænda sínum Páli Valdimar Magnússyni (d. 12.3.2011) í fjáragi heima á Vindhæli í september 2005.
Ólafur Bernódusson749
Hófsóleyar eða lækjasóleyjar (Caltha palustris) mynda fallegan gullinn veg eftir skurði milli Blönduóss og Skagastrandar í áttina að Sölvabakka, enda kann hún best við sig í votlendi.
Ólafur Bernódusson901
Hjalti Árnason (d.4.7.2010) bóndi á Skeggjastöðum fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson897
Jónmundur Ólafsson (d. 19.4.2017) fyrrverandi bóndi Kambakoti í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson902
Lárus Ægir Guðmundsson fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1258
Þau eru ekki gömul börnin á myndinni úr réttunum 8. september 2012 en áhuginn leynir sér ekki. Maðurinn í bláröndóttu peysunni er Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli. Sá sem bograr við að skoða mark á lambi er Jóhann Ásgeirsson bóndi í Kambakoti og næst honum eru börnin hans tvö Freyja Dís Jóhannsdóttir og Logi Hrannar Jóhannsson. Með þeim eru svo Victoria Hólmgeirsdóttir með hvíta húfu og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1393
Það er um að gera að nýta sér snjóinn ef það er hægt. Hér hefur Árni Geir Ingvarsson fundið góða og ódýra leið til að halda bjórnum sínum köldum upp við þvottahúsdyrnar hjá sér. Myndin var tekin 24. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1108
Þessi mynd var tekin af Skagaströnd einhverntíma á árunum 1945 - 1950. Skúffugarðurinn er enn í byggingu og sama má segja um mjölskemmurnar. Garður, Héðinshöfði og Þórsmörk eru húsin sem standa hægra megin á myndinni en þau eru öll horfin ásamt fleiri húsum sem sjást á þessari mynd.
Ólafur Bernódusson904
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2007 af fólki að fylgjast með réttarstörfunum. Frá vinstri: Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka, Elna Ragnarsdóttir og Laufey Inga Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1070
Þessi mynd var tekin 20. janúar 2010 af hestaáhugafólkinu, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Axelsson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) og Hrönn Árnadóttir. Manneskjan lengst til hægri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 690
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu.Á þessari mynd er duflið komið á kerru aftan í björgunarsveitarbílnum og er á leiðinna á eyðingarstað. Tunnan fremst á kerrunni inniheldur sprengiefnið. Bjarni er strax að leggja úr höfn aftur.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 026
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból leika sér í snjónum í mars 1978. Frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sandra Ómarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir (fjær), Skúli Tómas Hjartarson (nær), Atli Þór Þórsson, Leifur Vilhelmsson, Guðný Finnsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 023
Þessir krakkar leika sér í snjónum við leikskólann Barnaból í mars/apríl 1978. Frá vinstri: Leifur Vilhelmsson, Brynjar Pétursson, Guðmundur Henry Stefánsson og Guðný Finnsdóttir?.
Ólafur Bernódusson917
Guðrún Pálsdóttir stendur hjá ísuðum endurvarpanum á toppi Steinnýjarstaðafjalli í mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 340
Köttur í vanda á gluggasillu á Herðubreið í maí 2011. Þangað hafði hann stokkið og komist upp með harmkvælum en þorði svo ekki að stökkva niður. Hjálp er á leiðinni því konan innan við gluggann hjálpaði kisu inn og bjargaði henni þannig.
Ólafur Bernódusson894
Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II með tvo til reiðar rekur fé til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Helga Berndsen 056
Krakkar að renna sér á skíðum í Tjaldklaufinni í Höfðanum veturinn 1965. Tjaldklaufin var vinsælt skíðasvæði á þessum tíma áður en meira var byggt af íbúðarhúsum við Bankastrætið. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson761
Myndin var tekin 15. janúar 2004 af þremur mönnum úr björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd við að bjarga bíl úr snjó vestan við Vélaverkstæðið. Þá var ný afstaðin stórhríð með miklu fannfergi svo miklu reyndar að þakið á verkstæðinu gaf sig undan snjóþunganum. Mennirnir eru óþekktir
Ólafur Bernódusson914
24. janúar 2088 fengu þeir á Hafrúnu Hu 12 sérkennilegan afla á línuna. Það var þorskurinn á myndinni því í baki hans var fastur fimm metra langur haki. þorskurinn var greinilega búinn að vera að dragnast með hakann í bakinu í nokkurn tíma því skaftið var með hrúðurkörlum á. Skipstjórinn á Hafrúnu, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, heldur í hakann á myndinni.
Ólafur Bernódusson916
Guðrún Pálsdóttir á leið upp á Steinnýjarstaðafjall í mars 2008. Í baksýn "Skín við sólu Skagafjörður" með Málmey, Drangey og Þórðarhöfða.
