Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson905
Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi glaðbeittur við fjárdrátt í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1257
Árni Halldór Eðvarðsson með tvo til reiðar í göngum 8. september 2012.
Ólafur Bernódusson 731
Vonandi ráða álfarnir í Einbúanum yfir þekkingu til að hita hýbýli sín því annars hlítur að hafa verið ansi kalt hjá þeim þegar þessi mynd var tekin 15. desember 2006.
Ólafur Bernódusson893
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) með tvo til reiðar við Kjalarlandsrétt á gangnadegi 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1094
Myndin var tekin 17. janúar 2004 eftir að nokkurra daga illviðri slotaði. Mikil ísing og ofankoma varð til þess að tveir bátar sukku í höfninni eins og sjá má og litlu mátti muna með fleiri báta. Bátarnir voru báðir hífðir upp og þeir endurnýjaðir eftir þörfum.
Ólafur Bernódusson843
Kría að segja ljósmyndaranum til syndanna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 425
Flutningabíll fór út af veginum sunnan við Árbakka 10. apríl 2013 í vondu veðri og slæmu skyggni. Á myndinni er stór vinnuvél að draga bílinn upp á veginn aftur sem hann komst ekki af sjálfsdáðum.
Ólafur Bernódusson931
Á vorin eru gjarnan einn til tveir útivistardagar í Höfðaskóla. Þá geta nemendurnir valið sér verkefni utan skólans. Eitt af verkefnunum í maílok 2008 var að ganga á Spákonufellið. Hópurinn á myndinni valdi það og myndin var tekin á Borgarhausnum 23. maí. Sitjandi frá vinstri: Stefán Velemir, Indriði Björnsson, Óskar Björnsson, Guðjón Páll Hafsteinsson, óþekkt, Viktor Örn Valdimarsson og Ingimar Guðjónsson. Standandi frá vinstri: Ágúst Ingi Ágústsson kennari, óþekkt, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Torfi Friðrik Magnason og Telma Dögg Bjarnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 83
Myndin var tekin utan við Gamla pósthúsið (Bogabraut 10) líklega kringum 1970. Á henni eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir?, Vilhelm B. Harðarson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Ólafur Bernódusson767
Í mars 2005 flæktist þessi myndarlegi æðarkóngur í grásleppunet hjá Stefáni Jósefssyni. Æðarkóngur er fremur sjaldgæfur við Ísland því varpstöðvar hans eru á nyrsu slóðum svo sem á Ellesmerlandi í Kanada, nyrst á Grænlandi, Svalbarða og eyjum nyrst á jörðinni. Eins og sést á myndinni er fuglinn skrautlegur í meira lagi en fuglinn á myndinni er að sjálsögðu bliki þ.e. karlfugl.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1189
Unglingar í bæjarvinnunni að dytta að Spákonufellsrétt í júlí 2010. Unglingarnir eru frá vinstri talið: Þórður Indriði Björnsson, Sara Rut Fannarsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson og Jóhann Örn Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1392
Árni Geir Ingvarsson lítur út um þvottahúsdyrnar hjá sér á Fellsbrautinni 3. nóvember 2012 eftir snjókomu undanfarinna daga.
Ólafur Bernódusson829
Hópur fólks í hlíðum Spákonufells á niðurleið eftir að hafa gengið kvöldgöngu á Spákonufellið - Þórdísargöngu - 4. júlí 2009 á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson981
Vindhæli 26. mars 2013. Frá Vindhæli eru miklar örlaga- og átakasögur frá fyrri tímum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 402
Mávarnir á bryggjunni eru stundum til vandræða. Þeir hópast að fiskkörunum þegar verið er að landa og kroppa í góðgætið sem í þeim er. Á þessari mynd frá því í ágúst 2013 nýta sílamávar og silfurmávar sér tækifærið þessar mínútur sem það tekur að ná hinum körunum upp úr bátnum.
Arnar HU 1 - safn 66
Þessi undarlegi fiskur, Pálsfiskur (Zenopsis conchifera), kom í trollið hjá Arnari HU 1 á Grindavíkurdýpi í apríl 2008. Pálsfiskur er afar sjaldgæfur við Ísland því hann veiðist mest í Indlandshafi og við Ástralíu. Þó finnst hann í einhverju mæli á strandsvæðum við Atlantshaf. Pálsfiskur getur orðið allt að 80 cm langur en fiskurinn á myndinni var um 30 cm.
