Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Einbui

Gamalt póstkort frá Skagaströnd. Á kortið er ritað þann 17. nóvember 1913. Tvílyfta húsið lengt til vinstri er Verslunarstjórahúsið, sem seinna var kallað Kaupfélagshúsið. Húsið var byggt um 1906 og stóð skammt vestan við núverandi Gamla kaupfélagið við Einbúastíg. Stóra rismikla húsið fyrir miðri mynd var pakkhús. Framundan því að norðanverðu sér í Assistentahúsið. Litla húsið vestan í Einbúanum var þvottahús. Eins og sést var þessi mynd tekin áður en vinna hófst við núverandi höfn hófst (1934). Þá var Einbúinn klettadrangur sem stóð fram í sjó í víkinni sem annars var órofin frá Hólsnefi og inn að Bjargi (nú Breiðabliki). Þjóðtrúin segir að álfar búi í Einbúanum og því boði það ógæfu fyrir samfélgið ef hann verður skertur eða skemmdur á einhvern hátt. Leyfi fékkst þó hjá álfunum til að koma fyrir fánastöng efst á Einbúanum og þar er enn flaggað á tyllidögum. Myndina tók Evald Hemmert kaupmaður.

Texti5_ljosm_GunnarAlbertsson
Um borð í Stíganda Hu 9. Bátinn átti Bjarni Helgason og sést hann kíkja út um glugga á stýrishúsinu. Maðurinn uppi á stýrishúsinu er óþekktur
Berndsen
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum.
Gudun_HU2_SM
Þennan bát létu Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason smíða á Siglufirði árið 1961. Seldu þeir, eftir árið, bátinn til Hólmavíkur þar sem hann fékk nafnið Hrefna II St 123. Á myndinni liggur Guðrún HU-2 rígbundinn við litlu brygguna á Skagaströnd. Helgan hans Ensa fyrir aftan hana og Svanur HU-4 innst en hann var í eigu Baldurs og Júlíusar Árnasona.
img009
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti við réttastörf með skinnhúfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
01_Kaupfelagshusid
Kaupfélagshúsið við Einbúann: Byggt á árunum kringum 1930.
15_Skip_londunarkrani_fra_Holanesi
Flutningaskip athafnar sig í höfninni á Skagaströnd ca 1950
img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
img077
Gunnar Sveinsson skipstjóri og útgerðamaður fæddur 1939 um borð í Húna HU-1.
19_Spakonufell
Nýbyggða húsið til hægri er Asparlundur (Bogabraut 24) en gamla húsið til vinstri er óþekkt. Í Baksýn eru Háaberg og Spákonufell.
Texti3_ljosm_GunnarAlbertsson
Húni Hu 1 kemur til hafnar á Skagaströnd fulllestaður af síld.
Ljosm_GunnarAlbertsson
Húni ll Hu 2 á siglingu.
Ovedur_ca_80-90_AJ_Berndsen
Óveður geysar á Skagaströnd á 9 áratugnum.
23_A_sjomannadaginn_1943_eda_44
Löng hefð er fyrir að halda sjómannadaginn hátíðlegan á Skagaströnd fyrsta sunnudag í júni eða, eins og nú er gert, á laugardeginum fyrir sjómannadag. Þá er farið í ýmsa leiki sem gjarnan byggjast á því að einhver konar þrautir eru lagðar fyrir þátttakendurna í þeim. Þátttakendur eru yfirleitt valdir úr hópi sjómanna eða einhverra þeirra sem gegna opinberum stöðum á Skagaströnd. Ávallt eru hátíðahöld sjómannadagsins fjölsótt, sama hvernig veður er. Þessi myndin var tekin á sjómannadaginn 1943 eða 44, eftir boðhlaupskeppni þar sem þátttakendur urður að hlaupa í fullum sjóklæðum. Frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Ingvar Jónsson, Guðmundur Karlsson, Björgvin Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Kristófer Árnason, Gísli Jóhannesson, Hallgrímur Kristmundsson, Snorri Gíslason, Þórarinn Jónsson, Skafti Björnsson og Jens Jónsson. Myndin er úr safni Elísabetar G. Berndsen.
ÞorbjornJonsson_KariKristjansson_BirgirArnason_Adolf_J_Berndsen_Kristinn_Johannsson2
Á tunnunum sitja þeir Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Kári Kriststjánsson (d.11.12.1990), neðri röðin frá vinstri til hægri eru Birgir Árnason (d.2.2.2005), Adolf Berndsen (d.27.8.2018) og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002).
250
Ker í smíðum í kerslippnum fyrir neðan Bjarmanes. Myndin sennilega tekin um 1950. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
17_Kersmidi
Ker í smíðum í kerjaslippnum neðan við Bjarmanes. Myndin sennilega tekin ca 1950.
HuniHU2_1963_SM
Húni ll HU 2 drekkhlaðinn af síld á miðunum árið 1966
42_Bolstadarhlidarkor_syngur_i_Vatnsdal_1943-44
Bólstaðarhlíðarkórinn 1943 eða 44 á skemmtun í Vatnsdal
24_Hofdinn_ grjotnam
Grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar. Myndin tekin 1934 - 1940.
26_Gisli_Einarsson_Vidvik
Gísli Einarsson í Viðvík
52_Kaupfelagid_og_Einbui_fra_Hofda
Skagaströnd séð frá Höfðanum. Árið er 1936 því þá var byggt fyrsta kerið í slippnum neðan við Bjarmanes. í forgrunni myndarinnar eru kaupfélagið og Einbúinn en sundlaugin hefur ekki verið byggð.
20_Lilli_Bjornsson_og_Sverrir
Smiðir við kersmíði, Þórarinn Björnsson (Lilli Björns) til hægri og Sverrir Fossdal til vinstri
11_Holanes_fra_Hofn

