Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
fram007
Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum til vinstri, þáverandi formaður USAH, afhendir Kristni Guðmundssyni umf Fram verðlaunabikar.Sennilega var Kristinn íþróttamaður ársins hjá USAH. Hvenær myndin var tekin er óþekkt en ef þú veist það vinsamlegast sendu okkur þá arhugasemd.
Jón113
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Skúli Tómas Hjartarson (til vinstri) og Viggó Magnússon sýna töffarklæðnað anno 1986.
Image179

Fremst á myndinni er Karlskáli með hvítan skúr við hliðina, Lækur lengra frá en Jaðar lengra frá sjónum. Lengst til vinstri sést í hornið á Efri læk. Til hægri við Læk er Læjarbakki og síðan Karlsminni. Myndin var tekin fyrir 1940.

Jón071
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) flytur ræðu við vígslu dráttarbrautarinnar 1985.
fram129
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd . 100m hlaup kvenna.
Mundi287
Á skemmtun í Tunnunni. Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri og Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) keppa í því að vefja tvær stúlkur inn í klósettpappír. Sá sem fyrr kláraði af rúllunni hjá sér vann.
fram092

Verðlaunahafarnir á myndinni eru: Garðar Geirfinnsson lengst til vinstri, Albert Ingi Haraldson er lengst til hægri en þriðji frá hægri er Eyþór Kári Egilsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Jón055
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Börnin voru spennt fyrir sandkastalakeppni sem var haldin á hátíðinni.
fram006
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Frá vinstri: Halldór Hermannsson, óþekktur, Birna Sveinsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
fram065
Héraðsmót USAH í sundi 1977. 100m bringusund. 1. sæti Þórður Daði Njálsson, 2. sæti Kári ??, 3. sæti Torfi ??.
Jón082
Sjómannadagur 1985. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom í heimsókn og var til sýnis fyrir fólk.
img121
Þetta eru amerískir hermenn uppi á Höfða. Luis læknir tók myndina og sendi hana svo til Carls Berndsen (eldri) eftir að hann var kominn aftur til Ameriku.
Mundi262
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003)spilar á hamóniku fyrir fullu húsi í Tunnunni á einhverri skemmtun þar.
Mundi303
Herra Pétur Sigurgeirsson (d. 4.6.2010) biskup við vinnu sína.
fram058
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Vinningssveit umf Fram í 4x25m boðsundi. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Helga Ottósdóttir, Díana Kristjánsdóttir og Lára Guðmundsdóttir.
Jón002
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna á sjómannadegi 1983.
fram120
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Margrét? stekkur langstökk.
Jón031
Ólafur Magnússon Hu 54 kemur úr róðri
Jón098
Snjór á Bogabraut
fram014
Laárus Ægir Guðmundsson þakkar fyrir sig eftir að hafa fengið íþróttabikar á samkomu USAH í félgasheimilinu á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
fram042
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir kastar kúlu, Guðbjörg Gylfadóttir með málbandið og Jensína Lýðsdóttir, í hvítri úlpu, fylgist með. Aðrir eru óþekktir.
fram083

Ásdís Lýðsdóttir er lengst til vinstri, Karen Peta Karlsdóttir í miðjunni og Þóra Lísbet Gestsdóttir til hægri.

Image104_2
Á þessari mynd er verið að undirbúa að renna keri á flot úr slippnum neðan við Gamla skólann (Bjarmanes) Myndin er sennilega tekin einhverntíma árunum 1935 - 1940.
fram130
Héraðsmót USAH 1977. 400m hlaup. Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Kristinn Guðmundsson til hægri.
Jón057
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Hópreið niður Hólabrautina.
img122
Ernst Berndsen frá Karlsskála, hafnarvörður, lóðs, kaupmaður o.fl.
fram076

Verðlaunaafhending á íþróttamóti á Bakkakotsvelli 1999. Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir umf. Fram er lengst til vinstri, Erla Rut Valsdóttir umf. Geisla er á efsta palli og Sigurbjörg Ólafsdóttir umf. Hvöt lengst til hægri.

Óþekkt097
Skagastrandarhöfn þ.e. Skúffugarðurinn með Smágarði á góðum degi snemmsumars.
mundi359
Myndin er tekin upp Fellsbraut. Húsið lengst til vinstri er Herðubreið eða Fellsbraut 1. Ekki er búið að byggja Fellsbraut 3, en Fellsbraut 5 er ómálaða húsið til hægri. Spariklæddi maðurinn á myndinni er óþekktur en hann heldur á pípuhattinum sínum.
Jón058
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á tónleikum eða balli í skólanum. Lengst til vinstri er er líklega Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) á gítar. Trommarinn er Ingvar Þór Jónsson og söngkonan er Þorbjörg Eðvarðsdóttir. Gítarleikarinn lengst til hægri er Viggó Magnússon.
fram136
Héraðsmót USAH 1977 á Skagaströnd. Ingibergur Guðmundsson keppir í kringlukasti.
fram017
Lárus Ægir Guðmundsson og Magnús Ólafsson takast í hendur á USAH þingi í Fellsborg. Guðmundur Haukur Sigurðsson í forgrunni.
Jón101

Hér hefur ljósmyndarinn, Jón Jónsson (d.9.7.1991), verið ötull við að gefa smáfuglunum, eins og hann var reyndar vanur, á skaflinn fyrir utan húsið sitt, Asparlund .

