Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
hem035
Fólk við dúntekju í æðarvarpinu í Eyjarey á hafísári.
Mundi289
Flekkóttur hrútur.
mundi321
Tvær kisur.
mundi372
Þetta er hún Hjálma, kýrin hennar Klemensínu Klemensdóttur og Guðna Sveinssonar í Ægissíðu á Skagaströnd. Þau vou foreldrar Guðmundar Guðnasonar. Kötturinn er líka þeirra og myndin er að öllum líkindum tekin á seinni hluta 6. áratugar síðustu aldar.
mundi543
Myndin er tekin af hlaðinu á Ægissíðu, heimili Guðmundar ljósmyndara.
mundi555
Útreiðartúr í Laxárdal. Fólkið á myndinni er óþekkt
hem025
Réttastörf í óþekktri rétt. Ef þú þekkir réttina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
hem027
Landsendarétt var skilarétt á Skagaströnd áður en Spákonfellsrétt var byggð. Landsendarétt var byggð úr öflugum grjóthleðslum en grjótið var tekið úr fjörunni fyrir neðan hana. Hún stóð á sjávarbakkanum á flatlendinu austan við Landsenda (nyrsta enda Höfðans) og norðan við Réttarholt. Nú eru ummerki um réttina nánast öll horfin vegna sjávarrofs. Torfhúsin uppi í brekkunni í baksýn voru skepnuhús. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hana tók Evald Hemmert (1886 - 1943) verslunarmaður á Skagaströnd og Blönduósi þannig að líklega hefur það verið kringum 1930.
hem006
Fragtskipið Ísafold í ís norðan við Höfðann í júní 1915. Á þessum árum var komu fragtskipanna beðið með eftirvæntingu því með þeim barst vara til landsins sem beðið var eftir. Þess má geta að Eimskipafélag Íslands -"'Óskabarn þjóðarinnar" - var stofnað 1915 og var af mörgum talið risaskref fyrir Íslendinga í átt að sjálfstæði. Þessa mynd tók Evald Hemmert sem var kaupmaður á Skagaströnd og átti því hagsmuna að gæta í sambandi við es Ísafold sem flutti m.a. vörur í verslunina.
mundi407
Hyrnt kind með lamb.
mundi524
Tjaldbúðir í Tungudal við Ísafjarðarkaupstað. Myndin var tekin í Vestfjarðaferð starfsfólks Guðmundar Lárussonar 1973? Kári Sigurbjörn Lárusson stendur fyrir miðri mynd í ljósri skyrtu og brúnum buxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi371
Hvolpur
hem003
Spákonufellshöfði 1915 eða eldra.
30680007
Síldarævintýri. Allt klárt fyrir síldarsöltun.
mundi619
Óþekkt stúlka með kettling.
mundi416
Systkinin Hjörtur Guðbjartsson og Eyrún Guðbjartsdóttir (d.7.4.1987) Myndin tekin á heimili þeirra í Vík, líklega 1962 -´63
mundi519
Fremst á miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali var kallað Grafarbakki vegna nálægðar við mógrafir. Húsið var að lokum notað til æfinga fyrir slökkvuliðið og brennt.
mundi544
Ólafur Guðmundsson (6.10.1985) frá Brautarholti við réttastörf í Fellsrétt/Spákonufellsrétt.
mundi599
Skagstrendingar á ferðalagi. Lengst til vinstri er Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), síðan koma hjónin á Árbakka Jakob Guðmundsson og Helga Hermannsdóttir. Hjá þeim standa hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
057
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó
hem017
Fremst á myndin má sjá Jóhönnu Hemmert sitja líklega ásamt dóttur sinni Hólmfríði á túninu og vinnufólkið er í heyskap. Lengst til hægri er íbúðarhús verslunarstjóra Höphnersverslunar ljóst á litinn. Það var byggt 1774 en rifið 1908. Næst því er fjós og hesthús kaupmannsins sem sennilega var einnig notað sem pakkhús að hluta. Lengra til vinstri er lítið hús sem ber í stærra hús en litla húsið er Assistentastofa eða íbúðarhús verslunarþjónsins sem starfaði í versluninni. Ljósa lágreista húsið er verslunin sjálf en áfast við hana er háreist pakkhús. Við hornið á pakkhúsinu sér í þúst en það er íbúðarhúsið Sæmundsenbúð. Til vinstri við fólkið koma Brúarland, Móar, Lækur, Lækjarbakki, Karlsminni og Viðvík í röð. Fyrir neðan Viðvík er bátur og í fjörunni er Semingssteinn. Á Hólanesinu handan við víkina er stórt íbúðarhús og verslun Carls Berndsen og fram af því Árnes. Litla húsið, vinstra megin við Hólaneshúsin er Stiesenbær. Nær fjöllunum til vinstri er Stóra Berg og efst Litla Berg. Innst með ströndinni til hægri sést Bráðræði. Myndin er tekin fyrir 1907 sennilega árið 1904.
047
Hyrntur hrútur frá Brandaskarði í taumi, sennilega um fengitímann
060
Elísabet Kristjánsdóttir frá Háagerði og Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó
hem026
Réttardagur í óþekktri rétt.
Guðmundur Guðnason694

