Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn 240
Nyrst á Spákonufellshöfðanum er þessi klettadrangur sem kallast Arnarstapi. Stapinn er illkleifur en efst á honum er ca tveggja fermetra grastó. Stapinn er vinsæll varpstaður sjófugla og oftar en ekki verpir gæs þar uppi á vorin. Séður norðan frá t.d. frá Sandlæknum minnir stapinn svolítið á hundshaus með lafandi eyru.
Gréta 093
Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) í Laufási að leika við hundinn sinn Snata á hlaðinu við Laufás. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 34
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Höfðaskóli - safn482
Myndin var tekin á toppi Spákonfells - á Borgarhausnum - við vörðuna sem þar er og geymir gestabókina. Hún var líklega tekin kringum 2000 og á henni eru nemendur eldri bekkja Höfðaskóla það ár á útivistardegi að vori. Með hópnum eru tveir kennarar; Ólafur Bernódusson og Lárus Ægir Guðmundsson. Getur þú fundið þá á myndinni ?
Jónas 8
Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001) ríður út í fjörunni sunnan við Hólanesið. Myndin var líklega tekin einhverntíma upp úr 1980.
Selma P. Jónsdóttir 30
Þetta jólakort er eftir Selmu P. Jónsdóttur en ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Jónas 23
Magnús B. Böndal (d.7.9.2001) með tvo til reiðar. Magnús hafði unun af hestum og átti oft góða hesta. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
Bjarni Jónsson 6
Bjarni Jónsson gerði mikið af myndum á jólakort og þá var rjúpan vinsælt viðfangsefni hjá honum. Þetta er ein af þeim myndum en ekki er vitað hvenær Bjarni gerði hana. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Gréta 049
Konurnar á myndinni eru óþekktar en bak við þær er Melstaður nær og Ægissíða fjær. Bæði þessi hús eru nú (2023) löngu horfin. Í Melstað bjuggu lengi Björgvin Guðmundsson (d.29.12.1995) frá Saurum og Margrét Jóhanna Sveiinsdóttir (d.25.2.1988). Þau fluttu til Sandgerðis og luku æfinni þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 77
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ólafur Bernódusson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ingibergur Guðmundsson 423
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Mennirnir á myndinni eru: Magnús B. Jónsson til vinstri og Steindór R. Haraldsson til hægri.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 048
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin í mars 1991. Græna húsið með rauða þakinu var Kárastaðir sem nú eru horfnir. Hægra megin við það eru Flankastaðir sem hafa verið rifnir og nýtt hús byggt á sama grunni. Húsið sem sést á milli þeirra, nokkru fjær, er Héðinshöfði sem einnig er horfinn. Í Héðinshöfða voru tvær íbúðir. Þá er líka horfið hvíta húsið með græna þakinu, sem ber í endann á stóru skemmunni. Þar var rekin verslunin Borg á sínum tíma og seinna rafmagnsverkstæðið Neistinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þessi skemmtilega mynd sýnir börn, flest frá Skagaströnd, á skíðum í Tindastóli. Hér á ljósmyndasafninu er mynd af jólakorti eftir Sigurlaugu Jónasdóttur (d.30.12.2004) sem minnir á þessa mynd. Sú mynd er númer 18239.
Höfðaskóli - safn491
Hjalti Sævar Hjaltason teymir undir Guðrúnu Sigríði Hjálmtýsdóttur í hestagerði vestan við Spákonufellsrétt á útavistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ljósmyndakeppni 2022 19
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Kristinn Rúnar Kristjánsson og sendi inn í flokkinn "Heimili". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ljósmyndakeppni 2022 93
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Gréta 050
Myndin sýnir hvernig hey var flutt heim í hlöðu á hestakerru í gamla daga eftir að hætt var að binda heyið í bagga sem voru svo reiddir heim á hestum. Maðurinn sem gengur með hestinum er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Ljósmyndakeppni 2022 103
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggi/skuggar".
Ingibergur Guðmundsson 409
Myndin var tekin sumarið 1987 af hluta hóps Skagstrendinga í gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hópurinn í nestisstoppi líklega efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Kristinn Guðmundsson.
Selma P. Jónsdóttir 27
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær hún gerði þessa mynd. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ljósmyndakeppni 2022 74
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ólafur Bernódusson og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Ljósmyndakeppni 2022 41
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Höfðaskóli - safn514
Hér skoða Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Sigþór Ottó Hallgrímsson til hægri furðufiskinn Geirnyt fyrir utan Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en strákarnir fæddust 1988 og 1989. Samkvæmt Vísindavefnum ber þessi fiskur mörg nöfn: Hafmús, Hámús, rottufiskur eða Særotta. Geirnytin er brjóskfiskur sem hrygnir venjulega tveimur eggjum - pétursskipum - eins og skata gerir. Við Ísland er hann algengastur við suður- og suðvesturland á 100 - 1000 metra dýpi.
