Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1689
Myndin var tekin 10. mars 1995 af Höfðaborg (Bankastræti 9). Á tröppunum stendur Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og býr sig undir að moka tröppurnar hjá sér.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1690
Ingvar Jónsson (d.18.1.2002) í Sólheimum með hestinn sinn og barn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert barnið er.
Bjarni Jónsson 1
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, ekki er vitað hvenær hann gerði myndina. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 16
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Á þessari mynd er Ragnar S. Ingvarsson að laumast að lundum í lundabyggð einhversstaðar. Ragnar hefur líklega verið áhafnarmeðlimur á Auðbjörgu Hu 6 þegar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 248
Á myndinni má sjá byrjunarframkvæmdir vegna gróðursetningar á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Skagastrandar austan við tjaldstæðið við Hólabergin. Í dag er vinsælt að fara í göngutúr eftir Jónsstíg gegnum "skóginn", sem þarna er kominn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1037
Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen skoðar hnúfubak sem dregin var til hafnar á Skagaströnd á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Bægslin á hnúfubak eru mjög stór og gjarnan eru á þeim stórir hrúðurkarlar eins og líka má sjá á trjónu hvalsins.
Bjarni Jónsson 30
Jólakort eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 1044
Kúrekinn Hallbjörn J. Hjartarson - faðir Kántrýhátíðanna - kom ríðandi með hópreið hestamanna að sviðinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Þar fór hann af baki og hóf að skemmta gestum af sviðinu. Hjá honum á myndinni er hestamaðurinn Jóel Berg Friðriksson.
Ólafur Bernódusson 1036
Tveir starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar taka sýni úr 8 metra löngum hnúfubakskálfi sem Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson drógu til hafnar á bát sínum Benna Ólafs Hu í ágúst 1998.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 45
Arnar Hu 1 brýst gegnum ísspöng á miðunum norð-vestur af landinu. Trollið er ekki í sjó enda erfitt og hættulegt að toga innan um hafís. Myndin var tekin kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari620
Jakob Pálsson (d.14.2.1955) á Karlsminni á hesti sínum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1718
Stundum er svo snjóþungt að moka þarf af þökum húsa svo þau brotna ekki niður. Myndin sýnir fjóra óþekkta menn við þá iðju á Skagaströnd 30. janúar 2006. Ekki er vitað hvert húsið er.
Ólafur Bernódusson 1110
Á myndinni, sem tekin var 18. ágúst 2014, er Guðrún Pálsdóttir búin að koma sér fyrir í sérkennilegri og fallegri jarðmyndun í bjarginu við fjöruna sunnan við Víkur á Skaga. Grjótið í forgrunninum hefur hrunið úr bakkanum ofan við þetta hringmyndaða "kubba-stuðlaberg" og eins og sjá má er það allt öðruvísi.
Bjarni Jónsson 2
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd en ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Helgi Gunnarsson 13
Stórum byggingum fylgir oft mikið af alls kyns dóti á byggingartímanum. Það notfærði þrastapar sér og verpti í spýtnabunka við íþróttahúsbygginguna sumarið 1997. Ungarnir sem bjuggu þar voru ekki mjög styggir, eins og sést á þessum, sem situr hinn rólegasti í hendi eins smiðsins við bygginguna.
gunnar033
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er verið að landa myndarlegum blöðrusel úr Húna Hu 1 á Skagaströnd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 4
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Þessi mynd var tekin við eitt slíkt tækifæri og það er Árni Björn Ingvarsson sem er á henni með ungan fugl í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975 þegar Árni var á Auðbjörgu Hu 6.
Bjarni Jónsson 45
Mynd eftir Bjarna Jónsson á jólakorti, líklega frá árinu 1979. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Halldór Pétursson 1
Mynd af jólakorti með mynd eftir listamanninn Halldór Pétursson. Ekki er vitað hvenær kortið kom út. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar
hem017
Ljósmyndakeppni 2022 43
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Friðrik Bergmann og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Guðrún Þórbjarnardóttir051
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er verið að reka fé í almenninginn í Spákonufellsrétt einhverntíma á árunum 1960-65. Fólkið í röðinni er frá vinstri: Hafsteinn Sigubjarnarson (d.18.5.1974) með hatt, Konráð Guðmundsson, Jóhann Pétursson (d.13.1999), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), óþekkt barn í grænni úlpu, Halla Björg Bernódusdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) (fjær), óþekktur strákur (nær), Þórunn Bernódusdóttir (fjær), óþekkt kona (nær), fimm óþekkt, Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með hvíta húfu (nær), óþekkt (fjær), Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968), óþekkt kona, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973), Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Selma P. Jónsdóttir 7
Þessa mynd kallar höfundurinn, Selma P. Jónsdóttir, "Áning". Ekki er vitað hvenær Selma gerði myndina. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn489
Birkir Rúnar Jóhannsson á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega viorið 2000.
