Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Náttúra
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Samgöngur
Miðflokkur
Dýr
Landslag
Snjór
1.480 myndir
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson067
Verðlaunahafar í einhverri skíðakeppni um páska. Verðlaunin voru páskaegg eins og sjá má. Myndin var tekin ca 1980. Verðlaunahafarnir eru, frá vinstri: Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Páll Jónsson, Þórarinn Þórsson, Guðjón Árnason og Viggó Magnússon.
IMG_3297
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Guðmundur Guðnason204
Hjónin Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg bíða komu Kristjáns Eldjárn forseta Íslands í opinbera heimsókn til Blönduóss 1969. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason198
Fjársafnið rennur til réttar í Stafnsrétt 1969. Maðurinn er óþekktur.
Guðmundur Guðnason254
Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) Litla-Felli stendur vaktina við togbraut skíðamanna í Spákonufelli 1974 eða 1975. Ásgeir átti og sá um dráttarvélina sem notuð var til að knýja togbrautina.
Magnús B Jónsson063
Magnús B. Jónsson á fullri ferð á skíðunum á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Myndin var tekin ca 1980.
Magnús B Jónsson057
Guðrún Pálsdóttir rennir sér í nýsnævi á skíðasvæðinu við Skagaströnd. Myndin var tekin ca. 1980
Guðmundur Guðnason309
Þrír félagar á ferðalagi í Húsafelli 1974. Frá vinstri: Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu (d. 21.11.1988), Guðmundur Rúnar Kristjánsson frá Grund og Sigurður Bjarnason frá Bjargi standa við fræga kvíahellu þar.
Guðmundur Guðnason286
Fólkið sem hér stendur með Gullfoss í baksýn eru hjónin Hertha W. Jónsdóttir og Stefán Gunnarsson (d. 2011) frá Æsustöðum. Með þeim er dóttir þeirra Sigríður Þrúða Stefánsdóttir.
Guðmundur Guðnason206
Handtak á fjöllum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin og mennirnir á henni eru líklega Konráð Guðmundsson í Garðhúsum til vinstri og Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) úr Miðnesi til hægri.
Magnús B Jónsson074
Hópur skíðagöngufólks gengur upp þáverandi tún við Hágerði - núverandi Golfvöll. Fremstur fer Magnús B. Jónsson og síðan kona hans Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir. Þriðji er Bernódus Ólafsson en aðrir eru óþekktir. Í baksýn grillir í Höfðann í skafrenningnum sem var þennan dag.
Guðmundur Guðnason213
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Ágúst Jakobsson frá Blálandi til vinstri og Henry Kristjánsson frá Kárastöðum herða að gærunni eftir að hafa saltað hana og brotið saman á ákveðinn hátt. Gærurnar voru geymdar saltaðar og seldar þannig til fullvinnslu.
Guðmundur Guðnason220
Hestarnir teknir til kostanna á kappreiðum á Hvammsbökkum 1961. Knaparnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason330
Þessi mynd sýnir réttarstörf í Mjóadalsrétt en sennilega var hún tekin um mitt sumar þegar verið er að rýja féð. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason303
Systkinin Gígja Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Ásholti í gönguferð á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason222
<p>Þessar konur eru á leið upp veginn frá Fossá, en sá vegur lá til Stafnréttar. Myndin var sennilega tekin 1968. </p>
Guðmundur Guðnason514
Réttastörf í Vindhælisrétt. Frá vinstri: Ingvi Guðnason Valhöll (d. 31.12.1991), Ólafur Jónasson Syðri Ey (d. 8.9.1980) og Þorkell Magnússon úr Goðhól ( d. 30.8.1968).
Guðmundur Guðnason273
þessi mynd var sennilega tekin á ferðalagi starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á árunum kringum 1975. Á myndinni er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) á spalli við Selmu Þórarinsdóttur (d. 14.9.1990) og Eið Hilmarsson.
Magnús B Jónsson073
Maðurinn í dökku úlpunni er William Sillar sem er að prófa skíði í fyrsta sinn. Næst yst til hægri fylgist Guðrún Pálsdóttir spennt með. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason178
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðni Sveinsson Ægissíðu (d.15.11.1971), Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d. 2.6.1987) og óþekktur maður.
Guðmundur Guðnason696
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Guðmunda Árnadóttir frá Flankastöðum. Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti er maðurinn fremst á myndinni með skíðagleraugun. Aftan við hann er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason526
Réttað í Spákonufellsrétt. Drengurinn í köflóttu úlpunni er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði (Hólabraut 9). Maðurinn í svörtu peysunni er óþekktur (?Sigurjón Magnússon frá Sólvangi?). Sigurður Guðmonsson frá Þórsmörk (d. 5.8.1981) er maðurinn með ljósu húfuna en Hrólfur Jakobsson Sóllundi (Hólabraut 8) (d. 27.12.1996) er lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason657
Gangnahestur með reiðtygjum.
Guðmundur Guðnason692
Réttað í Spákonufellsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt. Þó er líklegt að baksvipurinn sé af Hartmann Jóhannessyni frá Garði því hann var oft með bláan "bát" á höfðinu.
