Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
053
Una Jónsdóttir frá Steinnýjarstöðum á hestbaki með hund með sér
043
Kári Kristjánsson ? snýr heyi einhverntíma í kringum 1938 með snúningsvél frá bænum Efri-Harrastöðum.
017
<P>Smári Gunnlaugsson í snjó </P>
Guðmundur Guðnason699
Tveir óþekktir knapar þeysa af stað í kappreiðum. Mennirnir og staðurinn eru óþekkt.
045
Myndin er af Sandkúlunni sem er syðst í Katlafjalli ofan við bæinn Brandaskarð
Guðmundur Guðnasonr680
Óþekktur við réttarstörf í Hofsrétt
046
Hyrntur hrútur frá Brandaskarði í taumi
Guðrún Guðbjörnsdóttir111
Kristján Hjartarson þenur nikkuna og Jón Helgason spilar með á gítarinn við Goðafoss í góðu veðri.
Guðrún Guðbjörnsdóttir054
<P>Myndin er tekin við búðina að vetri til. Á henni eru frá vinstri: Atli Þórsson, Jón Jónsson, María Magnúsdóttir og Gunnar Halldór Hallbjörnsson.</P>
Guðmundur Guðnason687
Rúningur í réttunum. Þá var fénu smalað um mitt sumar og kindurnar voru rúnar því ullin var verðmæt. Myndin er úr Hofsrétt á Skagahreppi (nú Skagabyggð) og var tekin rétt fyrir 1960. Konan sem situr með lamb í fanginu er Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d.7.4.2011) frá Brandaskarði en aðrir myndinni er óþekktir. Hundurinn á réttarveggnum hét Kópur og var í eigu Páls J. Pálssonar frá Bakka. Kópur var felldur haustið 1960.
Guðmundur Guðnason695
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á miðri mynd er Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhól. Maðurinn lengt til hægri er Baldvin Jóhannsson (d. 1.1.1981) frá Ásholti og bak við hann er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) einnig frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason703
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Tveir óþekktir leikarar, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9) og tveir óþekktir leikarar. Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir077
Vaskir menn ríða um hátíðarsvæðið á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Frá vinstri: Ásgeir Axelsson, Hallbjörn Hjartarson, Magnús Blöndal og óþekktur.
Guðmundur Guðnason705
<P>Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Sigrún Kristófersdóttir frá Sunnuhvoli, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Búi Birgisson frá Straumnesi, og Brynja Axelsdóttir frá Læk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Guðmundur Guðnason851
Stoltir eigendur verðlaunahrúta á hrútasýningu í Húnaveri. Mennirnir eru óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnasonr679
Hjalti Árnason frá Skeggjastöðum við réttastörf í Hofsrétt.
Guðmundur Guðnason691
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn með húfuna fyrir miðri mynd er Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum. Við öxl hans er Gunnlaugur Sigmarsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnasonr681
Henrý Kristjánsson til vinstri og Bernódus Ólafsson til hægri við réttarstörf í Hofsrétt.
Guðmundur Guðnason858
Snjór í útbænum. Stórholt til vinstri, Þórshamar og Skálholt til hægri.
Guðrún Guðbjörnsdóttir053
Jóhanna Thorarensen hjálpar til við að moka snjó frá gluggum í þjónustuíbúðum við Ægisgrund 1995 eða 1996
Guðmundur Guðnason911
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir069
Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri bindur á sig skautana í skautaferð á Vindhælistjörn.
Guðmundur Guðnason708
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn fremst á myndinni er Jósef Stefánsson. Lengst til vinstri er Jóhann Jakobsson frá Blálandi og svo Haraldur Sigurjónsson frá Iðavöllum.
Guðmundur Guðnason898
Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Gísli Snorrason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Myndin var tekin í mars 1962.
Guðmundur Guðnason869
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason913
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
Guðmundur Guðnason970
Héðinshöfði í vetrarsnjó. Þar bjuggu Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir með fjölskyldu sinni í norðurendanum en Kristinn Jóhannsson og Guðný Finnsdóttir með sinni fjölskyldu í Suðurendanum. Húsið sem grillir í fjær er Garður.
Guðmundur Guðnason951
Fjársafn rekið í Spákonufellsrétt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir047
Á spjalli fyrir utan verslunina í vetrarríki. Frá vinstri: Rúnar Loftsson, Gylfi Sigurðsson, Friðjón Guðmundsson og Hulda Árnadóttir.
Guðmundur Guðnason912
Sönghópur stúlkna treður upp á skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Guðbjörg Þorleifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir,Lára Guðmundsdóttir, Sigríður Birna Björnsdóttir, Elsa Lára Blöndal, Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.Myndin er sennilega tekin árið 1967.
Guðrún Guðbjörnsdóttir052
Birkir Rafn Gíslason fær að prófa að sitja á fjórhjóli. Stúlkan í bláu úlpunni er líklega Rakel Sara Gunnarsdóttir. Rússajeppann í baksýn átti Guðmundur Björnsson
Guðmundur Guðnason710
Smalamennska í Borginni. Féð rekið heim að rétt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir068
Snorri Gíslason í réttarstuði.
Guðmundur Guðnason709
Bergdís Sigmarsdóttir á sviðinu í Tunnunni upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason689
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn lengst til hægri er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Aðrir eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir070
Ingibjörg Skúladóttir á skautum á Vindhælistjörninni.
Guðmundur Guðnason798
Fossinn fyir ofan bæinn Hof. Í baksýn eru Fjallsöxlin til vinstri og Steinnýjarstaðafjall til hægri. Milli þeirra er Litla skarð.