Bjarni Jónsson 50
Þetta er mynd af jólakorti frá 1962 eftir Bjarna Jónsson. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson1142
Tunglskinskvöld á Skagaströnd haustið 2017.
Ólafur Bernódusson 1049
Myndin var tekin af hópreið hestamanna á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Hestamennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Böndal (d.7.9.2001), Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), óþekktur, Jóel Berg Friðriksson og Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin þegar hestamennirnir stiltu sér upp á hæðina fyrir neðan stjórnsýsluhúsið þar sem fram fór brekkusöngur í framhaldinu.
Óskar Kristinsson safn101
Ragnar Högnason trekkir utanborðsmótorinn í gang á gúmmítuðrunni áður en hún er sjósett. Maðurinn með honum í bátnum er óþekktur en Einar ??son heldur bátum kyrrum. Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1082
Myndin var tekin í ágúst 1996 þegar hópur Skagfirðinga var á ferð á Skagaströnd með mikinn fjölda hrossa. Ekki er vitað um tilgang ferðarinnar nema það hafi verið til að liðka hrossin.
Selma P. Jónsdóttir 10
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort, líklega 1980. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Óskar Kristinsson - safn 240
Nyrst á Spákonufellshöfðanum er þessi klettadrangur sem kallast Arnarstapi. Stapinn er illkleifur en efst á honum er ca tveggja fermetra grastó. Stapinn er vinsæll varpstaður sjófugla og oftar en ekki verpir gæs þar uppi á vorin. Séður norðan frá t.d. frá Sandlæknum minnir stapinn svolítið á hundshaus með lafandi eyru.
Bjarni Jónsson 7
Bjarni nsson gerði þetta jólakort 1986. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 48
Þessi mynd Bjarna Jónssonar rataði á jólakort, líklega árið 1984. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn143
Þessi mynd var tekin 26. júní 1995. Kletturinn, sem er áberandi á henni, er kerlingin sem var á Höfðanum. Hún er nú (2020) horfin. Áður var kletturinn þannig í laginu að hann leit út eins og kona sem var að lesa í bók. Þjóðsagan sagði að þetta væri kona sem hefði setið þarna og beðið manns síns sem var á sjó. Hann kom aldrei en hún lét sig ekki heldur sat áfram þar til hún breyttist í stein. Veðrun og illviðri brutu síðan kerlinguna niður með tímanum.
Guðrún Þórbjarnardóttir130
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Kristín Eva ?? og hundurinn Kobbi (Kóbbi). Ef þú veist hver Kristín Eva er vinsamlega sendu okkur þá athugsemd.
Ólafur Bernódusson 947
Á árum áður var laxveiði í Blöndu stundum með öðrum veiðarfærum en nú í dag. Þá var áin kolmórauð enda Blönduvirkjun ekki til. Veitt var með stórum spón og laxinn húkkaður í 99 % tilvika. Á myndinni er verið að landa einum en til þess var notuð ífæra með stórum krók. Maðurinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 1109
Víkur á Skaga 18. ágúst 2014.
Selma P. Jónsdóttir 23
Mynd frá Þingvöllum á jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson 1035
Í ágúst 1998 drógu Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson dauðan hnúfubak til hafnar á bát sínum Benna Ólafs. Daginn eftir var hvalurinn dreginn upp í fjöru og tveir starfsmenn frá Hafrannsóknarstofnun komu til að skoða hann og taka úr honum sýni. Hvalurinn vakti mikla athygli og margir komu og skoðuðu hann í fjörunni. Á myndinni er starfsstúlka frá Hafró, til hægri á myndinni í sjóbuxum, að taka húðsýni og margir krakkar fylgjast með. Annar starfsmaður er í grænum stígvélum til vinstri á myndinni. Mennirnir tveir, hinum megin við hnúfubakinn, eru séra Guðmundur Karl Brynjarsson í ljósri peysu og Gunnlaugur Sigmarsson.
Bjarni Jónsson 46
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd, sem var á jólakorti, líklega 1979. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Óskar Kristinsson - safn 241
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er af því sem þá var eftir af kerlingunni á Höfðanum. Það er klettanybban sem skagar lengst til vinstri. Áður var hún stærri og með bók í höndum - úr steini að sjálfsögðu. Sagan sagði að þetta hefði verið kona sem settist þarna til að bíða eftir karli sínum af sjó. Hann kom aldrei svo hún varð að lokum að steini. Því miður hefur kerlingin gefið sig fyrir veðri og vindum og er nú horfin fyrir nokkru. Skerið sem sést í baksýn er kallað Músasker en það er vestur af Sauðskerinu sem er við Reiðngsflötina norðarlega á Höfðanum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 2
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Þessi mynd var tekin við eitt slíkt tækifæri. Karlarnir á myndinni voru líklega í áhöfn Auðbjargar Hu 6. Mennirnir eru Stefán Jósefsson til vinstri, óþekktur í miðið en til hægri er líklega Gunnar Sveinsson (d. 3.11.2020). Ekki er vitað hvaða bjarg er á myndinni.
