Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Náttúra

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Arnar HU 1 - safn 20
Mokafla af ufsa um borð í Arnari HU 14. ágúst 2003 hleypt niður í móttökuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason103
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Á þessari mynd er hópurinn að koma með Fagranesinu frá Ísafirði og að Arngerðareyri innst í Ísafjarðardjúpinu. Þar biðu rúturnar en fólkið fór sem sagt með viðlegubúnað sinn með Fagranesinu. Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991) og Hallbjörn Björnsson. Bryggjan á Arngerðareyri í baksýn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 111
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Siglfirðingurinn Hilmar J. Stefánsson og Ragnar Högnason. Þeir eru allir með guðlax í fanginu. Guðlax er mjög sérkennilegur fiskur sem þykir herramanns matur. Hann er mjög feitur fiskur með mildu bragði og getur orðið mjög stór, allt að 185 cm og 70 kg. Hann er sjaldgæfur flækingur á Íslandsmiðum og þykir mjög fallegur. Það sérkennilegasta við hann er þó það að hann er eini fiskurinn sem vitað er um að er með heitt blóð. (Heimild: Wikipedia). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Húsið sem ber yfir bílinn er Gunnarshólmi oft kallað Grafarbakki vegna þess að það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Sólheimar yngri er húsið til hægri við bílinn og Sólheimar eldri er húsið sem stendur nær okkur með flötu þaki. Við sjáum ofan á þakið á Valhöll og hægra megin við það er Steinholt. Bjarmaland er svo hægra megin með hlöðu og fjárhús á bak við.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 690
Öllum lífverum er eðlislægt að reyna að koma genum sínum áfram til næstu kynslóðar. Lífverur nota ýmsar aðferðir til að ná þessu markmiði sínu en t.d. spendýr hafa öll innri frjóvgun þar sem nýr einstaklingur þróast innan líkama móðurinnar eftir getnað. Flestir fiskar hafa aftur á móti ytri frjóvgun þar sem egg og sæði (hrogn og svil) sameinast utan líkama móðurinnar og þróast þar í nýjan einstakling. Á myndinni, frá 1. júlí 2014, er náttúran að hafa sinn eðlilega gang hjá hrossunum.
Óþekktur ljósmyndari415
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna í grjótnáminu í Höfðanum. Það hófst 1934 þegar þangað var sótt grjót í uppfyllingu milli lands og Spákonufellseyjar vegna hafnargerðar. Næstu ca 30 ár var tekið grjót úr Höfðanum en með hléum. Klöppin var sprengd til að losa um grjótið en mulningurinn var líka notaður með stóru steinunum. Einnig voru járnkarlar mikið notaðir til að færa grjótið til og koma á það böndum til hífinga. Maðurinn á Caterpillar D 7 ýtunni er að hreinsa til svo hægt sé að ná grjótinu með góðu móti. Maðurinn er óþekktur en ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið eftir 1943 því fyrstu vélarnar af þessari gerð komu þá til landsins á vegum Bandaríska hersins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1484
Hundurinn aðstoðar eiganda sinn Björgvin ? við að beita í skúrnum hjá Vík ehf lok nóvember 2012.
Guðmundur Guðnason139
Hofsrétt (gamla) sumarið 1965. Þessi rétt, sem er staðsett norðan við Steinnýjarstaði, var hringlaga, hlaðin úr torfi og grjóti. Hún var byggð í kringum 1940 og enn má skoða rústir hennar þó langt sé síðan hún var síðast notuð.
Guðmundur Guðnason707
Myndin er tekin af Höfðanum yfir útbæinn og höfnina. Mörg af húsunum á myndinni eru horfin eins og Efri Sólheimar sem sést ofan á fremst til vinstri og Valhöll sem stendur hinum megin við götuna. Höfðaberg hét húsið næst okkur til hægri á myndinni og Höfðakot hægra megin við það. Niður með Skagaveginum eru síðan horfin útihúsin og viðbyggingar við Bjarmaland vinstra megin og Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður hægra megin við götuna. Kaupfélagshúsið, braggarnir og löndunarútbúnaður vegna síldarverksmiðjunnar á höfninni eru einnig horfin í dag.Ef grannt er skoðað sést hafís á sjónum þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1965 eða 1968.
Óþekktur ljósmyndari413
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Grjótflutningar úr Höfðanum í uppfyllingu við hafnargerðina. Líklega var myndin tekin kringum 1940. Maðurinn á myndinni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 596
Sonja Dröfn Helgadóttir viðrar hundana sína við kirkjuna á góðum degi í byrjun nóvember 2014
Guðmundur Guðnason144
Í Hofsrétt sumarið 1965. Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti leggur hendurnar á axlir Eiðs Hilmarssonar frá Hofi. Til vinstri er Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri að leita að sínu fé í safninu.
Óþekktur ljósmyndari412
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er unnið að grjótnámi úr Höfðanum og þarna hefur tekist að finna risa stein og koma honum upp á bílpall. Síðan var hann keyrður niður að höfn og notaður í uppfyllingu þar. Uppfylling milli lands og út í Spákonufellsey hófst 1934 en síðast var tekið grjót úr Höfðanum u.þ.b. 30 árum síðar. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Guðmundur Guðnason913
Beðið eftir fjársafninu við Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason709
Kári Lárusson frá Ási með tvo til reiðar.
Guðmundur Guðnason765
Krakkarnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Hinrik Jóhannesson frá Ásholti, Guðrún Lárusdóttir frá Ási og Kári Lárusson frá Ási (Sigurbjörn Kári Lárusson).
Guðmundur Guðnason161
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 802
Nokkrir sjómenn á bryggjunni að fylgjast með þegar Húnabjörg kom með bilaðan bát í drætti til hafnar 10. febrúar 2007. Frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Lýður Hallbertsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 591
Sigurður Jónsson í göngutúr með kisa sinn í bandi í lok maí 2014. Sigurður hefur kisa alltaf í bandi þegar þeir fara út og er þar fyrirmynd annarra kattaeigenda.
Guðmundur Guðnason021