015
Hundarnir á Efri-Harrastöðum. Tíkin Halló er til hægri
Guðmundur Guðnason696
Hjónin á Syðra-hóli þau Björn Magnússon og Ingunn Lilja Hjaltadóttir.
Guðmundur Guðnason704
Réttarstörf - rúningur - í Hofsrétt. Lengst til hægri er Rúnar Jósefsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001)snýr bakinu í myndavélina. Þá kemur Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og konan í rauðköflóttu skyrtunni er Sigríður Guðlaugsdóttir (d.23.5.1996) frá Bjarmalandi. Ari Ólafsson hjálpar móður sinni Jóninnu Þórey Hafsteinsdóttur (d.24.11.1994) að troða ull í poka. Ullarpokar sjást á réttarveggnum.
Guðmundur Guðnason706
Mynd tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Fremst fyrir miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali gekk undir heitinu Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir Skagtrendinga.
Guðmundur Guðnason690
Vigfús Elvan Friðriksson sem fórst í sjóslysi við Snæfellsnes.
Guðmundur Guðnason702
Réttastörf í Hofsrétt á Skaga. Fremst á myndinni er Páll Jóhannesson en maðurinn vinstra megin á myndinni í ljósum jakka er Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og stúlkan í köflóttu skyrtunni í miðjum fjárhópnum er Áslaug dóttir hans. Stúlkan í grænu peysunni er Guðbjörg Kristinsdóttir. Maðurinn lengst frá okkur fyrir miðju í ljósum buxum og brúnni peysu er Jón Hinrik Árnason (d.4.11.1986) sem var bóndi á Steinnýjarstöðum.
Guðmundur Guðnason693
Stafnsrétt í Svartárdal. Fjársafnið bíður þess að verða réttað.
Guðrún Guðbjörnsdóttir093
Krakkarnir sem hér njóta vetursins á Bogabrautinni eru: í efri röð frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Valdimar Valdimarsson (Númason), Hafaþór Gylfason, Kristín Jónsdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir. Sitjandi eru: Ingvar Jónsson, Vala Ingvarsdóttir, Ólafur Valdimarsson (Númason) og Árni Geir Ingvarsson
Guðmundur Guðnason777
Eitt af uppáhalds myndefnum Guðmundar Guðnasonar (d.21.11.1988) frá Ægissíðu , sem tók þessa mynd, voru kindur. Þetta er eitt sýnishorn af slíkum myndum sem eru fjölmargar til eftir hann.
Guðmundur Guðnasonr684
Guðbergur Stefánsson við réttarstörf í Hofsrétt?
Guðmundur Guðnasonr683
Óþekkt fólk við ráttarstörf í Hofsrétt
Guðmundur Guðnason850
Vinaminni (Hólabraut 16) fyrir miðri mynd. Til hægri sér í Brautarholt. Þegar þessi mynd var tekin, sennilega í kringum 1960, lá akvegurinn, eins og sést, rétt sunnan við Vinaminni og svo var hægri beygja vestan við Brautarholt. Snjórinn sem liggur fyrir framan Vinaminni hylur malarkrús sem þar var en hún var vinsæll leikvangur og sullstaður barnanna í innbænum á sínum tíma. Í dag standa Hólabraut 12 og Hólabraut 14 á þessum slóðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir092
Stúkurnar sem hér eru að leika sér í snjónum fyrir utan gamla pósthúsið (nú tónlistarskólinn) eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir með Höllu Kristínu Árnadóttur í fanginu, Katrín Sigurjónsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir og Pálína Harðardóttir
Guðmundur Guðnason697
Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum og Helga Berndsen frá Karlsskála slá á létta strengi undir réttarvegg á Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnasonr682
Réttarstörf í Hofrétt. Bernódus Ólafsson er lengst til vinstri á myndinni og Henrý Kristjánsson er maðurinn með húfuna. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Guðrún Guðbjörnsdóttir071
Krakkar á skautum á Vindhælistjörn. Aftari röð frá vinstri: Katrín Sigurjónsdóttir, Ægir Jónsson, Jóney Gylfadóttir. Fremri röð: Jóna Sigurðardóttir, Gígja Finnsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Vilborg eða Áslaug Jóhannsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir050
Hús Eiðs Hilmarssonar að Sunnuvegi mokað upp úr snjó 1995 eða 1996. Húsið var við að sligast og til að hægt væri að moka af þakinu þurfti líka að moka frá því.
Guðmundur Guðnason856
Fermingarbörn ársins 1964 ganga til Hólaneskirkju (eldri). Frá vinstri: Stefanía Guðjónsdóttir, Brynja Axelsdóttir frá Læk og Sólveig Georgsdóttir.
Guðmundur Guðnason868
Jóhann Ingibjörnsson á fermingardaginn sinn 1961
Guðrún Guðbjörnsdóttir074
Krakkarnir á skautunum, sem hér drekka kakóið sitt, eru frá vinstri: Katrín Sigurjónsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Gígja Finnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason923
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Töluverður fjöldi fólks lagði á sig göngu upp í Hörfellið til að fylgjast með keppninni og taka þátt, eins og sést á þessari mynd af keppnissvæðinu. Ef svo vel vill til að þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </P>
Guðmundur Guðnason674
Bryggjan í Hagnesvík skoðuð á ferðalagi til Siglufjarðar 15. júní 1968. Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún er í ljósum frakka. Til hægri við hann er óþekktur heimamaður en Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi snýr baki í myndavélina.
Guðrún Guðbjörnsdóttir072
Jón Helgason, Bára Þorvaldsdóttir og Aðalheiður Guðmundsdóttir á gönguskíðum.
1
2
3
4
5
…
25
Leita í myndasafninu
Leita