Ingibergur Guðmundsson 291
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 af Ægisgrund 5 á kafi í snjó. Barnið á myndinni er Rebekka Laufey Ólafsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 228
Hann er glæsilegur haninn sem var á Breiðabliki í ágúst 2014. Hann hélt uppi ströngum aga á hænunum sínum sem elskuðu hann og virtu á sinn hátt. Takið eftir sporanum sem er ógnandi aftan á hægri fæti hanans.
Ólafur Bernódusson739
Dagurinn er stuttur 13. desember og sólin lágt á lofti eins og sést á þessari mynd, sem tekin var þann dag 2012 um hádegisbil, þegar sólin fór hæst þann daginn. Eins og sést var kalt því Skagastrandarhöfn er með þunnu íslagi.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 53
Þessar ungu stúlkur eru frá Reykholti. Í miðjunni í fremri röðinni er Áslaug Hafsteinsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Í aftari röð eru frá vinstri: Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Pálína Margrét Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Stúlkan lengst til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson939
Ólafur Bernódusson við vörðu á toppi Kistufells við Hesteyrarfjörð um páska 2009. Í baksýn sést eyðibyggðin á Hesteyri þar sem rekin er nokkur ferðaþjónusta á sumrin annars hefur refurinn þar frítt spil.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1266
Árni Halldór Eðvarðsson í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Ólafur Bernódusson751
Borgarísjaki á Húnaflóa í september 2002. Frá þessu sjónarhorni minnir hann dálítið á Hólaneskirkju.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 142
Þegar þessi mynd var tekin var stór gryfja eftir efnistöku rétt vestan við Spákonufellsrétt. Vatn safnaðist gjarnan í gryfjuna og var því vinsælt hjá yngri kynslóðinni að leika sér í pollinum meðan fullorðna fólkið stritaði í réttinni. Á steininum er líklega Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Vilhelm B. Harðarson og Aðalsteinn Jörgensen. Langt er nú orðið síðan gryfjan var fyllt upp aftur.
Helga Berndsen 130
Vorið 1965 fylltist Húnaflóinn af Hafís. Þá notaði margur unglingurinn tækifærið og stundaði þann hættulega leik að fara út á ísinn og stökkva milli jaka. Ekki þarf að spyrja að leikslokum ef þau hefðu farið niður um vakir á ísnum en sumsstaðar var þunnur hemi yfir vökunum sem ekki hélt þunga manns. Á myndinni eru þrír að leik á ísnum við Höfðann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 209 - Copy
Basl í snjómokstri 2. nóvember 2012. Grafan er hálf útaf og bjargar sér frá veltu með því að styðjast við gálgann. Karlarnir eru að koma fyrir dráttarvír milli hennar og stærri hjólagröfu sem kom til bjargar. Eins og sjá má er skyggnið mjög takmarkað í snjókófinu.
Ólafur Bernódusson974
Ólafur Bernódusson hvílir sig á snúrustaur við heimili sitt 1. apríl 2006 eftir hring á gönguskíðum. Eins og sjá má er mikill snjór ennþá því það rétt grillir í hinn snúrustaurinn aftan við Ólaf.
Ólafur Bernódusson854
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri skera hákarl áður en honum er komið í kösina. Þar er hann látinn verkast ca 2 mánuði áður en hann er hengdur upp til þurrkunar í tvo til þrjá mánuði áður en hans er neytt.
Ólafur Bernódusson915
Þessir hressu krakkar sköpuðu þennan glæsilega snjókarl í mars 2008 á íþróttavellinum enda var þá nægur efniviður í karlinn á vellinum. Krakkarnir eru frá vinstri: Laufey Sigurpálsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Birkir Freyr Gunnarsson og Páll Halldórsson.
Ólafur Bernódusson899
Erna Högnadóttir húsfreyja á Vindhæli fylgist eð réttarstörfum í Kjalarlandrétt 8. september 2007. Stúlkan við hlið hennar er óþekkt.
Ólafur Bernódusson903
Nágrannarnir Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi til vinstri og Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II til hægri á spjalli í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Ólafur Bernódusson775
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á Arnari Hu 1 sýnir hér branduglu sem settist á Arnar úti á sjó og var fönguð. Henni virtist líða ágætlega vel um borð og át hrátt kjöt með ágætri lyst úr höndum Finns. Henni var svo sleppt þegar komið var í höfn og lét sig þá hverfa án þess að þakka fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það sumarið 2005.
Ólafur Bernódusson898
Páll Jóhannesson fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1267
Myndin var tekin 8. september 2012 í Kjalarlandsrétt af glöðu fólki við réttarstörf. Fólkið er: Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og svo feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildur Jakobsdóttir.
Ólafur Bernódusson900
Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009) fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
1
…
17
18
19
…
25
Leita í myndasafninu
Leita