Þessi mynd er önnur í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni (d.21.11.1988). Hinar myndirnar eru númer 2543, 2545, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen (d. ?) hjálpa Lárusi Jónssyni (d.3.7.1983) lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni. Á þessari mynd er Lárus að gera sig líklegan til að klöngrst yfir milligerðið. Ole fylgist með einhverju öðru utan myndar.
Ólafur Bernódusson 793
Sigurður Siguarson um borð í báti á siglingu undir Hornbjargi 23. júlí 2010 á leið úr Hornvík inn í Reykjarfjörð nyrðri.
Guðmundur Guðnason183
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Inni í dilknum má þekkja Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) frá Sólheimum. Mennirnir, sem standa við grindina og fylgjast með, eru Steingrímur Jónsson (d.15.1.1991) Höfðakoti með ljósa húfu og Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) Blálandi með dökka húfu.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Næst okkur á þessari mynd eru fjárhús/hesthús og hlaða sem tilheyra Réttarholti. Fjær til vinstri er Sólvangur og til hægri sér í Ásholt. Víkin á myndinni er kölluð Bótin.
Árni geir Ingvarsson - safn
Myndin er af klettadrangi sem var úti á Höfða rétt norðan við staðinn þar sem gamli, aflagði vegurinn endar. Upphaflega var kerlingin með "bók" og virtist vera að lesa í henni. Bókin er horfin þegar þessi mynd var tekin. Sagt var að þetta væri tröllkona/kerling að bíða eftir manninum sínum koma af sjónum. Hann kom ekki en hún sat og beið of lengi þannig að hún breyttist í stein þegar sólin náði að skína á hana. Því miður er kerlingin nú horfin vegna veðrunar þannig að þessi mynd er skemmtileg minning um horfna tíð.
Guðmundur Guðnason858

Ólafur Bernódusson frá Stórholti með tvo hrúta á hrútasýningu á Skagaströnd um 1960

Árni Geir Ingvarsson -safn 2 745
Arnar HU 1 var fyrsti stuttogari Skagstrendings hf. Hann var keyptur nýr í Japan haustið 1973 og gerður út frá Skagaströnd til 1995. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Arnar í höfna á Skagaströnd mikið ísaður.
Guðmundur128
Frá vinstri: Réttarholt, Sólvangur, Ægissíða og Ásholt að vetri
Guðmundur Guðnason850

Hrútasýning í Húnaveri. Hrútadómar kynntir. Maðurinn sem heldur á töskunni er Halldór Pálsson sauðfjárræktarráðunautur, síðar búnaðarmálastjóri frá Guðlaugsstöðum í Blöndudal (bróðir Björns Pálssonar alþingismanns). Lengst til hægri er Júlíus Jónsson (d. 17.5.1991) á Mosfelli. Næst honum er Ingþór Líndal Sigurðsson (d. 13.10.1998) frá Uppsölum en sköllótti maðurinn er Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur á Blönduósi. Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) frá Holti í Svínadal heldur í hrútinn.