Þríburakálfar 1920
Þetta póstkort sýnir þríbura kálfa sem færðir hafa verið inn á ljósmyndastofu til myndatöku 1920. Samkvæmt frétt í Vísi frá 21. október 1971, fæddust kálfarnir á Akureyri og voru undan kú sem var í eigu Ragnheiðar Benediktsdóttur, systur Einars Benediktssonar skálds. Hún var gift Júlíusi Sigurðssyni útibússtjóra Landsbankans á Akureyri en fram kemur í fréttinni að hann hafi ekki verið of hrifinn af búskap konu sinnar. Mjög óvenjulegt er að kýr beri þremur kálfum en það gerist þó annað slagið.
Guðmundur Guðnason510
Í Spákonufellsrétt 1958. Á myndinni þekkjast Pétur Jónsson Stóra Bergi (d. 18.2.1966) á miðri mynd með derhúfu og vettlinga og við hlið hans til hægri er Guðni Sveinsson frá Ægissíðu (d. 15.11.1971). Ef þú þekkir einhverja aðra á myndinni vinsamlega sednu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason524
Guðlaugur Gíslason Vinaminni (Hólabraut 16) rekur fé í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason516
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Páll Jónsson frá Reykholti (d. ?) er á miðri mynd. Aðrir eru óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason523
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti og bogni maðurinn til hægri er Lárus Árnason frá Ási (d. 21.5.2011).
Guðmundur Guðnason529
Slegist við hross í stóðréttum í Spákonufellsrétt. Mennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason575
Vormynd af Spákonufellinu. Í forgrunni eru nokkrar kindur með lömb en Guðmundur ljósmyndari hafði gaman af kindum og tók mikið af myndum af þeim.
Guðmundur Guðnason513
Hér eru þeir Hartmann Jóhannesson frá Garði (d. 1976) til vinstri og Þorkell Magnússon frá Goðhól (d. 30.8.1968) að draga sundur fé í Vindhælisrétt.
Guðmundur Guðnason192
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason445
Kári Kristjánsson (d. 11.,12.1990) frá Kárastöðum ríðandi á Bjargs-Grána.
Guðmundur Guðnason318
Drengirnir á myndinni taka sér hvíld frá réttarstörfunum. Til vinstri er Bergur Jón Þórðarson en til hægri er Óskar Þór Kristinsson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn083
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson(d. 25.12.2010) fréttaritara blaðsins á Skagaströnd á þessum tíma, sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndin er skönnuð úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd eru karlarnir um borð að reyna að stjaka ísnum frá svo þeir komist á miðin. Það var mikilvægt að komast í netin því bæði fiskaðist vel og svo var líka mikil hætta á að ísinn sliti baujurnar af netatrossunum eða hreinlega tæki þær með sér þannig að þær fundust aldrei aftur.
Guðmundur Guðnason304
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn á miðri mynd er Garðar Stefánsson ( d. 14.3.1999) frá Kúskerpi. Til vinstri í bakgrunninum er Björg Bjarnadóttir í ljósri lopapeysu og Finnbogi Jónsson í köflóttri skyrtu og regnbuxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason308
Ægissíða sem var heimili ljósmyndara þessarar myndar, Guðmundar Guðnasonar. Ægissíða, sem nú er löngu horfin, stóð við þjóðveginn norður með Höfðanum rétt sunnan við Réttarholt. Í baksýn sést Skeifan sem er efsti hluti Hólabrautar. Lengst til vinstri er Hólabraut 31 eða Jórvík næst eru Hólabraut 27 og 25 og rauða húsið er Sænska húsið eða Hólabraut 23. Fleiri hús voru ekki komin á Skeifuna, þegar myndin var tekin, en nú er nánast fullbyggt við götuna.
Guðmundur Guðnason317
Þessi skúr var við Spákonufellsrétt. Þarna seldu kvenfélagskonur gjarnan kaffi og með því á réttardögum. Skiltið málaði Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og hafði Ólaf Guðmundsson (d.6.10.1985) frá Brautarholti sem fyrirmynd.
Magnús B Jónsson058
Baldur Magnússon á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd ca 1980.
img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason260
Á þessari mynd sést vel togbrautin, sem var notuð með hléum á árunum 1974 - 1978, í Spákonufelli. Drifhjól var útbúið og tengt við drifúttak vélarinnar og svo var blökk komið fyrir uppi á hæðinni. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp. Bannað var að vera með trefla í lyftunni því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni og átti til að grípa vettlinga sem þá festust við kaðalinn og losnuðu ekki fyrr en á niðurleiðinni. Eitt sinn munaði litlu að slys yrði þegar kona gleymdi sér og fór upp með trefil um hálsinn. Kaðallinn greip endann og byrjaði að snúa honum um sig. Konan áttaði sig hvað verða vildi og gat losað sig við trefilinn rétt áður en hún kom að blökkinni uppi. Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) átti og sá um dráttarvélina og sést hann á myndinni aftan við vélina. Til vinstri er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) að búa sig undir að binda á sig skíðin. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason195
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum og óþekkt stúlka á hestbaki við Spákonufellsrétt 1962.