Mundi241
Myndin er frá dansleik í Tunnunni en ártalið er óþekkt. Fremst á myndinni eru, frá vinstri: Áslaug Torfadótti, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Herbert Ólafsson (d.25.4.3007) Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996), Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) og Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001). Fyrir aftan Önnu og Herbert eru hjónin Högni Jensson og Ragna Friðriksdóttir (d.5.2.1981). Milli Þórbjörns og Guðmundu er Svana Fossdal (d.31.3.2002).
Image101
Skipafloti, sennilega aðallega síldarfloti, á höfninni á Skagatrönd einhverntíma kringum 1940. Bágborin hafnaraðstaða gerði það að verkum að bátarnir þurftu að liggja fyrir akkeri úti á legunni í skjóli af Höfðanum.
Mundi259
Fullt hús í Húnaveri. Tilefnið óþekkt.
fram027

Hér eru stoltir ungir menn að fá verðlaun fyrir boðhlaup. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Arnarson, Hrólfur Pétursson, óþekktur, Hilmar Pétur Valgarðsson, Björn Þormóður Björnsson og Hilmar Frímannsson.

fram115
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. 60m stelpna. Birna Sveinsdóttir umf. Fram lengst til hægri.
Jón034
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54. Drengurinn við hlið hans er Ingvi Sveinn Eðvarðsson en drengurinn í tröppunum er Höskuldur Bragason.
Mundi260
Gamla Hólaneskirkjan, til vinstri sést í Ásgarð og Herðubreið. Til hægri eru Stóra Berg og Iðavellir en fyrir miðri mynd eru Fellsbraut 4 til vinstri og Litla Berg til hægri.
Jón090
Efsti hluti Bogabrautar 1984. Sunnuhlíð (hvítmáluð) með tilheyrandi útihúsum stendur enn þegar myndin var tekin. Sunnuhlíð er nú horfin og búið að byggja nýtt hús á lóðinni.
Jón032
Ólafur Magnússon Hu 54 á leið heim úr róðri.
fram063
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Stigahæst kvenna. Unnur Hreinsdóttir
Mundi304
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup (d. 4.6.2010).
Mundi273
Gígja Snædal
Jón061
Skagaströnd veturinn 1983
Jón105
Hér er óþekktur jólasveinn á ferð með jólapóstinn fyrir jólin 1989. Sunnuhlíð, nú Bogabraut 19, í baksýn.
Jón085
Leikskólabörn úr leikskólanum Barnaból á ferð með Kristínu Kristmundsdóttur og Báru Þorvaldsdóttur árið 1985. Börnin eru óþekkt. Rauða húsið í baksýn var Sæborg, sem nú er horfið. Dvalarheimilið á Skagaströnd var nefnt eftir þessu húsi.
img003
Horft upp Fellsbraut í átt að gömlu kirkjunni. Stóra Berg er hægra megin við kirkjuna. Myndin var tekin einhverntíma snemma á áttunda áratugnum.
Mundi276
Gígja Snædal, bróðurdóttir Guðmundar ljósmyndara þessarar myndar
Jón060
Guðbjörg HU 31 var í eigu Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) og Eðvarðs Ingvasonar (d.29.5.2011). Þennan bát kom Sigurður Guðmonsson (Siggi Mona) (d.5.8.1981) með til Skagastrandar fyrst. Við enda Skúffugarðsins í baksýn sést grindverk sem smíðað var ofan á dýpkunarpramma sem var sökkt í vestur við Skúffugarðinn til að mynda skjól fyrir bátana við garðinn. Pramminn var seinna tekinn upp og fluttur inn á Blönduós í hafnargerð þar. Í staðinn var settur grjótgarður á sama stað við Skúffugarðinn.
fram107
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Hluti af mótssvæðinu.
Mundi292
Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994) og Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) í hlutverkum sínum á sviðinu í Tunnunni
Jón069
Vígsla dráttarbrautarinnar 1985 dróg að sér marga gesti
Jón067
Við vígslu dráttarbrautarinnar 1985. Sigfús Jónsson sveitarstjóri, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) alþingismaður og Lárus Ægir Guðmundsson. Baksvipur á Adolf Berndsen (d.27.8.2018) oddvita. Arnarborgin í slippnum.
Mundi300
Ekki er vitað hverjir þetta eru. Eina sem vitað er um myndina er að hún var tekin 1962. Ef þú veist hverjir eru á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Mundi313
Ferming 1961 í Hofskirkju. Fermingarbörnin eru Sigríður Björk Karlsdóttir frá Víkum og Benedikt Jónsson (d.25.2.1999) frá Höfnum.
fram111
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram kastar kúlu.
Mundi265
Þarna er Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) póstur og ljósmyndari. Hann stendur á rústum bæjarhúsanna á Vesturá í Laxárdal þar sem hann ólst upp fyrstu árin.
fram091

Óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

1

9
10
11

167
Leita í myndasafninu
Leita