Guðmundur Guðnason856
Drengurinn á myndinni er ?Örn Berg Guðmundsson? en hrúturinn er óþekktur
Guðmundur Guðnason314
Réttað í Hofsrétt á Skaga. Maðurinn í köflóttu skyrtunni með ljósa húfu er Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) á Skagaströnd en sá í bláu peysunni með ljósa húfu og með hendur fyrir aftan bak er Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Lengst til hægri, í ljósum buxum, er Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) í Náttbrún. Næst lengst til hægri sér á bakið á Ingimar Sigvaldasyni (d.4.5.1991) frá Króki. Maðurinn með ljósu húfuna svolítið til vinstri á myndinni er Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007) frá Steinnýjarstöðum. Stúlkan í köflóttu skyrtunni fremst á myndinni til hægri er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1407
Síðasti hluti olíutanksins við Höfðann rifinn um miðjan nóvember 2011. Upphaflega var tankurinn helmingi hærri en hann er á myndinni og við hlið hans stóða annar tankur jafn stór. Báðir voru tankarnir byggðir fyrir síladarverksmiðjuna einhverntíma á árunum 1943-1946.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1390
Myndin var tekin af ungum áhugamönnum um sauðfé í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Krakkarnir sem eru að kíkja á mörk kindanna eru Ólafur Halldórsson og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1477
Sigrún Lárusdóttir og Hjalti Sævar Hjaltason á fjórhjóli að snúast við hesta 25. nóvember 2012.
Guðmundur Guðnason163
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn á miðri mynd er Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason705
Dregið í dilka í Hofsrétt?. Maðurinn með hattinn fremst á myndinni er Konráð Klemensson (Konni gamli).
Guðmundur Guðnason157
Björn Sigurðsson frá Leifsstöðum í Stafnsrétt 1963.
Ólafur Bernódusson930
Bræðurnir Rúnar Jósefsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri hafa skotið marga refi gegnum tíðina. Þessi sem Rúnar heldur á 16. maí 2008 var merkilegur fyrir þær sakir að hann var þrífættur því hann vantaði annan framfótinn. Fótinn hafði hann misst, einhverra hluta vegna, töluvert fyrr því þar sem hann átti að vera var bara vel gróið ör.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 484
Jóhannes Sveinsson fiskar sér í soðið í höfninni á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvað varð um þyrsklinginn á færinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1387
Þessi skólabörn voru á heimleið að loknum skóladegi í Höfðaskóla 5. nóvember 2012 þegar þessi mynd var tekin. Þeim þótti sjálfsagt að koma við í snjóhrúgu á leiðinni en börnin eru frá vinstri: Andri Már Gunnarsson, Erla Mjöll Daðadóttir, Brynjar Daði Finnbogason og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir.
Guðmundur Guðnason023

Þessi mynd er sú þriðja í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni (d.21.11.1988). Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2545 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen (d. ?) hjálpa Lárusi Jónssyni (d.3.7.1983) lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Hálfnað verk þá hafið er. Hér er Lárus komin hálfa leið yfir milligerðið og ætlar að komast af án hjálpar Ole.

