Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 632
Gripur nr. 632. Talsími - "skífusími". Drappaður með númeraskífu framan á. Skífan er rauð í miðjunni með tölustöfum í hring bæði á skífunni sjálfri og á plötunni undir henni. Símanúmerið 22704 er í litlu hólfu framan á símanum.
Guðmundur Guðnason 2 469
Sófus Guðmundsson (d. 2.8.1991) frá Skrapatungu.
Skagaströnd - safn416
Í áratugi var litla sundlaugin á Skagaströnd bara opin á sumrin en með tilkomu hitaveitunnar er hún nú opin allt árið. Hún var venjulega opnuð í byrjun maí því þá var skólasund í 2-3 vikur. Þessi mynd var tekin í byrjun maí 1995 en þá var sundlaugin mikið meira en full af snjó. Gripið var til þess ráðs að moka snjónum úr lauginni með gröfu og handskóflum en allra síðasti snjórinn var bræddur með því að úða vatni yfir hann. Sundkennslan hófst örlítið síðar en ætlað var en nemendur Höfðaskóla fengu sína sundkennslu þetta vorið eins og áður.
Guðmundur Guðnason 2 442
Systurnar Margrét Guðlaugsdóttir og Sigrún Guðlaugsdóttir frá Mjóadal.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn051
Díana Kristjánsdóttir gerir sig klára fyrir að fara inn á sviðið í Fellsborg og leika hlutverk sitt í: Er þetta ekki mitt líf?, sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið 1983 undir leikstjórn Guðjóns Sigurvaldasonar. Í baksýn sér í Vilmund Árnason sem einnig lék í verkinu.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
Minjasafn 555
Gripur nr. 555. Lítil trekt úr blikki.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn143
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu af Guðmundi Hauk Sigurðssyni í hlutverki sínu. Í baksýn eru, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, óþekkt og Elín Njálsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 394
Aðalheiður Másdóttir frá Réttarholti.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn090
Þessir tveir menn störfuðu lengi hjá síldarverksmiðju ríkisins á Skagaströnd. Þeir eru Jón Kristinsson (d. ?) til vinstri og Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) til hægri. Á myndinni standa þeir utan við verksmiðjuna á Skagaströnd.
Minjasafn 621
Gripur nr. 621. Dagatal af árinu 1987. Kínverskur stíll er á dagatalinu og á því er falleg útsaumuð mynd. Dagatalið er frá Asiaco hf.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn191
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Einar Helgason sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 252
Gripur nr. 252. Kertastjaki úr leir. Keilulagaður með þremur örmum. Blágrænn á lit með gulum röndum á börmum og einnig á stjakanum. Kom úr dóti úr búi Ólafs Guðmundssonar frá Brautarholti þegar hús hans var rifið.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn222
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem lék í nokkrum sýningum Leikklúbbsins auk þess að leikstýra leikritinu: Allra meina bót fyrir Leikkklúbbinn leikárið 1976 - 1977. Bernódus starfaði líka áður mikið með Leikfélagi Skagastrandar meðan það var og hét.
Minjasafn 227
Gripur nr. 227. Stytta af Maríu mey. María er í hvítum kyrtli með bláu bandi. Hún heldur saman höndunum og er með kross-hálsfesti (talnaband?) á öðrum handleggnum. Styttan var keypt í verslun Sigurðar Sölvasonar á Skagaströnd. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í ágúst 1992.
Minjasafn 407
Gripur nr. 407. Loftljósaskermur af gamla laginu. Ferningslagað, glært gler með upphleyptu munstri. Skermurinn var skrúfaður á perustæðið.
Guðmundur Guðnason 2 387
Kirkjugestir við Ábæjarkirkju í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn6
Gripur nr.6. Nærskyrta úr hvítu lérsfti. Saumuð með tungum í hálsmál og handvegi. Munstur með enskum og frönskum saum á brjóst. Merkt B.G.. Hneppt á öxlum. Unnið Af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn062
Dagbjört Jóhannsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar.
Minjasafn 147
Gripur nr. 147. Tappar úr plasti, rauðir fyrir flöskur. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Minjasafn 156 no2
Gripur nr. 156. Borð, lítið 56 cm á lengd, 31 cm breitt og 48 cm á hæð. Fætur bogadregnar og lítil hilla undir. Dökk brúnt með gulum rákum. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 121
Gripur nr. 121. Veggsími í brúnum viðarkassa, tvær bjöllur framan á og statíf fyrir til dæmis blöð. Tegund Ericson. Hæð símans er 40 cm, breidd 24 cm og þykkt 15 cm. Gefandi: Þorvaldur Skaftason Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn204
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Rosemary Angus sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins sem tónlistarmaður á sínum tíma.
