Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1284
Myndin var tekin 18. júlí 2011 þegar sumarið er í algleymingi. Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Gabríel Goði Tryggvason, ? Sindri Freyr Björnsson? og óþekktur.
Arnar HU 1 - safn 94
Það er kalsamt og erfitt starf að berja ísingu af heilu skipi. Það skiptir þó miklu máli að það sé gert í tíma því hún hefur mikil áhrif á stöðugleika skipsins og mörg dæmi eru þekkt um slys sem urðu vegna mikillar ísingar á skipum. Á myndinni er verið að berja ísingu af rekkverki um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 787
Á myndinni, sem tekin var 18. ágúst 2006, hvílast vinirnir Sigurður Jónsson og Kisi á tröppunum við heimili sitt í Fjallsminni.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin yfir útbæinn. Lengst til vinstri sér ofan á þakið á Höfðabergi og í örlítið horn af Steinholti. Höfðakot er á miðri mynd með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu. Yfir Höfðakot má sjá Stórholt og til hægri við það eru Kárastaðir og hornið á Flankastöðum. Yfir þakið á Höfðabergi má aftur á móti sjá, frá vinstri: Skálholt, Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfða, Garð, Norður Skála, Skátaskálann og til vinstri við hann eru Braggarnir tveir og hús sem nú er kallað Bjarnaborg. Lengra frá er gamli beitningaskúrinn - Aðalbjargarskúrinn. Gamla Kaupfélagið ber í verksmiðjuna en til hægri við Kaupfélagið eru Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið), sundlaugin og frystihúsið. Mörg þessara húsa eru nú horfin en ný hafa risið á sömu stöðum í sumum tilvikum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið gert upp úr 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1260
Myndin var tekin af réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Fremst á myndinni er Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey. Vinstra megin við hann er Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka með skegg á spjalli við frístundabóndann Árna Halldór Eðvarðsson með grá húfu. Milli þeirra grillir í Magnús Guðmannsson bónda á Vindhæli. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1258
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst. Tanja Rán Einarsdóttir er til vinstri með svart hárband. Halla María Þórðardóttir er ljóshærð í rauðri úlpu. Linda Rún Einarsdóttir er í hvítri Henson hettupeysu til hægri. Daði Snær Stefánsson er í bláum samfestingi og Árni Halldór Eðvarðsson er með gráa húfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1043
Feðginin Sigurður Bjarnason og Inga Lára Sigurðardóttir hlaupa með hundi sínum 26. ágúst 2007. Í baksýn er fólk að snúast í kringum hrossahóp.
Ólafur Bernódusson 756
Hjónin Jón Hallur Pétursson og Guðríður Friðriksdóttir á toppi Herðubreiðar 16. ágúst 2003 í hópi með göngufólki á vegum Ferðafélags Akureyrar. Vinstra megin við þau í fjarlægð sér í hvel Vatnajökuls.
Ólafur Bernódusson 763
Myndin var tekin yfir Skagaströnd frá hringsjánni á Höfðanum 17. júní 2007. Konan á myndinni er Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1256
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli er í bláröndóttri peysu en aftan við hann sér í son hans Guðmann Einar Magnússon. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir með bróður sinn Loga Hrannar Jóhannsson, Victoria Sif Hólmgeirsdóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 825
Vinirnir Sigurður Bjarnason vinstra megin og Ágúst Jónsson hægra megin í göngutúr í köldu veðri seint í febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 740
Myndin var tekin í réttinni við Vindhæli 10. sept 2005. Á henni eru Einar Guðmannsson til vinstri og föðurbróðir hans Guðmundur Einarsson bóndi á Vindhæli til hægri.
IMG_5231
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Begga slapp furðu vel þó hún brotnaði dálítið. Eftir að aflinn og annað hafði verið tekið úr henni og hún þétt til bráðabirgða var hún dregin á flot og farið með hana til hafnar á Skagaströnd. Á myndinni er björgunarskipið Húnabjörg að draga Beggu á flot af strandstað á næsta flóði. Þórdísin bíður átekta til hægri á myndinni.