Ljósmyndakeppni 2022 95
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Guðbjörg Viggósdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
2001113
Á myndinni sem var tekin einhverntíma upp úr 1990 er verið að sá grasfræi í Spákonufelli fyrir sunnan og neðan skíðaskálann. Á henni er Guðjón ? frá Landgræðslunni að sá með tveimur hjálparmönnum frá Skagaströnd. Þeir eru Jón Örn Stefánsson til hægri og Albert Ingi Haraldsson til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 408
Sumarið 1987 fóru nokkrir Skagstrendingar í gönguferð um Hornstrandir á eigin vegum. Á þessari mynd er hópurinn í Hlöðuvík að reyna að komast þurrum fótum yfir Hlöðuvíkurósinn. Í baksýn er Skálakamburinn. Á spýtunni er William Sillar en næstur er líklega Kristinn Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari661
Þessi mynd af Spákonufelli var tekin fyrir 1927 því þá var kirkjan, sem er lengst til hægri, rifin og ný kirkja síðan vígð á Skagaströnd 17. júní 1928. Þessi hús stóðu nokkurn vegin þar sem kirkjugarðurinn er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Selma P. Jónsdóttir 4
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ljósmyndakeppni 2022 90
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Mikael Garðar Hólmgeirsson og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Höfðaskóli - safn466
Guðjón Ebbi Guðjónsson teymir hest undir frænda sínum Ívari Gylfasyni 14. júní 1997.
Óþekktur ljósmyndari561
Þessi mynd af útbænum á Skagaströnd var tekin 1910. Eyjan, sem talað er um í textanum, er Spákonfellsey sem í dag er hluti af Skagastrandarhöfn. Skagastrandarverslun var líka of oft kölluð Höfðaverslun. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari569
Texti myndarinnar segir allt sem segja þarf nema að húsið á Hólanesi í baksýn var fært þaðan kringum 1920 upp að Spákonufelli (Litla-Felli). Þar stendur húsið enn (2022). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn487
Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Birkir Rúnar Jóhannsson á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000.
Kálfshamarsvík 1999
Mynd tekin í Kálfshamarsvík sumarið 1999. Yfirlitsmyndir og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) frá Ósi og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn segja sögur af fólki sem bjó í Kálfshamarsvík. hljóð og mynd í góðu lagi: Lengd 30 mínútur. Myndataka: líklega Sigursteinn Guðmundsson.
Ingibergur Guðmundsson 367
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, við heyskap á túninu við bæinn með tvo hesta beitta fyrir. Kristján er búinn að raka heyinu saman í garða og er að láta hestana draga fjöl, sem hann stendur á, til að safna heyinu saman í sátu. Myndin var líklega tekin sumarið 1965.
Ljósmyndakeppni 2022 56
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Friðrik Bergmann og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Höfðaskóli - safn467
Guðjón Ebbi Guðjónsson teymir hest undir bróður sínum Kristjáni Pétri Guðjónssyni 14. júní 1997.
Guðrún Guðbjörnsdóttir136
Guðberg Stefánsson (d.15.9.1991) og Guðrún Guðbjörnsdóttir spjalla í fannfergi á Fellsbrautinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 92
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 86
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þorgerður Þóra Hlynsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ljósmyndakeppni 2022 37
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ljósmyndakeppni 2022 1
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók berglind Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Bjarni Jónsson 32
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd, líklega árið 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ingibergur Guðmundsson 552
Þessi ungi drengur er óþekktur. Hann er líklega að leika sér í snjónum í Tjaldklaufinni en ekki er vitað hvenær. Tjaldklaufin var vinsæll leikstaður barna og unglinga þegar mikill snjór var þar. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ljósmyndakeppni 2022 3
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Kristinn Rúnar Kristjánsson og sendi inn í flokkinn "Andlit". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Sýningargestir völdu þessa mynd sem þá bestu af andlitsmyndunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1510
Fjaran við Sandlækinn, rétt norðan við bæinn, er vinsæl til útivistar, sérstaklega hjá barnafólki og fólki með hunda. Þaðan tekur Höfðinn sig vel út með Arnarstapann vestast. Bátshræið sem er á myndinni, á hvolfi, er Ólafía Hu. Hún endaði þarna einhverntíma á árunum 1944 - 1949 vegna vélabilunar.
Selma P. Jónsdóttir 11
Mynd úr sveitinni á jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1980. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Jónas 15
Guðmundur Viðar Guðmundsson ríður út í fjörunni sunnan við Hólanesið. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
Gréta 092
Á þessari haustlegu mynd er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) á hlaðinu við heimili sitt í Laufási. Hjá henni er hundurinn hennar, Snati, og hesturinn hennar. Húsið til hægri er Melstaður, sem nú er löngu horfinn. Sama má segja um Ægissíðu, sem grillir í vinstra megin við Margréti.