Minjasafn 136
Gripur nr. 136. Gamall hengilás (Sul) 5 cm breiður og 4 cm á hæð. Hefur verið svartur en málningin farin að mást af. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Guðmundur Guðnason 2 415
Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurður Jónsson. Líklega var þessi mynd tekin af þeim félögum við Merkigil í Skagafirði á leið til messu í Ábæjarkirkju en þangað sóttu þeir saman árlega í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Sigurður Bjarnason - safn 033
Ingólfur Skagfjörð Bjarnason (d. 17.1.1967) frá Bjargi á Skagaströnd.
Minjasafn 260
Gripur nr. 260. Kökudiskur, hvítur með eyrum. Með bleikum rósum, einni stórri og tveimur litlum á börmum. Annað eyrað er brotið af. Þvermáll disksins er 25 cm. Þennan disk átti Magðalena Helgadóttir Efri-Læk, Skagaströnd dáin 1954.
Minjasafn 291
Gripur nr. 291. Hluti af kaffikvörn. Var notuð til að mala brenndar kaffibaunir í kaffiduft sem síðan var hellt upp á.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn223
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Óskar Þór Óskarsson sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 536
Gripur nr. 536. Lítill pappakassi sem geymir nokkra steina. Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti, Skagaströnd
Skagaströnd - safn 330
Haustið 2003 kom forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til Skagastrandar ásamt fylgiliði. Meðal annars leit hann við í Höfðaskóla við miklar vinsældir nemenda og starfsfólks þar. Á þessari mynd hlíðir forsetinn á söng skólabarna í íþróttahúsinu ásamt fylgdarliði sínu. Frá vinstri: Hrefna Teitsdóttir sýslumannsfrú á Blönduósi, Dorrit Moussaief forsetafrú, Ragna Þórhallsdóttir forsetaritari, herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslenska lýðveldisins og óþekkt kona.
Minjasafn 396
Gripur nr. 396. Tvö stykki netanálar límdar saman með límbandi.
Minjasafn 29
Gripur nr. 29. Gleráhald/ílát. Ekki vitað til hvers þetta var notað en mögulega var það til að koma lyfjum í skepnur því það var í sama kassa og mortel (gripur nr. 15) sem notað var til að gera meðöl fyrir skepnur. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn 99 no2
Gripur nr. 99. Áldunkur sem hefur líklega verið notaður undir smábrauð og /eða kökur. Á lokið hefur einhver skrifað "Svanakex".
Leikklúbbur Skagastrandar - safn231
<p>Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallgrím Oddsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.</p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 423
Reglulega þarf að dýpka höfnina á Skagaströnd vegna sandburðar inn í hana. Á þessari mynd er verið að draga fullan sandpramma út á rúmsjó til að hleypa úr honum sandinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn735
Þrír ungir drengir á árabát vestan við uppfyllinguna frá Einbúanum út í Spákonufellsey. Í baksýn til hægri sér í talíu á þrífæti sem notuð var til að færa til grjót í uppfyllingunni undir bryggjuna. Myndin var sennilega tekina 1934 eða 1935 þegar hafnarframkvæmdir stóðu sem hæst. Drengirnir eru Theódór Ólafsson, Jörgen Berndsen og Steinþór Ólafsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Minjasafn 300
Gripur nr. 300. Dúkur, ílangur, útsaumaður í hvítt léreft, með hvítri blúndu utan um, 90 cm langur og 27 cm breiður. Ísaumuð mynd af stúlku með blómvönd á sinn hvorn enda. Á miðjum dúk er blómahringur saumaður með kontorsting. Dúkurinn var saumaður af gefanda. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í maí 1982.
Minjasafn 493
Gripur nr. 493. Vasi, stór og fallegur úr leir. Vasinn er grár og hvítur á litinn með grófa áferð að utan. Stór handföng sitt hvoru megin.