Árni Geir Ingvarsson - safn 1476
Ekki er vitað hvaða tveir menn eru hér að bjarga bíl úr snjóskafli í vonsku veðri 21. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 507
Sævar Hjaltason ríður út á fáki sínum í febrúar 2014.
Guðmundur Guðnason091
Kisi slakar á eftir erfiðan dag - sennilega á eldhúsbekknum í Ægissíðu.
Arnar HU 1 - safn 49
Þröstur Árnason sýnir hér guðlax sem kom upp með vörpunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Guðlax þykir herramannsmatur sem mest veiðist í heitum sjó t.d. í grennd við Hawaii og Kaliforníu en slæðist hingað norður á miðin við Ísland stöku sinnum. Hann er mjög feitur fiskur og er oft líkt við lax. Guðlax er merkilegur fyrir þá sök að hann er með heitt blóð og er hann fyrsta fisktegundin sem þekkt er sem er þannig. Hann er góður félagi túnfisksins og synda þeir gjarnan saman um höfin. Hann getur orðið allt að 185 cm að lengd og yfir 70 kg. Ársafli á guðlaxi er mjög misjafn en árið 1992 veiddust 175 tonn af honum. (Heimild:https://is.wikipedia.org/wiki/Guðlax sótt 13.2.2019)
Árni Geir Ingvarsson - safn
Spákonufellið með Spákonufellsborg efst, séð af sjó.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1469
Hestar eru félagslyndar skepnur sem þekkja hvern annan aftur eftir langan aðskilnað. Einnig þekkist einelti meðal þeirra og ýmsir aðrir "mannlegir" lestir. Á þessari mynd hefur kastast í kekki með tveimur þeirra í lok júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 579
Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka og Magnús B. Jónsson þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd spjalla saman og dytta að girðingum um miðjan maí 2014.
Guðmundur Guðnason179
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti, Lárus Árnason (d. 21.5.2011) Ási, Ragnheiður Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð, Kristín Björnsdóttir Jaðri, Anna Bára Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð og Kári Sigurbjörn Lárusson Ási. Á þessum tíma var mjög algengt að menn á Skagaströnd ættu nokkrar kindur og er talið að þá hafi verið allt að 3000 fjár í eigu Skagstrendinga og starfandi var Sauðfjárræktarfélag Skagstrendinga. Í dag (2016) má ætla að kindurnar séu milli 20 og 40. Ef grannt er skoðað má sjá skátaskálann upp í hlíð Spákonufells. Skálann ber yfir höfuð Önnu Báru. Skálann byggðu skátarnir á Skagaströnd en hann stóð einungis í nokkur ár því hann sligaðist að lokum undan snjó og eyðilagðist.
Arnar HU 1 - safn 46
Þröstur Árnason býr sig undir að skera hákarl um borð í Arnari HU 1. Slíkar skepnur koma stöku sinnum í trollið og er þá gert að þeim og inyflunum skilað aftur í lífríkið í sjónum ásamt hausnum. Fiskurinn sjálfur er svo skorinn í stór stykki sem eru fryst í körum í lestinni. Töluverð eftirspurn er eftir hákarlinum af mönnum sem standa í hákarlsverkun og breyta þessum undarlega fiski í umdeilt gómsæti sem þykir ómissandi á þorrablótum landsmanna.
Guðmundur Guðnason087
Flekka með lömbin sín í forsælunni niðri í þurrum skurði. Kindur voru eitt af uppáhalds viðfangsefnum Guðmundar ljósmyndara
Guðmundur Guðnason204
Réttað í Spákonufellsrétt, sennilega 1964.
Guðmundur124
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn með hvítu húfuna er Gunnlaugur Björnsson úr Drangey áður Efri-Harrastöðum.
Maðurinn sem er lengst til vinstri með hatt er Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) í Blálandi.
Guðmundur Guðnason202

Réttað í stóðrétt í Spákonufellsrétt. Sennilega 1964.

Guðmundur Guðnason318
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt. Konan lengst til vinstri er Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994) frá Sævarlandi. Börnin sem halda í hrútinn eru Díana Kristjánsdóttir frá Grund og Heimir Sigmarsson. Stúlkan í köflóttu úlpunni, með rauða lambhúshettu, er Edda Sigurðardóttir. Brosmilda stúlkan milli Heimis og Eddu er Fjóla Sigurðardóttir frá Höfðakoti en í rauðu úlpunni er Málfríður Jóhannsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 622
Stelkur á staur íhugar ástandið í morgunþoku 1. júní 2014.
Guðmundur Guðnason001
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), sem tók þessa mynd, hafði yndi af dýrum. Hann átti nokkrar kindur með Guðna Sveinssyni föður sínum í Ægissíðu. Þessi flekkótta kind með tvö flekkótt lömb gæti hafa heitið Flekka og var í hjörð þeirra feðga.
Guðmundur Guðnason165

Í Stafnsrétt 1963. Steingrímur Bergmann Magnússon réttarstjóri frá Eyvindarstöðum til vinstri og Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) bóndi á Brandsstöðum til hægri. Hægra megin við Steingrím eru Markús Sigurjónsson frá Reykjarhóli í Skagafirði og Sigurjón Guðmundsson frá Fossum.

Guðmundur Guðnason151
Í Hofsrétt sumarið 1965. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti. Konan á miðri mynd er Guðlaug Eggertsdóttir, sem bjó um tíma á Árbakka, dóttir Eggerts Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sigfúsdóttur konu hans í Sólheimum. Stúlkan til hægri er Gígja Axelsdóttir frá Litla-Felli.

Árni Geir Ingvarsson - safn
Myndin var tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Húsið lengst til hægri, Héðinshöfði, er nú horfið.
Guðmundur Guðnason171
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Gylfi Jóhannsson Læjarbakka er lengst til vinstri, Ásgeir Axelsson (d.8.6.11) Litla-Felli er með uppbrettar ermar og Anna Bára Sigurjónsdóttir úr Sunnuhlíð er með skuplu á höfðinu.
1

19
20
21

25
Leita í myndasafninu
Leita