Mynd af Hólanesinu tekin frá hafnarsvæðinu á líklega á árunum kringum 1944 - 1945

HuniHU1_5_SM
Um borð í Húna Hu 1 á netavertíð. Mennirnir á dekkinu eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Gunnar Albertsson, Eðvarð Jóhannesson (fjær), óþekktur (nær) og Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ.

HuniHU2_2_SM
Húni ll Hu 2 við síldveiðar. Verið er að háfa síld úr nótinni.
GunnarAlbertsson_ljosm
Gunnar Albertsson við spilið
Þórður003
Skátamót í Vatnsdal árið 1960
40_Elisabet_Tungu_Bjorg_Ingvarsd_Balskardi_AstmarIngvarss_Balaskardi_Gigja_Tungu

Frá vinstri: Elísabet Finnsdóttir frá Skrapatungu, Björg Ingvarsdóttir frá Balaskarði, Ástmar Ingvarsson frá Balaskarði með harmoniku og Guðný Finnsdóttir (Gýgja) frá Skrapatungu.

Þórður018
Hópmynd af skátum. Jónas Jónsson skátahöfðingi á Íslandi situr fyrir miðri mynd. Þórður Jónsson er annar frá hægri í þriðju röð en Ingólfur Ármannsson annar frá vinatri í annarri röð.
34_GisliEinarsson_Vidvik
Gisli Einarsson í Viðvík
Baldvin_ Gunnar_Albertsson

Á línuveiðum á Stíganda Hu 9. Myndin er tekin úr skutnum fram eftir bátnum. Fram við stýrishúsið er Ólafur Bertelsson en Leifur Ásmundsson frá Ásbúðum situr á bjóðunum aftan við húsið.

img006
Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (snýr baki í ljósmyndara), Guðmundur Jóhannesson og Birgir Árnason við vinnu sína í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar.
14_Innbr_af_Hofda
Myndin er tekin 1945-1946. Búið er að byggja helming mjölskemmunnar en austari hluti hennar er í byggingu. Í vinstra horni myndarinnar sér í hornið á Skálholti. Nær okkur sést svo örlítið í þökin á Dvergasteini og Draumalandi. Niðri í hægra horninu eru svo Kárastaðir sem seinna var byggt ofan á. Húsin sem standa niður með Skagavegi eru svo: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði áður en byggt var við hann, Garður og braggarnir.
10_Holnes_til_Hofda
Á myndinni sést að tankar verksmiðjunnar eru í byggingu. Myndin er því tekin 1945 eða 1946. Sjá má tjöld verkamannanna á túninu neðan við Tjaldklaufina á Höfðanum. Á myndinni sést líka vel staðsetning "Hólsnefsbryggju" sem var fram af fiskvinnsluhúsi kaupfélagsins (seinna Hólaness hf).
13_Sundlaugin_Kaupfelag
Myndin er tekin 1945 eða 1946 því sjá má að skorsteinn verksmiðjunnar er í byggingu. Sundlaugin er komin en enn vantar kyndihúsið við hana.
03_Skagastrond_vetur
Þessi vetrarmynd af Skagaströnd er tekin ca 1935 - 1937
12_Skemman_Hofdinn
Verksmiðjan til vinstri og Hafnarhúsið til hægri. Myndin tekin 1945 - 1946.
18_Sildarverksm
Myndin tekin 1945 eða 1946. Greinilega byrjuð síldarbræðsla í verksmiðjunni þótt byggingarframkvæmdum sé ekki lokið.
16_Ker_i_byggingu
Ker í smíðum í kerjaslippnum neðan við Bjarmanes. Myndin sennilega tekin ca 1950.
35_GisliEinarsson_Vidvik
Gísli Einarsson frá Viðvík
HuniHU2_1963_2_SM
Húni ll HU-2 á síldarmiðunum við Jan Mayen 1966 með fullfermi 170-80 tonn sem komst ekki allt í land vegna brælu.
img023
Guðmundur Þór HU17 frá Skagaströnd smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, seinna Dagrún St
Texti4_ljosm_GunnarAlbertsson