Minjasafn 352
Gripur nr. 352. Hald. Lítið hald/handfang, gult.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn055
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af aðalleikara sýningarinnar Magnúsi B. Jónssyni en hann lék lamaðan mann sem var að berjast við kerfið um að fá að deyja.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn019
Þessi mynd var tekin á vorsýningu Höfðaskóla á hluta af verkum nemenda þann veturinn. Á slíkum sýningum voru sýndir smíðisgripir, hannyrðir og teikningar eftir nemendurna. Lengst til vinstri á myndinni er Reynir Sigurðsson en stúlkan á myndinni er líklega ?Lára Guðmundsdóttir?. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn050
Árið 1983 stóð Leikklúbbur Skagastrandar fyrir "Jónasarvöku" í Fellsborg . Þar voru flutt brot úr verkum Jónasar Árnasonar í söng, tali og leik. Jónas sjálfur var heiðursgestur samkomunnar og tók þátt í fjöldasöng og fór með gamanmál. Á þessari mynd leiðir Jónas fjöldasöng í einum af lögum sínum. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Helga Hermannsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Ólafur Bernódusson, Jónas Árnason, Guðbjörg Viggósdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Guðný Sigurðardóttir Magnús B. Jónsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Skagaströnd - safn354
Neyslusamfélaginu fylgir mikið af rusli. Á þessari mynd frá 1991 er verið að pressa járnarusl á brotajárnshaugunum við rætur Spákonufells. Þetta var gert með reglulegu millibili þegar haugurinn var farinn að verða of umfangsmikill. Pressað járnið var síðan sett í skip og flutt út í endurvinnslu. Mennirnir á myndinni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Rúnar Jóhannsson þáverandi starfsmaður Höfðahrepps að fylgjast með framkvæmdunum. Maðurinn á krananum er óþekktur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn084
<p>Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd sem tekin var á sýningu eru frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Steindór Haraldsson. </p><p><br></p>
Minjasafn 287
Gripur nr. 287. Pressutunga. Járnstykki sem sett var inn í straubolta en járnið var hitað á eldi og er mjög þungt. 20 cm langt 4 cm breitt og 6 cm þykkt. Er úr búi Stefáns Stefánssonar Ytri-Ey Vindhælishreppi. Gefandi: Stefán Stefánsson ytri -Ey.
Minjasafn 309
Gripur nr. 309. Tréplatti notaður þegar verið var að saga út smástykki. Lengd 16 cm, breidd 16 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir, Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Magnús B Jónsson091
Anna Dúna Rúnarsdóttir hvílir sig í hestaferð 1998. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Minjasafn 281
Gripur nr. 281. Bakki úr eir. Sporöskjulagaður 35 cm langur 25 cm breiðastur. Á barminum er munstur og ígreiptar rósir á hvorri hlið. Gefandi: Bergljót Óskarsdóttir Skagaströnd í ágúst 1991.</font>
Minjasafn 565
Gripur nr. 565. Pínulítil plastkarfa sem fjögur lítil plastblóm standa upp úr. Hefur líklega verið barnaleikfang.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn104
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Helgu Hermannsdóttur sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn121
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðbjörgu Gylfadóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn130
<p>Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson og Anna Jóna Geirsdóttir.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn140
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Á þessari mynd er starfsfólkið sem kom að sýningunni án þess að leika í verkinu. Sitjandi frá vinstri: Helga Hermannsdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Kristín Björnsdóttir og Guðný Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Birna Blöndal, Árni Geir Ingvarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Vilhelm Harðarson, Kristján Blöndal og Ástmar Kári Ástmarsson.
Minjasafn 337
Gripur nr. 337. Leirskál með ígreyptum stjörnum inn í bogadregnum hringjum. Eilítið sprungin innan í. Þvermál 25 cm, hæð 11 cm. Skálin var í eigu Bjarnínu Árnadóttur Litla -Bergi, Skagaströnd. Gefandi var tengdadóttir eiganda. Gefandi: Jóhanna Thorarensen Skagaströnd 8. nóvember 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn228
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ástmar Kára Ástmarsson sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 641
Gripur nr. 641. Ljósakúpull, kúlulaga úr hvítu gleri með gulum lóðréttum línum og brotnum grænum og rauðum línum, einnig lóðréttum. Mest ummál um miðjuna en mjókkar upp og niður frá miðju.
Skagaströnd - safn401
Höfðaskóli í byggingu, unnið að því að setja þak á húsið. Ekki er vitað hvenær Guðmundur Guðnason tók þessa mynd en skólinn var vígður haustið 1958 þannig að myndin hefur verið tekin einu - tveimur árum fyrr.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn160
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri:Hendrik Berndsen, Óli Hjörvar Kristmundsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, William Sillar , tvær óþekktar, Steindór Haraldsson, Herborg Þorláksdóttir, Þorvaldur Skaftason, óþekkt, Viggó Magnússon, Jón Arnarson?, Kristín Jónsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Bergþór Gunnarsson og Sigrún Jónsdóttir. Litlu strákarnir sem sér aftan á fyrir miðri mynd eru Jónas Þorvaldsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn179
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru nokkrir af starfsmönnum sýningarinnar á æfingu. Frá vinstri: Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, Guðjón Árnason leikmyndasmiður, Árni Geir Ingvarsson ljósamaður og leikmyndasmiður og óþekktur. Myndina tók Jónas Baldursson.
1
…
99
100
101
…
167
Leita í myndasafninu
Leita