Ólafur Bernódusson780
Göngufólk á göngu í nágrenni Skaftafells í áttina að Morsárjökli. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Gunnar Svanlaugsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigríður Stefánsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Páll Halldórsson, Inga Sigurðardóttir og Torfhildur Rúna Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1391
Af augljósum ástæðum er ekki vitað hvaða barn er á myndinni í óða önn að byggja sér snjóhús í djúpum skafli. Myndin var tekin 19. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1260
Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka í réttarstörfum í réttinni sunnan við Kjalarland 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1074
Sigurður G. Jónsson í Fjallsminni með besta vin sinn - kisa - á öxlinni. Myndin var tekin af þeim félögum í göngutúr í lok október 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1263
Karen Líf Sigurbjargardóttir 8. september 2012 í Kjalarlandsrétt.
Ólafur Bernódusson906
Árni Geir Ingvarsson mundar myndavélina í Kjalarlandsrétt 8. september 2007. Framan við hann spjalla Jónmundur Ólafsson (d. 19.4.2017) til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
Ólafur Bernódusson773
Myndin var tekin 12. febrúar 2005 af bát sem strandaði undir Króksbjarginu. Líklegt verður að teljast að maðurinn, sem var einn um borð, hafi sofnað við stýrið og þess vegna lent uppi í fjöru. Maðurinn slapp óslasaður og báturinn skemmdist ótrúlega lítið. Björgunarsveitin Strönd kom bátnum á flot með Húnabjörginni og dró hann heim til Skagastrandar þar sem gert var við bátinn. Í baksýn sér í eyjuna eða Stapann og Fossárfoss, sem er einn af fáum fossum á Íslandi sem fellur beint í sjó.
Ólafur Bernódusson779
Göngufólk í göngu við Skaftafell fækkar fötum í blíðunni. Frá vinstri: Gunnar Svanlaugsson, Bjarki Sigurðarson, Brynja Stefánsdóttir, Inga Sigurðardóttir, Stefán Ægir Lárusson, baksvipur Sigríðar Stefánsdóttur, óþekktur, Sigurður Sigurðarson, Lára Guðmundsdóttir og Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1086
Í óveðri 29.-30. desember 2012 fuku þakplötur af hluta af húsinu á Strandgötu 10. Plöturnar flettust af en héngu fastar á suðukantinum á þakinu eins og sést á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1087
Mynd tekin á gamlársdag 2012 eftir að vonsku veðri dagana á undan hafði slotað. Bak við og undir skaflinum á myndinni er Fellsbraut 15 með jólaljósin kveikt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1096
Hvalskurður á hafnarbakkanum á Skagaströnd. Hrefnuveiðibátar voru stundum við veiðar á Húnaflóa á sumrin og komu þá gjarnan með aflann í land á Skagaströnd og gerðu að hrefnunum á bryggjunni. Beinagrindina og annan úrgang tók svo viðkomandi bátur með sér í næstu veiðiferð og skilaði aftur í lífríkið í sjónum einhversstaðar utan veiðislóða. Á þessari mynd er Birgir Árnason (d.2.2.2005), hafnarvörður í köflóttri skyrtu og grænleitum buxum, að hjálp áhöfn eins hvalbátanna við hvalskurðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á níunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1273
Systurnar Sigríður Ólína Ágústsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Arnar HU 1 - safn 58
Þessi mynd var tekin af Arnari HU 1 við hlið risa borgarísjaka á miðunum í apríl 2005. Það var Arnar Ólafur Viggósson sem tók myndina úr gúmmíbát Arnars HU 1. Myndin birtist í Morgunblaðinu 25. 4. 2005 með eftirfarandi texta: "Það fer ekki mikið fyrir frystitogaranum Arnari HU 1 þar sem hann skríður meðfram borgarísjaka af stærstu gerð. Ísjakinn var að lóna við Óðinsboða á Húnaflóa þegar Arnar var að koma inn til löndunar með aflaverðmæti upp á 115 m.kr. á laugardag."Við settum út tuðruna að gamni og strákarnir fóru upp að jakanum. Þetta var eins og eyja að stærð - minnti mann á þegar maður sér Grímsey úr fjarska," sagði Árni Sigurðsson skipstjóri. "Það var svo mikil bráðnun á jakanum í sólinni að á nokkrum stöðum voru fossar fram af brúninni á honum. Það eru nokkrir stórir jakar þarna að þvælast en þessi var langstærstur."
Axel Jóhann Hallgrímsson 16
Hafís þekur Húnaflóa vorið 1968. Svarti díllinn á myndinni er Árbakkasteinninn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 268
Ekki er mikið eftir sýnilegt af Spákonufellsey. Megnið af henni er undirstaða hafnarinnar á Skagaströnd og hluti hennar hefur verið þakinn stórgrýti sem brimvörn hafnarinnar. Á myndinni má þó sjá hluta eyjarinnar vaxinn grastoppum og skarfakáli. Fjær sér í hluta grjótvarnarinnar.