Ólafur Bernódusson 965
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara naut af hestbaki. Fenginn var bolakálfur að láni til að snara. Snörnunin gekk vel því tuddi stóð grafkyrr og skipti sér ekkert af hestamanninum. Allt í einu var þó eins og hann áttaði sig og þá tók hann strikið og ruddist gegnum girðinguna sem hróflað hafði verið upp kringum hann, burt frá skarkala hátíðarinnar. Fljótlega náðist hann þó aftur en þá var hann gjörsamlega staður og neitaði algjörlega að láta reka sig. Þá gripu menn til þess ráðs að draga hann nauðugan viljugan inn í girðinguna aftur. Í það verk gengu þeir Magnús B. Jónsson sem togar í halann og Jonny King sem tekur á múlnum. Við þessa aðgerð nutu þeir félagar aðstoðar nokkurra ungmenna.
Guðrún Þórbjarnardóttir147
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Jens Jónsson (d.7.12.1975) með tvö af börnum sínum. Hobbi (þorbjörn Jensson) situr á kúnni Bót og systir hans Karen styður við hann. Myndin var tekin í túninu við Réttarholt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 29
Gömul mynd af efsta hluta Skeifunnar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru einungis fjögur hús en þau eru orðin níu í dag (2019) á sama svæði. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Jórvík, Pálmalundur, Hólabraut 25 og Sænska húsið.
Guðrún Þórbjarnardóttir050
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er fjársafn skagstrendinga rekið síðasta spölinn heim að Spákonfellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn115
Á myndinni frá því í mars 1963 eru systkinin Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) og Ólafur Bernódusson að kjassa verðlaunahrútinn Sóma sem faðir þeirra átti. Ólafi var treyst til að passa bæði Lilju og hrútinn þegar honum þurfti að koma milli túna. Sómi var mikil rólyndis skepna þannig að oftar en ekki fékk Lilja að sitja á baki hans meðan þau þrjú röltu milli staða.
Barnaból - safn550
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból skoða hnúfubakskálf í fjörunni hjá hafnarvigtinni í ágúst 1998. Krakkarnir eru frá vinstri: Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, tveir óþekktir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir starfsmaður, þrjú óþekkt börn og Guðrún Hrólfsdóttir starfsmaður. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1181
Drengirnir á myndinni eru að reyna að veiða í Hrafnánni og sulla að gamni sínu 8. september 2010. Páll Halldórsson er með veiðistöngina, Daði Snær Stefánsson er að vaða en drengurinn sem snýr baki í okkur er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1461
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Fólk á fullu að draga fé sitt í dilka. Fólkið er, frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson og Elva Þórisdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1065
Vinkonurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Sigríður Stefánsdóttir til hægri á göngu með hundinn hennar Helgu 22. apríl 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1055
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir nýta stutta dagsbirtu 27. desember 2009 til að ganga á skíðum.
Guðrún Þórbjarnardóttir052
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er gömul mynd af Skagaströnd tekin úr Tjaldklaufinni á Höfðanum líklega kringum 1960. Allmargar byggingar á myndinni eru nú horfnar. Fremst til vinstri eru Flankastaðir þar sem nú stendur annað hús byggt á sama stað. Mun það vera þriðja húsið sem byggt er þarna. Fjær sést Héðinshöfði yfir þak Flankastaða og til hægri við sömu götu er Garður sem var rifinn 1977 eða 1978. Ef horft er yfir Héðinshöfða sést hlaða og útihús frá Efri -Læk og byggingin hægra megin við hlöðuna er Efri -Lækur. Þessar byggingar eru allar horfnar nú (2020). Yfir Efri - Læk sést Karlsminni og Viðvík sem ber í hvítt Höfðatún.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1533
Suðvestan brim í Skagastrandarhöfn 10. apríl 2011. Það gefur rækilega yfir Skúffugarðinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1220
Myndin var tekin 4. júlí 2011 þegar Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri, félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar, plöntuðu fallegum og sterklegum birkiplöntum í hornið á skólalóðinni vestan við íþróttahúsið.
Guðrún Þórbjarnardóttir124
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Ekki er vitað hver maðurinn á hestinum er en það gæti verið sonur Jóns, Jens Jónsson (d.7.12.1975).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1212
Guðmundur J. Björnsson mokar snjó á gröfunni sinni frá Fellsbraut 15 í janúar 2006 svo íbúarnir komist út af heimili sínu.