Guðrún Þórbjarnardóttir099
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er hestur Jóns, Bleikur, tilbúinn að flytja eiganda sinn á milli bæja.
Erla B. Axelsdóttir 1
Þetta jólakort gerði Erla B. Axelsdóttir 1983. Erla B. Axelsdóttir (12.4.1948) var við nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og í Skidmore College í Saratoga Springs New York. Erla hefur haldið tugi einkasýninga og sýnt verk sín á fjölmörgum samsýningum bæði á Íslandi og erlendis.
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
gunnar034
Blöðruselur hífður frá borði Húna Hu 1 eftir línuróður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og drengirnir á henni eru óþekktir.
Bjarni Jónsson 9
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd af rjúpum í vetrarbúningi. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 3
Bjarni Jónsson gerði mikið af myndum á jólakort og þá var rjúpan vinsælt viðfangsefni hjá honum. Þetta er ein af þeim myndum. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Halldór Pétursson 2
Mynd af jólakorti eftir Halldór Pétursson. Ekki er vitað hvenær listamaðurinn gerði þessa mynd. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Selma P. Jónsdóttir 9
Jólakort frá 1983 eftir Selmu P. Jónsdóttur. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn488
Anna Dúna Rúnarsdóttir á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 120
Eitt af atriðunum á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984 var hópreið hestamanna um hátíðasvæðið. Þá var þessi mynd tekin af reiðmönnunum. Þeir eru, talið frá hægri: Hallbjörn J. Hjartarson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011), Ólafur Ásgeirsson, Jónatan Hjaltason, Jón Gunnarsson, Sveinn Ingi Grímsson, Rögnvaldur Ottósson, Hjalti Magnússon, Sævar Hjaltason, Magnús Blöndal og Gunnlaugur Sigmarsson.
Ólafur Bernódusson 1038
Tveir rannsakendur frá Hafrannsóknarstofnun taka sýni úr hnúfubak sem dregin var að landi á Benna Ólafs Hu í áúst 1998. Dýrið reyndist vera karlkyns kálfur um 8 metra langur sem enn hafði verið á spena þegar hann dó. Eftir að þetta fólk hafði lokið störfum sínum dró Benni Ólafs Hu hræið aftur langt út á sjó aftur og sleppt þar sem fæða fyrir fugla og fiska.
Björn B. Jónsson Örlygsstöðum
Aftan á þessari mynd stendur: "Björn Björnsson". Líklega átti hann heima á Örlygsstöðum á Skaga. Ef þú veist eitthvað um Björn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barbara Árnason
Þessa mynd af hestum á mismunandi árstíðum gerði Barbara Árnason á jólakort. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Barbara Árnason (Barbara Moray Williams Árnason) (19.4.1911 – 31.12.1975) var ættuð frá Hampshire í Suður-Englandi. Hún stundaði nám listaskólann í Winchester og í Royal Collage of Art í London þaðan sem hún útskrifaðist 1935. Hún teiknaði fjöldan allan af bókakápum og myndskreytti sumar þeirra. Einnig er hún þekkt fyrir vefnaðarverk sín sem voru m.a. sýnd víða í London og París. Þá gerði hún þekktan myndbálk við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Selma P. Jónsdóttir 31
Rjúpur í vetrarbúningi eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Selma P. Jónsdóttir 24
Myndin á þessu jólakorti er eftir Selmu Polly Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Barbara Árnason
Barbara Árnason gerði þessa hestamynd á jólakort. Ekki er vitað hvenær. Barbara Árnason (Barbara Moray Williams Árnason) (19.4.1911 – 31.12.1975) var ættuð frá Hampshire í Suður-Englandi. Hún stundaði nám listaskólann í Winchester og í Royal Collage of Art í London þaðan sem hún útskrifaðist 1935. Hún teiknaði fjöldan allan af bókakápum og myndskreytti sumar þeirra. Einnig er hún þekkt fyrir vefnaðarverk sín sem voru m.a. sýnd víða í London og París. Þá gerði hún þekktan myndbálk við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Selma P. Jónsdóttir 28
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort af hröfnunum en ekki er vitað hvenær. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Höfðaskóli - safn486
Anna María Magnúsdóttir á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000.
1
…
21
22
23
24
25
Leita í myndasafninu
Leita