Ólafur Bernódusson1193
Nokkrum sinnum var fengin lánuð útungunarvél í Höfðaskóla til að nota í náttúrufræðikennslu. Ungað var út hænuungum og eða andarungum við mikla ánægju nemenda með það undur að úr eggi komi lifandi vera. Ungunum var síðan skilað til þeirra sem gáfu egg í tilraunina viku - tíu dögum eftir að þeir sáu dagsins ljós. Á myndinni eru tveir hænuungar að stinga saman nefjum og reyna að átta sig á tilverunni.
Óþekktur ljósmyndari656
Myndin var tekin af Höfðanum yfir hafnarsvæðið á Skagaströnd um 1940. Síldarbátar liggja við akkeri því viðlegupláss er fullt. Stóra húsið á höfninni er Hafnarhúsið sem var svo tekið niður á árunum 1943 eða 44, til að rýma fyrir verksmiðjunni, en síðan endurreist á þeim stað sem það stendur nú. Húsið var upphaflega reist þar sem það er á myndinni 1935. Gamla kaupfélagið er stóra húsið til vinstri en hægra megin við það er verslunarstjórahúsið eða Skagaströnd eins og það var líka kallað. Lengst til vinstri má sjá bryggjukar í byggingu í dráttarbrautinni framan við Bjarmanes.
Höfðaskóli - safn607
Líklega var þessi mynd tekin kringum 1990 af Skagaströnd. Næst okkur á henni eru tvö hús sem eru horfin. Til vinstri eru Kárastaðir en fyrir miðri mynd eru Flankastaðir sem voru rifnir og nýtt hús byggt á sama stað. Lengra frá er Héðinshöfði, sem einnig er horfið. Þá er líka búið að rífa litla húsið norðan við stóru skemmuna, sem áður hýsti verslunina Borg og seinna rafmagnsverkstæði Neistans. Gamla Hólaneskirkja var svo rifin í febrúar 1992 þó hún sé uppistandandi á þessari mynd.
Gréta 047
Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) smiður á hlaðinu heima hjá sér í Laufási með reiðhestinn sinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 96
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
2001087
Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri búa sig undir að renna fyrir silung í gegnum ís á Langavatni. Myndin var tekin í jeppaleiðangri á tíu jeppum um jól en ekki er vitað hvaða ár.
Ásgrímur Jónsson Vor á Þingvöllum 1930
Ásgrímur Jónsson fæddist 4. mars 1876. Hann var við nám í Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn á árunum 1900 – 1903. Ásgrímur var fyrstur Íslendinga til að gera myndlistina að aðalstarfi. Frægastur er hann fyrir landslagsmálverk sín sem seljast á háu verði, séu þau yfirleitt föl. Þá er hann einnig þekktur fyrir myndskreytingar íslenskra þjóðsagna og ævintýra. Ásgrímur hlaut margs konar viðurkenningar fyrir list sína m.a. fékk hann fálkaorðuna og var gerður að heiðursprófessor við Háskóla Íslands. Þegar Ásgrímur lést, 5. apríl 1958 ánafnaði hann íslensku þjóðinni öll eftilátin verk sín ásamt húseign sinni að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Myndin á þessu jólakorti eftir Ásgrím heitir: "Vor á Þingvöllum 1930".
Ljósmyndakeppni 2022 58
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ingibergur Guðmundsson 424
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Á myndinni eru að moka þeir Vilhelm Þórarinsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri.
Ljósmyndakeppni 2022 23
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Gréta 095
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma kringum 1940. Á henni er hluti af fjörunni sem náði frá Hólsnefinu á Höfðanum og inn að Bjargi/Breiðabliki áður en hafnargerð hófst með uppfyllingu út í Spákonfellsey 1934. Kletturinn til vinstri er Einbúinn sem, eins og sést, var í fjöruborðinu. Húsin á myndinni eru: Efri Lækur (Litli Lækur) lengst til vinstri hvítt hús með dökku þaki. Háa húsið með þremur gluggum á efstu hæðinn er Karlsskáli. Milli Efra Læks og Karlsskála sér í Jaðar. Hitt háa húsið, það með dökka þakinu, er Lækur. Hvítt hús bak við Læk er Lundur og hægra megin við Lund er Lækjarbakki. Lengst til hægri sést í Karlsminni þar sem Carl Berndsen hóf verslun sína áður en hann flutti sig á Hólanesið. Bátarnir á myndinni eru óþekktir
1
…
21
22
23
24
25
Leita í myndasafninu
Leita