Þessir þrír heiðursmenn settu svip sinn á Skagaströnd hér á árum áður. Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), sem er lengst til vinstri, ólst að mestu upp á Vindhæli í Skagabyggð og átti þar heimili þar til hann flutti til Skagastrandar og stofnaði fjölskyldu með konu sinni Dagnýju Hannesdóttur. Einar Haraldsson (d.14.11.1983) , sem er í miðið, var bóndi að Kjalarlandi í Skagabyggð áður en hann flutti til Skagastrandar með sinni konu, Ólínu Hjartardóttur (d. 27.7.1983) frá Vík. Á Skagaströnd bjuggu þau í Dagsbrún, sem er horfin en stóð u.þ.b. þar sem stjórnsýsluhúsið er nú. Lengst til hægri er svo Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) bóndi á Litla Felli í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Þar bjó hann með konu sinni Sigrúnu Guðmundsdóttur og þeirra fjölskyldu. Allir eru þessir þrír menn minnisstæðir þeim sem til þeirra þekktu.

033
Heimir Sigmarsson í snjó
Guðmundur Guðnason700
Myndin er tekin í Spákonufellsrétt. Stúlkan í köflóttu skyrtunni er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi og ljóshærða stúlkan er Guðbjörg Kristinsdóttir. Skeggjaði maðurinn með húfuna er Einar Haraldsson fá Kjalarlandi (seinna í Dagsbrún). Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Bernódus Ólafsson og til hægri við hann er Jóhann Jakobsson.
054
Jón Árnason frá Steinnýjarstöðum - seinna á Ólafsvöllum á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason686
Sunnudagaskólabörn sunnan við gömlu kirkjuna á Skagaströnd. Fólkið sem stendur aftan við börnin er, talið frá vinstri: Hrefna Björnsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir, Guðný Hjartardóttir, Guðrún Teitsdóttir, Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, séra Pétur Ingjaldsson, Páll Jónsson, Björk Axelsdóttir og óþekkt kona. Börnin eru óþekkt en eru æska Skagastrandar á þeim tíma sem myndin er tekin.
013
Björgvin Guðmundsson frá Saurum. Myndin tekin ca 1939
Jón103
Stúlkurnar í snjónum fyrir utan Bogabraut 26 eru frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir og Bjarnhildur Níelsdóttir.
Mundi254
Myndin er tekin á heimaslóðum ljósmyndarans, Guðmundar Guðnasonar, í Laxárdal í Austur Húnavatnssýslu. Rústirnar munu vera af bænum Refsstöðum í Laxárdal.
jón116
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi á hestbaki.
mundi554
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Fólkið er að reka fé inn í almenninginn úr geymsluhólfi. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Óþekktur drengur, Hallbjörn Ágústsson, óþekktur drengur framan við hann, Kári Lárusson, Reynir Sigurðsson, Eyrún Birgisdóttir, Sveinn Hall Másson, Óskar Jóhannesson, Herbert Ólafsson, Konráð Guðmundsson, Guðrún Jónsdóttir og Ragnheiður Sigurjónsdóttir