Ólafur Bernódusson 2 713
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri komu með góðan afla í maí 2001 á Dagrúnu. Aflinn var fjórir hákarlar í sömu umvitjun en þeir lögðu oft hákarlalóð á vorin um leið og þeir voru á grásleppu. Hákarlarnir voru allir skornir, kæstir og þurrkaðir og síðan etnir með góðri lyst á þorrablótum vítt um landið.
Ólafur Bernódusson973
Vinirnir Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Sigurður Sigurðarson til hægri njóta síðsumarkvölds á tjaldsvæðinu í Skaftafelli eftir stífan göngudag í ágústbyrjun 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1255
Þessi mynd af sólinni í hádegisstað var tekin 13. desember 2012. Þá gægist sólin rétt yfir sjódeildarhringinn og lýsir upp himinn með fallegum litum. Þegar sólin er svona lágt á lofti eins og á myndinni verður fólk að fara varlega í akstri vegna hættunnar á að sólin blindi ökumenn.
Ólafur Bernódusson980
Syðri-Hóll í vetrarböndum 8. mars 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1109
Fyrir tíma litfilmunnar voru myndir stundum litaðar með einhverri tækni. Líklega er þessi mynd fallegt dæmi um slíka vinnu. Við horfum ofan á þakið á Höfðakoti næst okkur en lágreista húsið með græna þakinu var Dvergasteinn. Til vinstri við hann er Skálholt. Niður með götunni, Skagavegi, eru síðan: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður en þrjú þau síðastnefndu eru löngu horfin. Guli skúrinn sem ber í höfnina var vigtarskúr því þar var hafnarvigtin staðsett. Litli hvíti skúrinn til hægri við hann var olíuafgreiðsluskúr fyrir Esso með bensín- og olíudælum fyrir utan og þvottaplani með gryfju til hægri. Til vinstri við hafnarvigtarskúrinn er gamla pakkhúsið sem var ein elsta byggingin á Skagaströnd á þessum tíma. Það er nú horfið eins og braggarnir tveir vinstra megin við það. Bogaskemman með rauða þakinu til vinstri var beitningaskúr og er nú horfinn en í húsinu vinstra megin við hann er nú Vélaverkstæði Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1271
Líklega þekkir Logi Hrannar Jóhannsson frá Kambakoti vel kindina sem hann er að klappa á myndinni úr Kjalarlandsrétt 8. septeber 2012.
Ólafur Bernódusson970
Það hlýtur að vera stór stund hjá æðarungunum þegar þeir fara í fyrsta sinn á flot. Á myndinni leiðir æðarkolla nokkra unga sína fyrstu skrefin út í sjó þar sem þeir munu eyða mestum hluta ævi sinnar eftir það. Æðarfuglinn nær 10 - 20 ára aldri og kollan verpir 4 - 6 eggjum í maí til júní. Þá reytir hún dún af brjósti sínu og fóðrar hreiðrið innan með honum. Það var einmitt þessi dúnn og nýtingin á honum sem gerði það að verkum að æðarfugl var friðaður á Íslandi 1786 að takmörkuðu leiti en síðan 1847 hefur hann verið alfriðaður. Varð hann þannig fyrsta villta dýrið sem var friðað á Íslandi. Talað er um að það þurfi 60 hreiður til að fá eitt kíló af dún sem selst á háu verði eftir þurrkun og hreinsun. Útungunartími æðareggja er um fjórar vikur og strax og ungarnir koma úr eggjunum leiðir kollan þá út á sjó í fæðuleit. Áætlað er að um 975 þúsund æðarfuglar hafi vetursetu á Íslandi.