Ólafur Bernódusson 966
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara bolakálf af hestbaki. Tuddi var ekkert meira en til í að taka þátt í atriðinu og strauk úr girðingunni. Honum var þó fljólega náð aftur og farið með hann í girðinguna. Á myndinni heldur Vilhjálmur Skaftason í tudda meðan skepnan róar sig niður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1458
Myndin var tekin 11. september 2011 af Hallgrími Hjaltasyni bónda á Skeggjastöðum 2 á hesti sínum við smölun.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1035
Pétur Eggertsson og Snati hvíla lúin bein á bekk á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Bjarni Jónsson 1
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, ekki er vitað hvenær hann gerði myndina. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 786
Áning undir Jörundi á Hornbjargi 21. júlí 2010, Kálfatindur sveipaður þoku í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: Haraldur Árnason, Guðjörg Gylfadóttir, Ólafur Bernódusson, Gunnar Svanlaugsson, Sigurður Sigurðarson, Lárus Ægir Guðmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1272
Systurnar Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1221
Kristín Björnsdóttir í Skógræktarfélagi Skagastrandar plantar birki á skólalóðinni austan við Oddgötu 4. júlí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1223
Myndin var tekin 4. júlí 2011 af Sigurjóni Ingólfssyni í gróðursetningarvinnu þegar félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar gróðursettu nokkrar aspir norðan við íþróttahúsið og birkiplöntur á skólalóðinni austan við Oddagötuna.
Guðmundur Guðnason703
Réttastörf í Hofsrétt?. Konan fremst á myndinni er Árný Magnúsdóttir frá Sunnuhlíð. Maðurinn í köflóttu peysunni til vinstri er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum. Rauðhærði strákurinn á myndinni er Óskar Jóhannesson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1462
Börn í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Frá vinstri Almar Atli Ólafsson, systir hans Harpa Hlín Ólafsdóttir og Ólafur Halldórsson.
Guðmundur Guðnason320
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Maðurinn á miðri mynd er Konráð Klemensson (d. 20.11.1981) frá Garðhúsum/Konnabænum en maðurinn til vinstri er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir. Um Konráð orti Kristján Hjartarson frændi hans: "Aldurhniginn, axlasiginn einn ég þekki mann, árans stritið, ekki vitið er að drepa hann".
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn123
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) með dóttur sína Lilju Bernódusdóttur (d.9.2.2020) að spjalla við verðlaunahrútinn Sóma. Bernódus lagði sig eftir að rækta gott fé og átti marga verðlaunahrúta. Hann seldi töluvert af lömbum á fæti á hverju hausti, einkum hrútum. Myndin var tekin vorið 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1170
Feðgarnir Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri í réttinni við Vindhæli 10. september 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1444
Í ágúst 2011 var haldin sýning á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) í íþróttahúsinu. Á þessu málverki hefur Sveinbjörn málað son sinn Magnús Bjarna Blöndal (d.7.9.2001) þar sem hann er við uppáhalds iðju sína þ.e. að ríða út og temja.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 735
Vilhelm Harðarson hreinsar snjó af stéttinni heima hjá sér með snjóblásara 3. febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1238
Starahópur á grindverki 22. mars 2012. Starinn (Sturnus vulgaris) er staðfugl á Íslandi frá 1940 þegar hann hóf varp í Hornafirði. Síðan hefur hann orpið víða. Fyrsta varpið, sem vitað er um á Skagaströnd, var rétt fyrir 2000. Starinn er félagslyndur þannig að þeir eru yfirleitt margir saman í hóp. Skemmtilegur og fjörugur fugl sem hermir oft eftir hljóðum úr umhverfinu. Þekkt er dæmi um að hægt sé að kenna honum að tala. Hann étur nánast allt sem honum er gefið t.d matarafganga en er minnst hrifinn af korni eins og snjótittlingum er gjarnan gefið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1261
Systurnar frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri, í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1362
Myndin var tekin 27. maí 2012 í Nes listamiðstöðinni. Á henni eru að kynnast og leika sér saman, Loppa Laglínudóttir og Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1509
13. nóvember 2011 var hesturinn á myndinni kominn í vetrarhárin og tilbúinn að mæta kuldum vetrarins. Ásdís Birta Árnadóttir gefur honum af sinni innri hlýju með því að klappa honum og spjalla við þennan vin sinn. Í baksýn er fallegasta fjall á Íslandi, Spákonufell.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1599
Vetrarbrimið gengur yfir Útgarð á kuldalegum degi 10. janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1668
Fólkið á myndinni er úr Skógræktarfélagi Skagastrandar. Á myndinni sem tekin var 3. júlí 2012 eru þau að skoða teikningu af fyrirhuguðum stíg - Jónsstíg - gegnum skógræktina austan við tjaldsvæðið. Fólkið er frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Kristín Björnsdóttir, Ólafur Bernódusson, Róbert Freyr Gunnarsson og Ari Þórsson formaður félagsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1391
Til eru þeir sem segja að náttúran sjálf skapi fegurstu listaverkin. Hér er eitt þeirra.