30600039
Myndin er frá Vallabökkum í Skagafirði. Maðurinn á hestinum næst ljósmyndaranum er Benedikt Benediktsson á Stóra-Vatnsskarði, þá Jón Baldvinsson Dæli, svo Ottó Þorvaldsson Víðimýrarseli og á endanum Páll Sigurðsson kenndur við Varmahlíð og Fornahvamm, síðast í Kjarri.
hem004
Frá Spákonufellshöfða myndin er tekin 1910 eða eldri. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
mundi342
Einbeittur köttur.
jón114
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli á hestbaki.
30680035
Fjársafnið rekið að Fellsrétt.
031
Gunnlaugur Björnsson við slátt
hem002
Á myndinni er til vinstri verslunarstjórahúsið því næst er fjós og hesthús. Við norðurenda þess gægist fram hornið á Assistentastofu. Húsið sem er lengst til hægri upp í Einbúanum var þvottahús. Myndin er frá 1913 eða fyrr, áður en nokkrar landfyllingar komu til sögunnar kringum Einbúann.
Myndir frá Skagaströnd
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba í Reykholti) (d. 26.8.2008) á hestbaki
hem024
Myndin er tekin frá Spákonufellsey árið 1915-20. Á henni sjást frá vinstri verslunarstjórahúsið, Flankastaðir, Þvottahúsið og hægra megin við Einbúann er Assistentastofa, en þar bjó verslunarþjónninn sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Pakkhús kemur svo, lengra frá, og verslunin, ljós á litinn, nær okkur. Næst er svo Sæmundsenbúð og lengst til hægri Brúarland.
30600037
Kappreiðar á ókunnum stað. Konan með sólgleraugun á brúna hestinum er Sigurbjörg Jóhannesdóttir frá Merkigili.
30680034
Fjársafnið rekið að Fellsrétt.
mundi530
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti við réttarstörf í Spákonufellsrétt.
30600038
Kappreiðar á ókunnum stað
mundi556
Réttarstörf í óþekktri rétt.
011
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum með tíkina Halló ca 1940
mundi518
Ásholt til vinstri og Ás til hægri. Myndin er tekin af hlaðinu í Ægissíðu þar sem ljósmyndarinn Guðmundur Guðnason átti heima.
014
Gunnlaugur Björnsson rifjar hey
019
Óþekkt stúlka í snjó
025
Til vinstri er Heimir Sigmarsson, Smári Guðlaugsson í miðjunni en óþekktur til hægri
066
Sigmar Hróbjartsson með hestinn Grána
003
Finnur Frímannsson frá Jaðri á Skagaströnd. Myndin tekin ca 1938
Sigmar Hróbjartsson - safn014
Réttað í Landsendarétt. Réttin stóð á sjávarbakkanum norðan við Réttarholt - á Landsenda
Guðmundur Guðnason688

Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Inga Stefánsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Jósef Sigurðsson. Þrjú barnanna voru börn Sigurðar Magnússonar og Dórotheu Hallgrímsdóttur frá Hólanesi. Inga dvaldi hjá þeim hjónum á táningsárum sínum.

058
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó. Spákonufell í baksýn.
051
Þórey Daníelsdóttir frá Búrfelli með hest ca 1940
Guðmundur Guðnason707

Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti, Búi Birgisson frá Straumnesi, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Birna Guðjónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum og Jóhann Ingibjörnsson.

1
2
3
4
5

25
Leita í myndasafninu
Leita