Ólafur Bernódusson781
Víðirinn í Mosárdal var þakinn af litlum lirfum eins og þeim sem sjást á myndinni, liklega víðifetalirfum. Þessir skrautlegu "ormar" breytast síðan í falleg fiðrildi næsta vor eftir að hafa farið gegnum púpustig.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 027
Aðalheiður Sif Árnadóttir til vinstri og Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir til hægri að leika sér í snjónum við leikskólann Barnaból í mars 1978.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1063
Jón Örn Stefánsson sleppir Gjóði sem náðist um borð í Arnari Hu 1. Gjóður er ekki algengur á Íslandi en hefur þó sést hér nokkrum sinnum. Hann er fiskiæta skyldur fálka, um 60 cm að stærð með vænghaf allt að 180 cm. Myndin var tekin 19. október 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1207
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. nóvember 2012. Þegar viðrar eins og myndin sýnir þurfa eigendur báta að vera vel vakandi og moka úr þeim snjó sem safnast í þá í skafrenningnum fram af bryggjubrúninni. Ef það er ekki gert er hætta á að yfirvigtin á þeim geti lagt þá á hliðina og þar með sökkt þeim.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1206
Það getur oft verið lítið skyggni þegar norðanáttin blæs og myndar skafhríðarkóf fyrir víkina. Þessi mynd var tekin í einu slíku veðri 2. nóvember 2012 en þá fór snjómoksturstæki með önnur hjólin fram af brúninni á Strandgötunni. Á myndinni er annað tæki að draga gröfuna upp á götuna aftur. Engin slys urðu við óhappið enda kom snjórinn í veg fyrir að grafan færi alveg á hliðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1253
Þessi tvö bíða eftir safninu af fjalli í göngum 8. september 2012. Þeirra hlutverk Var að standa fyrir og beina safninu rétta leið í almenninginn við réttina hjá sunnan við Kjalarland. Fólkið er Páll Jóhannesson og Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016) sem bæði höfðu áhuga á kindum og fjárbúskap.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1116
Sigurður Jónsson djúpt hugsi á tröppunum við heimili sitt að Fjallsminni 18. ágúst 2006. Hjá honum, íhugull og slakur, er besti vinur hans - kisi.
Ólafur Bernódusson789
Þessi hákarl kom á línuna hjá Öldunni Hu 112 16. janúar 2006. Hjá hákarlinum stendur Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður og eigandi Öldunnar. Hákarlinn var auðvitað skorinn og verkaður til að gleðja bragðlaukana haustið 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1071
Deilt er um hvort hundurinn sé besti vinur mannsins eða hvort það sé hesturinn. Þetta fólk var úti að labba með besta vin sinn? í febrúar 2010 og áttu spjall við tónlistarskólann. Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Pétur Eggertsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1064
Sigrún Lárusdóttir með tvo til reiðar við að liðka hrossin sín í apríl 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1261
Mæðgur. Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emilíu Marey Einarsdóttur meðan þær virða fyrir sér kindur í réttinni sunnan við Kjalarland 8. september 2018.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1122
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) til vinstri spjallar við Skarphéðinn Einarsson til hægri í réttunum 4. september 2010.
Ólafur Bernódusson895
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri á Skagaströnd fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1215
Rjúpan er eftirsótt af mörgum á jólaborðið. Hún er af orraætt, staðfugl á Íslandi en verpir í mörgum öðrum löndum á norrænum slóðum. Kvenfuglinn, eða hænan, er um 500 gr að þyngd en karlfuglinn, sem kallast karri, er um 550 gr. Rjúpa skiptir þrisvar á ári um lit, hvít á vetrum, brún á sumrin og gráleit á haustin. Hún verpir að jafnaði 12 eggjum þannig að frjósemin er mikil enda verður hún að meðaltali ekki nema þriggja til fjögurra ára gömul þó þær elstu verði 6- 7 ára. Rjúpnafjöldi á Íslandi sveiflast mikið og eru ca 10 ár milli toppa. Ekki er fullljóst hvað veldur þessum sveiflum en þær tengjast ekki skotveiðum manna segja vísindamenn. Helstu óvinir rjúpunnar eru fálki og refur auk mannsins sem sækir í að veiða hana á leyfðum veiðitímabilum. Mjög vel er fylgst með rjúpnastofninum á Íslandi og líklega eru fáir fuglastofnar jafn vel vaktaðir af vísindamönnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1270
Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1269
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gráhærði maðurinn er Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) en hinn maðurinn er óþekktur. Í baksýn er Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1032
Hann er stórsnjó boltinn sem krakkarnir á myndinni gerðu. Krakkarnir eru frá vinstri: Elín Ósk Björnsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir og Victoría Hólmgeirsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1305
Óli Albertsson frá Keldulandi um miðjan apríl 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 19
Þessi götumynd var tekin einhverntíma kringum 1960 niður eftir Hólabraut og er mjög ólík þeirri sem er í dag. Húsið næst okkur til hægri er Hólabraut 7 en húsið til vinstri er Goðhóll, sem nú er horfinn, en þar stendur nú húsið Hólabraut 10.
Ingibergur Guðmundsson 313
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slá frá sökklinum og hreinsa timbrið. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri
Ólafur Bernódusson933
Skagaströnd séð ofan af Borgarhausnum í maí 2008.
Guðmundur Guðnason053
<P>Verðlaun afhent á hestamannamóti. Ef þú veist hverjir eru á myndinni og/eða hvar mótið fór fram vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
1
…
18
19
20
…
25
Leita í myndasafninu
Leita