Óþekktir menn á línuveiðum á óþekktum bát.

22_Oliugeymar_ bygging
Hér er verið að byggja lýsistankana stóru sem stóðu við Höfðann. Leiðslur lágu frá verksmiðjunni að tönkunum og líka frá þeim fram á Hafnargarðinn (Útgarð) til að skipa lýsinu út. Myndin er tekin 1945 eða 1946.
25_UnnurIngvarsdottir_ca_1943
Unnur Ingvarsdóttir, myndin tekin um 1943
04_Skagstrond_fravHofdanum

Þessi mynd er tekin ca 1942 því þá var unnið að gerð uppfyllingar fyrir Skúffugarðinn sem sést fyrir miðri mynd. Húsið í vinstra horninu er Þórsmörk þar sem Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurðuar Guðmonsson bjuggu síðar með börn sín. Hvíta húsið hægra megin er Garður en þar bjuggu Helga Þorbergsdóttir og Jóhannes Pálsson með sín börn. Fjær má sjá Karlsskála (með áberandi stromp) og Læk. Önnur hús eru Móar, Brúarland, Jaðar, Efri -lækur, Karlsminni, Viðvík og fleiri.

02_Skagastrond_og_Hofdinn
Myndin er tekin af Hólanesi og horft er til Höfðans. Myndin er tekin á árunum 1930 - 1940. Stóra húsið á myndinni er kaupfélagið.
Þuridur_fra_Litla-Bergi
Þuríður frá Litla-Bergi Myndin er tekin 1948
29_Gudmundur_Palsson
Guðmundur Pálsson frá Karlsminni
Ahofn_Huna1_mynd_ur_eigu_GunnarsAlbertssonar
Áhöfn Húna 1 prúðbúin á góðri stund. Aftari röð frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Gylfi Sigurðsson, Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Sitjandi frá vinstri: Gunnar Albertsson, Guðmundur Lárusson og Hákon Magnússon. Hákon og Gunnar voru meðal eigenda Húna og var Hákon farsæll skipstjóri en Gunnar var vélstjóri um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún kemur úr safni Gunnars Albertssonar.
21_Gudm_Rafnss_og_Knutur_Benrdsen
Guðmundur Rafnsson og Knútur Berndsen við járnavinnu við karaslippinn neðan við Bjarmanes
31_Stulka_med_brudu
Lítil óþekkt stúlka með brúðuna sína sitjandi á tröppum gömlu kirkjunnar á Skagaströnd.
4_Ovedur_ca_80-90_AJ_Berndsen
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Brimið gengur yfir hafnargarðinn (Útgarð).
Huni_HU1_2_SM

Vitjað um net á Húna Hu 1. Maðurinn á rúllunni er Gunnlaugur Árnason.

36_Þura_Litla_Bergi_1947
Þuríður á Litla-bergi, 1947
28_Bjarnina_ Litla_Bergi_1945
Bjarnina á Litla-bergi, 1945
Þórður001
Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd á skátamóti á bökkum Fnjóskár. Stúlkurnar á myndinni eru Hrefna Hjálmarsdóttir frá Akureyri og Svala Hermannsdóttir frá Húsavík.
HuniHU1_a_linu_a_Skagastrond_SM
Húni Hu1 kemur með góðan afla úr línuróðri.
32_Litla-Berg_1945
Litla-berg 1945
1
2
3
4
5

167
Leita í myndasafninu
Leita