Ólafur Bernódusson 986
Hafbjörg HU 100 sökk í höfninni á Skagaströnd 30. janúar 1985. Báturinn hét áður Rúna SF 101. Hafbjörgin var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og Högna Jenssonar en seinna keypti Ólafur Högna út úr félaginu og átti bátinn einn.
Guðrún Þórbjarnardóttir128
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni styður Jón afastrákinn sinn Hobba eða Þorbjörn Jensson á hestbaki
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1257
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emelíu Marey Einarsdóttur í fanginu í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 806
Myndin var tekin í ágúst 2006 af bæjunum norðan við Harrastaðaána. Næst okkur eru Neðri-Harrastaðir, hvítu húsin til vinstri eru Efri-Harrastaðir og lengst frá er Brandaskarð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1235
Mynd frá 9. júlí 2011 af Trabant, sem margur bílaáhugamaðurinn vildi líklega gjarnan eiga í dag. Trabant var framleiddur í Austur Þýskalandi á árunum 1957 - 1990. Að mörgu leyti merkilegur bíll því hann var allur úr plastfiber og var framhjóladrifinn með sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, sem var nýung árið 1957. Vélin í honum var tvígengisvél og því þurfti að blanda bensínið á hann með smurolíu. Trabantinn var geysi vinsæll í A-Þýskalandi þannig að fólk þar þurfti að vera á biðlista í 10 - 13 ár eftir að fá að kaupa nýjan bíl. Þetta varð til þess að notaðir Trabantar voru gjarnan mun dýrari heldur en nýir fóru jafnvel á tvöföldu verði þess nýja. Auk útgáfunnar á myndinni voru líka framleiddir tveggja dyra station bílar. Á þeim rúmlega 30 árum sem Trabant var í framleiðslu voru smíðaðir 3.096.999 bílar. (heimild: https://en.wikipedia.org/wiki/Trabant)
Ragnar S. Ingvarsson - safn 31
Greinilega þarf að moka snjó úr þessum bát áður en hann fer á veiðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en líklega er báturinn Auðbjörg HU 6.
Guðrún Þórbjarnardóttir129
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er konan hans, Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970), að gefa heimiliskúnni Bót eitthvað til að maula. Maðurinn og stúlkurnar í baksýn eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 1039
Á ágústkvöldi 1998 drógu félagarnir, Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson, hnúfubak til lands á bát sínum Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin morguninn eftir þegar þeir félagar voru að undirbúa að draga hvalinn upp í fjöru. Guðmundur stendur á lunningunni en hjá honum er dóttir hans Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Eins og sjá má var hvalurinn álíka langur og báturinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1721
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún sýnir hlut byggðarinnar við Bankastræti og Skagaveg. Brúna húsið til vinstri er Flankastaðir - Bankastræti 7- sem er horfið og nýtt hús byggt á sama stað. Aftan við Flankastaði er Höfðabrekka - Bankastræti 10 . Þá kemur Bjarnarhöfn - Bankastræti 8- og græna húsið er Kárastaðir - Bankastræti 5. Stóra húsið með græna þakinu er Stórholt - Bankastræti 3. Ef grannt er skoðað sér örlítið í Höfðakot - Bankastræti 6 - við hægra horn Stórholts. Það er horfið og nýtt hús byggt á þeirri lóð. Lengst til hægri ofan við Bankastæti er Höfðaberg, sem er horfið, en það stóð eitt og sér og hafði ekki götunúmer. Kofinn sem ber í Höfðaberg með rauðu þaki er fjárhús og hlaða sem eru horfin en hægra megin við það er Skálholt - Skagavegur 17 - og til hægri við Skálholt er Þórshamar _ Skagvegur 15. Gula húsið er Héðinshöfði - Skagavegur 11 - sem er horfið og á milli Þórshamars og Héðinshöfða sér örlítið í Þórsmörk _ Skagavegur 13 - en það er líka horfið.
Selma P. Jónsdóttir 29
Þetta jólakort með snjótittlingum er gerði Selma P. Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
1
…
21
22
23
24
25
Leita í myndasafninu
Leita