Guðmundur Guðnason517
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) hressir sig á einum snapsi í Vindhælisrétt.
Guðmundur Guðnason272
Byrjunarframkvæmdir við frystiklefann á uppfyllingunni við Skúffugarðinn austanverðan. Klefan byggði Hólanes hf. Í baksýn sést Arnar Hu 1, fyrsti skuttogari Skagstrendings hf sem kom í heimahöfn í fyrsta sinn 1973 frá Japan þar sem hann var smíðaður.
Guðmundur Guðnason511
Fjársafnið kemur af fjalli í Spákonufellsrétt á gangnasunnudegi 1958.
Geirfugl
Mynd af geirfugli og sagan um hvenær sá síðsti var drepinn. Geirfugl var stór fugl allt að 70 cm hár og 5 kg en ófleygur og því auðveld bráð. Hann gaf 1,5 kg af kjöti auk fitu og lýsis og var því mikilvægur afli fyrir margan fátæklinginn. Ekki er vitað hvenær þetta póstkort var gefið út en það gerði Helgi Árnason (26.11.1974 - 24.10.1954). Um hann er sagt í "Íslenskar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940" : "..... var um skeið mesti póstkortaútgefandi á Íslandi....."
Guðmundur Guðnason522
Þorkell Magnússon úr Goðhól (d. 30.8.1968) dregur lamb í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason527
Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19)(d. 7.12.1973) með hrút.
Magnús B Jónsson069
Hér er handagangur í öskjunni. Verið er að afhenda viðurkenningarskjöl og verðlaun á skíðamóti. Eins og sjá má voru margir þátttakendur enda skíðaiðkun vinsæl á Skagaströnd á þessum árum. Myndin var tekin ca 1980. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson og konan í ljósa jakkanum er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn082
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd hefur Þórður ljósmyndari farið út á ísinn og tekur mynd af Vísi þar sem hann er að reyna að komast á miðin milli ísjakanna.
Guðmundur Guðnason560
Ólöf Una Jónsdóttir í Ártúnum var greinileg óhrædd við dýr sem voru stærri en hún.
Guðmundur Guðnason627
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Hér hafa hann og bróðir hans og ferðafélagi , Rósberg G. Snædal, áð við Hrútatjarnarstein. Steinninn stendur við litla tjörn sem heitir Hrútatjörn. Að sögn kunnugra sást oft ljós í steininum á síðkvöldum og var það almenn trú að þar byggju álfar.
Guðmundur Guðnason519
Konan á miðri mynd er líklega Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir frá Reykholti (Sævarlandi) (d. 24.11. 1994) að sinna réttarstörfum í Spákonufellsrétt. Til hægri við hana, aftar, er Jóhannes Hinriksson frá Ásholti (d. 27.10.1973) með gleraugu og ljósa derhúfu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason512
Bergur Jón Þórðarson er drengurinn sem er að leita lamba í Spákonufellsrétt 1958 þá 7 - 8 ára gamall. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason530
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Konráð Klemensson Konnabæ (Garðhúsum) (d. 20.11.1981), Gunnlaugur Björnsson Harrastöðum (d. 8.5.1978 ), Ágúst Jakobsson Blálandi (d. 1.6.1989) ), Sveinn Ingi Grímsson og óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason633
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Hér hafa hann og óþekktur ferðafélagi tjaldað á grænum bala.
Skagaströnd úr lofti
Þessa mynd tók Jón Karl Snorrrason úr lofti rétt fyrir 1990. Myndin er óskýr því hún er blaðaúrklippa. Á henni stendur gamla Hólaneskirkja ennþá og miklar breytingar hafa orðið á hafnarsvæðinu síðan myndin var tekin. Þá má sjá olíutankana uppi á Höfðanum og lýsistankana austan við hann.
Guðmundur Guðnason587
Kindin í forgrunni er þrílembd og var sjálfsagt tilefni myndatökunnar. Í baksýn má aftur á móti sjá útbæinn, sennilega seint á sjöunda áratugnum. Enn standa tankarnir tveir undir Höfðanum til vinstri á myndinni. Braggarnir standa, Garður og gamla húsið á Flankastöðum. Kárastaðir, Höfðakot og Höfðaberg eru líka öll horfin ásamt Gunnarshólma (Grafarbakka). Aftur á móti hafa nú verið byggð hús við Mánabraut og fleiri hús við Bankastræti.
Guðmundur Guðnason528
<p>Í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Elínborg Árnadóttir Sólheimum (d. 7.4.1979), Kristín Björnsdóttir Jaðri, óþekkt, Ólafur Guðmundsson Brautarholti (d. 6.10.1985), Már Hall Sveinsson Réttarholti (d. 1.3.2008), óþekktur, Kári Kristjánsson Kárastöðum (d. 11.12.1990), Steingrímur Jónsson Höfðakoti (d. 15.1.1992), óþekktur, Sigurlaug Jónsdóttir Ási (d. 15.8.2011) og óþekktur. </p>
1
…
6
7
8
…
25
Leita í myndasafninu
Leita